Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. Sérstæð sakamál Leynivopnið Frú Ruth Lucas. Philip Ellis. Frú Lucas haföi um árabil farið út í almenningsgarð til að gefa fugl- um. Og það var í einni slíkri ferð að hún sá það sem hún taldi vera upphafið á alvarlegu afbroti. Þrátt fyrir háan aldur og talsverða áhættu ákvað hún að gera sitt til að koma í veg fyrir það. Ekkja Frú Ruth Lucas var búin að vera ekkja um langt árabil þegar sá at- burður gerðist sem er efni þessarar frásagnar. Fyrstu árin eftir að hún missti manninn var hún oft að því spurð hvort hún ætlaði ekki að gift- ast aftur en svar hennar var ætíð hið sama: „Ég hef bara elskað einn mann og gæti aldrei elskað annan.“ Dætur þeirra hjóna, Gwendohne og Katharine, voru bara níu og fimm ára þegar faöir þeirra dó. Móðir þeirra hugsaði vel um þær í uppvextinum og þegar þær urðu eldri komu þær sér saman um að einhvem tíma skyldu þær endur- gjalda henm aUa umhyggjuna. Og þegar þær vom báðar giftar og móðir þeirra farin að eldast fannst þeim tími til kominn aö efna lof- orðið. Þær buðu henni því að búa hjá sér. Skyldi hún búa hálft árið hjá annarri og hálft árið hjá hinni. Þáði hún það og reyndist þetta fyr- irkomulag vel enda var skammt á milli heimila dætranna í Derby á Englandi. Áhyggjur Það var þó eitt sem dætumar vom ekki ánægðar með þegar árin liðu. Á hveijum degi gekk móðir þeirra út í almenningsgarðinn í hverfinu til að gefa fuglum. í upp- hafi hafði lítið verið þar að óttast en með tímanum hafði garðurinn orðið aðsetur smáglæpamanna. Óttuðust dætumar að sá dagur kæmi er ráðist yrði á móður þeirra. Hún hafði hins vegar að engu að- vörunarorð þeirra og lýsti því yfir að hún myndi halda áfram að gefa fuglunum meðan hún gæti staðiö á fótimum. Og þegar hún gæti ekki lengur gengið myndi hún biðja dótturdótturina, Elizabeth, að aka sér þangað í hjólastól. Elizaheth var eina bamabam Ruth. Um hugsanlega árás á sig sagði gamla konan einu sinni: „Veri Guð þeim náðugur sem ætlar aö ráðast á mig því ég hef mitt leynivopn." En hvert það var vildi hún aldrei segja. Atvikið í almenn- ingsgarðinum Það var á fostudegi síðla vetrar að Ruth Lucas hélt, einu sinni sem oftar, út að gefa fuglunum. Það hafði snjóað mikið um nóttina en það kom þó ekki í veg fyrir að hún gengi þá sjö hundmð metra sem vom tU garðsins. Þó var það ekki létt fyrir hana því hún var farin að þjást nokkuð af gigt. Vegna veðurins vora enn færri í almenningsgarðinum en venju- lega. Fuglamir söfnuðust strax umhverfis konuna sem hugsaði svo vel til þeirra og hún tók fram brauöpokann. í næsta nágrenni var í fyrstu engan að sjá en svo tók Ruth eftir bU sem stóð viö garðinn. í honum sat maður en hann gat varla séð Ruth þótt hún sæi hann, því hún stóð á bak við nokkuð háan runna og varð að teygja úr sér tíl aö sjá hann. Þaö vakti athygli Ruth að bíllinn skyldi vera þama því snjór hafði ekki verið raddur af þessari götu enn þá. Snjóraðningsmennimir vora aUir að störfum í miðbænum og kæmu ekki að garðnum fyrr en síðar um daginn. Á leið heim úr skólanum Anne Short var átta ára og á leið heim úr skólanum. Hún fór stystu leið sem lá um almenningsgarðinn. Ánægð gekk hún í snjónum og hlakkaði til að koma heim svo hún gæti lagt frá sér skólatöskuna og farið út að leika sér. En þegar hún gekk fram hjá bUnum sem stóð við garðinn opnaöi maöurinn í honum dymar, steig út og kaUaði á hana. Ruth Lucas sá, þar sem hún stóð á bak við rannann og gaf fuglun- um, hvað gerðist. Henni brá en hugsaöi meö sér að ef tU viU væri maöurinn bara að spyrja til vegar. En augnabliki síðar varð ljóst aö það var ekki það sem hann hafði í huga. Hann hJjóp til og greip í Utlu stúlkuna þegar honum varð ljóst að hún myndi ekki hlýða kaUi hans. Svo reyndi hann að draga hana með sér inn í bílinn. En það reyndist honum ekki auðvelt því hún barðist rnn á hæl og hnakka. Eins hratt og gigtarverkimir leyfðu hljóp Ruth Lucas fram und- an rannanum og í áttina að bfinum. Snjórinn var svo mjúkur að það heyrðist ekki til hennar og maður- inn sneri baki í hana. Hann gerði sér ekki grein fyrir hvað var aö gerast er gamla konan sveiflaði handtöskunni sinni og sló hann í höfuðið. Hann missti þegar takið á Utlu stúfikunni og stakkst á haus- inn í snjóinn. Enn einu sinni sveifl- aði Ruth töskimni sinni og sló. Að því búnu settist hún klofvega á manninn og gerði sig líklega til að láta hann fá að kenna frekar á tösk- unni. Var greinUegt að hann hafði Utinn áhuga á því. Hann hreyfði sig í fyrstu ekki og reyndi ekki að kom- ast undan henni. Náð í hjálp „Flýttu þér að húsinu númer sautján og náðu í hana dótturdótt- ur mína, hana Elizabeth," sagði Ruth Lucas nú við Anne Short. „Segðu henni að kaUa á lögreglu- þjón.