Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Qupperneq 37
36 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. „Ég hef þroskast og lært heilmikið" - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra í spjalli um jólin, árið sem er að líða og nýtt ár Hundurinn Tanni er engin smásmíöi en hann ver hús forsætisráðherrahjón- anna fyrir óboðnum gestum. Forvitnin skín úr augum hans er húsbóndinn gengur frá jólakortum. Davíð segist vera mikill jólamaður og hlakkar tii hátíðarinnar. Þingið hefur verið erilsamt undanfarnar vikur. Davið vonast til að geta verið kominn í frí á Þorláksmessu. Á morgun ætlar hann að sitja á Þing- völlum og skrifa áramótaræðu sína sem flutt verður í útvarpi og sjónvarpi. „Eg er mikill jólamaður í mér og hlakka þess vegna til hátíðarinnar," sagði Davíð Oddsson forsætisráð- herra er helgarblaðið fékk hann til að taka sér þriggja stundarfjórðunga frí frá önnum í vikunni og ræða svo- lítið um jólin og árið sem er að líða. Davíð Oddsson á eftir að minnast ársins 1991 sem árs breytinga og umskipta í lífi sínu. Hann var kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins í byxj- un mars. Eftir kosningaslag í apríl var Davíð kosinn í fyrsta skipti á þing og áður en mánuöurinn var Uð- inn hafði hann myndað nýja stjórn ásamt Alþýðuflokki. Þar með var borgarstjórinn orðinn forsætisráð- herra einnig. SíöastUðið sumar lét Davíð borgarstjórastóUnn í hendur Markúsi Emi Antonssyni. Síðan hefur Davíð einbeitt sér að niðm-skurði í þjóðarbúinu ásamt rík- isstjóminni en mörgum finnst hníf- urinn ganga fuUnærri sér. Það kom því fáum á óvart, eftir erfiðar aðgerð- ir stjómarinnar, að Davíð yrði kos- inn óvinsælasti stjómmálamaöurinn í skoðanakönnun DV fyrir stuttu. Þingstörfin hafa verið erfið að und- anfómu en ef allt hefur gengið sam- kvæmt óskum ættu þingmenn að vera komnir í jólafrí nú. „Vonandi verða allir komnir í frí á Þorláksmessu," sagði Davíð. „Það er engin ástæða til annars en að reyna að klára fyrir þessa helgi. Vegna mikiUa anna á þinginu undanfarið, fundahöld fram á nótt, hafa önnur mál setið á hakanum og þau þarf einnig að klára.“ Fastheldinn ajolasiði Davíð sagðist ekki hafa haft tíma til að gera neitt heimavið enda hefði fjölskyldan vart séð hann síðustu daga. „Maður er varla heima hálfa nótt,“ segir hann. „Ég hef því Utið komið nálægt jólaundirbúningi. Hins vegar hef ég alltaf verið spenntur fyrir jólum og það hefur ekki breyst. Eg er fastheldinn á jól eins og flestir íslendingar. Það em sannköUuð fjöl- skyldujól hjá okkur," bætir hann við. „Við erum lítil fjölskylda, sonurinn er kominn á þrítugsaldur, þannig að yfirleitt hefur þetta verið þriggja manna aðfangadagur. Reyndar verð- um við fjögur núna því tengdafaðir minn veröur hjá okkur. Mjög hefð- bundinn matur verður á borðum en við höfum aUtaf hangikjöt á aðfanga- dag. Þaö þykir kannski skrítið en byggist á því að þegar við Ástríður vorrnn að hefja búskap í UtiUi íbúð hér í sömu götu, sendi amma hennar okkur hangUæri. Þessum einyrkjum á fyrsta búskaparári eins og það var kaílað. Vegna þess höfum við haldið þessum sið okkar," segir Davíð. „Hins vegar hef ég orðið var við að þessi siður þykir mjög ófrumlegur. Við borðum sjávarrétti í forrétt á aðfangadag og á jóladag er þaö ham- borgarhryggur. Á