Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1992, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1992, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992. Fréttir dv Óljóst eftir samprófun í gær hver setti kókaínið 1 bíl tálbeitunnar: Steinn Ármann neitar - tálbeitan man ekki - ákærði segir tálbeituna vera sjónhverfmgamann ef hún hefði gert það Steinn Armann Stefánsson gengur inn í dómsalinn í Héraðsdómi Reykjavik- ur. DV-mynd GVA Þegar Steinn Ármann Stefánsson og svokölluð tálbeita voru samprófuð í kókaínmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær kom fram hjá ákæröa að hvorki hann né tálbeitan hefðu sett kókaín í bíl þeirra ídómsalnum Óttar Sveinsson skömmu áður en þau héldu af stað frá Faxafeni að kvöldi 17. ágúst. Steinn segist ekki hafa sett efnin í bílinn sjálfur og ef tálbeitumaðurinn hefði gert það væri maðurinn sjón- hverfingamaður. Steinn segir hinn hafa farið að hringja Viö samprófunina kom einnig fram að eftir að mennirnir komu í Faxa- fen, þar sem kókaíninu var pakkað saman, hefði tálbeitan fariö upp á efri hæð þar sem hún hringdi sím- tal, að áliti Steins. Tálbeitan sagði Stein ekki hafa getað vitað hvað hún var að gera því ákærði hefði ekki séð sig. Tálbeitan kvaðst í gær, eins og áð- ur, ekki muna hver hefði sett kókaín- ið í bílinn áður en þeir óku af stað frá Faxafeni. Hann kvaðst þó vera viss um að hafa séð efnið í bílnum er hann lokaði afturhlera hans áður en ekið var af stað. Maðurinn sagði að mikil taugaveiklun hefði ríkt um það leyti sem þetta stóð yfir. Tálbeitan viöurkenndi að hún hefði rætt um það við Bjöm Halldórsson hjá fíkniefnadeildinni að bera þaö upp við Stein Ármann að selja hluta efnisins úr landi. Um þetta sagði Steinn Armann: „Það sér það hver heilvita maður að það er ekki hægt að selja 1,2 kfió af kókaíni á íslandi eða nokkum skapaðan hlut af því.“ Man ekki -en gæti verið Tálbeitan kvaðst ekki neita því að verið gæti að hún hefði aðstoðað Stein við að pakka kókaíninu inn í pappír í Faxafeni - en hana ræki hins vegar ekki minni til að hafa gert það. Tálbeitumaðurinn var greinilega taugaóstyrkur við réttarhaldið og drakk svo óspart úr vatnskönnu við vitnastúkuna að sækja þurfti meira á könnuna. Við samprófunina kom einnig fram að samkvæmt framburði Steins hefði hann afhent tálbeitunni 50 gramma sýnishom af kókaíni áöur en hin sviðsettu viðskipti fóm fram en tál- beitan segir það hafa verið mun minna, 15 grömm eða jafnvel ekki nema 7-8 grömm. Eftir sem áður hefur mennina greint mjög á um þetta atriði. Dómarinn hastaði á tálbeituna Lögreglan afhenti tálbeitunni 80 þúsund krónur vegna kaupa á sýnis- homunum en Steinn Armann segist alls enga peninga hafa fengið fyrir sýnishomin. Þegar Guðjón Mar- teinsson héraðsdómari spurði tál- beituna um hvað hún hefði gert við peningana kvaðst hún hafa notað þá að hluta til í „snatt“, að hluta í Stein Ármann og sagði einnig að þau hefðu „snætt saman“. Þegar dómarinn spurði tálbeituna um hvort og hvemig hefði verið rætt um fjármögnun á kaupum tálbeit- unnar á kókaíni af Steini kom til tals- verðra orðahnippinga. Tálbeitan maldaði mjög í móinn vegna þeirra spuminga sem fyrir hana vom lagð- ar en þá sagði dómarinn manninum að vera rólegum. Maðurinn sagði síð- an að umræður um fjármögnunina heföu farið fram meira