Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1991.
Utlönd
Nýjatann-
kremidreyndist
hættulegt
Alsírbúar, sera hafa keypt nýja
tegund af innlendu tannkremi,
hafa verið varaðir viö að nota
það. í skærbláu túpunum er
nefnilega ekki tannkrem heldur
háreyðingarkrem.
Apótekarar og almenningur
hafa verið beðnir um að skila
tannkremstúpunum hið snar-
asta, að sögn fréttastofúnnar
APS
Rifistútyfirgröf
ogdauda
Fjölskyldurifrildi á Englandi,
sem náði alla leið ofan í gröfina,
verður til lykta leitt á næstunni.
Með uppgrefti líks.
Ekkjan Diane Richards sagði
að eiginmaöurinn hennar sáiugi,
hann Albert, hefðí fyrirlitið Alf-
red, stjúpa sinn. Þeir hvíla í sömu
gröf en Díane hefur fengið leyfi
til að grafa Alfred upp og flytja
hann,
Hún segir að miklu fargi verði
af sér létt og segist vera handviss
um að Albert muni vel iika flutn-
ingurstjúpansínýjagröf. Reuter
GULL- & SILFURSMIÐIR
SKIPHOLTI 3, S. 20775
Opið 10-18, laugardaga 10-14
„Veggur í dós"
Nýja linan - frábært - einfalt
Fibrite er efni á veggi og ioft innan-
húss. Fibrite kemur i staðinn fyrir t.d.
málningu. hraun. fínpússningu. vegg-
fóður, striga og margt fleira. Fibritör-
erna veita ráðleggingar og gera verðtil-
bo*' bér að kostnaðarlausu.
Sími: 985-35107
45107 - 675980
RNA
Álftröð 1
200 Kópavogui-
m W
Konfekt
Sími: 91-41760
Talaðu viðokkurum
BÍLASPRAUTUN
BÍLARÉTTINGAR
Á geisladisk
og snældu
Rokksöngvarinn Freddie
Mercury látinn úr eyðni
Freddie Mercury, söngvari hljómsveitarinnar Queen, lést í gærkvöldi úr
eyöni skömmu eftir að hann viðurkenndi að vera sýktur af eyðniveirunni.
Símamynd Reuter
Freddie Mercury, söngvari bresku
rokkhljómsveitarinnar Queen, lést
seint í gærkvöldi úr eyðni. Fregnir
af dauða hans komu mjög á óvart því
aðeins voru liðnir fáir dagar frá því
hann viðurkenndi opinberlega að
vera með eyðni. Enginn átti von á
að Mercury væri að dauöa kominn
þótt sögur heföu lengi gengið um að
hann væri sýktur.
Það var lungnabólga sem dró
söngvarann til dauða en ekki tókst
aö ráöa niðurlögum sjúkdómsins
vegna eyðnisýkingarinnar. Blaöa-
fulltrúi Mercury sagði að hann hefði
fengið hægt andlát á heimili sínu í
Kensington í Lundúnum.
Freddie Mercury var ein litríkasta
stjaman í bresku rokki. Hann var
45 ára þegar hann lést og hafði verið
í sviðsljósinu í nær aldaríjórðung. Á
þeim ferli söng hann mörg af fræg-
ustu rokklögum sögunnar.
Freddie Mercury var hommi og fór
aldrei leynt meö kynhneigðir sínar.
Undanfarið hafa birst myndir af hon-
um í blöðum þar sem berlega kemur
í ljós að eyðnin hefur leikið hann
grátt. Hann kom síðast fram fyrir 18
mánuðum og tók þá á móti verðlaun-
um. Seinast fór hann í söngferðalag
með hljómsveit sinni árið 1986.
Hnan var fæddur á Zanzibar í
Tanzaníu árið 1946, sonur bresks rík-
isstarfmanns. Hljómsveitina Queen
stofnaði hann ásamt þremur félögum
sínum árið 1971 en fyrsta platan kom
út árið 1973. Queen var meö fyrstu
hljómsveitum til að gera myndbönd
með lögum sínum.
Reuter
Dýrt sturtað
niður
Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfii:
Hjónahandserjur leiddu til þess
hér á dögunum að dýrasta niö-
ursturtun ársins 1991 átti sér staö
i einum af útbæjum Kaupmanna-
hafiiar. Hringt var i klóakhreins-
unardeild hverfisins og spurt
hvort möguleiki væri á því að ná
í hluti sem sturtað hafði verið
niður gegnum klósettið.
Þegar hreinsunardeildin spurði
hvaö um væri að ræða sagði
maðurinn að 21 þúsund dönskum
krónum eða 200 þúsundum ís-
lenskum hefði verið sturtað nið-
ur. Hreinsunardeildin fór um-
svifalaust að leita fjársjóðsins en
hafði ekki erindi sem erfiði.
Þegar öll kurl voru komin til
grafár upplýstist að hjónin höiðu
farið að rifast yfir því hvað gera
skyldi við peningana. Þegar rifr-
ildið stóð sem hæst greip frúin
seðlabúntið, reif það í tætlur,
henti í klósettið og sturtaði niður.
Ástæða rifrildisins var þar með
úr sögunni, enda þótt hætt sé við
að eitthvað kunni að ganga á hjá
þeim hjónum þegar atburöurinn
kemst næst á dagskrá.
Svartahöndin
drepurtólf
Útlagahópur 1 Kólumhiu, sem
nefndur er Svarta höndin, skaut
tólf manns til bana í borginni
Matyanza á laugardag, þar á
meðal fátæklinga,.fikniefnaneyt-
endur og vændiskonur.
Morðin eru hluti herferðar
hópsins gegn þeim öflum þjóöfé-
lagsins sem hann er andsnúinn.
Reuter
▲
TjTIIL
&
1+
O;
<S
*ylv
Veistu aó þriðja hver fjölskylda í land-
inu á um sárt að binda af völdum
áfengisneyslu einhvers eða einhverra
í fjölskyldunni?
Veistu að áfengisneysla hefur aukist
um 17-20% með tilkomu bjórsins?
Veistu hve mörg börn og unglingar
verða að öllum líkindum fórnarlömb
áfengis næstu árin?
Er ekki tímabært að staldra við og at-
huga sinn gang, barnanna vegna?
Bindindisdagur fjölskyldunnar — ekki
bara í dag.
Samstarfsnefnd um Bindindisdag fjölskyldunnar.