gamlárskvöld er það síðan fondue-réttur, svona eldur og bras,“ segir forsætisráðherra. Rjúpur hafa aldrei verið á hans jóla- borði. Engin óskagjöf Davíð segir að fjölskyldan hlusti aUtaf á messu áður en borðað er. Eftir matinn em gjafir teknar upp og kvöldsins notið í rólegheitunum. Ekki segist hann hafa neina óskagjöf í huganum en kona hans og sonur höfðu einmitt nýlega spurt sömu spurningar. „Það eru nokkrar bækur sem ég er spenntur fyrir. Ég hef þeg- ar fengið bókina um Kristján Eldjám og fmnst hún fróðleg og skemmtileg. Maður vonast auðvitað til að fá bók í einhverjum pakka,“ segir Davíð sppskur. Á jóladag heimsækir forsætisráð- herrann móður sína ásamt fjöl- skyldu sinni. „Við emm á fjölskyldu- flakki eins og margir aðrir þessa daga,“ útskýrir hann. „Ekki má gleyma heimsökn í kirkjugaröinn en þangað fomrn við alltaf á aðfanga- dag. Það er' venja að fara þangað um hálfeitt. Við hugum aö leiðum afa og ömmu ásamt fleirum en þeim vill ^ölga ár frá ári,“ segir hann enn- fremur. Davíð segist ekki hta á jólin ein- göngu sem hvíldardaga þó auðvitað séu þau það líka. „Maður fer inn í ákveðinn farveg sem manni þykir vænt uni,“ segir hann. „Ég hlakka til þessara daga, ekki síst vegna þess hátíðleika sem fylgir þeim. Þrátt fyr- ir að fólk sé alltaf að tala um að jólin séu að týnast í kaupæði sýnist mér svo ekki vera. Jólin gefa okkur and- legt nesti og hugurinn hverfur til hins helga. Það er í raun merkilegt að þessir fáu dagar á hveiju ári gefa, jafnvel nútímafólki eins og okkur, einhvem aukinn frið. Boðskapur jól- anna hefur þess vegna ekki alveg tapast þrátt fyrir að menn tali þann- ig-“ Ekki kaup- mannahátíð Davíð vill ekki meina að kaupæði grípi fólk í desembermánuði eða að yfir standi kaupmannahátíð. „Það er of mikið gert úr þessu," segir hann. „Við notum þennan tíma til að kaupa eitthvað til heimilisins sem annars yrði keypt á öðmm tíma. Jólin era til að gleðja okkur og aðra. Menn hafa kannski sparað til að búa til ytri hátíðarbrag á heimilinu um jól- in,“ segir hann. Eiginkona Daviðs, Ástríður, er að hans sögn af gamla skólanum varð- andi undirbúningjólanna. „Hún ger- ir þetta allt saman, bakar og þrífur," segir hann. Mér finnst það reyndar tilheyra." Davíð telur ekki að jólin hans muni breytast þrátt fyrir að hann gegni nú annarri stöðu en áður. „Jólin heima við breytast ekki,“ segir hann. „Hins vegar verða aðrar athafnir sem ég tek þátt í. Þar á meðal ávarp til þjóðarinnar í gegnum útvarp og sjónvarp." Áramótaræðan samin á morgun Ekki segist hann vera búinn að semja ræðuna en hefur ákveðið að dvelja á Þingvöllum um helgina og skrifa. „Ræðan er aðeins farin að gerjast í höfðinu en það hefur verið of mikið að gera til að hægt væri að hugsa frekar um hana,“ útskýrir hann. „Þess vegna verður gott að nota næðið á Þingvöllum á sunnu- daginn og einbeita sér við skriftir." Allar spár sem birst hafa eru svart- sýnisspár og ástandiö í efnahagsmál- um þjóðarinnar vægast sagt ömur- legt. Davíð tekur undir að ástandið sé svart og því sé kannski enn erfiö- ara en ella að búa til þýðingarmikla ræðu. Þjóðin hefur fengið mikið af svartsýni yfir sig og þess vegna er nauðsynlegt að finna ljósan punkt í tilverunni. „Fjárlagaumræðan stendur venjulega yfir á þessum tíma sem er kannski ekki sá heppilegasti