Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1991. Fréttir Jónas Ragnarsson: ölluyfirá „Ég held að það sé ekki rétt mat að menn séu flytía frá Breiðdal- svík vegna sameiningar frysti- hússins þar og á Síöðvarfirði. Á hvorugum staönum var 100 pró- sent samstaða um sameininguna. Þeir sem eru á móti, og eru í minnihluta, hafa alltaf mjög hátt. Ég vil ekki kannast við að það sé rétt að öllu sé djöflað yfir á Stöðv- arfjörð," segir Jónas Ragnarsson, framkvæmdastjóri Gunnarstinds hf. - Því er haldið fram á Breiðdal- s\dk að þar tapist atvinnutæki- færi vegna sameiningar húsanna og nefna menn skrifstofustörf í því sambandi: „Það er ekki húið að leggja nið- ur skrifstofuna á Breíðdalsvík. Ég held að það sé ástæða til að skoöa eignarhlut heggja félag- anna í sameinuðu fyrirtæki áður en menn fara að útkljá það hverj- ir tapa eða græða í störfum. Það væri ekki óeðlilegt að eignarhlut- fallið réði einhverju um skiptingu starfa á milli staðanna. Nýi báturinn, Patrekur, sem keyptur var frá Odda á Patreks- firði, kemur til með að styrkja atvinnulífið á báðum stöðunum. Það eru ekki nema þrjár vikur síðan fyrirtækin voru sameinuð. Menn gefa sér þijá mánuði til þess að klára að ganga frá þessum málum. Ég held að það væri rétt að menn mætu stöðuna eftir þann tíma þegar hlutirnir hafa skýrst. Menn eru ekki aö flytja frá Breiðdalsvík vegna sameiningar fyrirtækjanna heldur af allt öðr- um orsökum. Það er ekki hægt að heimfæra flutninga fólks frá Breiðdalsvík upp á hana. Það fólk, sem hefur ákveðið að ílytja af staðnum, var búið að ákveða að fara löngu áður en fyrirtækin voru sameinuð.“ -J.Mar Flæðilínan Kanadamenn sýna áhuga Siguröux Sverrisson, DV, Akranesú Fulltrúar tveggja færeyskra fiskvinnslufyrirtækja heimsóttu Þorgeir & Ellert hf. hér á Akra- nesi nýlega með kaup á flæðilín- um í huga. Þeir ferðuðust einnig til Akureyrar og skoðuðu flæðil- ínu frá Þ&E sem sett hefur verið upp hjá Útgerðarfélagi Akur- eyringa. Fyrirspurn um flæðilín- urnar hefur einnig borist frá Kanada að sögn Haralds L. Har- aldssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Haraldur sagði í samtali við DV að hann væri bjartsýnn á að samningar tækjust við Færey- inga. Þegar hefði verið sett upp flæðilína frá fyrirtækinu þar í landi og reynslan af henni verið góð. Hann kvað viöræður við Færeyingana standa yfir og að nokkur ástæða væri til bjartsýni. Haraldur sagði mikla vinnu fyrirhggjandi í ryðfríu stáli, eink- um í tengslum við flæðilínurnar, en nú færi í hönd daufasti tími ársins í skipaviðgerðum og við- haldi. Lítið væri urn skip í við- haldi næstu vikuna en von væri á 3-4 skípum í desember. Nýttfréttablað Kristján Einarssan, DV, Selfoesi: . Sunnlenska fréttablaðið, sem gefa áút vikulega, kom útí fyrstá sinn 21. nóvember. Útgefandi er ,.Sunnan 4“ - þeir Sigurður Bogi Sævarsson, Bjami Harðarson, Gunnar Sigurgeirsson og Kjartan Jónsson. Greiðslur tryggingafélaga til lækna: Tryggingalæknir kærir til ríkisskattstjóra - í framhaldi afumQöllun DV um málið „Ég get ekki greint frá einstökum kærum sem berast embættinu. En það er ljóst að þessi mál þarf að kanna nánar," sagði Garðar Valdi- marsson ríkisskattstjóri við DV. Einn þeirra lækna, sem meta ör- orku fyrir Tryggingastofnun ríkis- ins, hefur sent embætti ríkisskatt- stjóra bréf þar sem hann beinir þeim tilmælum til embættisins að rann- sókn fari fram á greiðslum trygg- ingafélaga til lækna Tryggingastofn- unar. Er þessi kæra lögð fram í fram- haldi afumfjöllun DV um þetta mál. Eins og blaðið hefur greint frá greiddu tryggingafélögin á síðasta ári að minnsta kosti 18 miiljónir króna til lækna fyrir vinnu við ör- orkumat, útgáfu vottorða og fleira af því tagi. Langstærstur hluti þeirr- ar upphæðar fór til lækna Trygg- ingastofnunar ríkisins. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið aflaði sér, eru umræddar greiðslur í fæstum tilvikum gefnar upp til skatts enda „ætlast læknar ekki til þess að það sé gert,“ eins og deildarstjóri eins tryggingafélagsins orðaði það við DV þá. Umræddur læknir telur að allir tryggingalæknar séu settir undir sama hatt í þessum efnum. Því vill hann ekki una. Þess vegna hefur hann farið fram á ofangreinda rann- sókn. -JSS Ólafsvík: Tónlistarvakning á ári söngsins Þórhallur V. Einaxsson, DV, Ólafsvík: Mikil tónlistarvakning er í Ólafs- vík nú á ári söngsins. Nýhafnar eru æfingar hjá karlakór og á næstu dög- um hefjast æfingar hjá barnakór og þegar hefur fjöldi bama skráð sig í kórinn. Þá starfar hér þróttmikill kirkjukór eins og undanfarin ár. Þessu mikla söngstarfi í Ólafsvík stjómar Helgi E. Kristjánsson, skóla- stjóri tónlistarskólans. Þá kom Jöklakórinn saman á ný eftir nokkurt hlé á þessu ári söngsins og í honum syngja 85 manns víða að á Snæfellsnesi. Kórinn hefur haldið fimm söngskemmtanir og fréttamað- ur DV var viðstaddur söngskemmt- un í félagsheimiiinu Breiðabhki í Miklaholtshreppi. Það var ánægjuleg stund og þar barst kórnum 50 þúsund króna gjöf frá héraðsnefnd Hnapp- dælinga. Frá söngskemmtun Jöklakórsins í Miklaholtshreppi. DV-mynd ÞVE Öryggissíminn er nauðsynlegt öryggistæki, því hnappurinn tryggir að hjálp er alltaf innan seilingar. Sala - leiga - þjónusta ORYGGISSÍMINN Fyrif þig - og þá sem þér þykir vænt um VARI 'S 91-29399 ALHLIÐA-ÖRYGGISÞJÓNUSTA .......SÍÐAN.19.69.....

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.