Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1992, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1992.
5
Fréttir
Ný skýrsla útvarpsréttamefiidar:
Fjöldi skammtímaleyf a
hef ur margf aldast
- fimm einkaútvarpsstöðvar hafa hætt rekstri
Skýrsla útvarpsréttamefndar
fyrir tímabiliö 1. október 1988 til 31.
desember 1991 kom nýlega út. Kjör-
tímabil annarrar útvarpsréttar-
nefndar var hálfnað um síðustu
áramót. Sú fyrsta hóf störf 1. jan-
úar 1986 þegar rekstur ljósvakam-
iðla var gefinn frjáls. í nýútgefínni
skýrslu er að finna ýmsar fróðlegar
upplýsingar. Frá 1. janúar 1986 til
loka síðasta árs voru alls gefin út
212 leyfi vegna útvarpsrekstrar til
lengri eða skemmri tíma. Á sama
tímabili voru gefin út 13 leyfi vegna
sjónvarpsrekstrar en 6 þeirra voru
í gildi um síðustu áramót. Síöan
þá hefur eitt leyfi verið gefið út
vegna kristilegrar sjónvarpsstöðv-
ar.
Um áramótin voru í gildi 10 lang-
tímaútvarpsleyfi. Af þeim voru að-
eins tvö úti á landi, annars vegar
Hljóðbylgjan á Akureyri og Rás Fás
á Saúðárkróki hins vegar. Frá ára-
mótum hefur fjöldi langtímaleyfa
tekið breytingum. Kristilega út-
varpsstöðin Alfa og Stjaman hættu
rekstri og ný stöð var stofnuð upp
úr þeim tveim sem einnig ber heit-
ið Stjaman og er kristileg. Eins og
sagt var frá í DV í síðustu viku
hætti Hitt 96 rekstri eftír tvo mán-
uði „í loftinu". Frá upphafi árs 1986
er það fimmta útvarpsstöðin í eigu
einkaaðila sem hættir rekstri. Áð-
ur vom það Útvarp Rót, Ljósvak-
inn, Aifa og gamla Stjaman.
Þegar skoðað er yfiriit yfir útgef-
in skammtímaleyfi fyrir skóla- og
tækifærisútvarp kemur margt
merkilegt í ljós. Á umræddu tíma-
bili hefur fjöldinn margfaldast. Alls
hefur verið útvarpað á 42 stöðum
á landinu frá 1. janúar 1986 til síð-
ustu áramóta. Á öllu höfuðborgar-
svæðinu var 46 sinnum veitt
skammtímaleyfi til útvarpsrekstr-
ar. Miðað við mannfjölda telst það
ekki mikið í samanburði við Vest-
mannaeyjar. Þar hefur 18 sinnum
verið gefið leyfi fyrir útvarpi. Aðrir
duglegir útvarpsstaðir em Kefla-
vík, Selfoss, Hella, Akureyri, Sauð-
árkrókur, Isaflörður og Akranes.
Oftast em þessi útvarpsleyfi til
framhaldsskólanna.
Jarðarfararútvarp
í Bolungarvík
Útvarpsréttamefnd hefur fjórum
sinnum veitt útvarpsleyfi tíl Bol-
ungarvíkur og þrjú þeirra em
vegna jarðarfara. Er það nokkuð
sérstakt nema hvað ein kirkja í
Aðaldal í Þingeyjarsýslu hefur
langtímaleyfi til að útvarpa kirkju-
athöfnum um sveitina. Skamm-
tímaleyfin hafa dreifst nokkuð um
landið en óneitanlega standa Norð-
lendingar upp úr. Þess má geta að
oftast er um endurnýjun útvarps-
leyfa að ræða.
Auk Stöðvar 2 höfðu fimm aðilar
leyfi til sjónvarpsrekstrar um síð-
ustu áramót. Þeir em Sýn, Aust-
firska sjónvarpsfélagið, Skúli Páls-
son á Olafsfirði, Vilhelm Árnason
í Ólafsvík og Eyfirska sjónvarpsfé-
lagið. -bjb
Hamranes við Hafnarfjörð:
„Þjófar“ á
Skoda eknir
niður
- ökumaður jeppans kærður
Jeppi ók harkalega aftan á Skoda
á vinnusvæöi fyrir ofan Hafnarfjörð
á fóstudagskvöld. Ökumaöur jeppans
er umráðamaður á svæðinu og hélt
fólkið í Skodanum vera í ránsferð og
hugðist stöðva það með þessum
hættí. Fólkið var að grennslast eftir
gijótí til hleðslu. Það hefur lagt fram
kæra á hendur jeppamanninum.
