Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. 33 Jón Páll Sigmarsson með 20 prósent afl eftir slys og aðgerð: Með stálvíra í handleggnum - keppi aftur ef ég verð þokkalega góður, segir Jón Páll Vinstri upphandleggsvöðvi Jóns Páls er rækilega styrktur með stálvírum en spurningin er hvort þeir geti gert hann að sterkasta manni heims á ný. Ef grannt er skoðað, sést á myndinni að vinstra megin er kúlan minni þegar hann hnyklar vöðvana. DV-mynd Brynjar Gauti „Ég vona aö ég geti keppt á ný og stefni að því aö taka þátt í mótum næsta sumar. En þaö er ljóst að ár- angurinn verður ekki sá sami og áður í þeim greinum þar sem ég þarf að beita upphandleggsvöðvanum," sagði Jón PáU'Sigmarsson kraftajöt- unn í samtali við DV. Jón Páll slasaðist í keppni í Dan- mörku þann 24. ágúst og í framhaldi af því gekkst hann undir aðgerð í Skotlandi. Græddir voru vírar í fest- ingar við upphandleggsvöðva vinstri handar til að styrkja þær en Jón Páll á langt í land með að ná fyrri krafti og getur í dag aðeins lyft um 20 prósent af því sem hann gerði fyr- ir slysið. Gatekki varið titilinn Þetta varð til þess að Jón Páll gat ekki varið titil sinn, „Sterkasti mað- ur heims," sem hann ætlaði sér að hreppa í fimmta skipti. Hann missti ennfremur af nokkrum öðrum kraftamótum í vetur og verður að hætta við ferð til Finnlands í janúar. Jón Páli var í kraftakeppni milli Norðurlandaþjóða í Árósum þegar óhappiö varð. „Ég og Gunnar Jóns- son kepptum fyrir Islands hönd og höfðum forystu þegar að þvi kom að velta bú með handafli. í þeim átökum sleit ég festingar við svonefndan „biceps-vöðva", þann sem maður hnyklar þegar sýna á hve sterkur maður er. Festingin fór í sundur frá olnboganum og slitnaði við beinið." eftir eitt og hálft ár er hann þokkaleg- ur, en ekki samur og áður. Þegar hann keppti hér á landi á dögunum vann hann Magnús Ver í nokkrum greinum en var síðan slakur í þeim sem reyndu mest á vöðvann." Fævonandi hærri prósentu en kanínur „Tilraunir lækna á kanínum sýna að svona festingar þola 20 prósent álag eftir að þær hafa slitnað einu sinni. Með stálvírunum geri ég mér vonir um að fá hærri prósentu en kanínumar. Vonandi keppi ég á ný en það geri ég ekki nema ég verði þokkalega góður. Ég ætla ekki í keppni og tapa fyrir mönnum sem ég á að vinna út af lélegum hand- legg,“ sagði Jón Páll Sigmarsson. -VS Bað um mann með kuta og stálvír „Ég fór beina leið á sjúkrahús og þar sem vinur minn Jim Reeves hef- ur lent í sams konar meiöslum tvisv- ar vissi ég hvað gera þyrfti. Ég bað um mann með beittan kuta og stál- vír. Dönsku læknarnir færðust und- an þessu og kváðust ekki geta lagað þetta svo gott yrði. Þeir afskrifuðu sem sagt handlegginn á staðnum. Ég var ekki hress með þessi mála- lok og sá að ég yrði að koma mér hið snarasta úr landi, mér væri ekki lengur vært í Danaveldi. Ég bað því um að fá að hringja „kollekt" til Skot- lands þar sem ég þekkti lækni þar. Það var hins vegar ekki hægt að fá að hringja frá sjúkrahúsinu, það samrýmdist ekki einhverjum reglum og að lokum var mér visað þaðan í símaklefa úti á götu!“ NÝ BÓK FRÁ ELLERT B. SCHRAM Ég bið lesendur um að taka þessá bók ekki hátíðlega. Hún er hvorki gamansaga né lífsreynslusaga. Og þó hvort tveggja. Bókin er brot úr starfi og lífi og leik, sýnishorn af hugmyndaflugi góðlátlegt grín að grafalvarlegum hlutum. Sagði lækninum að égyrði næstur „Mér tókst að ná sambandi við skoska lækninn og flaug beint þang- að daginn eftir, á mánudagi, og hann skar mig upp á þriðjudegi. Eg kynnt- ist þessum lækni í gegnum Jim Reev- es, ég heimsótti Reeves á spítalann á sínum tíma, hitti lækninn og bað um nafnspjaldið hans og sagði að liklega yrði ég næstur í aðgerð hjá honum. Það gekk eftir!“ Er orðinn hálf- gerður „Tortímandi" „Hann skar á tveimur stöðum í vöðvann og njörvaði festingarnar niður með vír sem verður þar til ffambúðar. Ég er því orðinn hálf- gerður „Tortímandi" með ómennsk- an vinstri handlegg! En ég er langt frá því að vera orð- inn góður. Fyrir slysið hitaði ég upp með 55 kílóa lóðum en nú er ég að leika mér með 10 kílóa lóö. Ég er því ekki með nema um 20 prósent afl í handleggnum. Ég get ekki tekið á móti skiptimynt því ég get ekki snúið olnboganum þannig að lófinn vísi upp. Reynsla Jim Reeves er sú að ÚTGEFANDIFRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. FÆST i ÖLLUM BÓKAVERSLUNUM. MEÐAL EFNIS: Af fingrum fram Fyrsti kossinn Orrustan við Landakot Stéttaskipting í stóöinu Flöskur í farteskinu Nú er hún Snorrabúö stekkur Meó vitiö í fótunum Viö græna borðió Er súpan innifalin? í kröppum sjó Hinn sanni karímaður Ástir samlyndra hjóna Óviðkomandi bannaöur aögangur ístöðuleysið borgar sig Af aurum api Ruglað fólk og óruglað Þingmennskan er ekkert grín Minn pólitíski kapall Bannsetta frelsið Þingmaður þjóðarinnar Að missa af strætó Yfir lækinn i leit aö vatni Týnda kynslóðin í fimmtugsafmæli Nafli alheimsins Eins og fólk er flest Á flótta undan fríinu Dömufrí Afkomendur Göngu-Hrólfs í sumarbústað Hristu af þér slenið Draumur hlauparans Einstæðingar ellinnar Saga úr hvunndagslífinu Hver er þessi trú? Ég átti mér móður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.