Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Qupperneq 22
22 MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1992. Merming Þjóðleikhúsið hefur hafið nýtt leik- ár og kynnt þau leikrit sem sýnd verða í vetur. Sem fyrr er íjölbreytni í vali leikrita; gaman og alvara, stór- ar og viðamiklar uppsetningar sem og minni á litlu sviðunum. í fyrra tók Þjóðleikhúsið í notkun þriðja leik- sviðið, sem nefnt hefur verið Smíða- verkstæðið, og að sögn Stefáns Bald- urssonar þjóðleikhússtjóra hefur rekstur þess heppnast mjög vel og verður það notað alveg tÚ jafns við Stóra sviðið og Litla sviðið í vetur. Stefán var spurður um leikritavahð í vetur. „Það sem er sérstakt við þetta leik- ár er að það eru eingöngu nútíma- leikrit sem við sýnum. Við frumsýn- um þijú ný íslensk leikrit og thnm erlend sem eru öll nýleg. Tvö verk eru gamlir kunningjar, My Fair Lady og Dýrin í Hálsaskógi. En í ár erum við ekki með klassíkina. Leikrit- in sem við frumsýnum eru samt af- ar ólík innbyrðis þótt nútímaverk séu.“ Þrjú ný íslensk leikrit Fyrsta sýning vetrarins verður 19. september. Þá frumsýnir Þjóðleik- húsið nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson, Hafið. Gerist leikritið í íslensku sjávarplássi þar sem yfir- vofandi er atvinnuleysi og gjaldþrot útgerðarfyrirtaekis sem hingað til hefur verið burðarás samfélagsins. Helgi Skúlason fer með aðalhlut- verkið. Annað íslenskt leikrit, sem frum- sýnt verður'í vetur, er Þrettánda krossferðin eftir Odd Bjömsson og verður það frumsýnt á stóra sviðinu eftir áramót. Þetta nýja verk fjaliar um þijá hermenn sem leggja upp í krossferð í leit að „stríðinu". Á leið sinni gegnum tíma og rúm eiga þeir samskipti við fólk fortíðarinnar, mennskt og ómennskt. Leikstjóri verksins er Þórhildur Þorleifsdóttir. Þriðja íslenska leikritið er Ferða- lok eftir Steinunni Jóhannesdóttur sem frumsýnt verður á Smíðaverk- stæðinu í febrúarlok. í leikritinu er sagt frá vetrardvöl Þóru, háskóla- nema í Kaupmannahöfn, en þangað fer hún til þess að skrifa lokaritgerð sem fjallar um síðustu daga Jónasar Hallgrímssonar í Kaupmannahöfn. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Stefán segir íslenska leikritun hafa tekið kipp undanfarið og þónokkuð af leikritum berist til sín og verk- efnavalsnefndar Þjóðleikhússins, sum fullgerð en önnur ekki. Séu leik- ritin misgóð eins og gefur aö skilja. Þegar íslensk leikrit berast fara hann og Ami Ibsen, leiklistarráöunautur Þjóðleikhússins, yfir leikritin en síð- an öll nefndin. Öðravísi er farið að með erlend leikrit. Þar er meira um að hann og Ami velji úr það áhtleg- asta og láti síöan nefndina vega og meta. Erlend nútímaverk Erlendu leikritin eru, eins og Stefán minntist á, nútímaverk en ólík inn- byrðis. Fyrst verður frumsýnt á Litla sviðinu Rita gengur menntaveginn eftir Wihy Russeh. Þetta er eitt þekktasta verk þessa vinsæla leik- ritahöfundar og hefur verið gerð vin- sæl kvikmynd eftir því. Aðaheikarar em Tinna Gunnlaugsdóttir og Amar Jónsson. Á Smíöaverkstæðinu er nú verið að æfa Stræti eftir Jim Carthwright. Leikritið er fyrsta verk höfundar, samið 1986 og hefur þaö unnið til fjölda verðlauna enda hafa fá leikrit síöari ára borið með sér jafnferskan blæ inn á leiksvið. Leikarar em Ingv- ar E. Sigurðsson, Kristbjörg Kjeld, Róbert Amfinnsson