Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1991, Side 24
32
FIMMTUDAGUR 31. ÖRTÓBER 1991.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
■ Sumarbústaðir
er rétti tíminn að panta fyrir vorið,
getum þó ennþá útvegað nokkur
fyrir veturinn. Heilsárshúsin okk-
ar eru vel þekkt, vönduð og vel ein-
angruð. 10 gerðir. Þetta hús er t.d. 52
m2 og kostar fullbúið og uppsett
2.650.(XX). Teikningnar sendar að
kostnaðarlausu. Greiðslukjör.
RC & Co hf„ sími 670470.
É Bátar
„Jólin nálgast".
Talandi Bart Simpson vekjaraklukka.
Vekur með raunverulegri rödd Barts
Simpson. Kynningarverð aðeins 2490
kr. Póstverslun, smásala, heildsala,
Öskjuhlíð hf. Sími 91-621599.
Spyrnubílar, kr. 2.085, með sírenu og
ljósum, kr. 2.955. Póstsendum.
Tómstundahúsið, sími 91-21901.
Hausttilboð.
RS 5500 GPS, hentugur í smærri báta,
hagstætt verð. Visa og Euro.
Friðrik A. Jónsson hf„ Fiskislóð 90,
sími 91-14135.
Það er þetta með
bilið milli bíia...
■ Varahlutir
■ BQar til sölu
Til sölu MMC Pajero dísil Intercooler,
stuttur, árg. ’89, ekinn 65 þús. km,
góður bíll, verð kr. 1.700 þús„ einnig
Opel Ascona Berlina, sjálfskiptur, árg.
’84, ekinn 91 þús. km, mjög góður bíll,
einn eigandi frá upphafi, verð kr. 400
þús. Upplýsingar í símum 92-12468 og
92-15131.
Brettakantar á Pajero og fleiri bila,
einnig lok á Toyota double cab skúff-
ur. Boddíplasthlutir., Grensásvegi 24,
sími 91-812030.
Blazer, árg. 1978, til sölu, góður bíll,
verð kr. 550.000, skipti á ódýrari.
Einnig til sölu MMC Colt, árg. 1981,
verð kr. 90.000. Upplýsingar í síma
91-78193 eftir kl. 18.
GMC Jimmy S-15 ’85 til sölu, tvílitur
brúnn/gullsans, sjálfskiptur, vökva-
stýri, álfelgur. bíll í toppstandi. Fæst
á góðum kjörum eða með góðum stað-
greiðsluafsl. Uppl. hjá Bílasölu
Reykjavíkur í síma 678888.
Subaru station 1800 GL, árg. 1988,
til sölu, ekinn aðeins 48 þúsund km,
sjálfskiptur, vökvastýri, centrallæs-
ingar, útvarp/segulband o.fl.
Ath„ einn eigandi, reyklaus. Upplýs-
ingar í síma 91-680159 eftir kl. 19.
Range Rover '87 til sölu, ekinn 47 þús.
Uppl. í síma 96-23068 kl. 18-21.
Toyota Xtra Cab DLX, árg. ’85, 5 manna,
33" ný radialdekk, álfelgur, gullfall-
egur bíll. Skipti á ódýrari. Uppl. í síma
92-11190.
Daihatsu Charade '88 til sölu. Ekinn 60
þús„ blár, beinskiptur, 4 gíra,. Verð
500 þús. Staðgr. ath. Uppl. í síma 37085
á kvöldin og s. 92-68555 á daginn.
Toyola Tercel, arg. '87. lil solu, skoðað-
ur ’92, verð aðeins kr. 660.000. Upplýs-
ingar í síma 91-43457 eftir kl. 17.
■ Sport
Pajero Wagon, árgeró ’88, dökkblár,
gullfallegur bíll, 5 gíra, ekinn 77 þús-
und km, 31" dekk, útvarp, segulband,
nýlega yfirfarinn og með ’92 skoðun.
Verð kr. 1.850.000, skipti á ódýrari,
t.d. station-bíl. Aðrar upplýsingar í
síma 91-685870 eða 624205 á kvöldin.
iRAiir
■ mcnoss
KLUBBURINN
Rallycrossæfingakeppni verður haldin
á brautinni við Krísuvíkurveg sunnu-
daginn 3. nóvember. Mæting kl. 10.
Keppni hefst kl. 14. Aðgangseyrir
400 kr. Skráning verður fimmtudaginn
31. okt. frá kl. 20-22 í félagsheimilinu
Bíldshöfða 14.
Góða skemmtun.
Meiming____________________________pv
Muggur vors
ogblóma
- lokadagar sýningar 1 Listasafni í slands
Nú fer hver að veröa síðastur til að sjá sýningu Listasafns íslands á
verkum Guömundar Thorsteinssonar, Muggs, en henni lýkur á sunnu-
dag. Sýningin var sett upp í tilefni af því að nú eru hundrað ár liðin frá
fæðingu þessa „fyrsta húmorista íslenskrar myndlistar" eins og Björn
Th. Björnsson nefndi hann í bók sinni. Önnur bók um Mugg var gefm út
í tilefni af þessari sýningu. Þar er farin sú leið að greina list hans í þrjá
flokka og er það að mörgu leyti réttlætanlegt. Þótt Júlíana Gottskálksdótt-
ir bendi réttilega á það að fyrsti flokkurinn, sem tekur yfir þjóðsagna-
og ævintýrateikningar sé vafalítið merkasta og viðamesta framlag Muggs
til íslenskrar myndlistar.
