Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1991. Fréttir Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins: Fundur sóknar og samstöðu útiloka ekki nýja ríkisstjóm á næstu mánuðum Steingrímur J. Sigfússon varaiormaður og Ólafur Ragnar Grimsson, formað- ur Alþýðubandalagsins, takast í hendur eftir kjörið á landsfundi flokksins. DV-mynd JAK „Þetta var sterkur landsfundur með mikilli samstöðu," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýöu- bandalagsins í gær eftir að 10. lands- fundi Alþýðubandalagsins lauk í fundarsal ríkisins aö Borgartúni 6, Rúgbrauðsgerðinni svonefndu. Ólaf- ur var endurkjörinn formaður flokksins, samhljóða. Hann fékk ekk- ert mótframboö og var einn í kjöri. „Það er margt sem stendur upp úr á fundinum. Auðvitað eru það mikil tíðindi að Alþýðubandalagið eignast nýja stefnuskrá, framsýna stefnu- skrá jafnaðarmannaílokks. Mér finnst mér mjög dýrmætt að flokkur- inn hafi svo einróma samþykkt þá stefnuskrá. Flokkurinn er orðinn forystuílokkur íslenskra jafnaðar- manna.“ Breiðfylking jafnaðarmanna Ólafur segir ennfremur að Alþýðu- bandalagið sé að verða breiðfylking jafnaðarmanna og félagshyggjufólks í stjórnmálum. Áberandi sé ungt og nýtt fólk. „Flokkurinn hefur farið í gegnum miklar breytingar og reynslu, glímt við erfiö verkefni og sýnt að hanií ræður við þau. Hann hikar ekki við að taka nýjar ákvarðanir." Forystan kosin í almennum kosningum framvegis Á fundinum um helgina ákvað Al- þýðubandalagið að formaður og varaformaður flokksins skuh í fram- tíðinni kosnir í almennum kosning- um allra flokksmanna á kjörstöðum í öllum byggðarlögum landsins. „Þetta eru mikil tíðindi. Alþýðu- bandalagið er fyrst allra íslenskra stjórnmálaflokka að taka þessa að- ferð upp við kjör á forystu flokksins. Stjómmálaflokkar á íslandi hafa hingað til kosið forystusveit sína mjög þröngt. Þess vegna ér þetta mikil breyting. Við stígum hér risavaxið skref í átt til lýðræðislegrar uppbyggingar stjórmálaflokka með því að breyta lögunum með þessum hætti. Ég tel að ef aðrir stjómmálaflokkar fylgdu fordæmi okkar yrði eðhsbreyting á íslenskum stjórnmálum." Ólafur ekki gagnrýndur - Ólafur, þú varst gagnrýndur af eigin flokksmönnum fyrir aö sýna of mikla hörku sem fjármálaráð- herra, til dæmis í kjarasamningum og skattamálum. Kom þessi gagnrýni fram á fundinum? „Nei, það gerði hún ekki.“ - Hvað um gagnrýni Ragnars Stef- ánssonar jarðskjálftafræðings? „Ragnar kom og flutti ræðu í upp- hafi og fór svo. Hann sást ekki meira og sat því ekki fundinn síðustu tvo dagana." - Þúhefurekkiveriðgagnrýndur? „Ekki af þessu tagi sem þú ert að nefna. Ég held nú að kjörorð fundar- ins sem var jafnframt kjörorð okkar í kosningunum: Flokkur sem getur - fólk sem þorir, hafi sýnt það að Al- þýðubandalagið þorði að taka á erflð- um og óvinsælum málum. Við þorð- um að grípa til efnahagsráðstafana haustið 1988 sem voru erflðar. Eitt af stóru einkennum þessa fundar er að Alþýðubandalagið lýsir sig reiðu- búið til að taka við landsstjórninni á ný.