Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Side 23
LAUGARDAGUR 7. MARS 1992.
23
Ford-keppnin:
Tólf stúlkur í úrslitum
Eileen Ford hefur valið tólf
stúlkur úr hópi sjötíu stúlkna til
að taka þátt í úrshtakeppni Ford
sem fram fer 19. mars. Þær eru
Ingibjörg Valdimarsdóttir, 19
ára, frá Akranesi, Harpa Hjart-
ardóttir, 19 ára, frá Reykjavík,
Hildur Guðjónsdóttir, 16 ára, úr
Reykjavík, Hrafnhildur Gísla-
dóttir, 16 ára, úr Reykjavík, Ása
Sigurbjörg Haraldsdóttir, 19 ára,
Reykjavík, Hrefna Jónsdóttir, 15
ára, úr Kópavogi, Vigdís Más-
dóttir, 14 ára, Seltjarnarnesi,
Þórdís Þórðardóttir, 15 ára, Vest-
mannaeyjum, Helga Kristín
Jónsdóttir, 18 ára, Seltjarnar-
nesi, Brynja Davíðsdóttir, 16 ára,
Reykjavík, Auður Hansen, 18
ára, Reykjavík, og Lovísa Aðal-
heiður Guðmundsdóttir, 17 ára,
Innri-Njarðvík.
Stúlkurnar voru valdar af
myndum sem þær sendu af sér
í Fordkeppnina en þær voru
sendar áfram til Ford Models
skrifstofunnar í New York.
Áður en að sjálfri keppninni
kemur munu stúlkurnar tólf fá
þjálfun hjá Módelsamtökunum.
I næsta helgarblaði verða stúlk-
umar kynntar hver fyrir sig og
verða teknar myndir af þeim eft-
ir hárgreiðslu og fórðun. Um
hárgreiðslu munu Biggi og
Simbi og starfsfólk Jóa og félaga
sjá en fórðun verður í höndum
Svanhvítar Valgeirsdóttur, ís-
landsmeistara í leikhúsfórðun.
Yfirmaður
„prufu"deildar
kemur og velur
Lokakvöldið fer síöan fram
fimmtudagskvöldið 19. mars í
Súlnasal Hótel Sögu. Aðeins ein
manneskja situr í dómnefnd.
Það er Anne Gorrisson sem
kemur hingað frá Ford Models í
New York og velur sigurvegara.
Anne er yfirmaður þeirrar deild-
ar sem sér um prófanir á stúlk-
um. Hún fer yfir allar þær fjöl-
mörgu myndir sem berast til
Ford Models daglega og velur
úr þær stúlkur sem umboðs-
skrifstofan hefur áhuga á að sjá
og taka prufumyndir af. Anne
er mjög fær í sínu starfi enda
hefur hún starfað lengi hjá Ford
Models.
Sigurvegari Fordkeppninnar
mun fara til Los Angeles í júlí í
sumar og taka þar þátt í keppn-
inni Supermodel of the World.
Sú sem ber sigur úr býtum í
þeirri keppni þarf ekki að hafa
áhyggjur af peningamálum sín-
um því sigrinum fylgir samning-
ur við Ford Models upp á tæpar
fimmtán milljónir króna.
Um þessar mundir er verið að
velja fulltrúa um allan heim til
að taka þátt í Supermodel
keppninni. Eftir að Anne Gorris-
son hefur vahð íslenskan sigur-
vegara fer hún til írlands þar
sem Fordkeppninni verður sjón-
varpaö beint að kvöldi mánu-
dagsins 23. mars.
Fordkeppnin fer svipað fram í
öllum löndum. Hún er yfirleitt í
gegnum blöð eða tímarit en ein-
staka sjónvarpsstöðvar hafa
umboð til aö hafa keppnina. í
sumum tilfellum eru greiddar
háar fjárhæðir til Ford Models
fyrir umboðsréttinn á keppn-
inni. Hér á landi er ekki um slíkt
að ræða.
Eingöngu
sjónvarpskeppni
Ford Models umboðsskrifstof-
an er ein sú elsta og virtasta í
I
Stúlkurnar tólf sem keppa til úrslita i Ford-keppninni 19. mars nk. Þær verða kynntar hver og ein i næsta helgarblaði. DV-mynd Brynjar Gauti
heimi. Eileen Ford nýtur sérstakr-
ar virðingar fyrir störf sín. Hún er
einstaklega vönd að virðingu sinni
og gætir þess í hvívetna að fyrir-
sætur hennar valdi ekki hneyksl-
un. Ef stúlkurnar hefja fyrirsætu-
störf ungar tekur Eileen Ford þær
í sína umsjá og þær búa á heimili
hennar.
Keppnin Supermodel of the
World er eingöngu sjónvarpsefni.
Henni er sjónvarpað um öll Banda-
ríkin, til Frakklands og Ítalíu. Auk
þess hafa aðrar þjóðir sóst eftir að
sýna frá keppninni. Vegna þess að
keppnin er byggð upp sem sjón-
varpsefni þurfa stúlkurnar, sem
taka þátt í henni, að gangast undir
strangt æfingaprógramm sjö til
átta daga fyrir útsendingu. Ahorf-
endur í sal þurfa líka að taka tihit
til þess að um útsendingu sjón-
varpsefnis er aö ræöa.
Þeim stúlkum, sem taka þátt í
keppninni, leiðist þó ekki þessa
dagana þótt þeir séu strangir því
margt skemmtilegt er einnig í boði,
svo sem heimsókn í skemmtigarða
og kvikmyndaver. Einnig eru dýr-
ustu verslanir Los Angeles-borgar
skoðaðar þótt keppendur hafi ekki
fjárráð til að versla þar.
Keppendur búa allir á glæsilegu
hóteli sem er heimsfrægt vegna
þess að kvikmyndin Pretty Woman
var tekin þar á sínum tíma. Það er
því sannarlega spennandi dagar
sem Fordstúlkan 1992 á í vændum
í sumar.
Úrslitakvöld Fordkeppninnar
verður glæsilegt, ekki síður en í
fyrra, en nánar verður sagt frá því
þegar nær dregur.
-ELA
FALLEGUR FJÖLSKYLDUBÍLL
Fimmta kynslóðin af Civic hefur litið
dagsins ljós. Við fyrstu kynni vekja glæsi-
legar línumar athygli, nánari kynni upplýsa
um tæknilega kosti og yfirburðahönnun.
Hönnuðir Civic hafa haft það í huga að
s hílum er fyrst og fremst ætlað að þjóna
| fólki. Fallegt útlit, góðar innréttingar,
Íþægileg sæti, stört farangursrými, gott rými
fyrir börnin, kraftmikil og sparneytin vél
eru nokkrir af kostum Civic.
Innréttingar Civic eru mun betri en
gengur og gerist í bílum í þessum
stærðarflokki. Ahersla hefur verið lögð á
þægileg sæti og gott skipulag á mælum og
stýrisbúnaði. Nútíma þægindi, afl- og
veltistýri, rafdrifnar rúður og speglar eru
staðalbúnaður í Civic.
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24,
mánudaga til föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
Verð frá: 1.184.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.
(0