Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1992, Blaðsíða 16
Evrópumótið 1 badminton
Sigur og tap
hjá íslendingum
íslenska landsliðið í badminton
lék tvo leiki í gær á Evrópumeistara-
mótinu í Glasgow. Liðinu vegnaði
vel í fyrri leiknum gegn Austurrikis-
mönnum og sigraði, 5-0. Leikurinn
stóð yfir á fimmta klukkutíma.
í gærkvöldi beið liðið hins vegar
ósigur gegn Frökkum, 3-2, eftir
mjög jafna og tvísýna viðureign
Ekki var ljóst hvaða úrslit leiks-
ins hefðu áhrif upp á framhaldið
hjá íslenska liðinu því að ekki náð-
ist í fararstjóra liðsins eftir leikinn.
Evrópumótið
í borðtennis
íslenska karlalandsliðið tapaði
leikjum sínum í gær á Evrópumót-
inu í borðtennis sem fram fer í
Stuttgart. ísland tapaði fyrst fyrir
Norðmönnum, 4-0, og í gærkvöldi
fyrir Svisslendingum með sömu
tölum. íslenska liðið hefur aðeins
unnið einn leik til þessa á mótinu
en það var gegn Möltu, 4-2, um
helgina.
-JKS
ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992. ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992.
Iþróttir
Bjarki Sigurðsson átti stórkostlegan leik með liði sínu í gærkvöldi gegn
Fram og lagði grunninn að sigri liðsins. Bjarki sýndi sína gömlu, góðu takta
og skoraði 11 mörk.
IBV átti ekki
svarviðvömKA
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég er mjög ánægður með leikinn
og sigurinn. Við spiluðum sem lið og
það skiluðu allir sínu. Þá má ekki
gleyma þætti áhorfenda sem var stór.
En þetta var bara fyrri viðureignin
eða sú fyrsta af þremur," sagði Alfreð
Gíslason, þjálfari og leikmaður KA,
eftir að KA vann ÍBV, 28-21, á Akur-
eyri í gærkvöldi. Leikurinn var
þokkalega leikinn miðað við að liðin
eru að koma úr löngu fríi, og KA-
menn voru mun sterkari og sigur
þeirra aldrei í hættu.
Vinnum næstu tvo
„Þeir voru betri aðihnn allan leikinn.
Ég bjóst við vandræðum hjá okkur í
fyrsta leik en við vinnum bara næstu
tvo,“ sagði Sigurður Gunnarsson,
þjálfari Eyjamanna, og það er ljóst
að Eyjamenn hyggja á hefndir á
heimavelU sínum annað kvöld.
Það var ekki síst geysisterkur
varnarleikur sem skópð sigur KA,
og Eyjamenn voru á köflum í mestu
erfiðleikum með að finna smugur í
henni. KA hafði forustuna allt frá
byijun, staðan í hálileik, 13-9. í síð-
ari hálfleik tókst ÍBV að minnka
muninn í tvö mörk en KA svaraði
með þremur á jafnmörgum mínútum
og gerði út um leikinn.
10 manna lúðrasveit
Geysileg stemning var á meðal hinna
950 áhorfenda. Eyjamenn mættu með
10 manna lúðrasveit og klappUð en
heimamenn svöruöu með 6-7
trommusettum, lúðrum og úr varð
hávaði svo vart var hægt að tala sam-
an í húsinu. - Lið KA var jafnt, en
ástæða til að geta stórleiks Stefáns
Kristjánssonar í sókninni en í vörn-
inni tóku menn á saman og unnu sem
sterk Uðsheild.
Flestir spá
þremur leikjum
Eyjamenn voru lengi í hinum mestu
vandræðum, vörnin oft sein að fara
út í menn, markvarslan afar slök, og
liðið getur án efa betur. Flestir telja
liklegt að úrslitin ráðist ekki fyrr en
í þriðja leik á laugardag, og þá hefur
KA heimavölUnn sem forskot.
Hafsteinn Bragason, minnsti maðurinn á vellinum, átti frábæran leik i liði Stjörnunnar og hér er hann að skora eitt af 9 mörkum sínum. Á innfelldu myndinni er
Eyjólfur Bargason, þjálfari Stjörnunnar, einbeittur á svip. DV/mynd GS
FHskotiðákaf
-frískir Stjömumenn lögðu Hafnflrðingana að velli með 7 marka mun
Stefán Kristjánsson átti góðan leik Sigurður Friðriksson skoraði 5 mörk
í liði KA og skoraði 7 mörk. fyrir ÍBV.