og fleiri. Leik- Æfingar standa yfir á Stóra sviðinu á Hafinu, nýju leikriti eftir Olaf Hauk Símonarson. Aðalhlutverkið leikur Helgi Skúlason sem er hér á myndinni. Á Smföaverkstæðinu er verið að æfa Stræti eftir Jim Cartwright. Meðal leikara eru Edda Heiðrún Backman og Þór H. Tulinius. DV-myndir GVA stjóri er Guðjón P. Pedersen. Á Stóra sviðinu verður fmmsýnt í febrúar Dansað á haustvöku efhr Brian Friel. Þetta er írskt verðlauna- leikrit sem frumsýnt var fyrst í Abbey-leikhúsinu 1990. Leikstjóri er Guðjón P. Pedersen. Stund gaupunnar er eftir Per Olov Enquist og veröur það sýnt á Litla sviðinu eftir áramót. Leikritið gerist á geðsjúkrahúsi eina kvöldstund og fjallar um ungan pht sem búið er að loka inni fyrir morð sem hann framdi að því er virðist aö tilefnislausu. Leikstjóri er Hávar Siguijónsson og í hlutverki piltsins er Ingvar E. Sig- urðsson. Fimmta nýja erlenda verkið er eftir hinn þekkta bandaríska leikritahöf- und Neil Simon. Nefnist þaö Kjafta- gangur og verður vorgrín Þjóöleik- hússins. Þessi gamanleikur nýtur mikiha vinsælda um þessar mundir og mun Þjóðleikhúsið tefla ffarn öh- um helstu gamanleikurum okkar en leikstjóri verður finnski leikhúsmaö- urinn Asko Sarkola. My Fair Lady jólaleikrit Jólaleikrit Þjóðleikhússins verður einhver allra vinsælasti og besti söngleikur sem saminn hefur verið, My Fair Lady, en hann var sýndur í Þjóðleikhúsinu fyrir 30 ámm. í aðal- hlutverkunum em Steinunn ÓUna Þorsteinsdóttir, sem leikur hina Ula talandi alþýðustúlku EUsu DooUttle, og Jóhann Sigurðarson, sem leikur málvísindaprófessorinn Henry Higg- ins, sem hirðir hana upp af götunni með það fyrir augum að gera úr henni hefðarkonu. Tvö bamaleikrit verða sýnd á sviði Þjóðleikhússins í vetur. Enúl í Katt- holti verður tekinn aftur upp en leik- ritið naut mikUla vinsælda í fyrra og síöar verður sett á svið gamaU kimningi, Dýrin í Hálsaskógi seih áður hefur verið sýnt í Þjóðleikhús- inu. Stefán sagði að margar óskir og fyrirspurnir hefðu borist um að þetta vinsæla leikrit yrði sett upp. Stefán var spurður hvort Utið væri um boðleg bamaleikrit utan Norður- landanna, en nær ávaUt eru sýnd bamaleikrit sem em skrifuð á Norð- urlöndum: „Það viU nú svo tíl að á Norður- löndum eru tveir helstu snilhngar bamaleikritunar, Astrid Lindgren og Thorbjöm Egner, og verk þessara höfunda faUa íslenskum bömum sér- lega vel í geð, auk þess er það skoðun margra að Norðurlöndin hafi visst forskot á aðrar þjóðir í gerð barna- efnis fyrir leikhús." Fyrir utan EmU í Kattholti verður Kæra Jelena tekið upp aftur en það naut geysUegra vinsælda í fyrra og kvað Stefán það ánægjulegt að tvö af vinsælustu leikritum sem fmm- sýnd voru í fyrra, Kæra Jelena og Ég heiti ísbjörg, ég er Ijón, hefðu verið alvarlegs eðUs og sýndi það að ekki þyrfti að treysta á vinsæla gam- anleUd til að fá fólk í leikhús. Skortur á fjármagni Eins og flestir vita hafa verið gerð- ar gjörbreytingar á Þjóðleikhúsinu og salnum breytt mikið til batnaðar. En skortur á fiármagni hefur gert það að verkum að mörgu er enn ólok- ið. Stefán sagði að það sem sneri að áhorfandanum hefði verið látið hafa forgang og þótt ekki væri aUt fuU- klárað eins og sjá mætti þegar leik- húsið er skoðaö, þá væri ástandið gott miðað við aðstöðuna baksviðs, þar væri aUt eftir að gera og er fiárs- kortur ástæðan fyrir að ekki er byij- að á endurbótum þar. í fyrra vom ráðnir sex nýir leikar- ar viö Þjóðleikhúsið. Stefán sagði að engir hefðu verið fastráðnir í ár og væri fiárskortur ástæðan: „En að sjálfsögðu era ráðnir leikarar og leikstjórar í einstök verk eins og ávaUt hefur verið gert.