Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992. 13 LífsstOl Framlag ríkis til Neytendasamtakanna: Niðurskurður um helming Aldur ökumanns og fjöldi kílómetra, sem ekinn er á ári hverju, getur skipt máli þegar keyptar eru bifreiðatryggingar. Bílatryggingar: „Það liggur fyrir í fjárlagafrum- varpinu að það. á að skera niður framlag til Neytendasamtakanna úr 5 milljónum í 2,5 milljónir króna. Þetta kemur okkur vægast sagt mjög á óvart. Umræðan hér á landi hefur frekar verið í þá veru, meðal annars af hálfu stjómvalda, að það þurfi að efla neytendastarf. Við trúum því ekki að Alþingi láti þetta verða að veruleika," sagði Jóhannes Gunn- arsson, formaður Neytendasamtak- anria, í samtah við DV. „Við hljótum, vegna þeirrar um- ræðu sem hefur verið, að álykta að hér sé um einhver mistök að ræða sem leiðrétt verði. Við bendum á að aðild okkar að Evrópska efnahags- svæðinu kailar á aukna þörf fyrir neytendastarf. Sú aukna samkeppni, sem mun koma, kallar á aukið neyt- endastarf. Það hefur verið notað sem rök í nágrannalöndum okkar að það megi ekki skera niður neytendastarf vegna þess samruna sem er að verða í Evrópu, þrátt fyrir að reynt sé að skera niður í opinbera geiranum víð- ast hvar. Framlög íslenskra stjóm- valda til neytendamála vom 29 krón- ur á íbúa miðað við 5 milljóna króna framlag. Þessi tala er yfir 100 krónur á íbúa annars staðar á Norðurlönd- unum. Við minnum einnig á að í hvítbók nokkurri, sem ríkisstjómin hefur gefið út um stefnu sína, er talað um að þaö eigi að efla markaðskerfið hér á landi. Jafnframt sé mjög mikilvægt að neytendastarf eflist um leið. Það er ekki samræmi í orðum og gerðum. Við trúum því ekki öðru en að þetta séu mistök sem Alþingismenn hljóti að leiðrétta," sagði Jóhannes. Framlög nauðsynleg vegna fámennis „Forsætisráðherra lét svo ummælt að það væri ekki í verkahring ríkis- vaidsins að styrkja félagasamtök á borð við Neytendasamtökin. Ég vil að fram komi að á Norðurlöndum er það talið nauðsynlegt að hið opinbera Neytendasamtökin mega illa við því að framlög ríkisins til þeirra séu skorin niður, að sögn Jóhannesar Gunnarssonar, formanns samtak- anna. veiji verulegum upphæðum til neyt- endastarfs vegna þess fámennis sem er í þessum löndum. Frjáls félagasamtök geta í raun ekki gegnt þessum mikilvæga mála- flokki án myndarlegra framlaga hins opinbera. Það er einvörðungu í þeim löndum þar sem íjölmennið er mest, svo sem Englandi og Bandaríkjun- um, að hægt hefur verið að byggja þettá fyrst og fremst á tekjum sem þessi samtök hafa af útgáfu sinni og rannsóknarstarfi. Flest lönd í Evr- ópu hafa talið nauðsyniegt að það komi veruiegir fjármunir frá hinu opinbera. Ég minni einnig á það að Evrópubaridaiagið ver miklum fjár- munum í þessu skyni sameiginlega. Það er útilokað, ef við ætlum að tala um að jafnræði ríki milli neyt- enda annars vegar og framleiðenda og seljenda hins vegar, að koma á slíku jafnræði nema ríkið leggi einn- ig fram fjármuni. íslensk stjórnvöld hafa lagt fram mjög lítið til þessa málaflokks," sagði Jóhannnes. Erfiöar aðstæður í ríkisfjármálum „Taian, sem ákveðin var sem fram- lag ríkisins til Neytendasamtakanna, er tvær og hálf milljón króna. Það er að sjálfsögðu jákvæður hlutur en ekki neikvæður að það er ríkisfram- lag til samtaka neytenda. Því miður var óhjákvæmilegt að það yrði aftur- kippur í þessu ríkisframlagi," sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra í samtali við DV. „Ég bendi á það að neytendamálin, seip eru mjög mikilvægur málaflokk- ur, hafa