á árinu,“ segir Davíð. „Á hitt ber að hta að íslendingar em sterkir og samheldnir þegar á móti blæs. Hins vegar em þeir nokkuð óbeislanlegir þegar vel gengur. Ég mundi segja að þó mönnum leiðist svartsýnin þá er þjóðin nokkuð góð að taka á vanda- málunum - það er seigt í henni," sagði Davíð ennfremur. Minnisstætt ár Forsætisráðherra er þess viss að árið 1991 muni lengi verða minnis- stætt. „Þetta er í rauninni búið að vera ótrúlegt ár. Ég hefði alls ekki trúað um síðustu áramót að allt þetta ætti eftir að henda. Það voru sérstak- ar ástæður í vor þegar ég tók við for- mennsku í Sjálfstæðisflokknum. Ég fór í kosningar þar sem ég leiddi flokkinn og myndaði ríkisstjórn á skömmum tíma. Síðan hafa menn verið aö læra hver á annan í stjórnar- samstarfi. Hvert áfallið af öðra hefur riðið yfir okkur, minnkun fiski- stofna, ekkert álver, vandræði með EES og vandamál hvert sem litið er. Eftir á að hyggja höfum við verið að stýra bátnum í miklum ólgusjó. Þrátt fyrir erfiðleika, meðan á þessu öllu stendur, mun þetta standa upp úr í minninguni. Mönnum hefur tekist þrátt fyrir allt að sigla fram hjá flest- um skeijum. Það hefur gengið á ýmsu og þetta ár verður fróðlegt í minni sögu að minnsta kosti,“ sagði Davíð þegar hann rifjaði upp ýmsar uppákomur á árinu. Þar fyrir utan er maðurinn ófeiminn að tjá sig og hefur snert ýmsar viðkvæmar sáhr. „Já, ég hef víst sett allt á annan end- ann vegna þess,“ bætir hann við. Gráu hárunum hefurfjölgað „Ég hef lært gríðarlega mikið á öllu þessu en vona þó að ég hafi ekki elst meira en góðu hófi gegnir. Gráu hár- unum hefur fjölgað talsvert. Þetta hefur þó gengið allt mjög eðlilega og ekkert sem ég sé eftir. Maður hefði kannski stundum viljað fara aöra leið. Þetta er ekkert ósvipað og að tefla skák. Eftir á getur maður séð að hægt hefði verið aö leika aðra leiki en þá er ekki hægt að taka þá upp. Eðlilegast er að halda áfram úr því sem komið er enda þroskast maður og lærir af mistökum. Auk alls þess sem hefur verið að gerast hér á landi eru miklar umbyltingar úti í heimi. Sovétríkin eru fallin og kommúnist- ar sem mættu í kröfugöngu á Rauða torginu voru eins og fámennur sér- trúarsöfnuður. Þetta er í raun furðu- legt.“ Davíð Oddsson er bjartsýnn þegar hann horfir fram í tímann. „Ég sé að við getum komið okkur vel áfram á næsta ári og komið málum áleiðis. Ríkisstjórnin er að gera marga erfiða og leiðinlega hluti. Ef þessar aðgerðir heppnast geta þær virkað eins og bólusetning gagnvart erfiðleikunum. Það er kannski ekkert skemmtilegt að láta bólusetja sig en ekki eins vont og maður heldur fyrirfram. Þessar aðgerðir koma í veg fyrir að vandinn verði okkur of erfiöur. Ef þær heppn- ast verður næsta ár gott stökkbretti inn í framtíðina. Það era allir að laga til hjá sér, jafnt einkafyrirtæki sem ríkisstofnanir. Þegar fer að rætast úr verðum við betur undir það búin að takast á við lífiö. Þess vegna hef ég mikla trú á næsta ári og það leggst vel í mig.“ Jákvæð þróun í útlöndum Þegar Davíð er spurður um utan- ríkismálefni þarf hann ekki umhugs- un. „Þó allir þessir hlutir sem eru að eiga sér stað úti í heimi séu skrítn- ir þá eru þeir allir jákvæðir. Þessi yfirþyrmandi ótti sem dundi yfir lengi, umræða um kjamorkuvá og kjamorkustyrjöld, er ekki lengur jafn sterk. Það er mikill léttir í sjálfu sér. Hins vegar er óvissa í Sovétríkj- unum. Mér þykir þetta engu að síöur jákvæð þróun. Ég held að við ættum að líta á næstu átta ár sem eftir era af öldinni bjartsýnisaugum. Þrátt fyrir allt vil ég vera bjartsýnn," segir Davíð og bætir við: „Þetta er kannski eins og að vaða í feni en sjá til lands.