„Við göngum nú tíl leikhlés. Þó svo
að við höfum lagt FH-inga að velU hér í,
Kaplakrika er sigurinn ekki í höfn og
við byggjum ekkert á þessum leik. Við
náðum upp frábærri vörn og mark-
vörslu og við höfðum trú á okkur sjálf-
um. Pressan var á FH-liðinu fyrir þenn-
an leik en ætli það snúist ekki við á
miðvikudaginn," sagði Eyjólfur Braga-
son, þjálfari Stjörnunnar, viö DV eftir
að Stjarnan hafði unnið óvæntan en
glæsilegan sigur á FH, 21-28, í úrsUta-
keppni 1. deildar karla í handknattleik
í Kaplakrika í gær.
Stjömumenn gáfu tóninn strax í upp-
hafi leiks, skoruðu þrjú fyrstu mörkin í
leiknum og það tók FH-inga 6 mínútur
að komast á blað. FH jafnaði metin eftir
10 mínútna leik og staðan var jöfn í leik-
hléi.
Eftir jafnar upphafsmínútur í síðari
hálfleik náðu Garðbæingar tökum á
leiknum og hreinlega „völtuðu" yílr
deildar- og bikarmeistara FH og þegar
upp var staðið var munurinn 7 mörk og
aðra eins útreið hefur FH vart fengið á
heimavelU sínum.
„Þeir voru einfaldlega miklu betri,
spiluðu örugglega sinn besta leik í vetur
og við áttum ekkert svar við því. Ég tel
að við höfum gefist upp of snemma og
eftirleikurinn var auðveldur fyrir
Stjörnuna. Við ætlum að kryfja þennan
leik saman í dag og munum koma í
Garðabæinn til að sigra og ekkert annað
með hjálp okkar stuðningsmanna,"
sagði Kristján Arason, þjálfari og leik-
maður FH, við DV eftir leikinn.
Það er óhætt að taka undir orð Kristj-
áns. Stjarnan lék án efa sinn besta leik
í vetur. Vörn Uðsins geysilega sterk og
Ingvar Ragnarsson lokaði marki á tíma
í síðari hálfeik. Enginn var þó betri en
Hafsteinn Bragason, hornamaðurinn
knái. Hann skoraði mörk úr öllum regn-
bogans litum og réðu FH-ingar ekk-
ert við hann. Patrekur átti mjög góð-
an síðari hálfleik og aUt Uðið á hrós
skUið fyrir góöan leik.
„Þetta var sætt. Við komum vel
undirbúnir til leiks og náðum heldur
betur að stinga upp í menn sem hafa
haft á orði að liðið væri karakter-
laust. Við ætlum að slá FH-inga út,“
sagði Patrekur Jóhannesson, leik-
maður Stjömunnar, við DV.
Þetta var ekki dagur FH-inga. Liðið
lék lengstum undir getu, sérstaklega
í síðari hálfleik. Bergsveinn og Óttar
voruskástumennliðsins. -GH
Skíðamót á Akureyri:
Yf irburðir Pernillu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Sænski ólympíumeistarinn Pem-
illa Wiberg hafði mikla yfirburði í
þriðju keppninni á alþjóðamótinu
á skíðum í Hlíðarfjalli í gær, eins
og í tveimur fyrri keppnunum.
í gær var keppt í svigi kvenna og
fékk sú sænska tímann 93,48 sek.
Önnur var Kristina Anderson frá
Svíþjóð á 95,43 sek. og Ásta HaU-
dórsdóttir náði góðum árangri og
fékk tímann 96,00 sek.
Karlarnir kepptu einnig í svigi
og Atle Hovi frá Noregi sigraði á
108,99 sek. Annar varð Christophe
Granberg frá Svíþjóð á 109,27 sek.
Kristinn Björnsson náði bestum
árangri íslensku keppandanna,
fékk tímann 112,07 sek. og varð í
5. sæti.
