Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Síða 22
30
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992.
Smáauglýsingar - Sími 27022
■ Verslun
■ BOar til sölu
Gjöfin hennar. Eitt besta úrvalið af
gullfallegum og vönduðum undir
fatnaði á frábæru verði. Einnig
* æðíslegir kjólar frá East of Eden.
Korselett frá kr. 4373, m/sokkum.
Samfellur frá kr. 3896. Brjóstahald-
arasett frá kr. 4685, m/sokkum o.m.fl.
Ath. við erum með þeim ódýrustu.
Myndalisti yfir undirfatn. kr. 130.-
Opið frá 10-18 mán.-föstud.
og 10-14 laugard.
Kristel, Grundarstíg 2, sími 91-29559.
Gjöfin sem kemur þægilega á óvart.
JF Stórkostlegt úrval af stökum
titrurum, settum, kremum, olíum
o.m.fl. f/dömur og herra. Einnig
nærfatn. á dömur og herra. Sjón er
sögu ríkari. Opið frá 10-18, mán-
föstud., 10-14 laugard.
Erum á Grundarstíg 2 (Spítalastígs-
megin), sími 91-14448.
Benz 711D, árg. '87, til sölu,
ekinn 173 þúsund km, einn eigandi.
Kassi 22 m ', Z-lyfta, 1500 kg. Upplýs-
ingar í símum 985-22091 og 91-72119.
Stopp. Ertu leiður á hálkunni?
Til sölu Subaru station turbo '87, ný
nagladekk, ekinn 75 þús. km, rafmagn
í rúðum, speglum, samlæsingar, út-
varp/segulband. Skipti á ódýrari
möguleg. Frábær bíll á frábæru verði.
Upplýsingar í síma 91-674686.
Fréttir
Gagnamiðlun hf. og Kvæmer Eureka A/S:
Samstarfssamn-
ingur um sölu á
Viðhaldsvakanum
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyri:
FuUtrúar Gagnamiðlunar hf. á
Akureyri og norska fyrirtækisins
Kvæmer Eureka A/S hafa undir-
ritað samstarfssamning til tveggja
ára en samningurinn felur í sér að
norska fyrirtækið selur eingöngu
„Viðhaldsvakann" frá Gagnamiðl-
un hf. með sinni framleiðsluvöru.
Viðhaldsvakinn er nýr og öflugur
hugbúnaður sem ætlað er að auð-
velda skipsmönnum fyrirbyggj-
andi eða stýrt viðhald. Tilgangur
stýrs viðhalds er að tryggja
rekstraröryggi skips og búnaðar,
lengja endingu allra hluta til hins
ýtrasta án þess að öryggi skips og
áhafnar skerðist og halda jafnframt
viðhaldskostnaði í lágmarki. Ef rétt
er á haldið mun fjöldi tilfallandi og
alvarlegra bilana haldast í lág-
marki og nánast öllu viðhaldi verða
stýrt með aðstoð Viðhaldsvakans.
Viðhaldsvakinn er byggður upp á
myndrænan hátt. Þegar kveikt er
á tölvunni birtist mynd af skipinu
frá tveimur sjónarhomum. Á upp-
hafsmyndinni er síðan valinn sá
hluti skipsins sem vinna á við
hverju sinni.
Ef t.d. er bent á vélarúm skipsins
birtist yfirlitsmynd af vélarúminu,
þar sem sjá má staðsetningu alls
vélbúnaðar. Þá er valin vélin, sem
notandinn vill skoða, t.d. ljósavél
og síðan valið hvort skoða á ein-
ingakort eða fá skrá yfir tilheyr-
andi varahluti. Á einingakorti
koma fram tæknilegar upplýsingar
auk upplýsinga um framleiðanda
og úmboðsmenn tækisins, yfirlit
yfir reglubundnar skoðanir, við-
gerðir og viðgerðarsögu vélarinn-
ar.
Eftirliti með viðhaldi er þægilegt
að stjórna með aðstoð tölvunnar.
Daglega sýnir dagbókin hsta yfir
alla þá verkþætti sem komnir em
á tíma og skipsmenn vinna sam-
kvæmt honum. Að lokinni skoðun
eða viðgerö kvitta skipsmenn fyrir
verkinu og skrá hvað gert hafi ver-
ið. Þessi skráning er viðgerðarsaga
viðkomandi tækis. Kostir Viö-
haldsvakans eru margir, rekstra-
röryggi eykst, öllum upplýsingum
er safnað á einn stað, varahlutalag-
er getur verið í lágmarki og ófyrir-
séðar bilanir og viðgerðir em nán-
ast úr sögunni svo eitthvað sé
nefnt.