“ Forsætisráðherrann lætur sér LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991. nokkuð í léttu rúmi hggja þó hann hafi hlotið þann vafasama heiður aö vera valinn óvinsælasti maður landsins. Hann var reyndar vinsæl- asti stjómmálamaðurinn einnig. „Þessar kannanir era á margan hátt athyghsverðar. Þær segja mér að fólki er ekki sama og tekur afstöðu gagnvart manni. Það er út af fyrir sig ánægjulegt. Ég skil í sjálfu sér betur neðri súluna um óvinsældir heldur en þá efri sem merkir vin- sældir. Þetta era ekki vinsælar að- gerðir sem ég hef staðið fyrir. Jafn- framt hef ég þurft að segja marga hluti sem enginn vhl heyra eins og t.d. um býggðamál. Landsmenn munu sjá þegar þeir hugsa vel sinn gang að þessar óvinsælu aðgerðir eiga eftir að koma okkur öllum til góða þegar fram í sækir." Hótanir í gegnum síma Óvinsældir forsætisráðherrans koma ekki einungis fram í könnun- um. Síminn er stundum rauðglóandi og þaðan berast reiðar raddir utan úr bæ. Þau hjónin hafa tekið th þess ráðs að taka símann af eftir mið- nætti. „Ég er í símaskránni og allir geta þess vegna hringt í mig. En þetta truflar mig lítið og er í raun ekki meira en maður má búast við. Það var hringt í Ástríði og henni sagt að ég bæri ábyrgð á fimm mannslífum. Ég hef oft fengið morðhótanir í gegn- um síma en það era yfirleitt menn sem eru kenndir og ég tek þá ekki alvarlega. Ástríður er hins vegar við- kvæm gagnvart þessu. Hún hefur ekki myndað skel eins og ég sem er ágætt. Það er óhoht að vera of harður gagnvart umtali. Mér finnst það galli hversu mikla skel ég hef búið um mig. Það er ekki eðhlegt að vera al- gjörlega ónæmur fyrir atlögum, árásum eða hvers kyns rógi.“ Stíllinn hefur ekki breyst Davíð segist ekki hafa hug á að breyta um stíl. „Ég held að maður ætti ekki að reyna slíkt. Reyndar hef ég ekkert velt fyrir mér hvort ég hafi stíl. Þess vegna fer ég ekki að hugsa um að breyta mér á einn eða annan hátt. Maður á bara að vera eðhlegur. Það sést ahtaf í gegnum þá sem era að búa sér th karakter," segir hann. Hreinskhni Davíðs hefur stundum komið honum í koh en í öðrum thvik- um hafa menn haft gaman af hnit- miðuðum svörum hans. „Ég hef allt- af verið opinn og hreinskilinn," út- skýrir hann. „Stundum situr maður þó auðvitað á þvi sem mann langar að segja. Þetta var kannski öðruvísi þegar ég var borgarstjóri þar sem ég vann að hagsmunum eins kjördæm- is. Það gat verið erfiðara en einnig léttara og skemmthegra. Maður sá meira eftir sig í því embætti. Borgar- stjórinn hefur meira boðvald." Davíð hafði aldrei setið á þingi áður en hann varð forsætisráðherra sl. vor. Hann segist þó án efa einhvern tíma eiga eftir að vera óbreyttur þingmaður og kynnast þeirri hhð- inni. „Það er undarlegt og ahs ekki algengt að menn stökkvi í ráðherra- stól án setu á þingi. Það er enginn fæddur í ráðherraembætti en þetta lærist aht saman,“ segir hann. „Fyrsta árið mitt sem borgarstjóri rak ég mig á ýmsa hluti og það var mikhl galsagangur á mér en nú eru menn búnir að gleyma því.