eða minna allt kvöldið - tálbeitan hefði getað útvegað hluta kaupverðsins strax. Steinn missti trú á tálbeitunni Skömmu áður en kom að hinni örlagaríku eftirför á eftir bíl Steins Armanns kvaðst ákærði hafa verið búinn að missa alla trú á tálbeitunni - hann hefði gmnað að í hði tálbeit- unnar væm menn sem hann óttaðist að myndu ráða sér bana. Um það leyti sem leikurinn var að berast að sundlaugunum í Laugardal, þar sem eltingaleikurinn hófst, sagðist Steinn hafa talið að verið væri að leiða sig í gildra. Hann sagði að um það leyti hefði hann talið að betra væri að efn- in væm í vörslu tálbeitunnar en ekki hjá sér. Réttarhöldin í kókaínmálinu em nú komin á lokastig. Á morgun, mið- vikudag, verða síðustu vitnin leidd fyrir dóminn en að því loknu hefst málflutningur þar sem sækjandi og veijandi halda ræður sínar áður en málið verður tekið til dóms. Búast má við að dómur gangi í desember. Heiðurslaun: Engin und- anþága í skattalögum „Styrkir, heiðurslaun eða gjafir af þessu tagi teljast til skatt- skyldra tekna. Það er engin und- anþága vegna þess í skattalög- um,“ sagði Steinþór Haraldsson hjá ríkisskattstjóra þegar DV spurði hann hvaða reglur giltu urn flárhæðir sem mönnum væm veittar í heiðursskyni. Eins og fram hefur komið í DV ákvað Menningarmálanefnd Ak- ureyrar á síðasta ári að heiðra Áskel Jónsson fyrir ævistarf hans að tónlistarmálum í bænxnn og afhenti honum 100 þúsund krónur að gjöf. Nú vill skatturinn fá 40 prósent af upphæöinni. Steinþór sagði aö öll upphæðin væri skattskyld samkvæmt nú- gildandi skattalögum. „Þessi verðlaun og styrkir úr opinberam sjóðum em undan- þegnir staðgreiðslu. Skatturinn er nú tekinn eftir á,“ sagði Stein- þór. „í skattalögunum er sérstök heimild fyrir t.d. listamenn, sem em með ótryggar tekjur, þar sém hægt er að sækja um dreifingu á skattgreiðslum.“ -JSS NóbelogNorð- ' urlandaráð undanþegin „Þau verðlaun sem Norður- landaráð veitir em undanþegin skatti samkvæmt lögum þar að lútandi," sagði Friðrik Ólafsson, skrifstofusijóri Alþingis, viö DV. Þessi imdanþága er samkvæmt lögum frá 1976. Þar segir: Bók- mennta- og tónhstarverðlaun Norðurlandaráðs skulu undan- þegin tekjuskatti og útsvari, þeg- ar þau faha íslenskum ríkisborg- urum í skaut. „Þegar Hahdór Laxness hlaut nóbelsverðlaunin á sínum tíma vom sett sérstök lög til aö undan- skilja þau skattskyldu," sagði Friðrik. „Mér er ekki kunnugt um fleiri verðlaun eða styrki af þessu tagisem njóta skattfrelsis." -JSS í dag mælir Dagfari Peningana eða lífið Hér áður fyrr kusu íslendingar yfir sig ríkisstjómir til að stjóma með gamla laginu. Gamla lagið var ein- falt. í hvert skipti sem efnahagur- inn hahaöi kom forsætisráðherra landsins fram í hátíðarstelhngum og tilkynnti eitt stykki gengisfeh- ingu. Oftast vom menn ekki fyrr búnir að skrifa undir nýja kjar- samninga en gengiö var feht th að eyða áhrifum kauphækkana. Gengið var töfralausn allra ríkis- stjóma og afar einfóld aðferð th að leysa efnahagsvanda. Það þvældist ekki fyrir neinum, hvorki hægri stjómum né vinstri stjómum og í rauninni var íslenska þjóðin komin á þá skoðun að önnur efnahagsúr- ræði væra ekki th heldur en hefð- bundin gengisfelling. Verkalýöshreyfingin kunni ekki nein ráð viö gengisfellingum. Verkalýðshreyfingin stóð vamar- laus gagnvart þessu einfalda vopni og