“ Mjög góð aðsókn var aö leikritum Þjóöleikhússins í fyrra og kvaðst Stefán Uta björtum augum til vetrar- ins, Þjóðleikhúsið byði upp á góð leikrit sem höfðuðu til flestra. -HK Stefán Baldursson þjóðlelkhússtjóri: Eingöngu nútíma- verk í vetur iHuiii Þýsk háskóIalUjómsveit, Frei- burger Kammerensemble, hefur veriö hér á landi í tónleikaferö. Stjórnandi hljómsveitarinnar er íslenskur, Gunnsteinn Ólafssoi þrítugur Kópavogsbúi, og hefur hann stjómað þessari hljómsveit undanfarin þrjú ár. Gunnsteinn stundaði nám hér á landl áður en hann fór utan þar sem hann var í fiögur ár viö Franz Liszt tónlistarakademíuna 1 Búdapest en siðan fimm ár við Tónlistar- skólann í Freiburg. Hann lauk þaðan prófi í hljómsveitarsfióm á hðnu vori og er nú aöstoðar- maður Robin Stapletons í ís- lensku óperunni. Eínleikari með ' hfiómsveitinni er einnig íslensk- ur, Ólafur Elíasson píanóleikari sem er að hefia nám í Royal Aca- demy of Music i London, Síðustu hljómleikarnir em annað kvöid. Helga Hjörvar tekurvið starfií Kaupmannahöfn Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfn; Fyrir stuttu tók Helga Hjörvar, fyrrverandi skólastjóri Leiklist- arskóla íslands, við starfi fram- kvæmdastjóra norrænu leiklist- ar- og dansnefndarinnar. Tók hún við starfinu af Anders Ahnfeld-Ronne sem gegnt hefm- því frá 1987 og hefur nú störf hjá Rialto-leikhúsinu í Kaupmanna- höfh. Nefndin fiallar um allt sem viðkemur leikhúsi á vegum Norr- ænu ráöherranefndarinnar og er ætlaö að standa fyrir námskeiö- um og ráöstefnum auk þess aö úthluta styrkjum á vegum neihd- arinnar. Fjárveiting nefndarinn- ar fyrir 1992 voru rúmar sextíu milljónir. Fyrsta verkefni Helgu eraö fara til Grænlands í byrjun september en þar er stórt nám- kvikmynd um Amnesty Kvikmyndafélagiö tit í hött - inní mynd hefur hafið gerö kvik- myndar um Aranesty Internatio- nal og starfsemi þess hér á landi. Myndin verður Iiálftíraa löng og byggð á erlendum fréttamyndum, viötölum viö fólk sem stendur framarlega i baráttunni og mynd- um frá starfseminni hér á landi. Dagskrágerð veröur í höndum Jóns Gústafssonar, Sigurðar A. Magnússonar og Ævars Kjart- anssonar. Framkvæmdastjóri verksins er Guðmundur Þórar- insson. Sjónvarpið mun sýna myndina á alþjóölegum mann- réttindadegi 10. desember. Lammermoor Hjá íslensku óperunni eru hafnar æfmgar á óperunni Luciu di Lammermoor eftir ítalska tón- skáldiö Gaetano Ðonizetti. Óp- eran er byggð á sannsögulegri skáldsögu eflir Walter Scott. Það er Sigrún Hjálmtýsdóttir sem fer með hlutverk Luciu i sýning- unni, chileanski tenórsöngvarinn Tito Beltran er í hlutverki elsk- hugans Edgardos og Bergþór Pálsson barytonsöngvari syngnr hlutverk Enricos, bróður Luciu. Aðrir söngvarar eru meðal ann- ars Sigurður Steingiimsson, Signý Sæmundsdóttir, Bjöm L Jónsson og Sigurjón Jóhannes- son. Það eru bresk-ástralski leik- stjórinn Michael Beauchamp og hreski lújómsveitarstjórinn Rob- in Stapleton sem sviðsefia verkiö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.