Úrslitakeppni 1. deildar karla 1 handbolta:
Bjarki óstöðvandi
- skoraði 11 mörk þegar Víkingur sigraði Fram, 26-21, í Víkinni
„Við tókum okkur saman i andlitinu
um miðjan síðari hálUeik en fram að
þeim'tíma var leikurinn í járnum. Ég
held að við höfum leikið þokkalega á
heildina litið en FramUðið var virkUega
erfitt viðureignar. Ég var hræddur þegar
Framarar komust yfir en þetta fór vel
þegar upp var staðið. Annar leikurinn
veröur örugglega erfiðari en þessi,“
sagði Bjarki Sigurðsson sem átti stór-
kostlegan leik með VíkingsUðinu gegn
Fram og lagði grunninn að sigri sín liðs,
26-21, í Víkinni í gærkvöldi.
Þetta var fyrsti leikur Uðanna í 8-Uða
úrslitunum en Framarar fá Víking í
heimsókn í HölUna á miðvikudagskvöld-
ið. Leikurinn var lengstum mjög spenn-
andi og jafn en Víkingar þó jafnan með
nauma forystu í fyrri hálfleik. Bæði liðin
sýndu góðan handbolta en markvarslan
var slök en lagaðist þegar á leikinn leik.
Víkingar léku mjög hraðan handbolta
en vörn Framliðsins var föst fyrir en hún
hefur ekki verið eins sterk í vetur. AtU
Hilmarsson, þjálfari Fram, hefur greini-
lega æft hana vel í hléinu.
Síðari hálfleikur var mjög jafn framan
af en upp úr honum miðjum sýndu Vík-
ingar klærnar og sigú fram úr. Leik-
reynslan sem liðið býr reyndist nota-
drjúg á lokakaflnum. Hinir ungu strákar
FramUðsins misstu einbeitinguna og
Víkingar tryggðu sér öruggan sigur.
Hrafn Margeirsson markvörður varði
geysilega vel á lokakaflanum og lokaði
hreinlega markinu.
„Við lékum vel í 45 mínútur en síðan
reyndu strákarnir ótímabær skot og því
fór sem fór. Sigur Víkinga var of stór
að mínu mati en það er gott að við fáum
annað tækifæri gegn þeim og það verður
nýtt til fulls. Ég er þokkalega bjartsýnn
fyrir annan leikinn en með skynsamleg-
um leik getur aUt gerst," sagði AtU Hilm-
arsson, þjálfari Fram, eftir leikinn við
DV.
Bjarki Sigurðsson var að öðrum ólöst-
uðum besti leikmaður vallarins í gær-
kvöldi. Sýndi þar sína gömlu takta og
var virkilega gaman að horfa til hans.
Birgir Sigurðsson var seigur á Ununni
en ekki má líta af honum eitt andartak
þá er voðinn vís. Hrafn Margeirsson var
sömuleiðis sterkur í markinu undir lok-
in. Annars var liðsheild Víkinga sterk í
þesum leik.
Gunnar Andrésson var í strangri
gæslu allan leikinn og komst lítið áleið-
is. Karl Karlsson náði sér á strik í síðari
hálfleik og Jason Ólafsson hefur ekki
sýnt jafn góðan leik í langan tíma. Mar-
kvarsla FramUðsins var alls ekki nógu
góð. -JKS
Fundur stjómar IHF um helgina:
Landsliðið
ekkimeðáOL
Nú er Ijóst að íslenska hand-
boltalandsUðiö mun ekki taka þátt
á ólyrapíuleiknunura í Barcelona
í sumar. ísland var fyrsta varaþjóð
Evrópulanda og voru margir
þeirrar skoðunar að íslendingar
tækju sæti Júgóslavíu vegna
ástandsins þar. Málefni Júgóslav-
íu voru rædd á fundi alþjóða hand-
knattleikssambandins um helgina
og var ákveðið að Júgóslavia héldi
sæti sínu í handknattleikskeppni
ólympíuleikanna. Ef þeir sæju sér
ekki fært að taka þátt yrði Slóven-
um og Króötum boðiö að koma sér
saman um þátttöku.
Kúba hefur tilkynnt að þeir sjái
sér ekki fært að taka þátt í hand-
knattleikskeppni ólympíuleikanna
af fjárhagsiegum ástæðum. Brasil-
íumönnum, sem var fyrsta vara-
þjóð fyrir Ameríku, hefur verið
boðin þátttaka og hafa þeir þegið
boðið.