“ - Ert þú að segja að þátttaka Al- þýðubandalagsins í síðustu ríkis- stjórn hafi styrkt flokkinn? „Tvímælalaust. Hún var hin mikla eldskírn breytinganna fyrir flokk- inn. Hann kom standandi og sjálfsör- uggur niður. Sækir núna fram og mælist með um 20 prósent fylgi allra kjósenda. Hann er orðinn forystu- flokkur íslenskra jafnaðarmanna og safnar að sér nýju fólki í stórum stil og ætlar sér stórt hlutverk í íslensk- um stjórnmálum og er reiðubúinn nú þegar að axla þá ábyrgð sem er því samfara. Við erum reiðubúin til að mynda nýja ríkisstjórn." - Hvert er helsta baráttumál Al- þýðubandalagsins núna? „Það er lífskjarajöfnun í landinu. Ný sókn í atvinnumálum og að mynda breiða samstöðu um lands- stjórnina á þeim erfiðu tímum- sem fram undan eru.“ Ég útiloka ekki nýja ríkisstjórn á næstunni - Sérð þú fram á að núverandi rík- isstjórn springi áður en kjörtímabil- inu lýkur og að Alþýðubandalagið komist í stjórn? „Ég útiloka ekkert að undanhald, aðgerðarleysi og flótti þessarar ríkis- stjórnar geti leitt til þess á næstu mánuðum að hér verði mynduð ný ríkisstjóm. Þess vegna lýstum við því yfir á landsfundinum aö við erum reiðubúin nú þegar til viðræðna við aðra stjómmálaflokka og önnur samtök um að mynda nýja ríkis- stjórn.“ -JGH Steingrímur J. Sigfússon, varaformaður Alþýðubandalagsins: Betra samkomulag í forystu f lokksins „Fundurinn var jákvæður og kraftmikill. Það var mikil samstaða um menn og málefni," sagði Stein- grímur J. Sigfússon, varaformaður Alþýðubandalagsins. Steingrímur var endurkjörinn varaformaður lá landsfundinum um helgina. Steingrímur segir að á fundinum hafi að sínu mati nýja og nútímalega stefnuskrá flokkins boriö hæst. Þá hafi umhverfismál verið áberandi og að þeim hafi verið gefið stóraukið vægi í stefnuskrá flokksins. „I stefnuskránni eru einnig settar fram miklu nútímalegri hugmyndir um hagkerfl og sambúð markaðs og samkeppni annars vegar og félags- legra sjónarmiða hins vegar." - Þú hefur verið kenndur við svo- nefnt flokkseigendafélag innan flokksins sem hafi veriö í andstöðu viö stefnu og hugmyndir Ólafs Ragn- ars Grímssonar, formanns flokksins. Er deila þessara tveggja arma í félag- inu búinn? „Ég er ekki fulltrúi neins flokkseig- endafélags og hef aldrei verið. Þessi skilgreining var nú úrelt og vitlaus á sínum tíma og er ennþá fráleitari í dag.“ Steingrímur segir ennfremur að flokkurinn hafi styrkst eftir veru Alþýðubandalagsins í síöustu ríkis- stjórn. „Ég er sannfærður um að fundur- inn nú er haldinn í jafn jákvæöu andrúmslofti og raun ber vitni vegna þess að flokkurinn hefur styrkst. Það er betra samkomulag og meiri sam- staða í forystu flokksins. Hún endur- speglaðist í einróma kosningu okkar forystumanna hans.“ -JGH I dag mælir Dagfari___ Rassabumbusláttur Um síðustu helgi var ítarlegt viðtal í DV við nýja manninn í utanríkis- þjónustunni, Jakob Frímann Magnússon. Hann er okkar maður í London. Hefur verið ráðinn sem sérlegur fulltrúi íslenskrar menn- ingar og er þar á vegum utanríkis- ráðuneytisins, vegna þess að það fannst enginn starfsmaður í því ráðuneyti sem kann til verka. Jak- ob fannst, vegna þess að svo heppi- lega vildi til aö Jakob er í sama flokki og utanríkisráðherra og þeir hittust fyrir tilviljun á flokksfund- um, Jón Baldvin og Jakob Frí- mann, og Jakob gat sagt Jóni að ef hann vantaði mann í London sem kynni til verka, þá væri hann rétti maðurinn í það djobb. Það er auðvitað dapurleg stað- reynd ef menn eru svo andmenn- ingarlegir í utanríkisþjónustunni að það verði að ná