Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1992, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1992, Side 14
14rr Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P-. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Forystu er þörf Það eru gömul sannindi og ný að á uppgangs- og vel- gengnistímum er létt verk að stjórna. Þegar menn hafa úr nógu að moða og hægt er að sýna mildi og örlæti og skipta stórri köku eru hæg heimatökin fyrir stjómvöld hverju sinni að fleyta sér áfram á öldutoppum vinsælda og velgerða. Það er hins vegar á harðræðistímum, stundum mót- lætis og erfiðleika, sem fyrst reynir á þor og þrek þeirra sem fara fyrir fleyinu. Þá kemur í ljós hver er til for- ystu fallinn og stýrir sínu fleyi í höfn. Nú hggur það fyrir að Hafrannsóknastofnun leggur til að þorskveiðar séu skertar um allt að 34% frá því aflamagni sem leyfilegt er á þessu ári. Hafrannsókna- stofnun hefur þannig staðfest tillögur ráðgjafarnefndar Alþjóða hafrannsóknaráðsins í öllum meginatriðum. Ríkisstjómin hefur enn ekki tekið formlega afstöðu til þessara tillagna en ljóst er að hún hefur hvorki efni né rök til þess að virða þær að vettugi. Þessi fyrirsjáanlegi niðurskurður er auðvitað hrika- legt áfall fyrir þjóðarbúið. Hann mæhst á bhinu tíu th fimmtán mhljarðar í beinum útflutningstekjum. Tals- menn sjávarútvegsfyrirtækja reikna með 15% tapi í fisk- vinnslunni. Útgerðin sleppur ekki betur. Er þá ekki tal- að um allar hliðarverkanir, þjónustu og atvinnu og sam- dráttinn í þjóðfélaginu, sem fylgja í kjölfarið. Svo mik- hl niðurskurður á þorskveiðum er eitt ahsherjarreiðar- slag fyrir íslendinga. A slíkum stundum fyllast landsmenn svartsýni. For- svarsmenn hagsmunasamtaka hafa lýst afleiðingunum. Sumir neita jafnvel að horfast í augu við þennan vem- leika og segja: þetta er ekki hægt. Stjómmálaforingjar eru enn að reyna að ná áttum en hafa þó heldur ekki farið í launkofa með þá erfið- leika sem framundan em. Lamandi hönd hefur lagst yfir þjóðina. Vitaskuld ber að vera raunsær og gera ekki lítið úr vandamálunum. En á sama tíma er nauðsynlegt að berja kjark í þjóðina og sýna dug. Það er ekki síst hlutverk forystumanna á sviði þjóðmála og stjómmála að veita forystu út úr ógöngunum. Fólkið í landinu má ekki tapa trúnni á framtíðina. Það þarf leiðsögn og uppörvun og von og að því leyti var tónninn í ávarpi forsætisráð- herra á þjóðhátíðardaginn góður, að hann stappaði stál- inu í landsmenn. Davíð Oddsson hefur notið velgengni í starfi sínu sem borgarstjóri. Hann valdist tiltölulega fyrirhafnarlaust til forystu í stærsta flokki þjóðarinnar. En nú reynir á Davíð. Nú reynir á hvort hann er jafn sterkur og traustur foringi í mótlætinu og hann var í meðlætinu. Hér verður Davíð Oddsson forsætisráðherra auðvitað ekki gerður að neinum örlagavaldi enda ekki á hans valdi að galdra fram töfralausnir á víðtækum efnahags- vpda. Hughreystingar duga skammt, orð em í sjálfu sér th líths þegar undirstöður þjóðarframleiðslunnar hrynja á einni nóttu. En forsætisráðherra þjóðarinnar hefur það hlutverk að fara fyrir þjóðinni á þessum harð- ræðistíma og honum er mikhl vandi á höndum; vandi sem Davíð er ekki öfundsverður af. Það dugar honum ekki að leggjast undir feld eins og Ljósvetningagoðinn gerði forðum. En ríkisstjóm Davíðs Oddssonar þarf að bretta upp ermamar og sýna hvað í henni býr. Ekki með því að grípa th örþrifaráða heldur fyrst og fremst að stýra fleyinu þannig að áhöfnin gefist ekki upp. Ehert B. Schram ______________FÖSTUDACLUR 19. JÚNÍ 1992,..