Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1992, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992.
5
Fréttir
Austurstræti 16 er til sölu. Þar voru borgarskrifstofur Reykjavíkur til húsa. Verðhugmyndir seljenda eru um 165-170
milljónir króna.
Austurstræti 16 kost-
ar 165-170 milljónir
„Við höfum ekki sett fram ákveðið
verð því að það fer nokkuð eftir þeim
skilmálum sem kaupin eru gerð á,“
sagði Sverrir Kristinsson, sölustjóri
hjá Eignamiðluninni, er DV spurði
hann í gær um verð á húseigninni
Austurstræti 16 sem fasteignasalan
hefur auglýst til sölu. Samkvæmt
upplýsingum, sem blaðið hefur aflað
sér, munu verðhugmyndir seljenda
vera á bihnu 165-170 milljónir króna.
Það eru erfingjar Þorsteins
Schvings Þorsteinssonar sem eiga
fasteignina. Umrædd húseign er 2600
fermetrar að stærð. Er um að ræða
kjallara, götuhæð, fjórar skrifstofu-
hæðir, rishæð og turnherbergi.
Þama voru m.a. borgarskrifstofur til
húsa frá 1929 en þær eru nú, sem
kunnugt er, að flytjast í ráðhúsið við
Tjörnina.
Austurstræti 16 á sér merkilega
sögu. Þar reisti H.P. Möller hús 1831.
Pétur Pétursson biskup eignaðist það
svo 1848. Thor Jensen festi síðan
kaup á því 1905 og rak þar verslun
sem hann nefndi Godthaab. Það hús
brann 1915 og í framhaldi af því
reistu Nathan og Olsen það hús sem
þar stendur nú.
Lengi vel var Austurstræti 16 full-
komnasta verslunar- og skrifstofu-
húsnæði sem íslendingar höfðu reist.
Það var til dæmis fyrsta hús á ís-
landi sem búið var lyftu.
Ýmsar merkar stofnanir og fyrir-
tæki hafa verið þama í gegnum tíð-
ina. Má þar nefna Landsbankann
sem starfaði þar 1918-1924. Þá hýsir
það Reykjavíkurapótek sem er elsta
apótek á landinu. Það var stofnað af
Bjarna Pálssyni 1750 og Þorsteinn
Schveing Þorsteinsson flutti það síð-
an í húsið 1930. Þess má geta að apó-
tekið hefur þama leigusamning út
næsta ár.
„Þetta er geysilega vönduð hygg-
ing,“ sagði Sverrir. „Þarna em ýms-
ar vistarverur mjög skemmtilega
innréttaðar og notkunarmöguleik-
arnir eru óþrjótandi." -JSS
Ágreiningur um aldur útfluttra hesta:
Sagðir yngri en þeir eru
- aldursgreining ekki óyggjandi, segja dýralæknar
„Það fer ekki alltaf saman lífaldur
og tannaldur hrossa. Ég dæmi eftir
tannaldri, ef ekki er vitað með vissu
um lífaldur," sagði Steinn Steinsson
héraösdýralæknir við DV.
Þess hafa verið dæmi að dýralækn-
ar hafa úrskurðað útflutningshross
yngri en þau em við að lesa aldur
þeirra af tönnum. Eitt slíkt atvik kom
upp fyrir skömmu. Hestur var seldur
til Sviþjóðar. Dýralæknir hafði skoð-
að hann þrisvar sinnum hér heima,
þar á meðal var útflutningsskoðun,
og úrskurðað að hann væri fæddur
1984.
Þegar hesturinn var kominn til
Svíþjóðar kom í Ijós að hann var
fæddur 1981 og var því þrem árum
eldri en hann var sagður í uppruna-
vottorði sem fylgdi honum út. Kaup-
andinn lét tvo dýralækna í Svíþjóð
aldursgreina þennan sama hest. Ur-
skurður þeirra var á þann veg að
hesturinn gæti alls ekki verið eldri
en níu vetra eftir tönnunum að
dæma. Staðreyndin er samt sú að
hesturinn er fæddur 1981 og hefur
sá aöili, sem hesturinn er fæddur hjá
hér heima, staðfest það við DV. Nýi
eigandinn í Svíþjóð var að vonum
óhress meö þessa þróun mála. En þar
sem hann var ánægður með hestinn
að öðra leyti ákvað hann að láta
kyrrt hggja.
Einnig er þekkt nýlegt dæmi um 8
vetra hryssu úr Skagafirði sem keypt
var til Hafnarfjarðar. Tveir dýra-
læknar skoðuðu hana og fullyrtu
báðir að samkvæmt tönnum væri
hún aðeins 6 vetra.
