Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1991, Side 42
50
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991.
Helgarpopp
Ný dönsk í stórsókn á plötumarkaðnum:
Hringferðirnar farnar
að hafa sitt að segja
Hljómsveitin Ný dönsk. Fimmmenninganna bíður að velja úrval bestu laga fyrir enska útgáfu eftir áramót.
„Eg hreinlega veit ekki hvað er að
gerast. Þessar viðtökur koma mér og
okkur öllum þægilega á óvart," segir
Jón Ólafsson, hljómborðsleikari
hljómsveitarinnar Ný danskrar. Um
síðustu helgi haíði plata henner, Del-
uxe, selst álíka mikið og platan sem
kom út fyrir jólin í fyrra - Regnboga-
land.
Jón segir að hann og félagar hans
hafi sett sér það markmið áður en
upptökur hófust að vinna hratt og
reyna að láta það koma fram í tónlist-
inni að þeir hefðu gaman af því sem
Umsjón
Ásgeir Tómasson
þeir væru að gera. Deluxe var tekin
upp á sex dögum. Engar tölvur voru
notaðar við upptökumar.
Ný dönsk hefur verið mikið á ferð-
inni á árinu sem er að líða. Hún spil-
aði á þjóðhátíðinni í Vestmannaeyj-
um, kom fram á minningartónleik-
unum úm Karl Sighvatsson, lék í
Perlunni með Rafni Jónssyni og var
að sögn Jóns Ólafssonar talsvert í
sviðsljósinu. „Ætli þetta skih sér
ekki í meiri plötusölu en áður. Allar
hringferðimar um landið eru senni-
lega farnar að hafa sitt að segja. Við
urðum til dæmis áþreifanlega varir
við betri móttökur á dansleikjum síð-
asthðið sumar en sumarið ’90.“
Gagnrýnendur hafa einnig tekið
Deluxe vel. „Það sýnir bara að stefn-
an að vera við sjálfír fellur í kram-
ið,“ segir Jón. „Með þvi á ég við að
hver og einn í hljómsveitinni spilar
eins og honum sjálfum er eðlilegast.
Ég skipti mér ekkert af gítarleik Stef-
áns, Stefán skiptir sér ekkert af
bassaleik Bjössa og svo framvegis.
Við erum ekki að reyna að fylla upp
í einhverja fyrirfram skapaða mynd.
Þrátt fyrir þetta held ég að Ný dönsk
sé ekkert síður heilsteypt hljómsveit
en hver önnur.“
Eftir áramótin bíður þaö verkefni
Jóns Ólafssonar, Bjöms Friðbjöms-
sonar, Stefáns Hilmarssonar, Daní-
els Haraldssonar og Ólafs Hólm að
selja enska texta við nokkur laganna
af Deluxe og fyrri plötum hljómsveit-
arinnar. Til stendur að safna saman
efni á eina erlenda útgáfu. Todmobile
og Sáhn hans Jóns míns hafa áður
unnið slíkar erlendar plötur úr sín-
um fyrri plötum.
„Ég reikna síðan með því að við
verðum á fullu á næsta ári eins og í
fyrra," segir Jón. „Reyndar er ekkert
farið að ræða formlega um næsta ár.
En miðað við viðtökur Deluxe held
ég að okkur sé ekki stætt á öðru en
að vera vel virkir næsta árið.“
Alelda
Vinsælasta lagið á Deluxe er tví-
mælalaust Alelda. Það heyrist í út-
varpi oft á dag og virðist þegar búið
að skipa sér í flokk með Frelsinu,
Nostradamusi og Kirsuberi svo að
nokkur vinsæl lög með Ný danskri
séu nefnd. Alelda er eftir Jón Ólafs-
son og Daníel Haraldsson.
