Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Síða 3
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1992.
3
Fréttir
Erlendur Magnússon, vitavörður á
Dalatanga og oddviti Mjóafjarðar-
hrepps, ásamt konu sinni, Elfriði
Pálsdóttur. DV-myndirörn
Fjöldi bíla
kemur daglega
* á Dalatanga
öm Þóiarinssan, DV, Dalatanga:
„Hér hefur verið mikill ferða-
mannastraumur í sumar og jafnvel
komið fjöldi bíla á dag,“ sagði Erlend-
ur Magnússon, vitavörður á Dala-
tanga, þegar blaðamaður DV hitti
hann á dögunum. „Þetta hefur verið
að aukast ár frá ári eftir því sem
vegurinn hingað til Mjóafjarðar hef-
m- verið bættur en mér fmnst aukn-
ingin langmest í sumar, þetta stend-
ur hins vegar aðeins í um tvo mán-
uði.“
Erlendur segir að flestir sem komi
staldri aðeins við og skoði sig um á
staðnum, meðal annars vitann sem
er talsvert mikið og rammgert mann-
virki. Auk þess hefur húsmóðirin á
staðnum, Elfríð Pálsdóttir komið upp
blómagarði sem á eflaust fáa sína
. líka hér á landi og furða margir sig
’ á að sjá gróskumikinn og ijölbreyttan
gróður á svo afskekktum stað.
Erlendur sagði að síðasti vetur
heíði verið snjóléttur og því lengst-
um fært frá Dalatanga inn að
Brekkuþorpinu. Algengt væri að
þessi leið væri ófær bílum 3-4 mán-
uði en það hefði lengst orðið ófært í
6 mánuði samfleytt síðan þau hjón
fluttu að Dalatanga fyrir 24 árum.
Skagfirðingur
í úreldingu
Þórhallui Ásmundsson, DV, Sauöárkróki:
Skagfirðingur SK4 hefur farið sína
síðustu veiðiferð fyrir Fiskiðj-
una/Skagfirðing. Fljótlega upp úr
mánaðamótum mun áhöfn skipsins
sigla því til Noregs þar sem Skagfirð-
I ingur verður eign skipasmíðastöðv-
ar. Seinna í september kemur svo
Vigri til nýrrar heimahafnar, á Sauð-
árkróki, í fyrsta sinn.
Ákveðið hefur verið að tilfærslur
verði á skipstjórum milli skipa Skag-
firðings við komu Vigra.
Sfj
í® JJ333 3
-allt að
itanjjj #iJ3íina
/JJítbí.3P 3
afsláttur
v.
egna sérlega hagstæðra samninga og
magninnkaupa hefur okkur tekist að bjóða mikið
úrval af vönduðum tækjum til íslenskra heimila
undanfarin ár.
Okkar markmið er að viðskiptavinirnir geti ávallt
fengið góða og ódýra vöru, hvenær sem er.
Sjónvarpstækin sem við
bjóðum eru frá Thomson,
Nordmende, Goldstar og
Bang & Olufsen. Þau eru til í skjástærðum frá 3"
og allt upp í 36" með aðgerðastýringu á skjá og
stereotækin eru öll útbúin Nicam-staðli. Einnig
eru stærri sjónvarpstækin með glampalausum
flatskjá, mynd í mynd, barnalæsingu, textavarpi,
S-VHS myndgæðum og öll eru tækin með
þráðlausri fjarstýringu.
bandstækin komu á markað hafa þau verið á
boðstólum í Radíóbúðinni. Til eru fjölmargar
útfærslur, HQ-myndgæði, Stereo, mynd í mynd og
fjölmargt fleira.
Fi=
jölbreytt úrval hljóm-
tækja hefur alltaf verið
eitt af aðalsmerkjum
Radíóbúðarinnar fró
upphafi. Við bjóðum í dag hljómtæki frá Bang &
Olufsen, Nordmende, Goldstar, Samsung og
Marantz. Þú finnur örugglega hljómtæki við þitt
hæfi hjá okkur.
Sjónvarpsmyndavélar eru afskap-
lega vinsælar fjölskyldugjafir nú til
dags. Þannig má varðveita fjölskyldumyndirnar
Ijóslifandi og skoða þær aftur og aftur, auk þess
að taka afrit til að senda t.d. ættingjum sem búa
annarsstaðar. Sjónvarpsmyndavélarnar eru nú
tæknilega fullkomnar, fyrirferðaminni og léttari,
þurfa minni birtu, skila skarpari litum og betra
hljóði... og verðið, það hefur lækkað.
lir þurfa að eiga gott
útvarpstæki sem gengur jafnt
fyrir rafhlöðum og rafmagni. Þau eigum við í
miklu úrvali, t.d. með kassettu, eða geislaspilara.
V^ervihnattasjónvarp hefur
tekið stakkaskiptum á undan-
förnum árum; sjónvarps-
stöðvunum hefur fjölgað
margfalt og verð móttöku-
búnaðarins hefur lækkað í aðeins brot af því sem
hann kostaði áður. Nú er hægt að velja á milli
tuga sjónvarpsstöðva ó ýmsmum tungumálum
allan sólarhringinp.
mislegt ánnað er að sjálfsögðu
á boðstólum hjá okkur, svo sem bíltæki, hátalarar,
hárrúllur, liðunarjárn, geislaspilarar, geisladiskar,
loftnet, örbylgjuofnar, vasadiskó, útvarpsvekjarar,
kassettur, myndbönd, heymartól og margt, margt,
margt fleira I
Við
tökum
vél á
móti
þér!
SKIPHOLT119
SÍMI 29800
EDINBORG SLÆRIGEGN
Á ÞRIÐJA ÞÚSUND MANNS HAFA NÚ TRYGGT SÉR BORGARVEISLU í EDINBORG
*
Verð miðast við staðgreiðslu ferðakostnaðar.
Föst aukagjöld, samtals 3.950 kr., eru ekki innifalin t verði.
#'ÚRVAL-ÚTSÝN
íMjódd: sími 699 300; við Austurvöll: sími 2 69 00
(Hafnarfirði: s(mi 65 23 66; við Ráðbúslorg á Akureyri: s(mi 2 50 00
- og bjá umboðsmönnum um land allt