Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1992, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1992, Page 5
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1992. 5 Fréttir Ördeyðan á Vestflarðamiðum: Framleiðnin komin alveg niður á saumastof ustigið - segir Einar Oddur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hjálms hf. á Flateyri „Það hefur verið alger ördeyða hjá togurunum hér á Vestfjarða- miðum frá þvl í sumar. Og það gef- ur augaleið að þegar togslóðin bregst svona gersamlega, sem raun ber vitni, fer framleiðnin í atvinnu- greininni, veiðum og vinnslu, rosa- lega langt niður, hún fer alveg nið- ur á saumastofustigið. Og þegar svo er hallar mjög fljótt undan fæti hjá fyrirtækjunum í greininni,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Hjálms hf. á Flat- eyri, um það mikla aflaleysi á Vest- fjarðamiðum og erfiðleika tengda því. Einar sagði að auðvitað væru uppi ýmsar kenningar um ástæð- una fyrir þessu htla fiskiríi. Flestir benda á miklar breytingar á lífrík- inu í hafinu. „Við þekkjum svipað ástand frá eldri tíma að togslóðin hefur nær algerlega brugðist. Það gerðist upp úr 1960 og mér er sagt aö það sama hafi gerst á árunum 1937 til 1940,“ sagði Einar Hann sagði stöðu allra fisk- vinnslu- og útgerðarfyrirtækja á Vestfjörðum því afar slæma um þessar mundir. Olíueyðsla togar- anna væri óskapleg á móti þeim afla sem þeir koma með að landi og vinnslan hefði úr sárahtlu að moða. Undir svona kringumstæð- um væri ekki annað að gera en vonast til að mönnum entist örend- ið til að þrauka þar til aftur kæmi fiskur á slóðina. „Um leið ættu menn að sjá hversu mikils virði það er að komið sé til móts við fyrirtækin með aðstoð svo þau nái að þrauka og það er ein- mitt það sem við erum að fara fram á þessa dagana," sagði Einar Oddur Kristjánsson. -S.dór Togarar á Vestflarðamiðum: - hafa fengið allt upp í 10 tonn í trollið, segir Reynir Traustason, stýrimaður á Sléttanesinu „Það er alger ördeyða hjá togurun- um á öhum Vestfjarðamiðum. Aftur á móti hafa elstu sjómenn ekki séð annað eins magn af marglyttu á mið- unum og nú. Þess eru dæmi að tog- ari hafi fengið um 10 tonn af marg- lytt u í trohið og jafnvel að trohin hafi sprungið. Ég hef verið á þessum miðum í um 20 ár og hef aldrei orðið vitni að neinu þessu líku. Það hafa áður komið örfá kvikindi í trolhð en magnið nú er engu likt. Það er enginn fiskur á miðunum, bara marglytta, bæði grunnt og djúpt út af Vestfjörð- um,“ sagði Reynir Traustason, stýri- maður á Sléttanesinu, í samtah við DV. Hann sagðist ennfremur vart muna eftir annarri eins ördeyðu í fiskirunu og verið hefur í haust. Nú þætti gott ef togari kæmi með 60 tonn að landi eftir 7 til 8 daga túr. Áður þótti ekki nema sæmhegt að koma með 100 tonn eftir jafn langan tíma. Reynir sagði það algengt að togaramir væru að koma með aht niður í 20 th 30 tonn eftir vikuna. Reynir sagöi að sjómenn væru með getgátur um að fiskurinn væri flúinn af miðunum vegna þessa mikla magns af marglyttu. Hann sagðist hafa spurst fyrir um það hjá Ha- frannsóknastofnun hvort það væri mögulegt en engin svör fengið. DV leitaði th Ólafs Ástþórssonar, líffræðings hjá Hafrannsóknastofn- un, og spuröi hvort hann hefði ein- hveija skýringu á þessu mikla mar- glyttumagni. Hann sagðist í raun ekki hafa það. Hann sagðist heldur ekki vita hvaða marglyttutegund þetta væri. Ólafur sagði það mögu- legt að fjölgun marglyttunnar, sem væri suðrænnar ættar, hefði tekist vel og hún borist hingað með straum- um í þessum mikla mæh. Þetta væri hugsanlegt. Hvort fiskurinn hefði flúið miðin vegna þessa sagðist hann ekki þora að segja um. Það gæti þó hugsast ef marglyttan væri í eins óskaplega miklu magni og sjómenn segja. -S.dór Senrt fer að liða að því að sveppir hætti að vaxa á grasbölum borgarinnar enda skammt í fyrstu frost. Að sögn Eiríks Jenssonar líffræðings er ekki óalgengt að 5-10 sveppategundir vaxi á hverju túni. Hann segir ráðlegt að halda sig frá þeim sveppategundum sem menn þekkja ekki enda geti sumir þeirra valdið bæði vanlíðan, niðurgangi og jafnvel ofskynjunum. DV-mynd S TALIA SHiRE DNATHAN SILVERMAN etga. Því ákveður hann að fosa sig við allar sínar eignir Enatlt feráannan vegen lokum snúa þau saman vörn í sókn og... É Va' ÍKK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.