Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1992, Qupperneq 14
14
M'IÐVÍKUÐACÍUK Í9. FEBRÚAR Í992.'
Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Verktakastarfsemin
Ekki verður sagt að verktakastarfsemi á íslandi búi
ekki við tryggt rekstrarumhverfi. Verktökum er gert
að fjárfesta í tækjum og mannafla og gera tilboð í verk,
oft með litlum eða engum fyrirvara. Svo koma kannski
aðrir og bjóða betur. Eða það sem verra er að hætt er
við verkin og verktakarnir standa uppi verkefnalausir.
Enda hefur það verið svo lengst af að íslenskir verktak-
ar eru smáir í sniðum og hafa fyrst og fremst einbeitt
sér að húsaframkvæmdum og blokkarbyggingum. Verk-
takafyrirtæki hafa komið og farið og hvergi er líftími
fyrirtækja styttri en einmitt í þessari atvinnustarfsemi.
Á síðustu árum hafa einkum tvö fyrirtæki hér á landi
staðið upp úr. Annars vegar ístak, sem er að mestu í
danskri eign. Hins vegar er Hagvirki, sem hefur haslað
sér völl í margþættri starfsemi, svo sem virkjanafram-
kvæmdum, jarðgangagerð, vegalagningu og hefðbundn-
um byggingum. Til viðbótar má svo nefna íslenska aðal-
verktaka, sem hafa aftur á móti eingöngu unnið að fram-
kvæmdum á Keflavíkurflugvelli. í skjóli þeirrar einok-
unar er engan samanburð hægt að gera á íslenskum
aðalverktökum og öðrum verktökum enda er sterk fjár-
hagsstaða íslenskra aðalverktaka til komin vegna þeirr-
ar sérstöðu sem hin ríkisverndaða einokun hefur haft
í fór með sér.
Hér er hins vegar minnst á íslenska aðalverktaka
vegna þess að nú stendur það fyrirtæki á tímamótum.
Framkvæmdum á Vellinum er að mestu lokið og fyrir-
sjáanlegt að annaðhvort lognast fyrirtækið út af eða
færir út kvíamar á hinum almenna markaði. Einn ráð-
herra hefur lagt til að íslenskir aðalverktakar verði
leystir upp, annar að fyrirtækið verði gert að almenn-
ingshlutafélagi.
Þessar tillögur báðar má sameina. Er þá átt við að
fyrirtækið verði opnað, einokunaraðstaða þess lögð nið-
ur og íslenskir aðalverktakar með sína sterku fjárhags-
stöðu starfi áfram í samvinnu við þá verktaka, sem
þekkja íslenska markaðinn og kunna til verka í al-
mennri verktakastarfsemi. Þannig má sameina fjár-
magnið og þekkinguna.
Jóhann Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis, hefur upp-
lýst að nú fari fram þreifingar milli Hagvirkis og Is-
lenskra aðalverktaka um þessa sameiningu. Á það skal
minnt að þetta er nákvæmlega það sem gerðist þegar
Sameinaðir verktakar urðu til á sínum tíma en þeir eiga
um jiriðjung af íslenskum aðalverktökum. Sameinaðir
verktakar voru samtök íslenskra verktaka og iðnaðar-
manna, þar sem kunnátta, þekking og fjármagn var sett
í einn hatt og gerði íslendingum kleift að ráða við verk-
efnin sem fylgdu vamarliðinu.
Fljótt á litið sýnist mikil skynsemi í sameiningu Hag-
virkis og íslenskra aðalverktaka. Hagvirki býr yfir mik-
illi tækniþekkingu og reynslu, er búið góðum tækja-
kosti en stendur illa fjárhagslega vegna frestunar á
virkj unarframk væmdum og almennum verkefnaskorti.
íslenskir aðalverktakar eiga fjármagnið en þurfa á því
að halda að skapa sér ný viðfangsefni. Ríkissjóður og
almenningur eiga hér hagsmuna að gæta því margar
flugur em slegnar í einu höggi ef og þegar gjaldþroti
Hagvirkis er afstýrt og íslenskir aðalverktakar fá end-
umýjun lífdaga. Fyrirtækið yrði leyst upp í sinni núver-
andi mynd en jafnframt lagður grannur að íslenskri og
öflugri verktakastarfsemi. Samtímis yrði almenningi
gefinn kostur á að kaupa hlut ríkisins.