verið efld á síðustu árum. Ég hef beitt mér fyrir margvíslegri löggjöf til að styrkja réttarstöðu neytenda og fyrir auknu samstarfi við nágrannaríkin á þessu sviði. Staða neytendamála innan við- skiptaráðuneytis hefur verið skil- greind og efld. Stuðningur við Neyt- endasamtökin fór vaxandi alveg frá 1987-91. Nú eru erfiðar aöstæður í ríkisfjármálum. Við höfum því neyðst til aö fallast á þessa lækkun. Ég tel það réttlætanlegt, meðal ann- ars vegna þess að félagafjöldi Neyt- endasamtakanna hefur stóraukist og þau hafa notið það sem kailast má fósturstyrks frá ríkissjóði. Ég held líka aö þaö sé ekki æskilegt að sam- tökin séu alveg upp á ríkið komið með fjárstuðning. Mín skoðun er sú að ef baráttan fyrir hagsmunum neytenda á að skiia góðum árangri eigi hún ekki að vera ríkisrekin né stjómað af embættismönnum. Hún verður að koma frá grasrótmni. Auðvitað von- ast ég til þess að ríkið geti stutt Neyt- endasamtökin með ýmsum hætti í því meginmarkmiði að styrkja stöðu neytenda á markaði gagnvart valdi fyrirtækja og stofriana. Það er einnig gert með ýmsum öðrum hætti,“ sagði Jón. -ÍS Tryggingafélagið VÍS hefur kunn- gert að væntanlegar séu breytingar á iðgjöldum bifreiða og þær verða kunngerðar þann 26. janúar. Hjá Sjóvá/Aimennum hafa engar ákvarðanir verið teknar enn um breytingar en ekki er óhklegt að af þeim verði, Talið er að þær breyting- ar á bhatryggingum sem era í vænd- um hjá VÍS og Sjóvá/Almennum verði sniðnar með tiiliti til aldurs ökumanns og hve mikið hann keyrir á ári hveiju. Bifreiðaiðgjöld hjá Scandia ísland eru byggð upp á ann- an hátt en hjá öðrum tryggingafélög- um í landinu, með fyrirmynd frá Norðurlöndunum. „Við hjá Scandia erum að reyna að höfða til ákveðins aldurshóps og þeirra sem keyra ekki mikið. Það sem skilur að hjá okkur og öðrum tryggingafélögum á iðgjöldum bif- reiða er að við bjóðum nokkuð lægri gjöld fyrir þá sem aka lítið. Einnig eru í boði lægri tryggingagjöld fyrir þá sem eru eldri en 30 ára,“ sagði Þórður Þórðarson, framkvæmda- stjóri vátryggingasviðs Scandia h/f, í samtali við DV. „Þeir sem eru yngri en 30 ára eru með 30% hærra gjald. Síðan erum við með fjóra akstursflokka. Lægsti flokkurinn er fyrir þá ökumenn sem keyra 10 þúsund kílómetra eða Neytendur minna. Næsti fiokkur er 10-15 þús- und eknir kílómetrar og svo fram- vegis. Það má segja að verð bifreiðaið- gjalda hjá okkur sé lægra en hjá öðr- um tryggingaaðilum upp í 15 þúsund ekna kílómetra á ári. Þeir sem eru yngri en 30 ára og keyra mikið eru með hærri iðgjöld hjá okkur heldur en hinum tryggingafélögunum. Gjaldskráin okkar verður í gildi til 1. apríl á þessu ári og það verða hugs- anlega gerðar einhveijar verðlags- breytingar í samræmi við það sem gerist hjá öðrum tryggingafélögum. Okkar bifreiðaiögjaldakerfi tekur mið af því sem gildir í allri Skandi- navíu og miðum við aðallega við kerflð í Svíþjóð og Noregi. Ef viðkomandi ökumaður, sem hef- ur tilkynnt að hann aki 10 þúsund kílómetra eða minna, lendir í akst- urstjóni og í ljós kemur að hann hef- ur ekið meira en hann áætlaði gilda refsiákvæði. Við munum þá endur- greiða tryggingartakanum upp að hámarkssjálfsábyrgð eins og hún er í tryggingunum. Öðrum refsiákvæð- um er ekki beitt. Menn missa ekki bónus þó að þeir lendi í því að vera búnir að aka meira en það sem þeir sögðu til um. Menn verða ekki rukk- aðir aftur í tímann, það er að segja ef menn sleppa við að lenda í tjóni," sagði Þórður. -ÍS 68 55 22 SBffi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.