Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1992, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1992, Blaðsíða 32
F R ÉTT AS KOTI Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þái síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökurn við frétta- skptum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifirig: Sími 63 27 00 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992. BHinn í nefið á bensínstöð Átján ára piltur hlaut talsvert slæman áverka þegar hann var bit- inn í nefið á bensínstöð í miðborginni aðfaranótt síðasta laugardags. Málsatvik eru þau að pilturinn var að fara inn í bíl hjá kunningja sínum á bensínstöðinni við Hafnarstræti. Skyndilega var ráðist aftan aö hon- um, honum hent í jörðina og sparkað í hann. Pilturinn komst við illan leik á fætur og inn í bílinn. En áður en hann næði að loka komst árásarmað- urinn einnig inn í bílinn og náði að bíta stykki úr nefi piltsins. Eftir það hafði hann sig á brott. Pilturinn fór á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. Hann hefur nú kært árásina. -JSS Hús á Akranesi aðhitnaáný Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi: Trilla tekin við ólöglegar veiðar útaf Reykjanesi Varðskipiö Ægir kom að sjö tonna trillu, Jennýju KE 32, að meintum ólöglegum veiðum út af Reykjanesi um kvöldmatarleytið í gær. Trillan var færð til hafnar í Sandgerði þar sem aflinn var gerður upptækur og vigtaður. Um var að ræða nokkur hundruð kíló. Málið verður afgreitt hjá bæjarfógetanum í Keflavík. Allar veiðar fyrir önnur veiðarfæri en skel- og grásleppuveiöar eru bannaðar frá Stokksnesvita að Bjargtöngum frá 11. apríl til 21. apríl. Einnig eru allar veiðar bannaðar í hólfisuðurafReykjanesi. -ÓTT Reynt að f inna sökudólg - meiri áhugi á „leka“ en maur? Mjög fjölmennur starfsmanna- fundur var haldinn með skömmum fyrirvara á Eliiheimilinu Grund fyrir helgi vegna fréttar DV í sið- ustu viku um kláðamaurstilfelli sem upp komu á stofnuninni. Samkvæmt upplýsingum DV úr röðum starfsmanna var áhersla lögð á það á hinum fjölmenna fundi að finna hugsanlegan „leka“ frá Grund til DV um máhð. Aðstoðar- maður forstöðumanns heimilisins sagði við DV fyrir helgi að málið yrði hugsanlega sent viðeigandí ráðuneyti_ og jafnvel kært til lög- reglu. Yfirlæknir stofnunarinnar sagði I viðtah við DV á laugardag að mælst hefði verið til þess að aliir vistmenn og starfsfólk á Grund, samtals um 500 manns, gengjust undir fyrirbyggjandi læknismeð- ferð vegna kláðamaurstilfellanna í þessariviku. -ÓTT Viðgerð á heitavatnslögn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, sem eyðilagðist í bruna í gær, lauk um fjögurleytiö í nótt. Rétt fyrir klukkan sjö var búið að fylla aðveituna og straumur settur á en það tók nokk- urn tíma að eðlilegt ástand yrði á ný vegna mikils lofts á ofnum. Hitaveitulögnin gaf sig á rúmlega 80 metra kafla á Lambhaganesi í gær þegar leiðslur sprungu vegna sinu- bruna síðdegis í gær. Leiðslurnar eru úr asbesti og þoldu ekki hitann. Þær voru klæddar mold og torfi þegar þær voru lagðar.. Heitavatnslaust varð á Akranesi þar til i morgun. Að sögn starfsmanns HAB er reiknað með því að ástand verði ekki orðið eðlilegt fyrr en um hádegið því að það tekur nokkurn tíma aö ná upp þrýstingi á bæjarhverfinu. Byggingarkostnaður Ráðhússins í Reykjavík er nú þegar orðinn nokkuð á fjórða milljarð króna. Iðnaðarmenn