Þessa leið á að reyna til þrautar.
Ellert B. Schram
WOÐARINNAR
í m kY MÍNU
^LkmFARAÍ l
menntun | J* nám
ER LÍFÆÐ J
W3SALEIGU í
„í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um LÍN, sem nú er til umræðu, hafa sjónarmið námsmanna verið að mestu
leyti hundsuð."
Afleitríkisstjóm
Ræðst á hags-
muni námsmanna
Við síðustu stjómarskipti misst-
um við framsóknarmenn þá að-
stöðu sem viö höfum haft í 20 ár til
aö verja hagsmuni námsmanna.
Til valda kom ríkisstjórn sem er
andvíg námsmönnum. Ríkisstjóm,
sem hefur það að markmiði að
safna íjármunum þjóðarbúsins á
hendur hinna betur megandi og
láta einkum þá er minna mega sín
bera byrðarnar, sjúka, aldraða,
barnafólk og námsmenn. Ég ætla
ekki hér að fjölyrða um þær breyt-
ingar sem núverandi ríldsstjóm er
að gera á þjóðfélaginu, grundvall-
arbreytingar sem snúa að flestum
þáttum þjóðlífsins. Þeir em að end-
urskapa þjóöfélagið til hagsbóta
fyrir túna ríku, kollvarpa velferð-
arþjóðfélaginu þar sem þegnamir
hafa búið við félagslegt öryggi og
jafnrétti til menntunar og menn-
ingarlífs.
Eignir almennings skulu færðar
Kolkrabbanum, þaggað skal niður
í þeim sem ekki taka málstaö nú-
verandi valdhafa. Þeir eru búnir
aö drepa Þjóðviljann og em að
kyrkja Tímann, boða að afhenda
Kolkrabbanum ríkisfjölmiðlana.
Þannig að áður en núverandi kjör-
tímabih lýkur hafi stuðningsmenn
Sjálfstæöisflokksins einir algjör-
lega óskomð yfirráð allrar fjöl-
miðlunar í landinu. Sjálfstæðis-
menn verði einir um alla upplýs-
ingadreifmgu í þjóðfélaginu. Þá
verði allir íjölmiðlar í landinu
orðnir ámóta „frjálsir og óháðir"
eins og Morgunblaðið, DV og
fréttastofa Stöðvar 2 era í dag.
Árás ráðherranna á fréttastofu
ríkisútvarpsins nýverið er fors-
mekkurinn að því sem koma skal.
Ég gæti nefnt ótal dæmi um það
þegar mér hefur fundist fréttastofa
ríkisútvarpsins veita sjónarmiðum
Sjálfstæðisflokksins óþarflega
mikla athygli en sniðganga sjón-
armið okkar framsóknarmanna.
Þrátt fyrir allt er ekki hægt með
haldbærum rökum að saka frétta-
stofu útvarpsins um viðvarandi
hlutdrægni í fréttaflutningi.
Með flokkslegri einokun Sjálf-
stæðisflokksins á allri íjölmiðlun í
landinu vonast núverandi ríkis-
stjóm eftir að Kolkrabbinn launi
ríkisstjóminni góða þjónustu á
núverandi kjörtimabiíi og leggi
henni það fé sem dugi til að vinna
næstu kosningar og geri henni
kleift að sitja að völdum annað
kjörtímabil.
Aðför að menntakerfinu
Nú er á dagskrá sá þáttur þessar-
ar aðfarar sem snýr að námsmönn-
um. Ofan á niðurskurð á grunn-
skólastigi er búið að krenkja Há-
skólann, leggja skólagjöld á blanka
nemendur og ganga svo frá að
sennilega telur Háskóhnn sér
ókleift að innrita nýnema næsta
haust. Þannig yrði hindmð eðlfleg
Kjallariim
Páll Pétursson
alþingismaður
námsframvinda þess hluta heils
árgangs sem hyggur á háskólanám.
Þeir yrðu þá að fara út á yfirfullan
vinnumarkaðinn og ykist þá enn
það þungbæra atvinnuleysi sem
ríkisstjórnin hefur skapað og er að
skapa í landinu með aðgerðum sín-
um.