- Hin nýju Balkanstríð Þaö er kaldhæðnislegt til þess að hugsa en með því að miðla málum í sífellu og taka að sér friðargæslu eru Sameinuðu þjóðimar í raun- inni að auðvelda Milosevic Serbíu- forseta það verkefni sem hann hef- ur sett sér. Það er að sameina öll serbnesku hémðin, reka þaðan öll önnur þjóðarbrot og endurreisa Serbíu eins og hún var á stórveldis- tíma sínum á miðöldum. Fyrst var það Slóvenía sem sagði sig úr lög- um við Júgóslavíu. Milosevic reyndi að stöðva Slóvena með vald- beitingu í þeim tilgangi að hræða Króata til að hætta við sinn að- skilnað. Það mistókst og þá gafst Milosevic upp á Sóveníu, enda er þar enginn serbneskur minnihluti, og réðst inn í Króatíu. Eftir mikið blóðbað þar tókst Serbum að ná á sitt vald um þriðjungi Króatíu og flestum byggðum Serba. Þá var kominn tími til að hlusta á Samein- uðu þjóðimar. Sameinuðu þjóðim- ar gerðu svo vel og tóku við friðar- gæslu á hemámssvæðum Serba í Króatíu. Þar með var serbneski herinn frjáls til að snúa sér að öðra. Síðustu vikur hefur mátt sjá í Bos- níu-Herzegóvínu afleiöingar þess að Serbar þurfa ekki lengur á hem- um að halda í Króatíu. Þess er lík- lega ekki langt að bíða að Serbar fari að hlusta á Sameinuðu þjóðim- ar og hleypa friðargæslusveitum inn í Bosníu. Þar hefur mikið áunn- ist frá sjónarmiði Serba, þeir hafa þegar náð yfirráðum yfir tveimur þriðju hlutum landsins og fram- fylgja nú þeirri langtímastefnu að reka á brott öll önnur þjóðarbrot frá serbnesku hemámssvæði. Sam- einuðu þjóðimar eru velkomnar til að gæta landvinninga Milosevics í Bosníu svo að hann geti notað her- inn annars staðar. Það em tvö mik- ilvæg landsvæði eftir þar sem tryggja á yfirráð Serba, Kosovo og Makedónía. Kosovo Kosovo er hinn raunverulegi og sögulegi kjami hinnar fornu Serb- íu. Þar á serbnesk menning rætur sínar, þar var fyrsta höfuðborg Serba, þaðan herjuðu þeir á Tyrki fyrir 600 árum og þar voru þeir sigraðir og lagðir undir Ósmanna- heimsveldið tyrkneska. Kosovo er líka eina svæðið af hinni fomu Serbíu þar sem íslam er ríkjandi, um 90 prósent núverandi íbúa era íslamar með náin tengsl viö Alba- níu. Kosovo var sjáífstjómarsvæði í Júgóslavíu allt til 1981, þegar mið- stjómin í Belgrad afnam heima- stjóm og hefur stjómað landinu beint síðan. íbúamir hafa stöðugt verið með uppreisn síðan, þar hef- ur geisað eins konar intifada síð- ustu 11 ár. Nú síðast tókst íbúunum að koma á kosningum, sem að sjálf- sögöu vora ekki viðurkenndar, og , kjósa sitt eigið þing og stjóm sem ekki fær að starfa. Það er augljóst að íbúar Kosovo stefna að sjálf- stæði en jafnaugljóst að sjálft hjarta Stór-Serbíu verður ekki gef- ið eftir, hvorki af þjóðemissínnum Milosevics né rétttrúnaöarkirkj- unni í Serbíu sem á rætur sínar og uppruna