Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1992, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1992.
Spumingin
Ætlarðu að sjá kvik-
myndina um JFK?
Hrefna Björk Karlsdóttir kennari:
Nei, mig langar ekki til þess.
Hilmar Viggósson bankaútibústj.: Ég
hef ekki ætlað mér það, nei, hef ein-
faldlega ekki tíma.
Bryndís Magnúsdóttir afgreiðslust.:
Nei, ég hef ekki tíma.
Guðmundur Magnason sölum.: Já,
ég ætla að sjá hana. Ég sá úr henni
og leist bara vel á.
Bjarni Hákonarson framkvæmdastj.:
Já. Hún er umtöluð og umdeild og
svo veit maður ekki nema þetta sé
satt sem þar er haldið fram.
Lesendur dv
Rlkisstjóm meö rétt áform:
Fáir málsvarar
Á rfkisstjórnin enga almennilega málsvara?
Eyjólfur Jónsson skrifar:
Margir voru þeirrar skoðunar eftir
síðustu kosningar aö tveggja flokka
I ríkisstjóm myndi duga okkur betur
en margra flokka stjórn. Voru menn
þá ekki að vitna til neinnar sérstakr-
ar samsetningar utan kannski viö-
reisnarstjómar sem hafði setið
lengst að völdum hér á landi. - Þegar
tilkynnt var um myndun ríkisstjóm-
ar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
var þvi ekki talið að sérstaklega
þyrfti að örvænta um nægan styrk
eða málsvara slíkrar stjómar, a.m.k.
ekki af þeim sem þessa flokka studdu
í kosningunum.
Strax í upphafi setti stjórnin fram
markmið sín, flest í anda þeirra sem
vildu gjörbreyta um takt og tón, víkja
frá félagshyggju og ríkisafskiptum
og taka upp spamað ríkis og einka-
væðingu. Þessum markmiðum hefur
verið haldið á lofti en lítið sem ekk-
ert verið framkvæmt af þeim enn
sem komið er.
Aðeins tveir ráðherranna, mennta-
málaráðherra og heilbrigðisráðherra
virðast vera menn til að fylgja eftir
þeim áformum sem sett vom fram í
stjómarsáttmálanum. Að spara og
skera niður í sínum ráðuneytum. í
öðmm ráðuneytum tvístíga ráðherr-
ar og halda að sér höndum, skipa
nefndir á nefndir ofan og endurráða
Jón Kjartansson, formaður Leigj-
endasamtakanna, skrifar:
í DV mánudaginn 10. febr. sl. er
fjallað um nær 40% hækkun á leigu
í félagsíbúðum aldraðra á Blönduósi.
Þar er gerð ágæt grein fyrir málinu
og lýst aðdraganda hækkunar og
ástæðum hennar. Þar er m.a. rætt
við Bolla Ólafsson, gjaldkera félags-
íbúöanna, og segir hann m.a. að nota
eigi hækkunina til endurbóta á hús-
næðinu. Hann er því spurður hvort
slíkt sé ekki brot á húsaleigulögum.
- Því svarar hann m.a. svo: „Þaö var
raunar hringt til 'mín frá Leigjenda-
samtökunum og mér bent á þetta.
En sá sem við mig ræddi gat ekki
rökstutt þetta á óyggjandi hátt.“
Sigþrúður H. Friðriksdóttir skrifar:
Ég þori varla að hugsa þá hugsun
til enda ef Fæðingarheimilinu við
Eiríksgötu verður lokað. Ég eignað-
ist mitt fyrsta barn á Fæðingarheim-
ilinu og þegar ég lá þar á sæng fannst
mér það satt að segja einn besti
tíminn í lífi mínu. - Starfsfólkið þar
gaf sér nægan tíma til að hugsa um
mig og barnið og það var stöðugt
verið aö fræða mann á þessum tíma,
og það var séð til þess að konur færu
heim með sitt nýja barn þannig að
þær kynnu að hugsa um það fyrstu
ár þess.
Ef loka yrði Fæðingarheimilinu
myndi heimafæðingum íjölga og þá
myndu sjálfsagt fleiri neyðartilfelli
koma upp. Ekki væri það ódýrara.
