Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1992, Qupperneq 25
37
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1992.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Af koman lakari en
gert var ráð fyrir
Norrænt samstarf
kortagerðarmanna
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
íslenska Kortageröarfélagið, sem
stofnað var 7. febrúar 1990, stóð fyrir
námskeiði fyrir norræna kortagerð-
armenn dagana 20.-28. ágúst í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Systurfélög Kortagerðarfélagsins á
Norðurlöndum hafa frá árinu 1986
haft samstarf um að halda endur-
menntunarnámskeið fyrir korta-
gerðarmenn til skiptis á Norðurlönd-
unum og var námskeiðið nú í fyrsta
sinn haldið á íslandi.
Þátttakendur voru 40 talsins frá
Noregi, Svíþjóð, Danmörku og ís-
landi en að þessu sinni var enginn
frá Finnlandi.
lagsins sem haldið var á Akranesi.
DV-mynd Sigurgeir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við erum búnir að fara yfir 7
mánaða rekstraryfirlit fyrirtækisins
og það sýnir okkur að afkoman er
rétt í kringum núllið og er nokkuð
lakari en sú rekstraráætlun sem gerð
var,“ segir Einar Njálsson, bæjar-
stjóri á Húsavík, um afkomu Fisk-
iðjusamlags Húsavíkur til loka júlí-
mánaðar á þessu ári.
Einar segir að miðað við hvemig
ástandið sé í fiskvinnslu almennt þá
sé þessi útkoma ekki nög shæm. „Við
teljum að á ýmsum sviðum hafi náðst
árangurda, s.s. með mikilli hagræð-
ingu. Ytri skilyrðin til rekstursins
eru hins vegar slæm og vega þyngst
í þessu máli öllu og gera það að verk-
um að afkoman er ekki í samræmi
við þá áætlun sem gerð var,“ segir
Einar.
Hann segir að þrátt'fyrir endurfjár-
mögnun fyrirtækisins um síðustu
áramót og ýmsar aðgerðir til hag-
ræöingar sé reksturinn engan veginn
kominn á þurrt. „Við verðum að
halda áfram að einbeita okkur að því
að hagræða og endurskipuleggja og
halda vel á spöðunum til þess að
þetta gangi," sagði Einar.
Hrossaáreksturinn viö Blönduós:
Beðið úrskurðar
tryggingafélagsins
Lögreglan á Blönduósi hefur nú
lokið skýrslugérð vegna atburðarins
er ökumaður ók inn í hrossahóp á
Skagastrandarvegi með þeim afleið-
ingum aö aflífa varð einn hest og
annar slasaðist. Hafa skýrslurnar
verið sendar viðkomandi trygginga-
félagi. Þykir óljóst hvort þaö muni
greiða tjónið sem hlaust af völdum
ákeyrslunnar.
Forsaga málsins er sú að tveir hóp-
ar hestamanna mættust á veginum
eftir að dimmt var orðið. Námu þeir
staðar og tóku tal saman. Ökumað-
ur, sem bar að, sá ekki hrossin fyrr
en um seinan. Ök hann inn í hrossa-
hópinn með fyrrgreindum afleiðing-
um. Nokkrar skemmdir urðu á bíln-
um.
Einn hestamannanna snaraði sér
að ökumanninum og reyndi að draga
hann út úr bílnum. í ryskingunum
rifnaöi peysa ökumannsins. Hann
hefur kært atburðinn og krefst þess
að fá peysuna borgaða.
Tahð er óvíst að tryggingafélagið
sé tilbúið að greiða tjón það sem varð
á hrossunun þar sem hestamennirn-
ir höfðu staðnæmst á miöjum végin-
um í myrkri. Þeir höfðu raunar verið
aðvaraðir áður en til árekstrarins
kom því kona ein, sem átti leið um,
hafði bent þeim á að illmögulegt
væriaðgreinaþáímyrkrinu. -JSS
Akureyri:
íkveikjumáí óupplýst
(jylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það má segja aö tvö íkveikjumál
hér í bænum séu óupplýst," segir
Gunnar Jóhannsson, yfirmaður
rannsóknarlögreglunnar á Akur-
eyri. Annars vegar er um að ræða
íkveikju í þvottahúsi á jarðhæð íbúð-
arhúss við Oddagötu nú fyrir
skömmu. Þar urðu ekki miklar
skemmdir og fólk í húsinu slapp en
illa hefði getað farið þar sem um var
að ræða þrílyft íbúöarhús og fjöldi
fólks var sofandi þar inni.
Hitt máhð er íkveikja í gömlum
geymsluskúr við hhð Sjallans við
Geislagötu en sú íkveikja átti sér stað
sl. vetur. Þar inni var aðahega drasl
og varð fjón því ekki mikið.
Fréttir
Söltunarfélag Dalvíkur:
50 milljóna tap
á síðasta ári
Heimir Kristiiisson, DV, Dahrilc
Tap Söltunarfélags Dalvíkur var
kr. 50.800.000 á síðasta ári. Eigendur
Söltunarfélagsins eru Samherji hf. á
Akureyri með um 64% hlutafjár og
Dalvíkurbær um 36%. Félagiö á og
rekur rækjuverskmiðju á Dalvík og
í sumar hefur það verið með vinnslu
á Árskógsströnd í rækjuverksmiðju
Árvers sem varð gjaldþrota fyrr á
þessu ári.
Árið 1990 varö hagnaður félagsins
84,6 milljónir króna. Söltunarfélagið
skuldaði um síðustu áramót röskar
267 mihjónir króna og þar af voru
skammtímaskuldir tæpar 200 mhlj-
ónir. Eigiö fé Var í lok ársins tæpar
79 mihjónir.
Á síðasta ári réðst fyrirtækið í
gagngerar breytingar á verksmiðju
sinni og unnu þá að meðaltali 45
starfsmenn hjá fyrirtækinu. Að sögn
framkvæmdastjórans, Finnboga
Baldvinssonar, eru ástæður tap-
rekstursins þær að vegna breyting-
anna var verksmiðjan stopp lengur
en gert var ráð fyrir og einnig urðu
breytingarnar dýrari en áætlað var.
Þá fór minna hráefni í gegn vegna
vinnslustöðvunarinnar og síðast en
ekki síst var lækkun á afurðaverði á
síðasta ári.
Mikil vinnsla hefur verið nú í ár
og er Söltunarfélagið með 16 rækju-
báta í viðskiptum. Undanfarið hefur
verið unnið á 2 vöktum, 16 tíma í
sólarhring, í báðum verksmiðjunum.
Móttekiö hráefni, bara í júlí, var rösk
900 tonn, langmest fersk rækja.
Alls landa 16 rækjubátar hjá Söltunarfélagl Dalvíkur.
DV-mynd Heimir
Dans nýjung og alltaf það nýjasta!
Dauöarokk, þungt rokk, það sem þið dansið á böllum í vetur, mlkil
hreyfing, mlkll spenna
Böm 4-6 ára: Dans, söngur og leikr.æn tjáning saman.
Böm 7-9 ára: Skemmtilegir dansar örva sköpunargleði barnanna, kennt og æft verður á gólfi
sem og á senu, börnin fá tilfinningu fyrir auknu sjálfstrausti og öðlast þannig meiri ánægju
af dansi og leik. Freestyle og léttir leikdansar örva hreyfigetu barnanna til að njóta tónlistar
eins og best verður á kosið.
Afhendlng skírtelna Suðuriandsbraut 50 laugard. 12 sept. ogsunnud.
13. sept. frá kl. 14-18.