í Kosovo. Enda þótt rétt- trúnaðarkirkjan sé andsnúin Mi- losevic nú í málefnum Bosníu og Króatíu er ekkert sem bendir til annars en hún vilji halda Kosovo innan landamæra Serbíu áfram. Næsta skotmark heija Milosevics er Kosovo, nú þurfa Sameinuðu þjóðimar að gera honum þann greiða að gæta friðar og landvinn- inga hans í Bosníu, eins og þær gera þegar í Króatíu. En þegar að því kemur að látið verður tíl skarar skríða í Kosovo, í þeim tilgangi eins og annars staðar að hreinsa landið af öllum öðrum en Serbum og reka íslama yfir landamærin til Alban- KjaHaiinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður íu, er næsta víst að Albanía mun dragast inn í átökin. Enda þótt Al- banía sé fátæk og veikburða mun aðild landsins að stríði í Kosovo auka mjög sprengihættuna á þess- um slóðum og þvi að stríðið á Balk- anskaga breiðist út. Makedónía Makedónía er ekki síður hættu- svæði en Kosovo. Það land er syðsti hlutí hinnar sögulegu Stór-Serbíu og höfuðborgin, Skopje, var aðset- ur serbneskra konunga á miðöld- um fyrir hemám Tyrkja. En Make- dónía á seinni öldum var hluti af Búlgaríu og Grikklandi. í Grikk- landi er líka Makedónía, sem er beint framhald af hinni júgóslav- nesku Makedóníu, og Grikkir neita að viðurkenna að til sé neitt sjálf- stætt ríki sem heití Makedónía. Þess vegna hafa þeir stöðvað það í Evrópubandalaginu og í Samein- uöu þjóðunum að sjálfstæði Make- dóníu sé viðurkennt. En allt fram til 1918 litu Makedóníumenn á sig sem hluta af Búlgaríu og Búlgarir háðu stríö við Grikki og Serba 1913 einmitt um Makedóníu, sem þeir töpuðu. Ef nú Serbar ráðast með sama hætti og áður á Makedóníu er ólíklegt annað en Búlgarir og Grikkir skerist í leikinn. Þar aö auki era Tyrkir aðilar að þessu máh öllu, skjólstæðingar þeirra eru Albanir, sem Tyrkir snera á sinni tíö til íslams og hafa haft náin tengsl við síðan. Milossevic er sem sagt á leið út í árekstra við Alba- níu, Tyrkland, Búlgaríu og Grikk- land. Afleiðingin gæti orðið alss- heijarstríð á Balkanskaga. Hvaö er nú orðið um hina nýju Evrópu sem áttí að rísa úr rústum hinnar kommúnísku Evrópu? Hvar er sú nýskipan sem Bush forsetí lýsti yfir að ríkja skyldi í heimsmálum eftír sigurinn á írak? Ef útþensla Serbíu og landvinningar fær að standa sem orðinn hlutur eru öll þau orð orðin að hveiju öðra lýðskrumi. Serbía verður ekki stöðvuð nema með vopnavaldi. Nú á tímum er það óþolandi að eitt ríki geti lagt undir sig önnur með hervaldi. Hervald á móti er það eina sem dugar og eina stofnunin sem hefur það hervald er Nato. Sameinuðu þjóðirnar eiga að gefa Nato umboð til að fram- fylgja efnahagsbanninu á Serbíu og loka lofthelgi Serbíu fyrir serb- neskum flugvélum. Það er líka meiri ástæöa til að skerast í leikinn þama en var nokkra sinni út af Kúveit. Hingað til hafa alþjóða- stofnanir i verki stutt landvinninga Milosevics, að óbreyttu era þessar alþjóðastofnanir að ýta undir nýtt Balkanstríð. Gunnar Eyþórsson „Milosevic er sem sagt á leið út í árekstra við Albaníu, Tyrkland, Búlg- aríu og Grikkland. Afleiðingin gæti orðið allsherjarstríð á Balkanskaga.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.