Stjórn IHF tók ekki
opinbera afstöðu
Stjórn alþjóða faandknattleikssam-
bandsins tók ekki opinbera afstöðu
til beiðni íslands um að fá aö halda
HM hér á landi 1995 efnislega en
samþykkti að raálinu yröi vísað til
þingsins til staðfestingar eða höfn-
unar vegna breyttra forsenda. Þá
fór gjaldkeri IHF yfir endurskoð-
aöa fjárhagsáætlun fyrir HM ’95,
sera tækninefndinni var afhent í
Austurríki á dögunum. Gjaldker-
inn gerði engar athugasemdir og
taldi hana raunhæfa.
fijóst er að HSÍ þarf á næstu
mánuðum að vinna vel að því að
upplýsa aðildaþjóðir IHF um stöðu
mála og afla HM ’95 á íslandi
áframhaldandi stuðnings til aö
tryggja farsæla afgreiðslu á þing-
inu í Barcelona.
-GH
Liverpool
á Wemley
Það verða Liverpool og Sunderland
sem leika til úrshta um enska bikar-
inn í knattspymu á Wemley þann 9.
maí. Liverpool mátti hafa sig allt við
að sigra 2. deildar lið Porstmouth í
undanúrslitum á Villa Park í gær.
Eftir markalausan leik og framleng-
inu var gripið til vítaspyrnukeppni
og þar vann Liverpool, 3-1. Engu
munaði þó að 2. deildar Uðið færi
með sigur af hólmi en Uðið átti skot
í stöng á lokamínútu venjulegs leik-
tíma. -GH
FH (11) 21
Stjaman (11) 28
0-3, 4-4, 7-5, 9-9, 11-11, 14-14,
15-17, 18-20, 18-23, 21-28.
Mörk FH: Hans Guðmundsson
7/2, Þorgils Óttar Mathiesen 4,
Kristján Arason 3, Guðjón Áma-
son 3, Gunnar Beinteinsson 2, Sig-
urður Sveinsson 1, Hálfdán Þórð-
arson 1.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 16/1, Magnús Sigmunds-
son 1.
Mörk Stjömunnar: Hafsteinn
Bragason 9, Patrekur Jóhannes-
son 5, Skúli Gunnsteinsson 5, Axel
Björnsson 3, Einar Einarsson 3/2,
Magnús Sigurðsson 1, Hilmar
Hjaltason 1.
Varin skot: Brynjar Kvaran 3,
Ingvar Ragnarsson 12.
Brottvísanir: FH 6 mín., Stjarn 6.
Dómarar: Óli Ólsen og Gunnar
Kjartansson, sæmilegir.
Áhorfendur: 1200.
Víkingur (13) 26
Fram (12) 21
0-1, 3-1, 6-4, 8-8, 11-9, 13-10,
(13-12). 13-13, 15-13, 15-16, 18-18,
22-19, 24-20, 26-21.
Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson
11/1, Birgir Sigurðsson 5, Gunnar
Gunnarsson 4/1, Guðmundur Guð-
mundsson 3, Björgvin Rúnarsson
1, Alexji Trúfan 1, Ámi Friðleifs-
son 1. Varin skot: Hrafn Margeirs-
son 8, Reynir Reynirsson 5.
Mörk Fram: Páll-Þórólfsson 6/4,
Karl Karlsson 5, Jason Ólafsson
4, Gunnar Andrésson 2, Davíð
Gíslason 2, Brynjar Stefánsson 2.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson
5.
Brottvísanir: Vík 4 mín., Fram 6.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og
Sigurgeir Sveinsson. Slakir.
, Áhorfendur: Um 700.
KA
ÍBV
(13) 28
(9) 21
2-0, 3-3, 6-3, (13-9), 16-10, 17-15,
20-15, 23-18, 28-21.
Mörk KA: Stefán Kristjánsson
7, Sigurpáll Aðalsteinsson 7/3, Al-
freð Gíslason 5, Erlingur Kristj-
ánsson 4, Ámi Stefánsson 2, Jó-
hann Jóhannsson 2, Pétur Bjarna-
son 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 12.
