Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1992, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1992, Qupperneq 13
.( jt •* HUí‘JA(j!JY*<ll/i ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1992. 13 Fréttir Verkefnaskortur hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar: Það þýðir ekki að gefast upp segir Stefán Jóhannsson framkvæmdastjóri öll viima niöri sökum verkefnaskorts „Stór hluti af sjálfum mér fer með hveiju skipi sem ég hleypi af stokk- unum. Sjómennsku hef ég aldrei stundað, enda sjóveikur, en á vissan hátt er ég alltaf til sjós í huganum og hef kynnt mér náið störf sjó- manna. Það má því segja að maður haíi gefið sig allan í skipasmíðarnar. Nú eru nýsmiðar hins vegar nánast aflagðar og viðgerðarverkefnin fá. Vonandi rætist eitthvað úr þessu. Það þýðir ekki að gefast upp,“ segir Stefán Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Allt frá árinu 1907 hefur Vélsmiðja Seyðisfjarðar gegnt veigamiklu hlut- verki í atvinnulífi Seyðisfjarðar. Frá árinu 1967 hafa verið smíðaðir yfir 30 hátar í smiðjunni, allt að 180 tonn að stærð. Þaðan var einnig hleypt af stokkunum stærsta álháti sem smíð- aður hefur verið hér á landi, sjómæl- ingabátnum Baldri. Nú hggur nánast og á árinu hefur starfsmönnum fækkað úr 30 í 20. „Flestir þeirra sem misst hafa vinnuna eru nú atvinnulausir eða fluttir á brott. Á árum áður smíðuð- um við fiskiskip en nú er fiskiskipa- fiotinn orðinn það stór að nýsmíði hefur nánast lagst af. Þá hefur okkur gengið iha að fá stærri viðgerðar- verkefni því útgerðarmenn virðast sjá sér hag í að senda skipin th Pól- lands. Okkur er það óskiljanlegt hvers vegna Fiskveiðasjóður og fleiri opinberar fjármálastofnanir styrkja útgerðarmenn til viðgerða erlendis. Shkt ætti ekki að vera heimilt." Að sögn Stefáns hefur vélsmiðjan boðið í fjögur stór viðgerðarverkefni á stuttum tíma en misst öll skipin til Póhands. í eitt þessara verkefna bauð hann 13 mihjónir en þá reynd- ist tilboð Pólverjana 11,5 mihjónir. Hann segir thboð sín vera lægri en gengur og gerist í öðrum löndum en við Pólveijana ráöi hann ekki. Aöspurður segist Stefán eygja von um bjartari framtíð. Þannig komi til dæmis þau skip sem gert er við í PóUandi fyrr en seinna tU viðgerða hér á landi. Á borðinu fyrir framan sig er hann með teikningu af 40 sæta álbáti sem hentað gæti til sighnga á vötnum og lygnum fjörðum. „ Við erum alltaf að reyna að útvega okkur verkefni. Við bindum nokkrar vonir við þetta skip. AðUar hafa sýnt því áhuga að vera með svona skip í forum á Lagarfljóti og Mývatni. Full- búið myndi það einungis kosta um 10 mihjónir. Enn hefur þó ekkert veriö ákveðið í þessum efnum enda hggja peningar ekki á lausu þessa dagana.“ -kaa Guðjón Jónsson fjármálastjóri og Stefán Jóhannsson framkvæmdastjóri í tómum skipasmíðasal. Frá áramótum hafa þeir lítil sem engin verkefni fengið og orðið að segja upp meirihluta starfsmanna sinna. DV-mynd GVA Stærsti dæludreifari landsins Kristján Einarssan, DV, Selfossi; Starfsmenn jámiðju Kaupfélags Árnesinga á Selfossi hafa lokið við smíði stærsta dæludreifara sem smíðaður hefur verið tU notkunar hér á landi. Um er að ræða 12 þúsund htra dreifara á tveim hásingum, ahs er heUdarþungi tækisins rúmlega 14 tonn. Dreifarinn er smíðaður fyrir graskögglaverksmiðjuna Flatey í Austur-SkaftafeUssýslu og er smíða- verð hans um 1 millj. króna. Eigendur dreifarans hyggjast nota hann tíl að dreifa húsdýraáburöi á tún og einnig tíl vökvimar. Hagræði stærðarinnar felst í því að nú er auð- veldara að safna áburði frá nokkrum bæjum í einu og einnig þarf færri ferðir til og frá túnum. Vilhjálmsson, verkstjóri smiðjunnar, stendur við dreifarann. DV-mynd Kristján Sigurgeir Guðmundsson, skólastjóri grunnskólans á Hellu, fyrir framan nýja skólabyggingu sem bætir úr mjög svo brýnni þörf. „Kennsluaðstaðan var að springa," sagði skólastjórinn. DV-mynd JAK Stærsta framkvæmd Rangárvallahrepps: Ný bygging við grunnskólann - tréverkið boðið út 1 haust Stærsta framkvæmd Rangárvalla- hrepps er þúsund fermetra ný bygg- ing við grunnskólann á Hellu. Verkið hófst fyrir flórum árum og að sögn Guðmundar Inga Gunnlaugssonar sveitarstjóra stendur til að taka bygginguna í notkun í síðasta lagi haustið 1993. Um þessar mundir er verið að gera bygginguna tilbúna undir tréverk. Tréverkið veröur boð- ið út í haust. Kostnaður við nýja skólahúsið er áætlaður um 80 millj- ónir króna. Rangárvahahreppur fjármagnar verkið á móti Jöfnunarsjóði sveitar- félaga. Að sögn Guðmundar hefur áætlun haldist nokkurn veginn. Hver verkáfangi hefur verið boðinn út. Verktaki í upphafi var Virkir hf., byggingafyrirtæki á Hehu, og núna er Helgi Þorsteinsson, múrarameist- ari úr Hveragerði, að gera húsið th- búið undir tréverk. Þegar DV-menn fóru að líta á nýju skólabygginguna á Hellu hittu þeir fyrir Sigurgeir Guðmundsson skóla- stjóra. Hann var að hreinsa til fyrir utan húsið því daginn eftir áttu há- tíðarhöld vegna 17. júní að fara fram við grunnskólann. Sigurgeir sagði að nýja byggingin kæmi til með að leysa úr mjög svo brýnni þörf. „Aðstaða tíl kennslunnar var að springa og við höfum verið að kenna út um allar grundir," sagði Sigurgeir. Alls hafa um 140 nemendur verið í grunnskól- anum á Hellu. -bjb Sameining þriggja hreppa samþykkt Már Karlssan, DV, Djúpavogi; í kosningu á laugardag samþykktu íbúar Búlandshrepps, Berunes- hrepps og Geithehnahrepps að sam- eina hreppana í eitt sveitarfélag. Ahs greiddu 194 atkvæði en 394 voru á kjörskrá. Stefnt er að kosningu th hins nýja sveitarfélags þann 15. á- gúst næstkomandi. Sameinaða sveit- arfélagið nær frá Hvalnesskriðum að sunnan að Streitishvarfi að norð- an og er heildaríbúarfjöldi um 620 manns. Rafkaup ÁRMÚLA 24 • S: 68 15 18*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.