“ Litla stúlkan var enn hrædd en þó ekki svo að hún gerði ekki það sem bjargvættur hennar sagði henni að gera. Hún hljóp eins hratt og fætumir gátu borið hana en á meðan sat Ruth Lucas sem fastast á fanga sínum og sagði: „Ef þú svo mikið sem reynir að hreyfa þig slæ ég úr þér hefiann." Hann reyndi um stund ekki að hreyfa svo mikið sem einn fingm- en hugði þó á flótta. Elizabeth var fljót að koma þegar hún hafði fengið að heyra hjá Anne hvað var að gerast. En áður en hún hljóp út úr húsinu greip hún það næsta tiltæka sem komiö gæti að gagni í baráttunni við óþokkann, kökukefli. Síðan skipaði hún Anne aö hlaupa á næstu lögreglustöð, sem var rétt hjá, en hélt síðan tíl ömmu sinnar.' Maðurinn hafði nú tekið þá áhættu aö reyna að hreyfa annan handlegginn því honum var hætt að lítast á ástandið. Var hugmynd hans að velta konunni ofan af sér og taka síðan tíl fótanna. En þá kom Elizbeth með kökukeflið og hann ákvað á ný að Uggja kyrr. Og nokkrum augnablikum síðar komu tveir lögreglubfiar vælandi. Fyrir rétt Þremur mánuðum síðar kom mál mannsins, sem ætlað hafði að mis- bjóða Anne Short, fyrir rétt. Þá var leiddur í sakbomingastúkuna kraftalega vaxinn maður, PhUip EUis, fimmmtíu og þriggja ára. Dómarinn ávarpaði hann með þessum orðum: „Eg skal ekki full- yrða hvað þú hafðir í huga að gera við Utlu stúlkuna þótt ég eigi ekki erfitt með aö geta mér tU um það. Mig langar hins vegar til að segja þér að ef þú reynir nokkra sinni að gera frú Lucas eða dótturdóttur hennar mein skaltu fá aö iðrast þess svo um munar." Þegar ElUs hafði verið leiddur úr réttarsalnum hrósaði dómarinn dugnaði og áræðni Ruth Lucas en lagði síðan þá spumingu fyrir sak- sóknarann hvað það hefði verið sem hún hafði í handtöskunni. Leynivopnið Saksóknarinn gekk til dómarans og hvíslaði einhverju að honum. Síðan var Ruth Lucas köUuð tíl dómarans og beðin um að skýra frá leyndarmáU sínu. Hún opnaði þá handtöskuna sína og tók fram skeifu. „Þegar ég og maðurinn minn giftum okkur,“ sagði hún, „festi hann þessa skeifu upp á vegg og sagði að hún ætti eftir að færa okkur hamingju. Þeg- ar ég fluttist úr húsinu tók ég hana niður og hafði með mér. Þegar öU þessi rán og ofbeldisverk fóru að færast í aukana, ekki síst í almenn- ingsgarðinum, setti ég skeifuna í töskuna mína með það í huga að grípa til hennar ef einhver af þess- um óþokkum ætlaði að ráðast á mig.“ Hún þagnaði og leitá dómarann. „Þú ætlar vonandi ekki að taka hana af mér?“ sagði hún svo. „Nei, hafðu skeifuna þína,“ sagði dómarinn. „Settu hana aftur í tösk- una og notaðu hana ef einhver ætl- ar að ráðast á þig.“ Málalok Dómarinn undraðist enn að jafn fuUorðin kona og frú Ruth Lucas skyldi hafa getað ráðið við jafn sterklegan mann og Philip EUis og bað hana um aö skýra sér frá því hvemig hún hefði fariö að. „Ég hitti á réttan stað í fyrsta skiptið, herra dómari," sagði hún. „Svo settist ég bara á hann og í hvert sinn sem hann ætlaði að hreyfa sig eftir það sló ég hann með töskunni. Og hann hafði vit á því að Uggja að mestu kyrr og eftir að dótturdóttir mín, Elizabeth, kom reyndi hann hvorki að hreyfa legg né Uð.“ Dómarinn brosti þegar hann sagði: „Það get ég vel skfiið. Og rétturinn veröur að færa þér og dótturdóttur þinni þakkir fyrir að hafa bragöist svona við. Ég er ekki í neinum vafa um að þið komuð í veg fyrir alvarlegt afbrot.“ PhUip ElUs fékk þriggja ára dóm. Að lokinni dómsuppkvaðningu fór frú Ruth Lucas með dætrum sínum og dótturdóttur á Utið veit- ingahús á móti dómhúsinu til að drekka te.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.