Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1992, Page 12
12
Spumingin
Átt þú erfitt með að vakna
á morgnana?
Gunnhildur Viðarsdóttir fóstra: Nei,
ég vakna um áttaleytið og finnst það
ekkert erfitt.
Sigurbergur Ármannsson nemi: Nei,
ekki svo mjög.
Hákon Kristjánsson lögfræðingur:
Nei, alls ekki.
Harpa Rútsdóttir læknaritari: Nei,
það á ég ekki.
Hallvarður S. Óskarsson málara-
meistari: Nei, ég vakna um 7-7.30 og
á auðvelt með það.
Ólafía Ólafsdóttir húsmóðir: Nei, ég
vakna milii klukkan 8 og 9.
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1992.
Lesendur
Gleymum ekki
geðsjúkum
Þessa dagana bjóða kiwanismenn K-lykilinn til sölu um land allt.
Tómas Zoega, yfirlæknir við geðdeild
Landspítalans, skrifar:
í kvöld og næstu tvo daga stendur
Kiwanishreyfingin á íslandi fyrir
fjársöfnun um land allt undir kjör-
orðinu: „Gleymum ekki geðsjúkum."
Kiwanismenn hafa staðið fyrir
landssöfnun með sölu á K-lyklinum
á þriggja ára fresti síðan 1974. Af
mikilli framsýni hafa þeir styrkt
ýmis verkefni sem aðallega tengjast
endurhæfingu geðveikra. Fyrst
lögðu þeir fé í Bergiðjuna sem er
vemdaður vinnustaður og hefur
hjálpað mörgum til að stíga sín fyrstu
skref úti á vinnumarkaðmum eftir
erfið veikindi. Þá hafa þeir styrkt af
myndarskap byggingu sambýla og
áfangastaða, bæði í Reykjavík og á
Akureyri. Einnig studdu þeir ungl-
ingageðdeild Landspítalans.
Næsta verkefni kiwanismanna er
bygging iðnaðarhúsnæðis sem rekið
verður sem vemdaður vinnustaður
og hluti af Bergiðjimni. Húsnæðið
kemur til með að bæta úr mjög
brýnni þörf. Áætlanir em um að þar
verði framleiðsla á garðhellum og
kantsteinum. Einnig verður þar
pökkun á vikri og pottamold, auk
fjölda annarra verkefna. Reiknað er
með að þessi verkefni geti skapað
vinnu fyrir 20-24 einstaklinga. Slíkur
staður er ómetanlegur, bæði sem
vemdaður vinnustaður og stökkpall-
ur út í atvinnulífið.
Margir gera sér ekki grein fyrir hve
algengir geðsjúkdómar em. í flestum
tilvikum er ekki um alvarlegan
vanda að ræða og horfur mjög góð-
ar. Stundum eru veikindin alvarlegs
eðhs. Sjúkrahúsvist getur verið
nauðsynleg og jafnvel langtíma end-
urhæfing. Erfiðleikar þessara ein-
stakhnga em mikhr og veikindin
hafa veruleg áhrif á líf ahrar flöl-
skyldunnar. Eðh málsins samkvæmt
er þetta ekki hávær þrýstihópur. Það
kemur því mörgmn á óvart aö alvar-
legir geðsjúkdómar og afleiðingar
þeirra em algengasta ástæða fuhrar
örorku.
Hugur og stuðningur Kiwanis-
hreyfingarinnar til geðveikra er
ómetanlegur. Mikhvægt er að ein-
stakhngar og fyrirtæki sýni stuðning
sinn í verki og taki vel á móti kiwan-
ismönnum er þeir selja K-lykihnn.
Með öflugu átaki getur það orðið lyk-
ill að bjartari framtíð fyrir marga
sem eiga við alvarlegan geðsjúkdóm
að stríða.
Forkastanlegur dómur
Ingibjörg B. skrifar:
Mig rak hreinlega í rogastans þegar
ég las í DV um dóm í máh fjögurra
pilta sem dæmdir vom fyrir að
nauðga 14 ára stúlku. Hvað er eigin-
lega að gerast í íslensku dómskerfi?
Þykir það kannski ekkert mál þótt
konu sé nauðgað?
Þess umræddi dómur er eins og
ávísun fyrir þá sem einhvem tíma
gætu látið sér detta í hug að vinna
slíkt ódæðisverk sem nauðgun er.
Það er aht í lagi þótt þeir nauðgi einu
sinni. Þeir fá bara viðvömn, skilorðs-
bundinn dóm. Þeir þurfa ekki að
hafa neinar áhyggjur svo fremi sem
þeir bijóta ekki af sér í smátíma á
eftir. Síðan geta þeir leikið þennan
leik aftur þegar skhorðstíminn er
runninn út. Engar áhyggjur, nauðg-
un er ekkert stórmál!
Svo sé ég að þessi sami dómari
hefur dæmt mann til þungrar refs-
ingar fyrir að stela sér rúmlega 200
þúsund krónum.
Nú vaknar með manni spuming:
Hvort er meiri og alvarlegri glæpur
að svíkja út peningaupphæö á borð
við þá ofangreindu eða taka unga
stúlku með valdi, misbjóða henni og
leggja líf hennar í rúst, kannski um
alla framtíð? Samkvæmt dómnum er
hið síðamefnda smámál miðað við
fjárstuldinn.
Hér þarf að taka í taumana. Því
viðhorfi og þeirri stefnu, sem þama
hefur verið mörkuð, þarf að hnekkja.
Við búum í siðmenntuðu þjóðfélagi
og eigum að taka á nauðgunarmálum
samkvæmt því.
Eigatrúog
vísindi samleið?
E.V. skrifar:
Bent er á aö söfnuðirnir geti
fullvel reklð allar kirkjur landsins.