“ Einmanalegt starf - En hvað kom Davíð Oddssyni mest á óvart þegar hann tók við hinu nýja embætti? „Æth það hafi ekki verið hversu ein- manalegt og einangrað þetta starf er. Embættið skapar ákveðna fjarlægð sem sjálfsagt myndast vegna virðingar við það. Menn vhja að forsætisráð- herraembættið sé virðingarstaða og því kann ég vel þó ekki mín vegna heldur eðhs þess. Menn mega þó aldr- ei láta embættiö stíga sér til höfuðs og breyta sér með nýju göngulagi og rödd eins og hefur komið fyrir.“ Davíð telur að íslendingar standi Það hefur ekki gefist mikill tími fyrir forsætisráðherrann að undirbúa jólin. Örstutt stund gafst þó í vikunni og þá var jólagjöfum pakkað inn. Ekki er annað að sjá en Davíð farist innpökkunin vel úr hendi enda fær hann góða hjálp frá eiginkonunni, Ástríði Thorarensen. DV-myndir Gunnar V. Andrésson nú í sömu sporum og árið 1968. Þá var mikh stöðnun í þjóðfélaginu. „En síðan kom mikið framfaraskeið," minnir hann á. „Þó við lækkum að- eins í lífsgæðum þá verðum við áfram í fremstu röð. Þetta land á ótrúlega möguleika." Hann telur af og frá að ný heims- kreppa sé á næsta leiti. Þegar ástand- ið í Áustur-Evrópu jafnar sig og þeir þoka sér í áttina th markaðskerfis þá mun koma mikh gósentíð." Augnablikið í Viðey minnisstæðast - Þegar þú htur th baka og horfir yfir árið. Hvað stendur upp úr í minningunni? „Það er kannski erfitt að nefna eitt- hvað eitt,“ svarar Davíð eftir um- hugsun en bætir síðan við. „Æth þaö sé ekki augnabhkið í Viðey þegar ég áttaði mig á að við Jón Baldvin gæt- um myndað nýja ríkisstjóm. Það var ekki efnisatriði heldur skynjaði ég það aht í einu eftir að við höfðum rætt um aha heima og geima. Þetta gat farið á báða vegu en á þessu augnabliki fann ég aö ný stjóm væri að fæöast. Ég held að það augnablik sé mjög greypt í huga mér nú þegar ég horfi th baka.“ Nýþjóðarsátt Davíð segist alltaf ganga hratt th verks og segist ekki skhja seinagang- inn í kerfinu. Hann tekur sem dæmi vinnu í kringum kjarasamninga. „Það vita allir um hvað verður samið en samt hanga menn yfir samning- unum og búa th eitthvert mál. Það kalla ég sviðsetningu fyrir almenn- ing. Betra væri að negla hlutina strax. Ég held að við hljótum að búa th nýja þjóðarsátt því það er eina vonin th að böhð verði ekki meira en það er. Vextir era að lækka þó það gangi fuhhægt. Mesta breytingin fyr- ir mig er sú hvað allir hlutir era hæggengir, endalaus samráð, nefnd- ir, fundir og þras. Þessu þarf að breyta eða að minnsta kosti hðka eitthvað th. Það er alveg eins hægt eins og margt annað sem viö eram að gera. Aðrar ríkisstjómir töldu ekki hægt að beita niðurskurðinum en við getum það þrátt fyrir harm- kvæh, mótmæh og pirring." Ef marka má ummæh Davíðs getur þjóðin átt von á bjartsýni í áramóta- ræðu og vonandi skálað fyrir betri tíð. En hvað ætlar forsætisráðherr- ann að gera þegar hann hefur lokið við að skrifa ræðuna á sunnudag? „Þorláksmessu köhum við ahtaf jólapat því yið erum ahtaf of sein og á hlaupum. Ég kaupi jólatré og annað sem þarf. Síðan förum við feðgamir saman í bæinn og kaupum jólagjöf handa frúnni. Það höfum við ahtaf gert á Þorláksmessu og lendum ahtaf í sömu vandræðunum." -ELA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.