Máhð er í rannsókn hjá rannsóknar-
lögreglunni í Hafnarfirði.
Atvikið gerðist á afleggjara af
Krísuvíkurvegi í átt að gömlu minka-
búi við Hamranes. Fyrir afleggjaran-
um er keðja en að þessu sinni lá hún
niðri. Fólkið var á leið til baka í Skod-
anum eftir aö hafa tekið grjót í garð-
inn sinn. Fyrr en varði kom jeppi á
eftír því og var ekið harkalega aftan
á Skodann. Við áreksturinn fór jepp-
inn út af en Skodinn varð eftir uppi
á veginum. Bílamir em báðir nokk-
uð skemmdir. Engin meiðsl urðu á
fólki.
Þar sem nokkuð hefur borið á inn-
brotum á svæðinu að undanfómu
hélt jeppaeigandinn að í Skodanum
væm þjófar á ferð. Svo reyndist ekki
vera í þetta skiptið eins og að ofan
greinir.
-bjb
Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, lét sig ekki
muna um aö slá með orfi og Ijá þegar hann heimsótti Árbæjarsafn um
helgina. Hann bar sig fagmannlega að við sláttinn enda vanur vinnu til
sveita. Á sama tíma hafði Halldór Blöndal, núverandi landbúnaðarráð-
herra, þann starfa með höndum að huga að niðurskurði i landbúnaðarráðu-
neytinu. Þar leggja kratar á Ijáinn en eitthvað mun það leggjast illa i ráð-
herrann aö beita orfinu. DV-mynd kaa
Garðabæjarkaupstaöur:
Keypti söluturn
vegna óláta
Garðabæjarkaupstaðiu- hefur tek-
ið á leigu húsnæði við Hrísmóa 4 í
bænum þar sem sölutumin Hrístorg
var til húsa. Sölutumin hætti rekstri
í vor. Eftir að íbúar fyrir ofan sölu-
tuminn skiluðu fyrir ári inn undir-
skriftalistum um hávaða- og óláta-
kvörtun vegna rekstursins fóru bæj-
aryfirvöld að íhuga yfirtöku hús-
næðisins. íbúamir óskuðu eftir því
að sölutuminum yrði lokað.
Húsnæðið stendur autt um þessar
mundir. Að sögn Inghmmdar Sigur-
pálssonar bæjarstjóra stendur til að
leigja húsnæðið út undir annars kon-
ar rekstur en sjoppurekstur. Bæjar-
sljórinn vonaðist eftir'einhvers kon-
ar skrifstofurekstri.
Garðabær keypti lager söluturns-
ins fyrir um 300 þúsund krónur og
gekk inn í leigusamning. Á sömu
hæð em skrifstofur sýslumanns og
sagði Ingimundur að verið væri að
kanna þann möguleika að sýslumað-
ur gætí nýtt sér húsnæðið sem sölu-
turninn var í. Umrætt húsnæði er
um 70 fermetrar að stærð.
-bjb
Afréttir á Mývatnsöræfum:
Miklar gróðurskemmdir
- segir landgræðslustjóri
„Þetta leit þannig út að augljóst er
að þarna höfðu orðið miklar gróður-
skemmdir í náttúruhamfórunum í
júní,“ segir Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri sem í síöustu viku fór
í skoðunarferðir ásamt landbúnað-
arráðherra um afrétti á Mývatnsör-
æfum. „Það var náttúrlega afskap-
lega óheppilegt eins og ástandið var
viðkvæmt að ekki skyldi nást sam-
starf um að fresta upprekstrinum."
Landgræðslustjóri kveðst hafa
rætt við bændur og sveitarstjóra og
segir hann einhug um að starfa sam-
an að því að leysa þau vandamál sem
fyrir hendi em. Að sögn land-
græðslustjóra hefur nefndin, sem
skipuð var af landbúnaðarráði fyrr
í sumar til að gera landgræðslu- og
landnýtingaráætlun fyrir Skútu-
staðahrepp, enn ekki lokið störfum.
-IBS