Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1992, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 18, JÚNÍ 1982.
3
Fréttir
Erlingur Erlingsson: Gefum út
dansk-íslenska orðabók í tilefni af-
mælisins. DV-mynd BG
ísafold 115 ára:
Vísindanefnd hvalveiðiráðsins fundar 1 Glasgow:
Grænfriðungar mættir
Fundur vísindanefndar Alþjóða
hvalveiðiráðsins stendur nú yíir í
Glasgow. Náttúruverndarsamtök
með Grænfriðunga í broddi fylk-
ingar eru þegar byrjuð að láta á sér
bera. Mótmælagöngur hafa átt sér
stað í miðborg Glasgow og einnig
má sjá auglýsingar í blöðum þar
sem hvalveiðum er mótmælt, m.a.
á þeim forsendum að það taki hvali
of langan tíma að deyja með þeim
veiðiaðferðum er tíðkast. Fundi
nefndarinnar lýkur á mánudag.
Að sögn Jóhanns Sigurjónssonar
sjávarlíffræðings, sem situr fund-
inn fyrir íslands hönd, stefnir
nefndin að því að ljúka endurskoð-
un á veiðistjórnarkerfinu og setja
fram tillögur um hvemig hægt sé
að beita því á hrefnustofna í Norð-
ur-Atlantshafi og á suðurhveli. Al-
þjóða hvalveiðiráðið hefur tvívegis
synjaö íslendingum um veiðileyfi á
þeim forsendum að veiðistjómar-
kerfiö væri ekki tilbúið.
Jóhann vill engu spá um það
hvaða pól ráðið, sem tekur niður-
stööur nefndarinnar til umfjöllun-
ar, kemur til með að taka í hæðina
og hvort að niðurstaða ráðsins
muni breyta einhveiju um ákvörð-
un íslenskra stjórnvalda um úr-
sögn. -GS
Gefurút
danska-íslenska
orðabók
Prentsmiðjan ísafold er 115 ára um
þessar mundir. Að sögn Erhngs Erl-
ingssonar útgáfustjóra ber það helst
til tíðinda á afmæhsárinu að út kem-
ur á vegmn ísafoldar ný dönsk-
íslensk orðabók sem verið hefur í
smíðum síöustu átta árin.
„Við munum senda út thboð til um
það bil 15 þúsund manna þar sem
þeim er boðið að kaupa bókina á
hagstæðu verði,“ segir Erhng. Um
er að ræða fólk sem er á einhvern
hátt tengt norrænu samstarfi og
ýmsar stofnanir, bæði danskar og
íslenskar. „Það vih svo til að á af-
mælisdaginn kemur út nýtt frí-
merki. Þar af leiðandi verða öll th-
boðin send út í fyrsta dags umslagi.
Þetta frímerki er tengt íslenskum
iðnaði og því vel við hæfi.“
Nýja orðabókin verður á stærð við
Orðabók Menningarsjóðs. Aðalrit-
stjórar verksins eru þær Hrefna Am-
alds og Ingibjörg Johannessen. Að-
stoðarritstjóri er Hahdóra Jónsdótt-
ir. Orðabókin hefur verið aðalverk-
efni ísafoldar um alhangt skeið en
einnig hefur prentsmiðjan einbeitt
sér að útgáfu námsbóka. Þá hafa iðu-
lega komið út nokkrir titlar um jóhn
ávegumísafoldar. -GS.
Norrænbók-
menntaverðlaun
tilThorsVil-
hjálmssonar
Sænska akademían hefur thnefnt
Thor Vhhjálmsson rithöfund hand-
hafa Norrænu bókmenntaverðlaun-
anna fyrir árið 1992. Fær hann
250.000 þúsund sænskar krónur (2,5
mihjónir íslenskar) sem er hæsta
upphæð sem sænska akademían
veitir fyrir utan nóbelsverðlaunin.
Ritari sænsku akademíunnar,
Sture Allén, sagði þegar hann til-
kynnti um verðlaunin að hann væri
persónulega mjög ánægður með út-
hlutunina og sagði að Thor Vh-
hjálmsson væri sterkur rithöfundur
á alþjóðlegan mælikvarða en ætti
einnig grónar rætur í íslenskri skáld-
sagnahefð. Allén tók það einnig fram
að verðlaunin eru ekki veitt fyrir
eitt sérstakt skáldverk heldur væri
tekinn saman ferih skáldsins.
Thor Vilhjálmsson er sjöundi rit-
höfundurinn sem fær verðlaun þessi
sem veitt eru árlega. Áður hafa Vihy
Sörensen, William Heinesen, Nhs
Erik Enkvist, Rolf Jacobsen, Henrik
Nordbrandt og Thomas Tranström-
merfengiðverðlauiún. -HK
Örugg leið til að
léttast varanlega
Þessi kona, Marion Ward, Banda-
ríkjunum missti 45 kg á 7 mánuðum á
árinu 1990, með hjálp Undraverða
Míkrófæðisins. Og það besta er að hún
hefur haldið þessum árangri til dagsins
í dag, vegna þess að Míkrófæðið er
ekki niðurdrepandi meinlætalifnaður
heldur fjölbreyttur og spennandi
kostur, sem hjálpað hefur fjölda fólks
að breyta lífsvenjum sínum til
langframa.
Þegar þú vilt grennast og tryggja
varanlegan árangur, eins og Marion, er
Undraverða Míkrófæðið sérstaklega
örugg og skemmtileg leið, vegna hins
fjölbreytta úrvals af pottréttum,
súpum, drykkjum, morgunkorni og
trefjastykkjum. Allt er þetta ríkt af
næringarefnum en rýrt af
hitaeiningum.
Hafðu samband eða komdu og við
veitum þér persónulega ráðgjöf og
stuðning alla leið að settu marki.
IdwJbicuAesiÁa
jjj|| m m?
mllfDfi
.. IfllflMW'-
FÆÐIÐ
Laugavegi 95, 3. hæð (gegnt Stjörnubíói), sími 623230