Hringið í síma
632700
miUikl. 14 og 16
-eða skrifíð
NsJii sítmmr. vfröuraðíyJKÍtt brífum
Hvenær fóm trú og vísindi að eiga
samleið? Varla getur verið eðlilegt
að prestaskóh tilheyri háskóla sem
vih teljast vísindastofnun. Söfnuð-
imir ættu að kosta menntun presta
sinna sjálfir.
Vandséð er að hinn leikræni þáttur
trúariðkana geti ekki farið fram í
hvaða félagsheimih eða leikhúsi sem
er, svo og önnur starfsemi safnað-
anna. Bygging leikhúsa og félags-
heimila vítt um landið hefur fyrir
löngu gert sérstakar kirkjubygging-
ar óþarfar. Stjömubíó í Reykjavík
var lengi jafnframt safnaöarkirkja,
leikrit hafa verið á fiölunum í Hall-
grímskirkju og hljómleikar enda
enginn munur á þeim kröfum sem
gerðar em til þessara bygginga, þ.e.
áheyrendasalar og leiksviðs. Með til-
komu sjónvarps og útvarps berst
orðið og hinn leikni þáttiu- guðsþjón-
ustunnar um land aht og miðin.
Messuboðun þarfnast ekki lengur
klukknahringingar, sem betur fer. í
Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og
Hafnarfirði er ríkið að fjárfesta í
kirkjubyggingumogsafnaðarheimil- '
um fyrir mihjarð eða meira á sama '
tíma og framleiðslufyrirtækin, sem
standa undir þessiun þarflausu bygg-
ingum, em að leggja upp laupana. n
Nærtæk dæmi um það em frá Bol-
ungarvík og ísafirði. (Einar Guðfiim-
son hf. og Hahdór Hermannsson.)
Óskiijanlegt er hvemig kirkjan get-
ur blóðirjjólkað ríkið og almenning
til þessara framkvæmda.
Ef th vih em framkvæmdamenn í
byggingariðnaði jafnframt áhrifa-
menn innan safnaðanna og Alþingis.
Hvorki kirkjur né leikhús eiga að
vera ríkisrekin, það er verkefni
einkaframtaksins.
Hverfann
úlpuna?
Sonur minn týndi úlpu um dag-
inn, líklega á mhh Nóahæðar og
Smárahvammslands, í henni
voru öll hans skilríki og fleira.
Skömmu síðar hringdí svo
maður sem kvaðst hafa fundið
úlpima. Hann kvaöst vera að
vinna á þessum svæði og gætum
við vitjað úlpunnar í gulum pick-
up bíl sem stæði þar ahan daginn.
Við erum búin að gera nokkrar
tilraunir til að hafa upp á þessum
bíl, en án árangurs. Eg vil biðja
manninn að hafa samband við
okkur aftur.
Anna hringdi:
Mér fannst þátturinn á Stöð 2
um sifjaspell átakæhegur, svo
ekki sé meira sagt. Stjómandan-
um, Jóni Ársæh Þórðarsyni,
tókst að fialla um tætta viðkvæma
mál á þann hátt að aðrir hefðu
Það var fuhyrt að á hveijum
degi yrði lífið bam fyrir kynferð-
islegu ofbeldi á íslandi. Ég tók
þessu með fyrirvara þar til ég
hafði séð þáttinn. Þá skynjaði ég
hversu stóralvarlegt máhð er.
Ég skora á mæður, skyldfólk,
vini og aðra þá sem hafa minnsta
grun um að verið sé að misþyrma
barni á þennan hátt að láta þegar
vita. Með því einu er hægt að
stööva ofbeldismanninn.
semsýnist
Elsa Georgsdóttir skrifar:
Nú trúa ahir á peninga og reyna
sem mest og bestað skara eld að
sinni köku. Sá sem safnar auði
hleður utan um sig múrvegg.
Kirkjan er steindauð. Hún skilur
ekki kenningar Krists. Prestamir
eru ekki það sem þeir kenna.
Meðan allir landsmenn eru að
gefa til hjálparstofnunar Rauða
krossins standa þeir í kjarabar-
áttu. Það er ekkert vit í þessu.
Skáldin okkar eru hinir einu,
sönnu prestar. En það heyrist
ahtof sjaldan eítthvað eftir þau í
útvarpi. Á Öllum rásum glymur
amerískt þungarokk og á rás 1
eru á klukkutimafrestifréttir um
peninga, vexti, glæpi og fleira af
þeim toga. Það þrífst engin þjóð
á þessum ósköpum.
K.J. hringdi:
Mér finnst óþolandi þegar
fréttamenn Stöðvar 2 hnýta ahs
konar athugasemdum aftan við
fréttimar. Talandi dæmi er at-
hugasemd Ingva Hrafns viö frétt- ;
ina um Sophiu Hansen og uppboð;
Búnaöarbankans.
Hlutverk fréttamanna er að;
segja hlustendum frá því; sem
fréttnæmt er. En þcir eiga aUs
ekki að hampa eigin skoðunum,
una. \ ofimgreindu thviki fengu
þeir þá hnu frá fréttastjóranum
að það væri beinhnis rangt af
bankanum að fara aö eigin regl-
um af því að Sophia Hansen ætti
hlut að máh. En hvað um aha
hina sem eru búnir að missa
heimhi sín, á bankinn kannski
að mismuna fólki eftir geðþótta
fréttamanna Stöðvar 2?
Þakklæti
Hulda hringdi:
Ég vil þakka öllum þeim sem
hafa haft kjark til að koma fram
og segja frá reynslu af ofbeldi í
lifi sínu. Þetta hjálpar okkur hin-
um sem höfum þagaö en þurft að