Fræðsla yrði í lágmarki þannig að
konur þyrftu æ oftar í aðgerð eða
Hringió í síma
63 27 00
miili kl. 14 og 16
-eða skriílð
Nífnog tímdnr. vcröur aO fylgja bréfum
þá ríkisstarfsmenn, sem búið er að
segja upp, og afhenda þeim „sérstök
verkefni" til að dútla við.
Ef ekki nyti við núverandi forsæt-
isráðherra, Davíðs Oddssonar, sem
kann tungutak stjómarandstæðinga
og svarar þeim í sama tón og þeir
ávarpa hann, hefði stjómarandstöð-
unni tekist að splundra stjómarsam-
starfmu nú þegar. Segja má aö aðeins
þrír (í mesta lagi íjórir þegar forsæt-
isráðherra er talinn með), þ.e. ráð-
herra utanríkis-, mennta- og heil-
brigðismála, séu starfi sínu vaxnir.
Aðrir ráðherrar og aðstoðarlið
þeirra em magnlítið embættis-
mannasafn sem keppir aö því einu
að nota aðstöðu sína til að hasla sér
Það rétta er að eftir hringingu íbúa
í áðumefndum félagsíbúðum ræddi
ég viö téðan Bolla, sem gaf þau sömu
svör, að húsnæðið þarfnaðist endur-
bóta. Ég benti honum á aö sam-
kvæmt húsaleigulögum ættu leigj-
endur ekki að greiða endurbætur og
viðhald, nema sérstaklega hefði ver-
iö um þaö samið. Ekkert benti til að
svo hefði verið gert í umræddu til-
viki.
Bolli vildi halda því fram að húsa-
leigulög ættu ekki við þarna og sagði
eigendur „fara á hausinn" ef ekki
mætti hækka leiguna. Hann spurði
hvort gamla fólkið yrði einhverju
bættara með það. Ég taldi tilgangslít-
ið að ræða málið við hann á þeim
m.a. í bréfinu.
meðferð vegna sýkingar, jafnvel
vegna þunglyndis, því að andlegt
ástand skiptir miklu máli fyrir bæði
móður og bam.
Þær á Fæðingarheimilinu veita
konum þá hlýju sem þær geta og
konum líður þar vel og era ömggar.
Ef öllum þessum flölda kvenna yrði
þjappað saman á Landspítalanum,
yrðu þær hreinlega fyrir hver ann-
arri. Þær hafa þurft að liggja á
göngum Fæðingardeildar Landspít-
völl í pólitískum atkvæðaveiðum í
framtíðinni. Á meðan helstu for-
sprakkar stjómarandstöðunnar tylla
sér á tá hvar sem von er á myndatök-
um fyrir fréttaflutning og láta sem
þeir séu að leggja á ráðin flaðra mátt-
lausir málsvarar ríkisstjómarinnar
upp um háls hagsmunahópa og pils-
faldakapítalista og biðja þá að fara
nú varlega til að ekki þurfi að koma
til verkfalla og annarra landlægra
sjálfspyndingaaðferða. - i stað þess
að gera lýðum ljóst að ríkisstjórnin
þurfi engra griða að beiðast. Hún
hefur meirihluta á þingi og á að fram-
kvæma þau áform sem hún setti sér
og lýsti yfir að framkvæmd yrðu.
forsendum. Húsaleigulög ættu að
gilda alls staðar, þar sem leigusamn-
ingar em gerðir, nema önnur lög telj-
ist rétthærri. - Ekkert hefur komið
fram um slíkt í umræddu máli.
Það hefur að undanfomu verið til-
hneiging ríkjandi til aö hækka leigu
í íbúðum fyrir aldraða og námsmenn
og þá verið reynt ítrekað að komast
fram hjá lögum eða láta eins og þau
séu ekki til. Einnig er víðar reynt að
koma viðhaldskostnaöi yfir á leigj-
endur. - Því er mikilvægt að öllum
sé Ijóst að leigjendur eiga ekki að
greiða slíkan kostnað, nema um það
sé sérstaklega samið.
alans vegna plássleysis þó að Fæð-
ingarheimilið hafi verið opið. Hugsið
ykkur smithættuna þegar um svona
þrengsli er að ræða.
