Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992.
39
Sviðsljós
Stjarnan í Aleinn heima
hyggur á frama í leikhúsi
Hinn ellefu ára gamli Macaulay
Cultón, sem varð frægur í henni
Hollywood fyrir leik sinn í kvik-
myndinni Aleinn heima, hyggst nú
færa sig um set og spreyta sig á leik-
sviði.
Leikritið, sem umboðsmenn hans
hjá ICM ásamt föður piltsins eru að
sverma fyrir, heitir Sam I Am og
fjallar um harn hjóna sem eiga í
hjónabandserfiðleikum.
Sýningar eiga að hefjast í byijun
apríl og verða haldnar á ekki ófræg-
ari stað en Broadway.
Ekki er enn ljóst hvort drengurinn
hreppir hnossið en hann verður að
minnsta kosti að ljúka við framhald
myndarinnar Aleinn heima áður.
Framhaldið hefur fengið það frum-
lega nafn Aleinn heima n.
Tekjur piltsins eiga þó eitthvað eft-
ir að réna við þessa nýbreytni því
að á meðan hann fær tæpar 300 millj-
ónir fyrir leik sinn í Aleinn heima
fær hann líklega ekki nema um það
bil 23 þúsund krónur á viku fyrir að
koma fram á sviði. (Léleg hagfræði
það!)
Kínverskar fyrirsætur
Myndin sýnir kínverskar unglingsstúlkur æfa sig að ganga beinar í baki
með bækur á höfðinu i fyrsta rikisrekna tískuskólanum í Kína. Skólanum
er ætlað að þjálfa fyrirsætur til framtíðarstarfa og komast færri að en
vilja. í baksýn sést hvar einni þeirra bregst bogalistin er hún missir
jafnvægið og bókin dettur.
Culkin þarf ekki að óttast fjárskort í framtíðinni og getur því leyft sér nán-
ast hvað sem er. Hann er hér með meðleikara sínum í Aleinn heima II.
Karólína prinsessa
með krabbamein?
Karólínu prinsessu af Mónakó brá
heldur betur í brún þegar henni var
tilkynnt að hún væri með blöðru á
öðrum eggjastokknum.
Hún átti allt eins von á því að hún
væri með krabbamein en eftir upp-
skurð kom í ljós að blaðran var ekki
illkynja.
Karólína er þó enn að jafna sig eft-
ir uppskurðinn en kemur til með að
ná sér að fullu.
Hún reyndist vera hann
Madonna varð að vonum yfir sig
hrifin þegar tveir vinir hennar, sem
báöir eru fatahönnuðir, efndu til
sérstakrar sýningar á hönnun sinni
heima hjá stjörnunni og sýndu henni
fatnað sem þeir höfðu hannað sér-
staklega fyrir hana.
Þeir komu með huggulega og vel
vaxna fyrirsætu með sér sem sýndi
fatnaðinn einn af öðrum og dýrðleg-
heitin enduðu á því að Madonna
keypti allt saman fyrir tæpar 600
þúsund krónur.
Henni brá þó heldur betur í brún
þegar fyrirsætan gekk að henni og
sagði með djúpri karlmannsröddu:
„Þú hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá
mér.“
Madonna gerði sér þá fyrst grein
fyrir því að hún var í rauninni
HANN.
freewmz
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900
Bili billinn
getur rátt staðsettu:
VIDVÖRUNAR
ÞRÍHYRNINGUR
skipt ollu máli
yUMFEROAfl
RAÐ
Fjölmiðlar
Annar janúar
Ég hef stundum velt því fyrir mér
hve margir íslendingar seijist kvöld
hvert umhugsunarlaust fyrir fram-
an skjáinn og láti dagskrána háfa
ofan affyrir sér, óháð því hvað hún
hefur upp á að bjóða.
Lengi vel höfðu ýmsii’ félagslega
sinnaðir mannvinir miklar áhyggj-
ur afslíku háttarlagi. Þeir áhyggju-
fyllstu töldu um skeið að þjóðin
væri að breytast i eitt allsheijar
möttökutæki. án vilja eða vitundar,
sálar eða sérkenna.
Ég hefaldrei skiliö þessar áhyggj-
ur. Reyndar hef ég aldrei skiiið
óþarfa áhyggjurogafskipti aföðru
fólki yfir höfuð ef því líður ekki
þeim mun verr - og ef það lætur
aðra nokkumveginn í friði.
Samt viðurkenni ég fúslega að sá
sem glápir á hvað sem er í sjónvarp-
inu á hverju kvöldi lifir ekki beint
athyglisverðu lífi.
Og það sem meira er: Ég viður-
kenni einnig að þetta háttarlag
hendir mig einstaka sinnum. En það
er ekki oft. Þó henti það mig í gær-
kvöldi. Þá sat ég og horfði á sjón-
varpið, fyrst Ríkissjónvarpið, síðan
Stöð 2 án þess að hafa minnstu hug-
mynd um hvað væri næst á dag-
skránni. Ég bara sat og glápti.
En fyrir þessu hef ég auðvitaö
sómasamlega afsökun: Annar jan-
úar er nefnilega sá dagur ársins sem
mönnum er hættast viö hugsunar-
lausu sjónvarpsglápi. Menn eru þá
gjaman aðjafna sigeftirofátiðog :
áraraótagleðina og ná áttum á nýju
ári. Við slíkar aöstæður er fátt
meira ftfeistandi en að láta sjónvarp-
íð stytta manni stundir án þess aö
vera að taka of yfirvega afstöðu til
gæða dagskrárliðanna.