Mörk ÍBV: Sigurður Friðriksson
5/2, Zoltan Belanyi 4, Sigurður
Gunnarsson 4/1, Guðfmnur Krist-
mannsson 3, Gylfi Birgisson 2, Jó-
hann Pétursson 1, Erlingur Ric-
hardson 1, Sigurbjöm Óskarsson
1.
Varin skot: Sigmar Þröstur 5.
Ingólfur Arnarsson 3.
Brottvísun: KA 16 mínútur, ÍBV
2 mínútur.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson
og Hákon Sigurjónsson, slakir.
Áhorfendur: 952 greiddu aðgang.
Selfoss
Haukar
(13) 34
(11) 27
2-2, 5-3, 7-5, 7-7, 9-8, 12-9,
(13-11). 15-12, 19-14, 24-15, 25-19,
28-20, 31-25, 34-27.
Mörk Selfoss: Sigurður Sveins-
son 12/4, Einar G. Sigurðsson 8,
Gústaf Bjarnason 6, Jón Þórir
Jónsson 3, Sigurjón Bjarnason 3,
Einar Guðmundsson 2. Varin skot:
Gísli Felix Bjamason 9, Einar Þor-
varðarson 12.
Mörk Hauka: Páll Ólafsson 7/2,
Óskar Sigurðsson 4, Sigurjón Sig-
urðsson 3, Sveinberg Gíslason 3,
Jón Öm Stefánsson 3, Halldór Ing-
ólfsson 2, Aron Kristjánsson 2,
Petr Bamruk 2, Pétur Vilberg
Guðnason 1. Varin skot: Magnús
Áranon 9, Þorlákur Kjartansson 1.
Brottvisanir: Selfoss 14 mín.,
Haukar 4 mín.
Dómarar: Stefán Amaldsso'n og
Rögnvald Erhngsson, dæmdu
ágætlega í heildina en sumir dóm-
arjreirra vöktu furðu.
Ahorfendur: Um 600.
IBR
mfl. karla A-riðill
KRR
REYKJAVIKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
^^IR-VIKINGUR
í kvöld kl. 20.00
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
Siggi í ham
- Selfoss sigraði Hauka, 34-27
Sveinn Helgason, DV, Selfossi:
„Við komum ákveðnari til leiks og
unnum fyrst og fremst á betri vörn
og markvörslu. Leikurinn í Hafnar-
firði verður erfiður en við munum
fara þangað til að vinna. Ef við fáum
okkar fólk með í Fjörðinn þá held ég
að við klárum dæmið á miðviku-
dag,“ sagði Einar Gunnar Sigurðs-
son, leikmaður Selfyssinga, við DV
eftir sigurinn gegn Haukum, 34-27, á
Selfossi í gærkvöldi en leikunnn var
Uöur í 8-liða úrslitum um íslands-
meistaratitilinn í handknattleik.
Selfyssingar vel hvattir af heima-
mönnum unnu öruggan sigur á
Haukum á heimavelU í gærkvöldi.
Haukamenn þurfa aö taka sig saman
í andlitinu fyrir leikinn í Hafnarfrrði
annað kvöld ef ekki á illa aö fara.
Fyrri hálfleikur var þó í jafnvægi en
í upphafi síðari hálfleiks skildu leiðir
gjörsamlega. Góð vörn og mark-
varsla Selfyssinga geröi útslagið og
ennfremur léku' þeir Sigurður
Sveinsson og Einar Gunnar Sigurðs-
son sóknarleikinn eins og kóngar.
Á sama tíma náðu þeir Petr
Bamruk og Halldór Ingólfsson sér
engan veginn á strik. Hins vegar stóð
Páll Ólafson vel fyrir sínu, dreif sína
menn áfram en það dugði ekki til.
„Við erum auðvitað svekktir en ég
held að menn séu komnir niður á
jörðina og við sýnum hvað við getum
í næsta leik,“ sagði Sigurjón Sigurðs-
son hjá Haukum eftir leikinn við DV.
Sigurður Sveinsson og Einar
Gunnar Sigurðsson voru bestu menn
Selfyssinga en Sigurði var sýnt rauða
spjaldið þegar skammt var til leiks-
loka en annar dómarinn taldi hann
vera að mótmæla dómi og fyrir vikið
var Sigurður sendur í sturtu. Mar-
kvarslan var sterk og var sérlega
gaman að sjá til Einars Þorvarðar-
sonar í markinu.