Úti er ævintýri
Sérstaða Guðmundar Thorsteinssonar í hérlendum myndlistarheimi
fyrrastríðsáranna er ekki hvað síst fólginn í kímninni, sem mörgum hef-
ur vafalaust þótt harla dönsk á þeim tíma. Enda ólst kaupmannssonurinn
Guðmundur upp við skandinavískar fagurbókmenntir, sem oft hafa verið
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
ríkulega myndskreyttar og nefnir Júlíana þar saem ábyrgðarmenn þá
Thedór Kittelsen og ívar Arosenius. Líkt og þessir höfuðteiknarar Skand-
inavíu um og fyrir aldamót, lét Guðmundur blýantinn sveiflast milli
glettni og angurværðar í ævintýramyndum sínum. Og líkt og Ásgrímur
Jónsson teiknar hann tröll, en á allt öðrum og galsafengnari forsendum.
Tröll Ásgríms eru ógnvekjandi eins og óútreiknanleg náttúruöflin en tröll
Guðmundar í myndskreytingum viö söguna af Búkollu eru fremur klaufa-
leg og lítil ógnun við sallarólegan smaladrenginn.
Fólk í gleði og sorg
Á sýningunni eru verk sem orkar tvímælis hvort eigi að telja til ævin-
týraflokksins eða þess næsta sem tvímælis hvort eigi að telja til ævintýra-
flokksins eða þess næsta sem Hrafnhildur Schram íjallar um; Maðurinn
og umhverfi hans. Þar má nefna sílúetturöðina „Tre yndige Smaapiger
sad i en Have“. Þessar klippimyndir, sem Guðmundur var afar leikinn í
að útfæra má með nokkrum fyrirvara nefna fyrstu íslensku myndasög:
una. Þessa fjögurra mynda röð gerði Guðmundur árið 1920, einmitt um
þaö leyti sem dagblöð í Evrópu hófu reglulega birtingu myndasagna.
Annars teljast margvísleg verk til ofangreinds flokks og sum hver býsna
ólík því sem helst er talið með Muggsblæ. Þar á meðal eru olíukrítar- og
vatnslitamyndir frá heimsborginni New York sem hafa ekki yflr sér sama
innileikann og t.d. „gjenturnar" frá Sætersdal eða síldarstemmningarnar
frá Siglufirði. En galsa sumarsins fylgdi vetrardrungi og spænska veikin
1918-1919 hjó stórt skarð í fjölskyldu Guðmundar. Frá þeim tíma er t.d.
„Kolaburður í Reykjavík", en þar blandast þungbær sorg eins og ósjálf-
rátt vinnuþunganum.
Trúarleg verk
í kjölfar þungra áfalla tók Muggur að hneigjast meir að trúarlegri
myndgerð. Þar hlýtur að teljast merkust altaristaflan „Kristur læknar
sjúka“, sem hefur staðiö uppi í Bessastaðakirkju, en er eign Listasafns-
ins. Bera Nordal skrifar um tilurð þeirrar myndar og af því má ráða aö
Guðmundur hafi litið á hana sem sitt mikilvægasta verk og prófstein á
getu sína í málaralist. Meðgangan tók heil fimm ár og e.t.v. má þakka
það gljápappírsleysi ítala að verkið kom í heiminn fullskapað, en ekki
einungis í skyssuformif!) En efniviður á borð við gljápappírinn og annað
fóndurkyns, s.s. taubúta, bendir á hinn bóginn glögglega til þess aö Mugg-
ur hafi síður en svo gertsér grillur um sjálfan sig sem forframaðan lista-
mann. í bók Listasafns íslands og á sýningu þess kemur einmitt skýrt í
ljós hve hann hefur verið fordómalaus og fullur hluttekningar með hinu
smáa í kringum sig. Af því gætu margir lært.
NAFN BRÚÐHJÓNA:
Þessar upplýsingar verða birtar í DV á fimmtudegi fyrir
brúðkaupið og þurfa að berast í síðasta lagi á þriðjudegi.
KENNITALA: HÚN 1 1_1111_ 1 1_!_!_L HANN 111111-11111
HEIMILISFANG/ SÍMI_________________________________
VÍGSLUSTAÐUR_____________
DAGUR/TÍMI_______________
BORGARALEG VlGSLA/PRESTUR
NÖFN FORELDRA____________
SENDIST TIL
ÞVERHOLTI 11, 105 REYKJAVÍK.
SJÁUMST
MBJENDURSKM
RÁÐ
Já... en ég nota nú
yfirleitt beltið!