Auðvitað eiga menn að að velja sér
réttiogmaiast sjálfir. Þógeturendr-
um og sinnum verið ósköp notalegt
aðlátamatasig.
Kjartan Gunnar Kjartansson
i u/te
í LAti
llTgll
AÐALSTÖÐIN
AÐALSTRÆTI 16 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 62 15 20
FÖSTUDAGUR 03.01 ’92
Kl. 7 ÚTVARP REYKJAVIK
Umsjön Ólafur Þórðar-
son.
Kl. 9 MORGUNHÆNUR
Umsjón Þuríður og
Hrafnhildur.
Kl. 14 HVAÐ ER AÐ GERAST?
Umsjón Erla og Bjarni.
Kl. 17 ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ
Umsjón Jón Ásgeirsson.
Kl. 21 „LUNGA UNGA FÓLKS-
INS“ - VINSÆLDALISTI
Umsjón Böðvar Bergs-
son.
Kl. 22 SJÖUNDI ÁRATUGUR-
INN
Umsjón Þorsteirm
Eggertsson. s
Aðalstöðin þín
RÖDD F0LKSINS - GEGN SIBYLJU
Veður
Norðanlands verður allhvöss eða hvöss norðaustan-
og siðar norðan> eða norðvestanátt með snjókomu
en siðar éljum en sunnanlands verður stinningskaldi
eða allhvass vindur af norðri, víða skafrenningur en
úrkomulítið og jafnvel léttskýjað. Frost verður viðast
á bilinu 4-6 stig.
Akureyri snjókoma -4
Egilsstaðir snjókoma -5
Keflavíkurflugvöllur snjóél -3
Kirkjubæjarklaustur hálfskýjað -4
Raufarhöfn skafrenning- -5
Reykjavík skýjað -5
Vestmannaeyjar léttskýjað -4
Bergen rigning 6
Helsinki alskýjað 7
Kaupmannahöfn alskýjað 8
Ósló skýjað 9
Stokkhólmur hálfskýjað 9
Þórshöfn haglél 2
Amsterdam þokumóða 4
Barcelona þokumóða 3
Berlín alskýjað 5
Chicago súld 4
Feneyjar þokumóða 1
Frankfurt heiðskírt -3
Glasgow rign/súld 7
Hamborg alskýjað 7
London rigning 9
LosAngeles alskýjað 18
Lúxemborg hrímþoka -4
Madrid skýjað 5
Malaga heiðskírt 7
Mallorca lágþokubl. 5
Montreal þokumóða -9
New York alskýjað 5
Nuuk snjókoma -12
Orlando skýjaö 16
París þokumóða -1
Róm lágþokubl. 1
Valencia þokumóða 8
Vín léttskýjað 7
Winnipeg alskýjað 1
Gengið
Gengisskráning nr. 1. - 3. janúar 1992 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 55,920 56,080 55,770
Pund 104,210 104,508 104,432
Kan. dollar 48,637 48,776 48,109
Dönsk kr. 9,3802 9,4070 9,4326
Norsk kr. 9,2659 9,2925 9,3183
Sænsk kr. 10,0072 10,0358 10,0441
Fi. mark 13,4407 13,4791 13,4386
Fra.franki 10,6876 10,7181 10,7565
Belg.franki 1,7721 1,7772 1,7841
Sviss. franki 40,9176 41,0346 41,3111
Holl. gyllini 32,3845 32,4772 32,6236
Þýskt mark 36,4894 36,5938 36,7876
it. líra 0,04829 0,04843 0,04850
Aust. sch. 5,1819 5,1967 5,2219
Port. escudo 0,4154 0,4166 0,4131
Spá. peseti 0,5743 0,5759 0,5769
Jap. yen 0,44964 0,45093 0,44350
Irskt pund 96,825 97,103 97,681
SDR 79,8269 80,0553 79,7533
ECU 74,3177 74,5303 74,5087
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Endurskii
í skamn?ríwsí
=|SEKTIR
fyrir nokkur
umferöarlagabrot:
Umferöarráö
vekur athygli á nokkrum
neöangreindum sektarfjárhæöum,
sem eru samkvæmt leiöbeiningum
ríkissaksóknara til lögreglustjóra
'frá 22. tebrúar 1991.
Akstur gegn rauöu Ijósi - allt aó 7000
Bibskylda ekki virt “ 7000
Ekiö gegn einstefnu " 7000
Ekiö hraöar en leyfilegt er “ 9000
Framúrakstur viö gangbraut “ 5000
Framurakstur þar sem bannaö er “ 7000
„Hægri reglan" ekki virt “ 7000
lögboöin ökuljós ekki kveikt 1500
Stöövunarskyldubrot
Vanrækt aö tara meö ökutæki
til skoöunar
Öryggisbelti ekki notuö
-alltaö 7000 kr.
4500 kr.
3000 kr.
MJOG ALVARLEG OG ÍTREKUÐ BROT
SÆTA DÓMSMEÐFERÐ.
FYLGJUM REGLUM-
FORÐUMST SLYS!
UUMFERÐAR ,
RÁÐ