í landsþekkta poppara til að rífa upp menninguna í útlandinu og það jafnvel þótt tug- ir manna starfi í utanríkisþjón- ustunni og hafi gert það lengi, bæði hér heima og erlendis. Eitthvað hafa diplómatamir verið að agnú- ast út í þessa ráðningu Jakobs en Jakob kann svar viö því: „Ég held að ég geti alveg fullyrt - áð þaö er enginn í utanríkisþjóm ustunni í dag sem hefur þá reynslu, bakgrunn, þekkingu og getu sem þarf til þess aö gera það sem ég ætla mér að gera hér, með fullri virðingu þó fyrir mörgum hæfum manneskjum sem þar starfa,“ segir Jakob í DV viðtahnu og bætir við: „Auðvitað á að ráða fólk og reka í utanríkisþjónustunni eftir getu þess og engu öðru. Það hefur því miður verið landlægt í íslenskum opinberum stofnunum alltof lengi að fólki líðist að sitja og horfa í gaupnir sér.“ Þeir taka þetta til sín sem eiga! Enda þótt Jakob hafi að eigin sögn þessa miklu yfirburði í reynslu, þekkingu og getu umfram aðra þá sem vinna hjá hinu opin- bera, getur hann þess í lítillæti sínu að það sé óþarfi að kalla sig menn- ingarfulltrúa. Sönnu nær væri að hta á sig sem „útbreiðslustjóra hins íslenska vitundariðnaðar". Útbreiðslustjóri vitundariðnað- arins hefur þegar hafist handa. Hann er undir eins búinn að setja upp vitundariðnaðarsýningu i Lon- don. Ekki hefur komið fram hvað þar er til sýnis, umfram það menn- ingarframlag, sem frægt er orðið, að þar hangir uppi mynd af þrem konum.. _Ein . mun _ yera - nákin - i miðju en hinar tvær strjúka henni eða beija létt á hinn nakta íslenska englakropp og hefur Jakob útskýrt það fyrir enskum að myndin sýni þann gamla íslenska siö að konur séu slegnar á rassabossann til að ná fram takti. Þetta er nokkurs konar bumbusláttur, rassabumbu- sláttur, og vekur að vonum mikla athygh hjá Lundúnabúum sem ekki hafa séð svona aðfarir fyrr. Þeim þykir þetta nýstárlegt og hafa hringt í íslenska utanríkisráöu- neytið til að afla frekari upplýsinga um þessa menningu eða þennan vitundariðnað þjóðarinnar. í utanríkisráðuneytinu hefur verið fátt um svör. Ráðuneytistjór- inn jafnt sem aðrir óbreyttir hafa færst undan að veita svör um þessa uppákomu í London og er þeim vorkunn. Þar á bæ er enginn sem hefur vit á menningu og kemst ekki með tæmar þar sem Jakob hefur hælana í reynslu, þekkingu eða getu. Hann er yfirburðamaður, hann Jakob, eins og utanríkisráð- herra var búinn að gera sér grein fyrir af margra ára starfi með Jak- obi í Alþýðuflokknum. Þess vegna hafa þeir í ráðuneytinu enga hug- mynd um þennan íslenska vitund- ariðnað, sem nú er til sýnis af hálfu útbreiðslustjórans í London. Það skemmir ekki fyrir að Jakob gat notað eiginkonu sína til aö berja rassabossann á beru konunni en kona Jakobs er ástsæl söngkona og þekkt fyrir góðan takt og ljúfan hljóm. Hún hlýtur að hafa næmt eyra fyrir því sem rassaslátturinn framkallar í þágu hins íslenska vit- undariðnaðar. Af þessu máh er ljóst að utanrík- isráðuneytiö er að hasla sér vöh á nýjum vettvangi. Þar sitja menn ekki lengur og horfa í gaupnir sér. Jakob Frímann er meira að segja svo klár að hann hefur fundið upp nýja menningu í vitundariðnaðin- um sem enginn vissi að væri th. Hann lætur verkin tala. Hann klappar á rassinná menningunni. Þetta lofar góöu. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.