Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992.
Fréttir
Nýjasta plata Sykurmolanna önnur af tveimur bestu smáskifum vikunnar í Bretlandi:
Hótanir um úrsögn úr FFSÍ:
Boðnir velkomnir aft-
ur af Melody Maker
Anna Hildur Hildibiandsdóttir, D V, London:
í nýjasta hefti Melody Maker er
nýjasta afurð Sykurmolanna „Hit“
valin önnur af tveimur bestu smá-
skífum vikunnar. Þeir eru boðnir
velkomnir af gagnrýnanda blaðsins
með orðunum „Halló aftur“, en hann
telur smáskífu þeirra nú þá bestu frá
því að þeir sendu frá sér „Birthday".
Sykurmolarnir eru einnig í heii-
síðu viðtali í New Musical Express
þessa vikuna í tilefni af útkomu
breiðskífunnar „Stick Around For
Joy“. Einar Öm segir m.a. í viðtalinu
að nafnið sé tilkomið af þvi að tónlist
þeirra Molanna sé jákvæð, jafnvel
þótt þeir skilji ekki alltaf sjálfir eigin
texta, eða afhverju þeir séu að þessu,
þá sé hún samt sem áður jákvæð.
Björk Guðmundsdóttir undirstrik-
ar í sama viðtali að Sykurmolamir
séu ekki dóp fyrir fólkiö, þeir séu
ekki í þjónustubransanum, heldur
að gera þetta fyrir sig sjálfa. Enska
pressan hafi hins vegar verið orðin
svo leið á sjálfri sér og hljómsveitum
sínum þegar þeir komu fram með
„Birthday" að hana hafi lengt eftir
einhveiju algerlega öðmvisi til að
skjóta upp í loftið.
Sykurmolarnir hafa aftur slegið í gegn i Bretlandi með nýjustu smáskífunni sinni.
- segir Reynir Traustason
„Það eru Austfirðingamir sem
eru að ýja að því að segja sig úr
samtökunum. Ég held að þetta sé
mál sem á að leysa á milli sjó-
mannafélaganna annars vegar og
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins hins vegar. í mörgum
tiMkum eru þessar hótanir um
úrsagnir byggðar á miklum mis-
skilningi. Forystumemi FFSÍ
hafa ekki veriö svíkja félaga sína
í einu eða neinu,“ segir Reynir
Traustason, formaður skipstjóra-
og stýrimannafélagsins Bylgj-
unnar á Vestfiörðum, um hótanir
Sjómannafélaga um úrsögn úr
Farmanna- og fiskimannasam-
handi íslands vegna óánægju meö
nýjar reglur um sjómannaafslátt.
„Það liggur fyrir að það er ein-
hver skerðingá sjómannaafslætti
en ég tel skynsamlegt að sækja
hana í næstu kjarasamnmgum,
Ef menn eru ósáttir við vinnu-
brögð einhverra ákveðinna ein-
stakhnga þá gera þeir það upp
innan sambandsins. Það er algert
músarholusjónarmið að ætla að
faraað sprengjaFFSÍ útaf þessu.
Ég hef aldrei reynt Guðjón A.
Kristjánsson að neinu öðru en
heilíndum og hef ég þó unnið
mikið meö honum í gegnum tíð-
ina.
Mitt sjónarmiö er að það eigi
að leysa þetta innan FFSI. Bylgj-
an hefur fundað um þetta mál.
Við hormum vissulega þær
skerðingar sem orðiö hafa en ég
get ekki farið að skrifa þær á ein-
staka þingmenn,“ segir Reynir.
-J.Mar
Drög að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1992:
Fjárhagsaðstoð við
ffátæka verður lækkuð
- leiðrétting en ekki niðurskurður, segir Ami Sigfússon borgarfulltrúi
í drögum að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir yfirstand-
andi ár er gert ráð fyrir að fjárhags-
aðstoð við skjólstæðinga Félags-
málastofnunar lækki um um ríflega
43 milljónir. Á síöasta ári voru veitt-
ar 399 milljónir í þessa aðstoð en
miðaö við drögin verða fátækir skjól-
stæðingar Félagsmálastofnunar að
skipta á milli sín tæplega 355 milljón-
um.
Að sögn Áma Sigfússonar borgar-
fulltrúa er hér um að ræða leiðrétt-
ingu frá veittum framlögum á síðasta
ári en ekki niðurskurð. Engin áform
séu uppi um að breyta þeim reglum
sem gilda um greiðslu fiárhagsað-
stoðar. Því þurfi enginn skjólstæð-
ingur Félagsmálastofnunar aö óttast
tóman kassa og uppuma peninga
þegar hann sækir um aðstoð. „Það
þjónar engum tilgangi að yera með
vitlausa fiárhagsáætlun og áæfia
peninga í eitthvað sem ekki er þörf
á,“ segir hann.
í heildina lækka framlög til Félags-
málastofnunar ekki. Til fram-
kvæmda félagsmála hækkar fram-
lagið úr tæplega 161 milljón í tæplega
179 milljónir. Til almennrar félags-
málaþjónustu á borð við heimilis-
hjálp, starfsemi unghngaathvarfa og
útideildar og fleira hækkar framlagið
úr 200 milljónum í 232 milljónir. Þá
er gert ráð fyrir að 50 milljónir renni
til þeirra foreldra sem hafa börn sín
heima í stað þess að senda þau á
dagvistarheimili.
