Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1991. Útlönd Belgía: Kjósendur sneru baki við hefðbundnum flokkum Öngþveiti ríkti í belgískum stjórnmálum eftir að kjósendur sneru baki við hefðbundnum flokkum í þingkosningum í land- inu í gær og kusu öfgasinnaðan hægriflokk sem er andsnúinn innflytjendum og umhverfis- sinna i mómælaskyni. Wilfred Martens, fráfarandí forsætisráðherra stjómarinnar sem féll í síöasta mánuði, sagði að erfitt mundi reynast að mynda stjórn sem hefði tvo þriöju hluta þingsins á bak við sig til að koma i gegn stjórnarskrárendurbótum sem lofað hafði verið. „Þetta er mjög alvarlegt mál. Þaö sýnir að kjósendur hafa enga trú á stjórnmálamönnum,“ sagði hann við fréttamenn. Þó svo aö fráfarandi stjórn Martens virtist ætla að halda meirihlutastyrk sínum í þinginu þar sem 212 menn sitja töpuðu nær aflir hefðbundnir flokkar fylgi í kosningunum. Þegar þrír fjóröu hlutar at- kvæða höfðu verið taldir höfðu umhverfissinnar fengið tíu pró- sent og í Flanders stefndi allt í að öfgaflokkur til hægri fengi tólf þingsæti. Sá flokkur fékk tvo þingmenn 1987. Kosningaskylda er í Belgíu en sjö prósent kjósenda eyðilögðu atkvæðaseðla sína á kjörstað. Reuter Herinn er enn í sókn m Júgóslavneskir sambandshermenn bera skjöl og peninga úr rústum pósthúss í Vukovar sem sambandsherinn náði á sitt vald í síðustu viku. Símamynd Reuter Franjo Tudjman, forseti Króatíu, sakaði júgóslavneska sambandsher- inn um að blása til nýrrar sóknar í lýðveldinu á sama tíma og nýjasta vopnahléið átti að ganga í gildi. Tudjman sagði í harðorðri sjón- varpsræðu í Zagreb, höfuðborg Króatíu, í gær að sambandsherinn, sem er undir stjórn Serba, mundi reyna að ná undir sig eins miklu króatísku landsvæði og honum væri unnt á næsta mánuði áður en friðar- gæslusveitir Sameinuðu þjóðanna koma, eins og lagt hefur verið til. Hann sagði að bardagarnir væru komnir á lokastig. Slobodan Milosevic, forseti Serbíu, Veljko Kadijevic, varnarmálaráð- herra sambandsríkisins, og Tudjman undirrituðu vopnahléssamkomulag í Genf á laugardag að undirlagi Evr- ópubandalagsins og Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt því verður hægt að senda friðargæslusveitir SÞ til Króatíu þegar bardagar hafa stöðvast. Þrátt fyrir vopnahléssamkomulag-. ið héldu bardagar áfram í Króatíu í allan gærdag. Stuttu eftir ræðu Tudj- mans, skýrði sjónvarpið í Zagreb frá því að Króötum hefði verið fyrirskip- að að stöðva bardaga kl. 17 að ís- lenskum tíma en ekki var ljóst hvort sambandsherinn hefði gefið sveitum sínum sömu fyrirmæli. Reuter FWGLEIDIR FORSALA AÐGONGUMIÐA: > ^ Reykjavíkriafejinar, Laugavegi 24, Glæsibæ, Strj og Aujíéfrstræti; Skífan, Kringlunni, Laugavegi Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Húsavík: Símí 9 Neskaupstadur: Tónspil. Selfoss: Verslunin ita 37, Mjódd, Borgarkringlunr augavegi 96 og Laugavegi 26. í62. Akureyri: KEA-Hljómdeild Akranes: Bókaskemman. ASK. ísafjördur: Hljómborg. Einnig er hægt aó panta miða ísíma 91 -677750, Gírósedi (1677750. Skrifstofa Borgarfoss hf, Shamir vill ekki f und í Washington Shamir, forsætisráðherra ísraels, vill ekki ræða við Palestínumenn í Washington um frið. Áætlað var að fundurinn hæfist þann 4. desember. Simamynd Reuter Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, hefur beðið Bandaríkjastjórn að frnna annan fundarstað etj Was- hington fyrir tvíhliða viðræður með Palestínumönnum. Viðræðurnar áttu að hefjast þann 4. desember. Palestínumenn hafa á hinn bóginn sagt að ekkert mæli á móti því að ræða við ísraelsmenn í höfuðborg Bandaríkjanna. Ákveðið var að efna til tvíhliða viðræðna ísrelsmanna og Palestínumanna eftir friðarráðstefn- una í Madríd. Ætlunin er að ræða um herteknu svæðin á fundinum en ísraelsstjórn hefur verið treg til að taka málið á dagskrá. ísraelsstjórn hefur alla tíð lagt áherslu á að friðarviðræður við Pa- lestínumenn verði að fara fram í Mið-Austurlöndum eigi á annað borð að ræða við þá. Shamir hefur lagt til að komið verði saman á Kýpur en Palestínumenn vilja halda sig við til- lögurBandaríkjamanna. Reuter Breskir íhaldsmenn: Etja Major í upp- gjör við Thatcher Stuðningsmenn Johns Major, for- sætisráðherra Bretland, vilja að hann geri upp sakirnar við Margréti Thatcher, forvera sinn í embætti. Ástæðan er að Thatcher hefur haldið uppi kröftugri andstöðu í íhalds- flokknum við stefnu Majors í Evr- ópumálunum. Þrátt fyrir deilur þeirra er þó ljóst að Major hefur meirihluta flokksins að baki sér og aöeins hörðustu and- stæðingar náinnar samvinnu við Evrópuríki fylgja ,járnfrúnni“ aö málum. Nú er Thatcher kennd við órólegu deildina í flokknum eftir að hafa sjálf stýrt honum með haröri hendi um árabil. Til þessa hefur ekki skorist í odda með henni og Major svo orð sé á gerandi en stuðningsmenn Majors segja það nauðsynlegt fyrir hann að láta sverfa til stáls svo ekki fari milli mála að valdatíma Thatcher sé end- anlega lokið. Thatcher hefur undanfarið ögrað Major og m.a. látið þau ummæli falla að hann sé hrokafullur og stefna röng. Hún vill að fram fari þjóðarat- kvæði um aðild Breta að sameigin- legum gjaldmiðli ríkja Evrópubanda- lagsins en Major sér enga ástæðu til þess. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.