Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1992, Side 31
ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992.
31
Sviðsljós
Leikkona fer á
Leikkonan fræga, Glenda Jackson,
sigraöi í sínu kjördæmi í bresku
þingkosningunum sem haldnar voru
9. apríl sl. Glenda bauö sig fram fyr-
ir Verkamannaflokkinn og þótt sá
flokkur næði ekki þeim árangri sem
hann stefndi að þá komst Glenda
engu að síður inn á þing.
Kjördæmi Jackson heitir Hamp-
stead og Highgate og er í úthverfum
Lundúnaborgar. Fyrirfram var talið
að mjög erfitt yrði fyrir hana að ná
kjöri i þessu kjördæmi því nokkuð
stór hluti íbúanna er vel efnaður og
kysi því líklega íhaldsflokkinn. Jack-
son vann hins vegar nokkuð sann-
færandi kosningasigur og má þakka
það hversu.vel hún er kynnt meðal
almennings. Raunar náði Sebastian
Coe, sem er frægur breskur lang-
hlaupari, kjöri fyrir íhaldsflokkinn í
öðru kjördæmi. Ljóst er að frægir
íþróttamenn, tónlistarmenn og leik-
arar hafa meðbyr í baráttu sem þess-
ari.
Ronald Reagan fór út í stjómmál
eftir langan leikhstarferil. Jackson
verður hins vegar alveg æf þegar
menn reyna að líkja henni saman viö
forsetann fyrrverandi. Sviðsljósið
skilur hins vegar alls ekki hvers
vegna það er.
Gorbi og Raisa eru þessa dagana í 12 daga ferð um Tokyo í boði sérstakrar Gorbatsjov-móttökunefndar. A mynd-
inni sjást þau skötuhjú í góðum félagsskap Mikka og Minniear í Disneyland-garðinum iTokyo. Simamynd Reuter
Fjölmiðlar
Það hefur ætíð verið mér undrun-
arefhi hversu margir og tímafrekir
íþróttaþættir Sjónvarpsins eru.
Trúlega hefur einhver hluti þjóðar-
innar áhuga á að horfa á aðra hreyfa
sig en öliumá þó olgera. íþróttaefni
Sjónvarpsins er nú orðið það fyrir-
ferðarmikiö að þeir sem á annað
borð horfa á það geta vart gert nokk-
uðannað.
Á dagskrá Sjónvarpsins í gær-
kvöldi var mikið íþróttaefni og trú-
lega hefur margur náð að rækta
sinn óvirka íþróttaáhuga, flatmag-
andi uppi í sófa fyrir framan skerm-
inn. Sýndur var handboltaleikur úr
Haíharíirðinum og syrpuþáttur
með fótboltaleikjum frá Englandi.
Ekki nennti ég að hanga yfir þessum
leikjum og skokkaði þess í stað um
borgina, mér til ómældrar ánægju.
Að venju horfði ég á fréttir í Sjón-
varpinu í gær, bæði þær sem voru
klukkan átta og þær sem áttu að
vera klukkan ellefu. Reyndar byrj-
uðu seinni fréttimar fyrst tuttugu
og tvær mínútur yfir ellefu, rétt eins
ogþað væri sjálfsagt mál. Að und-
aníornu finnst mér þessi seinkun
hafa gerst æði oft og er byrjaðúr að
fá á tilfinninguna að þetta þyki sjálf-
sagt mál. Þetta fer hins vegar mjög
í taugarnar á mér, enda hef ég nóg
annað við tímann að gera heldur en
láta hann líða í bið fyrir framan
skjáhm.
Ekki veit ég hvað seinkaði dag-
skránni í gær en hef þó íþróttimar
sterklega grunaðar, enda einn al-
gengasti orsakaþáttur seinkana þar
á bæ. Það er eins og dagskrárgerðar-
menn íþróttadeildarinnar haldi að
helsta áhugamál þjóöarinnar sé að
horfa á þá vinna yfirvinnu.
Kristján Arí Arason
Glenda Jackson ætlar aó hvíla sig
á leiklistinni í bili og einbeita sér
að stjórnmáiaþrefi. Hér sést hún (til
vinstri) í hlutverki Elísabetar I. en
með henni á myndinni er Vanessa
Redgrave.
liz líkar
viö leðrið
Elísabet Taylor er eina sextuga
amman sem getur klætt sig eins og
mótorhjólagella! í sjónvarpsþætti,
sem hún kom fram í verið, var hún
klædd í svartan leðurjakka, mjög
þröngar svartar gallabuxur og há
leðurstígvél. Var það niál manna að
hún tæki sig ansi vel út í þessum
groddalega galla. Því var náttúrlega
einnig haldið fram að hún hefði aldr-
ei verið unglegri en það er að verða
árviss viðburður hjá fjölmiðlum
vestanhafs. Ef Liz heldur áfram að
yngjast svona með aldrinum verður
hún farin að keppa við Juhu Ro-
berts, Melaine Griffith og Kim Basin-
ger um helstu kynbombuhlutverkin
um sjötugt!
Ætti ég að leggja í hann? Já, Já.
Því stærri sem þeir eru þeim mun
meira er faliið! Hann virðist hugs-
andi, þessi rúmlega þriggja ára
snáði, enda er ekki í lítið ráðist þvi
að glímukappinn er 250 kíló.
