Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1992, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992.
11
Utlönd
Anna prinsessa sækir loks um skilnað frá Mark Phillips:
Skilur til að giftast
hestaveininum Tim
Reynt að bjarga þorpi í hlíðum Etnu:
Sprengjum varpað á hraunið
Sprengjusérfræðingar ráðast til at-
lögu gegn hraunstraumnum úr eld-
fjallinu Etnu á Sikiley í dag til að
reyna í annað sinn að koma í veg
fyrir aö sjö þúsund manna þorp, Zaff-
erana, í hlíðum fjallsins verði hraun-
inu að bráð.
Sérfræðingar frá ítalska sjóhern-
um sprengdu nokkrar sprengjur í
gær tU að hægja á hraunelfinni í 1900
metra hæð uppi í hlíðum fjallsins. -
Fimmtán sprengjur voru sprengd-
ar rétt yfir hrauninu skömmu eftir
hádegi til að brjóta veggi hraunrás-
arinnar.
„Þetta lofar góðu en er ekki nóg,“
sögðu vísindamenn eftir tilraunina.
Hrauni streymdi fram með fimm
metra hraða á klukkustund.
Þyrlur frá bandaríska hemum
slepptu síðan tveggja tonna þungum
steinflykkjum í rásina til að reyna
að loka henni. Það tókst þó ekki því
hnullungarnir flutu bara áfram með
hrauninu.
Vísindamenn eru að íhuga að
varpa þyngri steinum niður á hraun-
ið en það gæti reynst erfiðleikum
bundið.
Hraunið er nú í aðeins þúsund
metra fjarlægð frá útjaöri Zafferana.
Yfirvöld eru í viðbragðsstöðu til að
flytja íbúana á brott ef þörf krefur.
Reuter
hraunstraumnum sem nú ógnar þorpi þeirra. Sérfræðingar vörpuöu
sprengjum á hrauniö í gær og ætla að halda því áfram í dag. Simamynd Reuter
Anna prinsessa, dóttir Elísabetar
Bretadrottningar og frumburður
hennar, hefur sótt um skilnað frá
manni sínum, Mark Phillips. Þau
hafa ekki búið saman um árabil og
Mark hefur verið í htlu uppáhaldi
hjá tengdamóður sinni.
Heimildir eru fyrir því að Anna
hafi í hyggju að ganga eiga hesta-
sveininn Timothy Laurence en þau
hafa verið í leynilegu ástarsambandi
frá árinu 1989. Tim hefur lengi verið
í þjónustu Bretadrottningar og þykir
traustur maður þótt hann teljist vart
jafnoki Önnu að ættgöfgi.
Anna velur þó ekki hentugan tíma
til að skilja því að móðir hennar hefði
heldur kosið að hún biði þar til skiln-
aður Andrews sonar hennar og Söru
Ferguson er um garð genginn.
Drottningu þykir nóg um upplausn-
ina í fjölskyldunni þótt nýtt skilnað-
armál bætist ekki við.
Anna er áttunda í röð erfingja að
bresku krúnunni og svo gæti hugs-
anlega farið að við hlið Bretadrottn-
ingar sæti á tróninum hestasveinn.
Anna og Tim eiga hestamennskuna
að sameiginlegu áhugamáh en það
er vart nægileg ástæða til að almúga-
maður hefjist til æðstu metorða.
Talið er að Anna og Tim verði að
ganga í borgaralegt hjónaband því-
að móðir hennar er æðsti yfirmaður
Anna prinsessa hefur aldrei verið móður sinni, Bretadrottningu, leiðitöm
og hjónabandið með Mark Phillips entist ekki lengi. Nú ætlar Anna að
skilja til að giftast hestasveininum. Simamynd Reuter
ensku biskupakirkjunnar. Þar á bæ Mark í Westminster Abbey árið 1973.
er ekki tekið létt á hjónaskilnuðum. Þau eiga tvö börn, Pétur, 14 ára, og
Brúðkaupið verður því tilkomu- Söru, lOára.
minna en þegar Anna gekk að eiga Reuter
Aukinn byr í segl Clintons:
Hlaut stuðning stærstu
verkalýðshreyfingarínnar
- góður sigur í forvali í Virginíu
Barátta Bills Ohntons fyrir út- ekki binda trúss sitt við ákveðinn horfum núna lengra fram á veg-
nefningu demókrataflokksins fyrir frambjóðanda. inn.“
forsetakosningarnar i Bandaríkj- Paul Tsongas, sem dró framboð Nefhd leiðtoga verkalýðshreyf-
unum í haust fékk aukinn byr í gær sitt til baka eftir slæma Útreið i 111- ingarinnar AFL-CIO sem í eru 33
þegar haim sigraði í forvali flokks inois og Michigan, fékk tæplega verkaiýðsfélög með 14 milljónir fé-
síns í Virginíufylki og hlaut stuðn- eitt prósent atkvæða á forvalsfund- lagsmanna ákvað á fundi sínum í
ing leiðtoga stærstu verkalýðs- um flokksdeildanna i Virginíu. gær að mæla með Clinton í forseta-
hreyfmgar Bandaríkjanna. Fylkið sendir 78 fulltrúa á lands- embættið. Stuðningur verkalýðsfé-
Þegar 93 prósent atkvæða höfðu þingið í sumar. laganna er tahnn vera mikilvægur
verið talin í Virginíu haföi Clinton „Þegar á heildina er htið erum fyrir Chnton í Ijósi þess að margir
hlotið 52 prósent atkvæða en helsti við bara nokkuö ánægðir með stöð- kjósenda eru óánægðir með fram-
keppinautur hans, Jerry Brown, una eins og hún er nú,“ sagði Jeff bjóðendurnar sem keppa að út-
aðeins 121 prósent. Þrjátíu og sex Eller, talsmaður Clintons, í samtali nefningunni.
prósent kjósenda vitóu aftur á móti við Reuters-fréttastofuna. „Við Rcuter
AÐALFUNDUR
ALMENNA BÓKAFÉLAGSINS HF.
Hér með er boðað til aðalfundar Almenna bókafé-
lagsins hf. miðvikudaginn 15. apríl 1992 kl. 15.30
að Hótel Esju (Lundey á 1. hæð).
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum
félagsins.
2. Önnur mál.
Stjórn Almenna bókafélagsins hf.
ÆVINTÝRAFERÐ
Á VÉLSLEÐUM í LANDMANNALAUGAR
UM PÁSKANA
Tvær þriggja daga ferðir, frá fimmtudegi til laugar-
dags og laugardegi til mánudags.
Gist í skála Ferðafélagsins.
Allur búnaður fylgir, s.s. hjálmur, bomsur, galli, vél-
sleði og bensín.
Pantanir og upplýsingar í síma 682310.
SNOWMOBILE EXPEDITIONS
Dugguvogi 70 - 704 Reykjavík - Island - Sími (Tel): 354-1-682310
Fax: 354-1-813102 - KT: 640192 - 2089 - VSK NR: 32536
PÁSKAMYNDBÖNDIN
I AR
Á MYNDBANDALEIGUR í DAG
CIC MYNDBÖND
SÍMI 679787