Nú geng ég með mitt annað bam,
og ég get ekki hugsað mér að fæða
það annars staðar en á Fæðingar-
heimilinu. Ég fullyrði að ef Fæðing-
arheimilinu verður lokað er þessi
þjóð aö stíga stórt skref aftur á bak,
og það getur reynst erfitt að stíga það
fram á ný.
Páll Pálsson skrifar:
Þeir em einkar óheppnir hjá
Ríkisútvarpinu með hvers konar
ráðgjöf sem varðar ímynd og öfl-
un almannavinsælda. Þaxmig
hefur hver auglýsingin á fáetur
annarri verið framleidd og oftar
en ekki hefur hún mætt andúö
og vakið leiðindi meðal fólks. -
Nú er það augiýsing sem á að
kynna svokallað áskriftarhapp-
drætti Ríkisútvarpsins.
Þetta er að margra áliti vesæld-
arleg rulla þar sem „rónamir“
úr Spaugstofunni fara drafandi
ummælum um áskriftarhapp-
drættiö. Sumir kalla þessa aug-
lýsingu „rónahappdrætti" Ríkis-
útvarpsins. - En er það ekki alls
staðar svona þar sem ríkið fer
með fjármuni almennings?
Nemendurhafa
sína eigin skoðun
Guðmunda hringdi
Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum
undanfarið um fund skólanema á
Lækjartorgi og þann leiða atburð
sem þar varð, er eggjum var kast-
að að menntamálaráðherra, vil
ég leggja áherslu á að þrátt fyrir
þetta atvik hljóta nemendur að
hafa sína eigin skoðun á málun-
um. Þennan atburð er ekki hægt
að skrifa á kennara krakkanna.
Þetta fundarhald var algjörlega á
vegum nemendanna, ekki skól-
anna. Krakkarnir hafa harmað
atburðinn og það ríkir mikill leiði
í röðum nemenda. Undirbúning-
ur hefði þurft aö vera betri. Nem-
endur eru sárir en þeir láta sína
skoðun í ljósi þrátt fyrir þaö.
Misvægiatkvæða
ermeinsemd
Jóhann Einarsson skrifar:
Ein mesta meinsemd í íslensku
þjóðlífi er misvægi atkvæða sem
þegnamir sæta. Þegar kosið er til
Alþingis era menn hér á þéttbýl-
issvæðinu ekto að ganga aö sama
kjörborði og t.d. þeir á Vcstfjörð-
um eöa Norðurlandi eystra. Þetta
leiðir til þjóðfélagslegrar tog-
streitu og veldur óréttlátri skipt-
ingu þjóðartekna og ekto síöur
útgalda og skattheimtu til al-
mannaþarfa.
Einhverjir
eða nokkrir?
Ásgeir hringdi:
Eg er orðinn hundleiður á að
heyra sífellt talað ura „einhveija
mánuði" eða „einhver hundruð
miUjónir". Á þessu toifa aðallega
menn í viðtölum í Ijósvakamiðl-
unum og það er eins og allír séu
famir að tileinka sér þetta orö
„einhver“ f stað „nokkur“, sem
við höfum notast við hingað til.
Það er auðvitað ekkert rangt
við að segja „einhver", en þetta
er afar afkáralegt í munni fólks
sem oft og tíðum hefur litla setn
enga þektongu á íslensku máli.
Ef menn halda að enska orðiö
„some“ eigi endilega að þýða með
„einhver“ er það mikill misskiln-
ingur
Frábærþjónusta
íGIerinu
Grímur hringdi:
Mig langar til að vekja athygli
á þeirri góðu þjónustu sem ég
fékk þegar ég þurfti nauösynlega
að fá slípaða nokkra spegla fyrir
stuttu. Speglana vantaði fjrir-
varalaust og þaö var haft sam-
band við glerverksmiöjuna Gler-
iö, þar sem starfsmenn hófust
strax handa við að afgreiða spegl-
ana á ótrúlega skömmum tíma. -
Þaö er óvenjulegt að fá svo skjót
viðbrögð og svona frábæra þjón-
ustu. - Ég met þetta mikils.
Leiguhækkun á Blönduósi - Athugasemd
Lokun Fæðingarheimilisins
Meö lokun Fæðingarheimilisins verður stigiö stórt skref aftur á bak, segir