brátt urðu verkalýðsforingjar með slíka fóbíu fyrir gengisfehing- um að þeir fómuðu höndum og báðu um aht annað, samþykktu aht annað og gáfust hreinlega upp fyrir áhrifamætti gengislækkunar og það var þá sem þeir geröu þjóð- arsáttina og köhuöu yfir sig krepp- una. Nú hefur ríkt hér þjóðarsátt um kreppuna í rúm tvö ár og það má ekki nokkur maður heyra minnst einu orði á að hrófla við þessari þjóðarsáttarkreppu. Dag- fari vekur th að mynda athygli á því að öh viðleitni á vinnumark- aðnum þessa dagana gengur út á það eitt hvemig menn geta lifað kreppuna af. Það dettur engum í hug að gera ráðstafanir sem eyða kreppunni, hvað þá að brjóta upp þjóðarsáttina sem skhaöi okkur kreppunni. Menn em jafnvel að tala um það í fuhri alvöra að gera nýja þjóðarsátt th að varðveita gömlu þjóðarsáttina. Það er af þessum sökum sem verkalýðsforingjamir sitja nú með sveittan skallafin th að finna út hvemig megi skattleggja launþeg- ana svo að blessuð fyrirtækin lifi kreppuna af. Það gengur fyrir að vemda fyrirtækin. Launþegar geta blætt. Allt er betra en gengisfehing, segja forystumenn launþega og sitja heha helgi th að finna leiðir th að forðast hana. Ríkisstjómin, sú sem nú situr, á náöuga daga. Hún þarf ekki annað en að hvísla í eyra þjóðarinnar að gengisfelling sé á næsta leití. ef verkalýðshreyfingin býr ekki th nýja þjóðarsátt um kreppuaðgerð- ir. Ríkisstjómin þarf meira að segja ekki að hafa fyrir því að ræða efna- hagsmál á fundum sínum. Ríkis- stjómin bíður bara átekta og hótar gengisfellingu og verkalýðshreyf- ingin hristist og skelfur af hræðslu. Guðmundur J. Guðmundsson kahar þetta terrorisma. Guðmund- ur segist ekki láta terrorista segja sér fyrir verkum. En honum var nær. Gvendur jaki er einn af höf- undum þjóöarsáttarinnar um kreppuna og það var hann sem eyðilagði þau tækifæri sem ríkis- stjómir íslenska lýðveldisins höfðu á sínum tíma th að feha gengið th að viðhalda hagsældinni og vel- ferðinni á íslandi. Það var hann sem heimtaði fast gengi og stööug- leika í kreppuna og kaupið. Það var hann sem bjó th terroristana. Nú er svo komið að ríkisstjómin þarf ekki lengur að sætta sig við kauphækkanir og kjarabætur th að fella gengið. Ríkisstjórnin er búin að búa th pakka handa verka- lýðsforingjunum sem felur í sér skerðingu á orlofi og veikindadög- um, skattlagningu á lifeyrissjóði, jafnvel kauplækkun. Ef verkalýðs- forystan samþykkir ekki þennan pakka orðalaust fer forsætisráð- herra ekkert í felur með þær fyrir- ætlanir sínar að gengið verði feht. Annaöhvort peningana eða lífið, segir Davið og miðstjóm Alþýðu- sambandsins segir: ekki meir, ekki meir og biður um lengri frest th að sætta sitt fólk við hengingaró- lina. Það hlýtur að vera þæghegt að stjóma landinu við þessi skilyrði. Og ekki versnar það þegar Gvend- ur jaki rýkur á dyr og neitar að vera með í þjóðarsáttinni. Þá þvæl- ist hann ekki fyrir á meðan. Eftir- lifandi verkalýðsforingjar hafa þá friö fyrir Jakanum th aö semja við ríkisstjómina um pakkann sem er í boði og forða sjálfum sér frá þeirri framtíð að kreppunni létti og þjóð- arsáttin springi í loft upp. Þá vhja þeir heldur áframhaldandi kreppu heldur en gengisfehingu. Þá er terrorisminn skárri en þau ósköp að þeir hafi ekki lengur stjóm á kreppunni. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.