„Ég samdi þetta lag heima og kom
svo einn daginn með það á æfingu,"
segir Jón. „Félögum mínum þótti lag-
ið vont. Svo datt einhveijum í hug
að breyta einum hljóm í því, færa
hann úr moh og í dúr og þá var eins
og við værum með aht annað lag í
höndunum. Textann sömdum við
Daníel svo á ísafirði skömmu áður
en við áttum aö byija að spila. Við
vorum eldsnöggir með hann. Þessi
texti er að vísu óskiljanlegur en það
hefur enginn kvartað yfir honum
ennþá!“
Óskar Guðnason sendir frá sér Gamlan draum:
í hljómsveitum
frá tólf ára aldri
Bubbi Morthens, Helga Möher, Ari
Jónsson og Örvar Kristjánsson eru
meðal söngvara á kassettu sem var
að koma út. Hún nefnist Gamall
draumur. Útgefandi hennar og aðal-
lagahöfundur er Óskar Guðnason
tónhstarmaður sem ekki hefur mikið
borið á hingað til en hefur eigi að
síður leikið með hljómsveitum frá
tólf ára aldri.
„Ferilhnn er að vísu ekki samfelld-
ur í rúmlega aldarfjóröung,“ segir
Óskar. „Ég lék með ýmsum hljóm-
sveitum á Homafirði fram yfir 1975,
meðal annars með Grétari Örvars-
syni um tíma. Síðan hætti ég í nokk-
ur ár, fór svo í FÍH skólann fyrir svo
sem tíu árum og hef síðan spilað með
ýmiss konar hljómsveitum með hlé-
um, til dæmis gömludansahljóm-
sveitinni Fjómm tíglum og pöbba-
sveitinni Barlómunum."
Vel mannaö
Á kassettunni Gömlum draumi era
tólf lög. Sex þeirra era eftir Óskar
Guðnason. Tom Shoemaker samdi
tvö, Martin Bunke, Mariam Colrad
og Birgir Jóhann Birgisson eiga eitt
hvert og höfundur eins lags er
ókunnur. Birgir Jóhann er einnig í
hópi hljóðfæraleikara ásamt Þor-
steini Magnússyni, Pálma Gunnars-
syni, Ingólfi Steinssyni og fleiram.
Ekki má svo gleyma Örvari Kristj-
ánssyni sem þenur nikkuna í einu
lagi.
„Við Örvar spiluðum saman í
hljómsveit í Færeyjum fyrir nokkr-
um áram,“ segir Öskar. „Þar hitt-
umst viö sveitungamir og urðu þar
fagnaðarfundir." Meöal annarra sem
Óskar hefur unnið með á löngum
tónhstarferh era Austfjarðadjassist-
arnir Ragnar Eymundsson og Sæ-
mundur Harðarson „og ekki má
gleyma Guðbergi Auðunssyni. Við
blúsuðum saman um tíma. Nú er
Guðbergur búinn að slá í gegn að
nýju á Hótel íslandi svo að það er
enginn tími fyrir blúsinn að sinni.“
Gamall draumur
Óskar Guðnason segir að það megi
segja að með kassettunni Gömlum
draumi sé gamah draumur að ræt-
ast. Flesta tónhstarmenn langi til að
láta eitthvað hggja eftir sig. „Hins
vegar verður ákvörðunin um það að
bíða hvort lögin tólf koma út á geisla-
diski,“ segir ðskar. „Ef kassettan fær
góðar viðtökur ætla ég að athuga
máhð. En ég gef hana út sjálfur svo
að ég verð að taka mark á því hvað
markaðurinn vih. Það þýðir ekkert
að ana áfram í óraunhæfri bjart-
sýni.“
Brian Wilson, efst til vinstri, ásamt
tyrrum félögum í Hlfómsveitinni
The Beach Boys.
Málaferlum ættingja Brians Wil-
sonsvið sálfi'æðing hans er lokið
með sáttum utan dómsalarins.
ÆUingjarnir vildu meina að Wil-
son hafi verið riljalaust verkfæri í
höndum sála frá árinu 1983.
Meðal þess sem fram kemur í
sáttinni er að Brian Whson fær
heföbundnar sálfræðilegar ráð-
legginar frá Eugene Landy sálfræð-
ingi en fær að haga lifi sínu að öðru
leytí eins og hann kýs sjálfur. Að
sögn lögfræðings Wilsons er hann
mjög sáttur viö niðurstöðuna og
feginn að dehan er leyst.
Upphaflega voru það Carl Whson
og Stan Love, fyrrum leikmaður
með Los Angeles Lakers, sem höfð-
uðu mál á hendur Landy th að losa
Brian Wilson úr höndum hans.
Carl og Brian era bræöur og stofn-
endur Ihjómsveitarinnar Beach
Boys ásamt frænda þeirra Mike
Love, bróður Stans Love.