Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1992, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992.
5
Fréttir
Handaf I við vaxtalækk-
un er meiningarleysa
segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra um vaxtalækkunarkröfu verkalýðsforingja
Verkalýðsforingjar lýstu því yfir
eftir formannafund ASÍ á sunnu-
dag að lækkun vaxta væri forsenda
þess að þeir tækju þátt í tillögugerð
til lausnar efnahags- og atvinnu-
vandanum.
„Ég lít ekki svo á að aðilar vinnu-
markaðarins hafi gert neina kröfu
um aðferð við að lækka vexti held-
ur útkomuna. Handaflsaöferð við
að lækka vexti er meiningarleysa,“
sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra í samtali við DV.
Jón sagði ennfremur að ríkis-
stjómin ætlaði að skapa skilyrði í
samvinnu við aðra til vaxtalækk-
unar. Vextir væru eitt af þeim fyr-
irbærum sem ekki þýddi að fara
framan að, menn yrðu að hafa lag-
ið til þess. Til þess þyrfti að draga
úr lánsfjárþörf hins opinbera og
líta á önnur skilyrði vaxtaákvarð-
ana í bönkunum. Meðal þess væri
að íslenskir atvinnuvegir hefðu
aðgang að erlendu lánsfé og skil-
yrðin sem Seðlabankinn setti bönk-
unum við lánveitingar, svo sem
bindiskyldu og fleira af því tagi.
„AUt þetta verður tekið með í
myndina. Ef við náum samkomu-
lagi um eflingu atvinnu á grund-
velh stöðugleika tel ég að takast
muni að ná vöxtunum niður. Ég
bendi á, vegna þess að oft er jafnað
til grannlanda okkar, að við erum
nú með lægri vexti en eru annars
staðar Norðurlöndunum, bæði
nafnvexti og raunvexti,“ sagði Jón
Sigurðsson.
„Ríkisstjórnin hefur eins og aðrir
fullan vilja til að vextir geti lækk-
aö. Til þess að svo megi verða þarf
að skapast betra jafnvægi á láns-
fjármarkaðnum. Sá sem tekur
langmest til sín á lánsfjármarkaði
er ríkisvaldið. Ef menn ætla að
lækka vexti verður að draga úr
lánsfjárþörf ríkisins," sagði Friðrik
Sophusson fjármálaráðherra.
- A sama tíma krefjast aðilar
vinnumarkaöarins aðgerða ríkis-
stjórnarinnar til að auka atvinnu.
Rekst þetta ekki hvert á annars
horn?
„Það verður aö skoða allar að-
gerðirnar í heilu lagi. Það skiptir
máh varðandi vaxtamálin hvort
lán, sem rUdð tekur, er innlent eða
erlent. Það reynir ekki jafn mikið
á vextina ef lánið er erlent. Það
eykur hins vegar greiðslubyrði
komandi kynslóða. Þess vegna er
erfitt að ræöa þessi mál fyrr en við
sjáum tiUögurnar í heUd.“
- Að lækka vexti með handafli, er
það framkvæmanlegt?
„Ég hef aldrei áttað mig á hvað
menn eru að fara þegar þeir tala
um handaUsaðferð. Þaö er enginn
vandi fyrir mig að lækka vexti á
ríkisskuldabréfum niður í 1 pró-
sent og sitja svo uppi með bréfin
óseljanleg," sagði Friðrik Sóphus-
son.
-S.dór
Samskip til Eimskips?
Ekkirættá
stjórnarfundi
- segirHöröurSigurgestsson
„Við fylgjumst auðvitað með hvað
gerist á þessum markaði. Við eigum
ekki í viðræðiun við Landsbankann
og máUð hefur ekki verið rætt á
stjómarfundi,“ sagði Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri Eimskips, að-
spurður um þaö hvort Eimskip hygð-
ist kaupa 85% hlut Landsbankans í
Samskipum.
Hörður bjóst við að stjórnarfundur
yröi haldiim bráðlega og þá yrði
„þetta mál rætt yfir kaffiboUa eins
ogaðrirhlutir."____-Ari
JónBaldvin:
BíðumeftirSuð-
urnesjamönnum
„Meirihlutafulltrúar mínir í stjóm
íslenskra aðalverktaka hafa Uutt þar
tUlögu um stofnun eins konar fjár-
festingarfélags. Það hafa enn ekki
borist svör frá öhum aðUum sem
þurfa að því að koma,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra um þátttöku Aðalverktaka í
uppbyggingu atvinnulífs á Suður-
nesjum.
