Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Side 17
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1992.
17
Sviðsljós
Frá afhendingu viðurkenningar eftir 40 ára vel unnin störf. Aftari röð frá
vinstri: Aðmíráll Tomas F. Hall, yfirmaður Varnarliðsins, Þórður Einarsson
varastarfsmannastjóri, Kjartan Eiðsson, fulltrúi i verkefnisstjórnun, Magnús
M. Jónsson, verkstjóri í trésmíðaverkstæði, Sigríður Snorradóttir fulltrúi, tók
á móti viðurkenningu fyrir föður sinn, Snorra K. Magnússon rafvirkja, Kristj-
án Júlíusson, forstöðumaður þvottahúss, Bjarni Jónsson, yfirverkstjóri bygg-
ingarmanna, Einir Jónsson, verkstjóri þungavinnuvélaverkstæðis, Halldór
Halldórsson, verkstjóri flugþjónustudeildar, Charles T. Butler, yfirmaður
flotastöðvar varnarliðsins. Fremri röð, talið frá vinstri: Jón R. Þorsteinsson
vagnstjóri, Emii Kristjánsson slökkviliðsmaður, Halldór Marteinsson, yfir-
varðstjóri slökkviliðs, Jón Þorsteinsson, fulltrúi í umsýsludeild verklegra
framkvæmda, Guðmundur Pétursson, flokkstjóri í slökkviliði, Magnús Ólafs-
son, yfirmaður flugþjónustudeildar slökkviliðsins, Pálmi Guðmundsson
vagnstjóri, Arnór Jóhannesson matreiðslumaður, Helgi Jakobsson, fulltrúi
í húsnæðisdeild. Á myndina vantar Jóhannes Björnsson innkaupafulltrúa.
Vamarliöið á Keflavíkurflugvelli:
Viðurkenningar fyrir
vel unnin störf
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Fyrir nokkru aíhenti Varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli 18 starfsmönn-
um, sem höfðu yfir 40 ára starfsferil
að baki, viðurkenningar fyrir vel
unnin störf. Flestir byijuðu hjá
Vamarliðinu árið 1951 eða 11 talsins.
„Þetta er mjög góður vinnustaður
og góður vinnuveitandi sem sýnir
manni traust, sanngimi og virðingu.
Mér hefur alltaf verið kleift að
mennta mig. Ég hef farið í skóla og
sótt námskeið á vegum slökkviliðs-
ins,“ sagði Magnús Ólafsson, fyrr-
verandi aðstoðarslökkviliösstjóri á
Keflavíkurflugvelli.
Magnús var fyrsti starfsmaður
slökkvihðsins sem fór til Bandaríkj-
anna í skóla en hann sótti þar nám-
skeið árið 1975. Hann hefur frá upp-
hafi starfsferils síns verið kallaður
„sjókóngur" en að hans sögn hafa
menn alltaf einhver aukanöfn til að
auðvelda köllin í talstöðvum
slökkviliðsins.
Tomas F. Hall aðmiráll og Magnús Olafsson sjókóngur skera fyrstu sneið-
ina af hátíðartertunni. DV-myndir Ægir Már
Málverkasýning á Hólmavík
Guðfinnur Fnuibogason, DV, Hólmavik:
Það var ánægjulegur og óvæntur
viðburður þegar listakonan Aðal-
björg Jónsdóttir kom til okkar í júlí-
mánuði og hélt sýningu á málverk-
um og öðmm listmunum. Félags-
heimili sveitanna eru óvíða og sjald-
an umgjörð listviðburða yfir sumar-
tímann en í þetta skipti brá út af er
viðkom Sævangi, félagsheimili íbúa
Kirkjubólshrepps.
Sýningin stóð í um vikutíma og var
aðsókn frekar góð. Sýningargestir
sem fréttaritari hefur rætt við eru á
einu máh um að Aðalbjörg sé mikh
listakona í öhu handverki sínu en
hún er pijónahstakona sem unnið
hefur marga kjóla úr íslenskri uh.
Það handverk hennar er vel þekkt.
Elsta myndin á þessari sýningu er
frá árinu 1967 en þær yngstu frá
þessu ári. Aðalbjörg er fædd og upp-
ahn í Kirkjubólshreppi. Stranda-
menn kunna henni bestu þakkir fyr-
ir að hafa nokkra sumardaga opnað
fyrir þeim svið sannrar Ustar.
Myndir frá málverkasýningu Aðalbjargar Jónsdóttur. Listakonan við mynd
sína „Minningar frá Tröllatunguheiði". DV-mynd Guðfinnur
Ferðamálaskóli Isiands
Höfðabakka 9, Reykjavík, sími: 671466
Starfsnám fyrir þá sem starfa vilja við ferðaþjónstu.
Nám sem er viðurkennt af Félagi ísl. ferðaskrifstofa.
Alþjóðleg próf og réttindi (IATA).
Á SIGURBRAUT
SKÓLARITVÉLIN
Vegna hagkvæmra innkaupa getum við nú boðið þessa vönduðu skólaritvél á aðeins
kr. 16.800 stgr.
★ Leiðrétting á einstökum stöfum, heilum
orðum og linum. ★ Minni
★ 12 stafir á sek.
★ Inndregin lína
★ Miðjustilling
★ Feitletrun
aðeins
4f4 kg
1 árs ábyrgð
Síbylja á öllum tökkum, super/sub
letrun, handfang innbyggt
auk flestra kosta full-
komnustu ritvéla.
Sjálfsögð ritvél
fyrir öll fyrir-
tæki, heimili,
auk þess að
vera langhag-
kvæmasta
skólarit-
vélin.
Sölustaðir: Borgarfell hf., Verslanir Pennans, Rafsjá, Bolungarvik, Bókabúð Keflavikur, Bóka-
skemman, Akranesi, Bókav. Jónasar T., Isafirði, Tölvutæki-Bókval, Akureyri, Stuðull, Sauðár-
króki, Hrannarbúðin, Grundarfirði, Skrifvélin, Suðurlandsbraut 6, Reykjavik, Bókaverslun Þórarins
Stefánssonar, Húsavik.
Borgarfell, Skólavörðustig 23, sími 11372