voru i gær að ieggja síðustu hönd á verkið, enda verður húsið vigt með pomp og pragt i dag. DV-mynd GVA Ráðhúsið vígt í dag Ráðhúsið við Tjörnina í Reykjavík verður tekið í notkun síðdegis í dag. Hátt í 700 manns hefur verið boðið til vígslunnar sem hefst klukkan 15. Klukkustund síðar hefst hátíðar- fundur borgarstjórnar í nýja húsinu. í kvöld snæða síðan borgarstjómar- fuhtrúar ásamt gestum í Perlunni. Á morgun verður síðan haldið hóf í Ráðhúsinu fyrir þá sem unnið hafa að framkvæmdunum við bygginguna sem nú þegar hefur kostað Reykvík- inga nokkuð á fjórða milljarð. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg liggur ekki fyrir hver kostnaðurinn við vígslu hússins verður en ljóst er þó að veislugestir munu innbyrða mat og vín fyrir mhljónir króna. Almenningur fær að skoða Ráðhúsið á skírdag. -kaa Faðir í sveit: Misnotaði tvö f ungbörnsín Á Heilhrieðisvfirvöld hafa til með-r Heilbrigðisyfirvöld hafa til með- ferðar mál sem tengist kynferðislegri misnotkun á tveimur bömum semf eru systkini. Þau gangast nú undirl læknismeðferð á sjúkrahúsi í' Reykjavík. Faðir þeirra er grunaður . um að hafa misnotað börnin gróf-f lega. Bömin eru þriggja og fimm ára. j ; Faðirinn kom nýlega með börnin í læknismeðferð til Reykjavíkur eng fiölskyldan býr í sveit úti á lands- byggðinni. A sjúkrahúsinu komP greinhega í ljós að ekki var allt með felldu. Samkvæmt heimildum DV| hefur maðurinn misnotað bæðil börnin í langan tíma. Yfirvöld á? sjúkrahúsinu hafa haft afskipti af málinu í ljósi þess að hér erum mjögf alvarlegt athæfi að ræða en eftir þvíj sem DV kemst næst hefur málið ekkr komið til kasta lögreglunnar ennþá., Mælst var th þess að faðirinn gengistf undir geðrannsókn. -ÓTT| á r 4 4 4 A ■ P 5 Hrafnfærað p myndaíGróttu Náttúruverndarráð ákvað í gær að Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda leikstjóri fengi að mynda atriði úr mynd sinni, Hinum helgu véum, í Gróttu í sumar. Grótta er friðlýst yfir varptímann, frá 1. maí til 1. júh. Hrafn mun mynda eftir þann tíma. Vita- og hafnamálastofnun hefur eftirlit með myndatökum Hrafns og ákveður hvað hann þarf að setja háa fiárhæð í tryggingu varðandi frágang að myndatöku lokinni. Náttúru- verndarráð krefst slíkrar tryggingar áöllumfriðlýstumsvæðum. -JGH 4 4 4 Kveiktu í olíukálfi Tveir phtar, 12 og 13 ára, kveiktu í þúsund lítra olíukálfi á Þingeyri í gærkvöldi. Höfðu piltarnir verið að leika sér að því að dæla olíu af hon- um og báru síðan eld að olíunni. Skipti þá engum togum að mikill eld- ur gaus upp. Þegar piltarnir sáu að þeir fengu ekki við neitt ráðið hringdu þeir í slökkviliðið og sögðu farir sínar ekki sléttar. Fljótlega tókstaðslökkvaeldinn. -JSS Lésteftirskíðaslys , Pilturinn, sem slasaðist á skíðum í í >i| Bláfiöllum á fóstudag, lést í gær. Hann hét Geir Þór Jóhannsson og var 14 ára. Piltur, sem slasaðist á Höfn um helgina, og annar, sem varð fyrir bíl á Grensásvegi fyrir tæpum tveimur vikum, Uggja þungt haldnir á gjör- gæsludehd Borgarspítalans. -IBS LOKI Er hrafninn ekki friðaður? Veörið á morgun: Víða nætur- frost Á morgun verður suðaustan- gola og síðar kaldi og þykknar smám saman upp suðvestan- lands en hæg norðaustlæg eða bréytheg átt og léttskýjað í öðr- um landshlutum. Hiti verður 0-5 stig að deginum en víða næturfrost. lBÍLASrö ÞR0STUR 68-50-60 VANIR MENN 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.