Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992.
IBMáíslandi:
Breytt í sjálf-
* stætt hlutafélag
IBM á íslandi veröur á næstunni
breytt í sjálfstætt hlutafélag. Þá eru
Skrifstofuvélar-Sund hf. og IBM aö
sameinast. Þessar breytingar voru
tilkynntar starfsmönnum fyrirtæk-
isins síðdegis í gær. Hið nýja fyrir-
tæki mun sjá um sölu og þjónustu á
IBM-tölvubúnaði hér á landi og verða
öflugasta tölvúfyrirtæki landsins.
Helstu hluthafar í hinu nýja ís-
lenska hlutafélagi verða, auk IBM,
Vogun hf„ Skrifstofuvélar-Sund og
Draupnissjóðurinn. Þá mun IBM í
Danmörku einnig eiga hlut í fyrir-
tækinu. Hlutafé er áætlað um 200
milljónirkróna. -JSS/JGH
Kasparovefstur
Heimsmeistarinn Garri Kasparov
er kofninn í efsta sætið ásamt Boris
Gelfand og Indverjanum Anand á
stórmeistaramótinu í Reggio Emilía.
Hann vann Ivanchuk í 4. umferð og
gerði jafntefli við Gelfand í 5. um-
ferð.
Staöan eftir 6 umferðir: Kasparov,
Gelfand og Anand 4 v„ Karpov 3'A
v„ Ivanchuk og Khalifman 3 v„
j^Gurevic 2 'A v„ Polugajeveski 2 v. og
biðskák, Salov 1 'A v. og biðskák og
Beljavskí 1 'A v.-hsím
Fannstillaásig
kominn á gæslu-
velliímorgun
Maður fannst rænulítill og kaldur
á gæsluvellinum bak við Bíóborgina
við Njálsgötu um níuleytið í morgun.
Hann var fremur fáklæddur í hnipri
með buxurnar á hælunum og illa á
sig kominn. Maðurinn var íluttur á
slysadeild til aðhlynningar.
Þegar DV fór í prentun var óljóst
' -O' hvort áverkar væru á manninum svo
og hver ástæöan var fyrir því aö
hann hafði hafst við svo illa á sig
kominnágæsluvellinum. -ÓTT
Hlutabréfasalan:
500 milljónir
áfjórumdögum
Hlutabréfasalan í desember varð
betri en búist var við eftir lélega sölu
síðastliðið haust.
Salan tók hins vegar kipp á milli
jóla og nýárs. Þá seldust á fjórum
dögum hlutabréf fyrir tæpan hálfan
milljarð. Á sama tíma í fyrra seldust
-flrhlutabréffyrir um 1 milljarð króna.
Heildarsalan í desember varð um 667
milljónir miðað við um 1.200 milljónir
krónaídesemberífyrra. -JGH
Réðst á 18 ára sorp-
hreinsunarmann
Lögreglan leitar að ungum „Ég var að koma með kerruna og í baki. Lögreglunni í Grindavík Aðspurður hvort hann ætlaði að
manni sem réðst harkalega á 18 ára útfráeinuhúsínuþegartveirpiltar var tilkynnt um árásina strax í fara aftur til Grindavikur að
Njarðvíking sem var aö hreinsa komu á móti mér spurðu hvort gærmorgun. Formleg kæra verður hreinsa sorp sagöi pilturinn að
sorp í einbýlishúsahverfi í Grinda- þeir mættu fá sorpkerruna lánaða lögð fram til rannsóknarlögregl- hann ætlaði ekki að vera einsamall
vík í gærmorgun. Pilturinn var frá - þeir ætluðu að lelka sér að henni. unnar í Keflavik 1 dag. aftur við svipaðar aðstæður.
vinnu í gær eftir árásina. Er hann Síðan rifu þeir alla pokana og Pilturinn sem ráðist var á vinnur „Við erum að hugsa um að vera
sárogaumureftirmörghnefahögg dreifðu þeim út um allt. Þeir hjá sorpbílafyrirtækinu Njarðtak tveir á ferðinni og fara í húsin sitt
og spörk. Atvikið varð við Borgar- spurðu lika hvaðan ég væri. Svo sf. frá Njarðvík sem sér um hirð- hvorum megin í sömu götu," sagöi
hraun á sjöunda tímanum í gær- réðst annar þeirra á mig. Hann ingu sorps í Grindavík. Félagi pilturinn.
morgun. Árásarmaðurinn er tahnn kýldi mig nokkrum sinnum í and- hans, sem einnig var að hreinsa Lögreglan í Grindavík hafði ekki
vera 17-19 ára gamall. Hann var á litið og sparkaði i annan fótinn á sorp, varínágrenninuþegarárásin fundiðárásarmanninnþegarsíðast
gangi með öðrum pilti á svipuðu mér og í siðuna. Hinn horfði bara varð, svo og maöur sem ók sorp- fréttist. Talið er að hann sé úr
reki og var greinilega ölvaður. Pilt- á,“ sagði pilturinn sem ráðíst var á bílnum. Þeir komu báðir að félaga Grindavík.
amirerutaldirhafaveriðaðkoma i samtali við DV. sínum skömmu eftir að árásin var -ÓTT
úr nýársgleðskap í húsi í Grinda- Pilturinn er bólginn í andliti, yfirstaðin. Árásarmennirnir voru
vík. aumur í öðrum fætinum, síðunni þá horfnir.
Nýja áriö hefur heilsap Reykvikingum með töluverðri snjókomu. Ekki var annað að sjá en að biskupshjónin, herra
Ólafur Skúlason og Ebba Sigurðardóttir, væru hin ánægðustu með snjókomuna er Ijósmyndari DV rakst á þau í gær.
DV-mynd GVA
5 mánaða fang-
elsifyrirfíkni-
efnamál
Þrítugur Reykvíkingur hefur verið
dæmdur í 5 mánaða fangelsi fyrir að
hafa haft tæplega 50 grömm af am-
fetamíni í fórum sínum sem hann
kastaði frá sér á flótta undan lög-
reglu í janúar 1991. Áður en dómur-
inn gekk í Sakadómi í ávana- og
fikniefnamálum hafði sami maður
gengist undir samtals tólf dómssáttir
og dóma vegna ýmissa afbrota, meðal
annars fyrir strok úr fangelsi, þjófn-
að, skjalafals og fiknefnamál.
Við yfirheyrslur játaði maðurinn
að hafa, áður en hann var handtek-
inn, verið að koma frá því að sækja
50 grömm af af amfetamíni við Hall-
grímskirkju. Kvaðst hann hafa átt
að greiða 250 þúsund krónur fyrir
efnið. Ætlaði hann nokkrum dögum
síðar að skilja peningana eftir á sama
stað og hann náði í efnin við kirkj-
una. Maðurinn sagðist hafa ætlað að
drýgja efnið og selja grammið á 5
þúsund krónur til að fjármagna
kaupin. Hann kvaðst ekki hafa þekkt
seljandann.
Við sakfellingu mannsins var tekið
mið af skýlausri játningu hans. Refs-
ing þótti hæfileg 5 mánaða fangelsi.
Bjarni Stefánsson hjá Sakadómi í
ávana- og fikniefnamálum kvað upp
dóminn. -ÓTT
LÓKI
Þetta endar með steinum
fyrir brauð hjá ísal!
Veðriðámorgun:
Léttskýjað
vestan-
lands
Á morgun verður norðaustan
gola eða kaldi. Smáéel við norð-
austurströndina en annars þurrt.
Léttskýjað verður um sunnan- og
vestanvert landið. Frost verður á
öllu landinu, 6-8 stig.