Kvæmer Eureka A/S er eitt af
stærstu fyrirtækjum í Noregi og
með útibú í öllum heimsálfum, þar
af er eitt á íslandi. Kvæmer fram-
leiðir allt frá stökum vélarhlutum
upp í heilar verksmiðjur og skip
auk hernaðartækja.
Gagnamiðlun hf. var stofnað á
síðasta ári af Slippstöðinni hf. á
Akureyri, Fjarhönnun hf„ Ríkis-
skipum og nokkram einstaklingum
til að annast framleiðslu og sölu á
Viðhaldsvakanum sem upphaflega
var þróaður í samvinnu viö Skip-
aútgerð ríldsins fyrir skip hennar
og hefur verið í notkun þar í tvö
ár. Aö sögn Guðmundar Einars-
sonar, forstjóra Skipaútgerðar rík-
isins, hefur Viðhaldsvakinn fylli-
lega uppfyllt þær vonir sem við
hann vom bundnar í upphafi og
hefur nú þegar borgað sig með au-
knu rekstraröryggi og minni við-
haldskostnaði.
EINN BÍLL Á MÁNUÐI
í ÁSKRIFTARGETRAUN
SVARSEÐILL
Vinsamlegast notið prentstafi:
L
□ Já takk. Ég vil svo sannarlega
gerast áskrifandi að DV. Ég fæ
eins mánaðar áskrift ókeypis
og það verður annar áskriftar-
mánuðurinn.
Áskriftargjald DV er aðeins
1.200 kr. á mánuði, eða 48 kr.
á dag.
NAFN.
HEIMILISFANG/HÆÐ.
PÓSTSTÖÐ________________ SÍMI_________
KENNITALA I I I I I I I i I i i i
CH Já takk. Ég vil greiða með:
□ VISA □ EUROCARD □ SAMKORT □ INNHEIMT AF ESLAÐESERA
KORTNÚMER
Athugið!
Núverandi áskrifendur þurfa ekki I__I___I I I I I I I I I I l l l i l i i
að senda inn seðil. Þeir eru sjálf-
krafa með í áskriftargetrauninni. GILDISTÍMI KORTS____________________________
UNDIRSKRIFT KORTHAFA
Starfsfólki FRJÁL3RAR FJÖLMIÐLUNAR og mökum
þeirra er ekki heimil þátttaka í áskriftargetraun þlaðsins._______________________________________________
SENDIST TIL: DV, PÖSTHÓLF 5380, 125 REYKJAVÍK, EÐA HRINGIÐ í SÍMA 27022 - GRÆNT NÚMER 99-6270,
FAX (91) 626684.
1
1
I
1
s
I
1
I
I
s
s
1
s
1
I
11
I
I
Ný hljóm-
plata með
karlakórn-
um Heimi
Öm Þórarinsson, DV, Fljótum:
Út er komin ný plata með karla-
kómum Heimi í Skagafirði. Nafn
plötunnar er Undir bláhimni en
samnefnt lag hefur notið gífur-
legra vinsælda í flutningi Heimis
og hefur verið á söngskrá kórsins
í mörg ár. Á plötunni em alls 16
lög sem flest hafa veriö á söng-
skrá kórsins á undanförnum
árum.
Að sögn Þorvaldar Óskarsson-
ar, formanns kórsins, eru flest
lögin af léttara taginu, a.m.k.
miðað við karlakórsflutning.
Platan var tekin upp og hljóðrituð
í félagsheimilinu Argarði í Lýt-
ingsstaðahreppi í maí sl. Upptöku
stjórnaði Sigurður Rúnar Jóns-
son. Undirleikarar vom hjónin
Richard og Jacklin Simm en
stjómandi Stefán Gíslason.
Þessu til viðbótar má geta þess
að vetrarstarf Heimis er nú í fuil-
um gangi. Kórinn hefur fengið
nýjan undirleikara, Tom Higgers,
tónlistarkennara í Varmahlíð, en
söngstjómin veröur áfram í
höndum Stefáns Gíslasonar.
Stefnt er að því að haida hina
árlegu þrettánda-gleði kórsins í
Miðgarði fyrstu helgina eftir ára-
mót.