- Er ekki þrýstingur á ykkur frá
Suðumesjum?
„Það era aðilar á Suðumesjum sem
þurfa að svara, við bíðum eftir svari
frá þeim,“ sagði Jón Baldvin. -sme
f* ^ wm 4 l ■* - lÆím
Barnamyndin Fríða og dýrið var frumsýnd í Bíóhöllinni á laugardaginn. Um 100 krakkar mættu á
frumsýninguna í boði Krakkaklúbbs DV. Dýrið kom að sjálfsögðu á staðinn og vakti mikla lukku
meðal frumsýningargesta. DV-mynd JAK
ReynirHugason:
Tólf hundruð
i samtokum
atvinnulausra
-mikilreiði
„Hvorki landbúnaður né sjáv-
arútvegurinn eru undirstöðuat-
vinnvegir eins og nú árar. Það er
iðnaöurínn aftur á móti," sagði
Reynir Hugason, formaöur
Landssamtaka atvinnulausra.
Samtökin benda á að ef íslend-
ingar kaupa innlenda vöm í stað
erlendrar skapist fimm þúsund
ný störf í iðnaði á skömmum
tíma, en samtökin segja einmitt
aö atvinnulausir séu um fimm
þúsund x dag og því geti íslend-
ingar keypt atvinnuleysið burt.
Þá segja samtökin að við hvert
eitt starf í iönaði skapist fjögur
störf í öðmm greinum og að störf-
um í iðnaði hafi fækkað um fjög-
ur þúsund á síðustu fimm ámm.
Reynir Hugason sagði að nú
væm félagar í Landssamtökum
atvinnulausra um 1.200. Hann
sagðist verða var viö mikla reiði
margra félagsmanna í garð
stjómmálamanna vegna at-
vinnuleysisins og hann sagði fé-
lagsmenn ekki hafa biðlund eftir
að eitthvaðyrði að gert. „Við vilj-
um lausnir strax,“ sagði Reynir
Hugason. -sme
Starfsmannafélagiö Sókn:
Fjórum starf s-
mönnum félagsins
sagt upp
- launalækkun kemur til greina
' Öllum starfsmönnum Heilsurækt-
ar Sóknar, fjórum talsins, hefur ver-
ið sagt upp störfum. Þrír starfsmann-
anna em í 70% starfi ogeinn í 50%.
„Þetta er hryllingur fyrir verka-
lýðsfélag að þurfa að grípa til svona
aðgerða og ekkert grín en það er
heldur ekki hægt að reka svona fyrir-
tæki með tapi í skjóli þess að um
stéttarfélag er að ræða. Gífurlegur
samdráttur hefur verið í heilsurækt-
irrni frá 1990. Það er ekki enn ljóst
hvað verður gert, hvort fækkað verð-
ur um einn starfsmann og hinir haldi
fullri vinnuprósentu, eða hvort verð-
ur prósentubreyting. Það liggiu- ekki
fyrir fyrr en um miðjan desember,“
segir Þórunn Sveinbjömsdóttir,
formaður Starfsmannafélagsins
Sóknar.
Þómnn sagði að 20 til 25% sam-
dráttur hafi verið í rekstri Heilsu-
ræktarinnar frá árinu 1990 og fram-
tíðin væri ekki björt. Starfsemin hef-
ur verið verulega niðurgreidd fyrir
Sóknarfélaga.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, fyrr-
verandi formaður Sóknar, sagðist
vera afskaplega leið yfir uppsögnun-
um því Heilsuræktin hefði verið
óskabarn sitt.
-Ari
NOVEMBER
TILBOÐ!
25%
afsláttur
í nokkra daga
^rtbd__________________
Dæmi: Áður: Nú
Stakirjakkar kr. 16.900,- 12.675,- stgr.
Jakkaföt kr. 24.500,- 18.375,- stgr.
Úlpur kr. 26.900,- 20.175 stgr.
Slq'rtur kr. 5.500,- 4.125,- stgr.
20% afsláttur fyrir korthafa
[^SHl HERRflFRTflVER/LUn
L*Hbirgi/
FÁKAFENI 11 - SÍMI 91-31170