Að sögn Ólínu Þorvarðardóttur,
borgarfulltrúa Nýs vettvangs, sætir
niðurskurðurinn á fiárhagsaðstoð
Félagsmálastofnunar furðu í Ijósi
þess efnahagsástands sem nú er.
Sýnt sé að þörfin verði meiri á þessu
ári en því síðasta enda gert ráö fyrir
auknu atvinnuleysi og hækkun á
ýmis konar þjónustugjöldum. Segir
hún að þeim 50 milljónum sem renna
eigi til heimavinnandi foreldra betrn-
varið í aukna aðstoð við fátæka.
-kaa
Vörum stolið fyrir um hálfa milljón 1 Nóatúni í MosfeUsbæ:
Fylltu svarta plast-
poka með sígarettum
Brotist var inn í verslunina Nóat-
ún við Þverholt í Mosfellsbæ á aðf-
aranótt síðastliöins laugardags.
Vörum og skiptimynt fyrir um
hálfra milljón króna var stolið.
Þjófurinn, eöa þjófarnir, brutu
sér leið inn með því að spenna upp
útihurð. Síðan þurftu þeir aö kom-
ast í gegnum hurð í anddyri til að
komast alla leið inn. Af ummerkj-
um að dæma fundu þjófamir
svarta plastpoka í hillum verslun-
arinnar og létu síðan greipar sópa
um sígarettubirgðir á lagemum.
Nýlega var búið að endumýja
birgðirnar.
Talið er að sígarettum fyrir and-
virði um 400 þúsund krónur hefði
verið stolið og haft á brott í svört-
um plastpokum. Sælgæti og skipti-
mynt var einnig stohð. Máhð er í
rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins.
Eins og fram kom í DV í gær vom
þijár rútur og vörubifreið stór-
skemmdar í áhaldahúsi Mosfehs-
bæjar um síðustu helgi. Einnig
voru rúður brotnar í apótekinu í
Mosfellsbæ. Líkur hafa verið leidd-
ar að því aö sömu aðilar hafi verið
þar að verki og í stórmarkaðinum
Nóatúni við Þverholt.
-ÓTT
Sala Ríkisskipa:
Ekki hægt að búast við
því að starfsmenn ráði
einir við reksturinn
segir Halldór Blöndal samgönguráðherra
„Auðvitað er ég ekki nema
ánægður með það ef starfsmenn
treysta sér tíl að ganga inn í þenn-
an rekstur og geta fengið utanað-
komandi aðUa tU aö standa á bak
við sig í því. En á hinn bóginn er
fyrirtækið of umsvifamikið og
rekstur þess of erfiður til þess að
hægt sé að búast við því að starfs-
menn einir ráði við hann,“ sagði
HaUdór Blöndal samgönguráð-
herra um fyrirhugaða sölu á Skipa-
útgerð ríkisins.
Nú standa yfir viðræður milh
samgönguráðuneytis og undirbún-
ingsnefndar að stofnun hlutafélags
um rekstur Skipaútgeröar ríkisins
um kaup starfsmcmna fyrirtækis-
ins á því. Talsverðar breytingar
hafa verið gerðar á rekstri Ríkis-
skipa. Ákveðið hefur verið að
leggja Öskju og segja um 30 starfs-
mönnum upp.
„Ég vonast til þess að þessi mál
muni skýrast mjög fljótt," sagði
samgönguráðherra. „Það er fiUlur
vUji fyrir að selja fyrirtækið og
hætta opinberum rekstri á strand-
siglingum. Það verður óhjákvæmi-
lega gert á þessu ári. “
-JSS
Togarinn Haraldur Kristjánsson aflahæstur:
Gaman að komast yf ir
6 þúsund tonna markið
- segir Páll Breiöbörð Eyjólfsson skipstjóri
„Aflinn á síðasta ári losaði rúm 6
þúsund tonn, að mestu karfi. Inn við
beinið finnst mér mjög gaman að
hafa náð því að komast upp fyrir 6
þúsund tonna markið. Það tókst í lok
síðasfa túrs. Annars snýst þetta nú
á dögum kvótakerfis orðið meir um
gæði en magn. Þar tókst okkur bæri-
lega upp enda aflaverömætið hjá
okkur með þvi hæsta eöa rúmar 520
mUljónir," segir PáU Breiðfiörð Eyj-
ólfsson, skipstjóri á Haraldi Krist-
jánssyni sem gerður er út af Sjóla-
stöðinni í Hafnarfirði.
Togarinn Haraldur var aflahæsta
skip landsins á síðasta ári. Úthalds-
dagar þess voru ríflega 300 og má því
segja að áhöfnin, sem er 27 manns,
hafi mátt hafa sig alla við tíl að ná
þessum árangri. Að sama skapi voru
laun hennar góð.
„Þegar upp er staðiö gefur svona
mikil vinna vel í aðra hönd fyrir
áhöfnina. Launin gerast vart betri í
þjóðfélaginu, en að baki hggur
óheyrileg vinna. Áhöfnin tekur sér
sjaldan frí, í mesta lági tvo til þijá
túra,“ segir PáU.
Togarinn og áhöfn hans hélt úr
höfn í gærkvöldi eftir 10 daga inni-
veru. Næstu tvo til þijá túra verður
skipið á þorskveiðum en eftir það
mun áhöfnin leita uppi úthafskarfa.
Að sögn Páls er það vondur kostur
enda dugir verðið á úthafskarfanum
varla fyrir útgerðarkostnaði. -kaa