„Það eru margar ástæður fyrir
þessu," sagði Helgi Sigurðsson dýra-
læknir. „Tennur hrossa shtna minila
ef þau ganga á grösugu landi þar sem
lítih sandur er. Þá geta þær gefið th
kynna að þau séu yngri en þau raun-
verulega em. Það fer einnig mikið
eftir halla tannanna hversu mikið
þær shtna. Loks getur hestur verið
með skakkt bit, þannig aö ekki er
sama hvorum megin er htið upp í
hann. Þessi fræði em því ekkert
hundrað prósent örugg.
En það má búast við að þetta kerfi
verði nákvæmara í framtíðinni.
Stöðugt er að færast 1 vöxt að folöld
eða veturgömul trippi séu frost-
merkt. Þar er aldurinn skráður á
óyggjandi hátt og er því hægt að bera
hann saman við tannaldur viðkom-
andi hrossa. Af þeim niðurstöðum
mætti síðan draga lærdóm sem gerði
þetta aldursgreiningakerfi nákvæm-
ara en nú er.“
Pósturogsími:
Ekki rétt að símtöl hækki
„Það er ekkert th í því að gjaldskrá
fyrir innanlandssamtöl verði bráð-
lega hækkuð um 23 prósent," segir
Kristján Indriðason, aöstoðarfram-
kvæmdastjóri Pósts og síma. For-
stjóri bandaríska fyrirtækisins Int-
ernational Discount Telecommuni-
cations, IDT, varaði viö þessari
hækkun í bréfi th DV. Sagði forstjór-
inn að Póstur og sími ætlaði sér að
verða samkeppnisfær við fyrirtæki
hans um ódýr milhlandasamtöl og
myndi líklega hækka gjaldskrá fyrir
innanlandssamtöl á móti.
Kristján bendir á að tekin hafi ver-
ið ákvörðun um lækkun á gjaldskrá
fyrir mhlhandasamtöl árið 1990. Hún
hafi komið í framkvæmd með nætur-
taxta. „En verulegar greiðslur okkar
í ríkissjóð auka ekki svigrúm okkar
th lækkunar. í fyrra greiddum við
550 milljónir í ríkissjóð en í ár greið-
um við 940 mhljónir."
Póstur og sími bendir á að fyrir
ahan þorra landsmanna séu milli-
landasamtöl samkvæmt gjaldsrká
fyrirtækisins fyllhega samkeppnis-
fær við símtöl sem fara í gegnum
bandaríska fyrirtækið.
-IBS
„Heart 2 Heart“
frumflytja lagið
Nei eða já
Dansleikur til kl. 3.00
Sannkölluð Eurovisionstemmning
Laugartí. 2. maí, laugard. 9. maí
Tamla Motown Soul Party Presenting
The Fabulous Sound of the Supremes
Supremes eiga fjöldann allan af „topp" lögum sem setið hafa i sæti vinsaelda-
lista Bandaríkjanna svo vikum og mánuðum skiptir. Topplögin eru eftirfarandi:
Baby Love, Stop in the Name
of Love, You Keep Me Hanging
on, I Hear a Symphony, There
Is no Stopping Us now, Where
Did Your Love Go, Back in My
Arms again, Come See about
Me, Love Is here and now
You're Gone, Someday We’ll
Be together, Yoy Can't Hurry
Love, The Happening, Love-
child, Qupit.
oRTIL FORT/o
ÍSLENSKIR TONAR M*
Móeiður Júniusdóttir Pétur Kristjánsson Berglind Björk Jónasd. Sigrún Eva Armannsd.
1 5. og 1 6. maí.
DR. HOOK Ein alvinsælasta hljómsveit sem til landsins hefur komið Hver man ekki eftir: Sylvia's Mother, The Cover of the Rolling Stones, Only Sixteen, Walk Right in, Sharing the Night together, When You’re in Love with a Beautiful Woman, Sexy Eyes, Sweetest of All, o.fl. o.fl.
FEGURÐARSAMKEPPNIÍSLANDS
1992
22. apríl
18 stúlkur keppa til úrslita.
Þetta er glæsilegasta kvöld sem Hótel Island býður upp á.
Borðapantanir hafnar.
Hljómsveitin
Stjórnin
leikur fyrir
dansi
ailar helgar
Sýningar á
heimsmælikvarða
á Hótel íslandi
Staður með stíl
Miðasala og borðapantanir í síma 687111