Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1992, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1992, Blaðsíða 9
 Utlönd Mexíkó mótmælti enn aögerö- um Bandarikjanna innan landa- mæra sinna í gær. Haft var eftir þarlendum yfirvöldum aö banda- ríska lögreglan heföi rænt öörum mexíkóskum rikisborgara. Tailand hefur lflca mótmælt viö bandarísk yfirvöld eftir aö hæsti- réttur Bandaríkjanna úrskuröaöi ræna mönnum úman landamæra annarra ríkja sem grunaðir eru um glæpsamlegt athæfi og draga fyrir rétt í Bandaríkjunum. Þessi úrskurður hæstaréttar Bandaríkjanna féll i niáli varö- andi mexikóskan lækni sem rænt var árið 1990. Hann var dreginn fyrir rétt í Bandarikjmium og kærður fyrir að hafa pyntað og myrt bandarískan lögreglumann. Yfirvöld í Mexikó segja aö öðr- um manni hafi verið rænt þann 13. júní. Sá var grunaöur um aö- ild aö eiturlyfiasmygh. Nefnd á vegum Evrópubanda- lagsins kunngiörði nýlega áætlun um að fækka bílum í borgum bandalagsins þar til takmarkinu, bilalausum borgum, yrði náð. Talsmaður nefndarinnar sagð- ist reikna með að það tæki mörg ár að ná takmarkinu en þegar því hetði verið náð yröi sparnaður- inn umtalsverður. „Bílalausar borgir eru tvisvar tii fimm sinnum ódýrari en þær sem fullar eru af bifreiðum," sagði talsmaðurinn. „Borgir Evr- ópu eru aö kafiia í umferð og mengun. Einkabílaeign eykst stöðugt og því verður að grípa í taumanastrax." ReuterogFNB SarajevoíBosníu: Hjálpargögn byrj' uð að berast Hjálpargögn bárust loks til hinnar stríðshrjáðu Sarajevo í Bosníu í gær. Frönsk hjálparsveit kom til flugvall- arins með 31 bíl hlaðinn 130 tonnum af mat, lyfjum og fatnaði. 80 meðlimir friðarsveita Samein- uðu þjóðanna athöfnuðu sig í friði á fiugvellinum þar sem þeir voru að undirbúa almenna opnun vallarins. Serbar halda enn völdum yfir flug- vellinum. Frönsku hjálpargögnin, sem komu til borgarinnar í gær, eru aðeins forskot á þá loftbrú sem Sam- einuðu þjóðimar íhuga að setja í gang. Bosníuforseti, Alija Izetbegovic, sagði að vonir stæðu til að takast mætti að opna flugvöllinn, sem Sarajevobúar líta á sem líflínu sína, einhvem tíma í næstu viku. Bardag- ar hafa verið harðir að undanfómu og ekki lítur vel út með vopnahlé á næstunni eftir ítrekuð brot á þeim Gamall maöur i Sarajevo situr grát- andi í rústum verslunar sinnar. Símamynd Reuter sem hingaö til hefur verið samið um. Haft var eftir utanrikisráðherra Serbíu, Jovanovic, í gær að forseti Serbíu, Slobodan Milosevic, muni ekki ætla sér að segja af sér þrátt fyrir mikinn þrýsting frá almenn- ingi. Hins vegar væri forsetinn að íhuga að boða til almennra kosninga. Jovanovic sagöi að ennþá styddi meirihluti Serba forsetann og að af- sögn hans mundi ekki leiða til lausn- ar á vandamálum fyrrum Júgóslav- íu. Talið er að nálægt 6 þúsimd manns hafi þegar látið lífið í bardögunum á milli Serba og íslama og Króata í Bosníu. Sarajevo er hersetin en þar búa um 300 þúsund manns. Haft var eftir útvarpinu í Sarajevo í gær að á síðasta sólarhring hefðu að minnsta kosti 22 látist í átökunum í Bosníu, þar af 5 í höfuðborginni. Reuter umloftinblá aðjúmbóþoturnar Bœing 747-400 muni í framtíöinni líkjast flugum við hlið þeirra gríðarstóru risa þotna sem nú iiggjaá teikniborð inu. Framleiöendurnir, Boeing, McDonnel Douglas og Airbus, keppast nú allir við að koma þess- umnýju flugvélum saman en þær hafa fengið nafnið sújærjúmbó. Það iítur út fyrir að Airbus verði fyrst ti) að koma súper- júmbó fiugvélunum í loftið. Fyr- irtækið hefur ráðgert að eftir 5 ár muni fyrstu nýju flugvélarnar, sem taka yfir 500 farþega, veröa tilbúnar til alhendingar. Kitzau Dönsku innf lytjendalögin hert Dönsk stjómvöld hertu innflytj- endalöggjöfina í gær og hafa innflytj- endur nú takmarkaðri rétt en áður til að fá fjölskyldu sína til sín. Þá fær lögreglan auknar heimildir til að taka fingrafor og ljósmyndir af þeim sem sækja um hæh í landinu. Samkvæmt nýju lögunum, sem þingið samþykkti í gær, er einnig styttur sá tími sem afgreiðsla hvers máls tekur og reynt er að koma í veg fyrir valdníðslu kerfisins. Mannréttindasamtökin Amnesty International sökuðu stjómmála- menn um að setja skilvirknina ofar mannréttindum innflytjenda. Embættismenn við danska flótta- mannaráðið sögðu að 3500 flótta- menn hefðu fengið hæh í Danmörku í fyrra, eða um þrír íjórðu hlutar umsækjenda. Árið á undan hlutu 2800 flóttamenn náð fyrir augum vf- irvalda. Ríkisfangslausir Palestínumenn, írakar og íranir hafa verið í meiri- hluta þeirra sem leitaö hafa hælis á undanfömum árum. Innflytjendur em aðeins um þrjú prósent íbúa Danmerkur. Mikiö atvinnuleysi meðal innflytj- enda og ótti við misnotkun á félags- lega kerfinu varð til þess að mjög var þrýst á um að heröa löggjöfina. Sam- kvæmt nýju lögunum mega innflytj- endur aðeins að fá maka sína til sín ef báðir em orðnir átján ára. Þá mega foreldrar ekki flytja til bama sinna ef þeir eiga önnur börn heima- fyrti. Reuter ^ Efþú þjáist afsvefnleysi þá skaltu bara leysa málið með því að sofa vel og lengi.ff W.C. Fields. Við erum sérfrœðingar í að velja góðar dýnur. HÚSGAGNA HÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20 - S: 91-681199 I Ferðaáætlun okkar: 20.06 laugardag Fáskrúðsfjöröur við Shell frá kl. 10.3CM 2.30 Breiðdalsvík við Kaupfélagiö frá kl. 14.00-15.30 Stöðvarfjörður við Hótel Bláfell frá kl. 17.00-18.00 21.06 sunnudag Seyðísfjörður við Herðubreið frá kl. 10.30-12.00 Égilsstaóir við Esso skálann frá kl. 13.30-17.30 22.06 mánudag Neskaupátaður við Shell frá kl. 17.00-18.30 Eskifjörður við Shell frá kl. 20.00-21.00 23.06 þriðjudag Reyöarfjörður Lykill Sýning og reynsluakstur HFERÐ Dagana 20.-23. júní veröum við meö Nissan og Subaru stórsýningar. Viö munum sýna og bjóða reynsluakstur á Nissan Patrol Nissan Terrano Nissan Primera Nissan Sunny 4WD Subaru Legacy Arctic Edition Ingvar Helgason ht Sævarhöföa 2 sími 91-674000 NISSAIM . '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.