Ffeew(w&
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900
Á BYLGJUNNI
Á hverjum degi hringir
Bibba á Bylgjuna og lœtur
dœluna ganga.
Misstu ekki af henni.
989
GOTT ÚTVARP
Veður
Norðaustan- og austangola, léttskýjað um vestan-
vert landið en skýjað um austanvert landið og við
suðausturströndina. Hiti 1-5 stig i dag en vægt
næturfrost.
Akureyri alskýjað -1
Egilsstaðir alskýjað -2
Kefla víkurflug völlur skýjað 0
Kirkjubæjarklaustur skýjað 0
Raufarhöfn alskýjað 0
Reykjavik léttskýjað -2
Vestmannaeyjar skýjað 2
Bergen rign/súld 3
Helsinki alskýjað 3
Kaupmannahöfn skúr 3
Ósló snjóél 1
Stokkhólmur skýjað 3
Þórshöfn hálfskýjað 4
Amsterdam skýjað 8
Barcelona þokumóða 8
Berlín rigning 6
Chicago alskýjað 4
Feneyjar þokumóða 7
Frankfurt skýjað 8
Glasgow rigning 5
Hamborg rigning 4
London alskýjað 8
LosAngeles heiðskírt 16
Lúxemborg skýjað 5
Madrid heiðskírt 6
Malaga þokumóða 12
Mallorca þokuruðn. 4
Montreal alskýjað -3
New York alskýjað 6
Nuuk skýjað -2
Orlando alskýjað 19
París skýjað 3
Róm þokumóða 13
Valencia léttskýjað 8
Vín léttskýjað 9
Winnipeg skýjað 1
Gengið
Gengisskráning nr. 73. -14. april 1992 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 59,080 59,240 59,270
Pund 104,297 104,579 102,996
Kan. dollar 49,909 50,044 49,867
Dönskkr. 9,2410 9,2660 9,2947
Norsk kr. 9,1455 9,1703 9,1824
Sænsk kr. 9,9152 9,9421 9,9295
Fi. mark 13,1508 13,1864 13,2093
Fra.franki 10,5859 10,6146 10,6333
Belg. franki 1,7428 1,7475 1,7520
Sviss. franki 38,9453 39,0508 39,5925
Holl. gyllini 31,8465 31,9327 32,0335
Þýskt mark 35,8506 35,9477 36,0743
It. líra 0,04765 0,04778 0,04781
Aust. sch. 5,0964 5,1102 5,1249
Port.escudo 0,4175 0,4186 0,4183
Spá. peseti 0,5722 0,5738 0,5702
Jap.yen 0,44453 0,44573 0,44589
írskt pund 95,710 95,969 96,077
SDR 81,1080 81,3276 81,2935
ECU 73,4394 73,6383 73,7141
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður
13. apríl seldust alls 7,961 tonn.
Magn í Verö í krónum
tonnum Meöal Lægsta Hæsta
Blandað 0,082 20,00 20,00 20,00
Hrogn 0,337 66,10 50,00 75,00
Langa 0,032 69,00 69,00 69,00
Lúða 0,031 465,00 465,00 465,00
Rauðmagi 0,011 20,00 20,00 20,00
Skarkoli 1,308 76,08 75,00 78,00
Þorskur, sl. 4,916 87,20 79,00 95,00
Þorskur, smár 0,302 80,00 '80,00 80,00
Ufsi 0,298 30,11 30,00 31,00
Ýsa.sl. 0,638 132,11 131,00 136,00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
13. apríl seldust alls 19,827 tonn.
Lýsa, ósl. 0,011 41,00 41,00 41,00
Langa, ósl. 0,076 44,00 44,00 44,00
Keila, ósl. 0,165 36,00 36,00 36,00
Steinbítur, ósl. 0,853 49,00 49,00 49,00
Bland 0,400 120,00 120,00 120,00
Rauðm/gr 0,147 65,00 65,00 65,00
Þorskur, st. 1,124 103,00 103,00 103,00
Hrogn 0,462 95,00 95,00 95,00
Ýsa 1,927 128,36 116,00 141,00
Smár þorskur 0,587 81,33 81,00 84,00
Ufsi 1,695 43,47 43,00 44,00
Þorskur 9,407 92,14 69,00 94,00
Steinbítur 0,138 55,20 51,00 80,00
Skötuselur 0,024 150,00 150,00 150,00
Lúða 0,209 400,60 350,00 480,00
Langa 0,058 52,00 52,00 52,00
Skarkoli 0,998 36,44 35,00 54,00
Karfi 1,546 25,00 25,00 25,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
13. apríl seldust alls 1,513 tonn.
Þorskur 0,595 74,03 70,00 76,00
Ýsa 0,195 89,15 83,00 95,00
Keila 0,700 30,00 30,00 30,00
Skarkoli 0,020 20,00 20,00 20,00
P HÍPK
ÞURRKUBLÖÐIN VERÐA
AÐ VERA ÚSKEMMD
og þau þarf að hreinsa reglulega.
Slitin þurrkublöð margfalda áhættu
í umferðinni.
mIumferðar
Uráð