í frumvarpi ríkisstjómarinnar
um LÍN, sem nú er til umræðu,
hafa sjónarmið námsmanna verið
að mestu leyti hundsuð. Þrengt er
aðgengi að sjóðnum, vextir teknir
upp á námslán, lánstími styttur en
endurgreiöslur stórhertar og kosti
námsmanna þröngvað á flestum
sviðum.
Nú er ætlun stjómarflokkanna
að öU námslán verði veitt eftir á
þegar námsáfanga lýkur. Þannig
verða námsmenn að lifa á víxlum
aUan námstímann. Þetta er óbæri-
legt.
Eg skil frumvarpið svo að með
sameiningu skuldabréfa við náms-
lok skuU öll lánin hUta þeim kjör-
um sem verða í gfldi þegar síðasta
skuldabréf er gefið út. Þannig er
verið að svíkjast aftan að því fólki
sem nú er í námi og ógflda þau
skuldabréf og kjör sem á þeim voru
þegar lánin voru tekin í góðri trú
- þetta er ófært og verður að breyt-
ast.
Ég get ekki falUst á að skuldabréf-
in beri 3% vexti. Þetta er bara byij-
unin. Vextimir verða fljótlega
hækkaðir upp í það sem stjómar-
herrunum þóknast að hafa þá á
hinum almenna lánamarkaði ef
fariö er inn á þessa vaxtabraut á
annað borð.
Endurgreiöslur samkv. frum-
varpinu eiga að hefjast ári eftir
námslok. Þetta er of skammur tími
og því verður að breyta í tvö ár.
Tveimur áram frá námslokum er
hægt að ætlast tfl að námsmaður
sé búinn að stofna heimili til fram-
búðar, fá sér vinnu í sínu fagi og
koma sér þannig fyrir að endur-
greiöslur geti hafist. Eitt ár er of
skammur undirbúningstími.
Formúlan fyrir endurgreiðslunni
er ennfremur óréttlát. Endur-
greiðslur eru of strangar, geta orð-
ið 8% af útsvarsstofni. Þá sitja þeir
sem fara í tekjurýrari störf uppi
með alltof þunga byröi við lok láns-
tíma. Einnig er húsnæðislánakerf-
ið lokað þorra þeirra er ljúka námi.
Þá er þetta fmmvarp galopið. í
mörgum greinum er ráðherra
og/eða stjórn sjóðsins veittar tak-
markalitlar og alltof víðtækar
heimfldir til að herða að náms-
mönnum, t.d. herða kröfu um
námsframvindu. Þetta skapar þeim
öryggisleysi sem er óþolandi.
Valdið er kjósenda
Þó er rétt að vekja athygli á þvi
að fulltrúar ráðherra í stjórn sjóðs-
ins hverfa með ráðherrunum. Þetta
ákvæði sýnir námsmönnum hver
eru áhrif þeirra og ábyrgð þegar
þeir ganga að kjörborði. Þeir náms-
menn er kusu núverandi stjómar-
flokka í síðustu kosningum geta
sjálfum sér um kennt. Þeir kusu
þessi ósköp yfir sig með því að gefa
núverandi stjómarflokkum þing-
ræðislegt færi á að ná saman í rík-
isstjóm og þannig færi á aö
skemma þjóðfélagið.
Námsmenn á Islandi verða að
gefa gaum að þessu. Ef þeir vflja
að nám veröi ekki bara einskorðuð
forréttindi þeirra sem eiga efnaða
aðstandendur verða þeir að gera
sitt á kjördegi til þess aö koma í
veg fyrir að núverandi stjómar-
flokkar fái þingræðislegt tækifæri
tfl aö halda völdum og halda áfram
að skemma þjóðfélagið. Afleiðing
þess, ef þetta fmmvarp verður lög-
fest, er að allmargir veröa að
hverfa frá námi af fjárhagsástæð-
um eða hætta við að hefja það, þótt
þeir hafi gáfur, dugnað og hæfi-
leika engu minni en þau efna-
mannaafkvæmi sem hér eftir hafa
forgang að námi á háskólastigi.
Páll Pétursson
„Nú er ætlun stjórnarflokkanna að öll
námslán verði veitt eftir á þegar
námsáfanga lýkur. Þannig verða náms-
menn að l£fa á víxlum allan námstím-
ann, þetta er óbærilegt.“