'Haukaliðið fær annað tækifæri
annað kvöld en ljóst er að liðið þarf
að leika mun betur til að jafna met-
in. Páll Ólafsson stóð upp úr í liðinu.
-JKS
Sigurður Sveinsson var í miklum
ham og skoraði 12 mörk.
Páll Olafsson lék best i liði Hauka
en það dugði ekki til að þessu sinni.
íþróttir___________________
Sport-
stúfar
PSV og Ajax, sem berj-
ast um hollenska
meistaratitihnn i
knattspyrnu, unnu
bæði leíki sina um helgina. PSV
er með þriggja stiga forskot á
Ajax og er hklegt til að veija titil
sinn. Ursht leikja urðu þannig:
Ajax - Den Haag........3-2
Groningen - Feyenoord..1-0
Waalwijk - Maastricht..1-1
Utrecht - Vitesse.....1-1
Twente-Venlo..........2-1
Sparta-Roda...........4-0
PSV-Willem.............3-0
Sittard -Dordrecht....0-0
Dœtinchem - Volendam...3-0
PSV er með 52 stig, Ajax 49,
Feyenoord 42, Vitesse 37.
Börsungar töpuöu
gegn Valencia
Barcelona varð að sætta sig við
tap gegn Valencia í spænsku l.
deildinni í knattspymu um helg-
ina. Á sama tíma gerðu aöal-
keppinautarnir í Real Madrid
markalaust jafntefh við Mallorca.
Manolo Sanchez skoraði 4 mörk
í stórsigri Atletíco Madrid og
Cadíz. Úrsht leikja í spænsku 1.
deildinni í knattspyrnu urðu
þannig:
Albacete - Coruna.....3-0
Burgos -Logrones......2-0
Mallorca - Real Madrid.0-0
Espanol - Gijon.......2-0
Sociedad - Sevilla....2-1
Oviedo - Valladohd....2-1
Atl.Madrid-Cadiz......5-1
Osasuna - Tenerife....2-0
Valencia - Barcelona..1-0
Real Madrid er með 44 stig,
Barcelona 42, Atletico Madrid 40,
Albacete 36, Valencia 36.
Aftur markalaust
hjá Hlyni
Hlynur Stefánsson og félagar
hans í Örebro gerðu markalaust
jaftitefli gegn GAIS í sænsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu á
sunnudapnn. Úrsiit leikja um
helgina urðu þannig:
Djurgárden - Trelleborg.1-2
Frölunda - Gautaborg....1-0
Malmö-Öster.............2-2
Norrköping - AIK........3-1
GAIS - Örebro...........0-0
Víkingur mætir
IRikvÖld
Eínn leikur er á Reykjavíkurmót-
inu í knattspyrnu í kvöld. ÍR og
Víkingur leiða þá saman hesta.
sína og hefst viðureign hðanna á
gervigrasinu í Laugardal klukk-
an 20.
Kristlnn og Helgi
í FIBA-prófið
Körfuboltadómararnir
Kristinn Óskarsson og
Helgi Bragason hyggj-
ast reyna að næla sér
í FIBA réttindi eða alþjóðleg dóm-
araréttindí. Þeir þreyta prófiö i
Noregi samhhða Norðurlanda-
mótinu sem haldíð verður þar í
næsta mánuði. Leifur Garðars-
son og Kristinn Möller hugöust
reyna fyrir sér líka en komast
ekki vegna prófa og þá er Leifur
á fuhu með FH i knattspymunni
á sama tíma.
ÍR-ingar með
skotnámskeið
Körfuknattleiksdeild ÍR gengst
fyrir körfuboltanámskeiöi þar
sem lögð veröur áhersla á skot-
tækni. Myndband veröur notaö
til að lagfæra skotstíl. Þjálfari ÍR,
Arthur Babcoock, er kennari
ásamt troðkóngnum Samuel Gra-
ham, Námskeiðið verður haldið
dagana 21.-23. apríl fyrir 12 ára
og yngri og 27.-29. apríl fyrir
13-16 ára. Kennslan fer fram í
Seljaskóla og eiga þátttökutil-
kynningar að berast í síma 74424
Og 613303.