Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1992, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1992.
9
DV
Færeylngar kunna vel að meta nýtilkomna áfengisútsölu:
Hópferðir fólks úr
eyjunum í „ríkið“
- áfengisverð 1 Færeyjum mun hagstæðara en á íslandi
Verð á áfengi
tsl. krónur-
2.080
2.300
1.358
1.700
ISIII
B r © n n i v í n
| Færeyjar
U ísland
1.590
727
■
Smirnoff
Algengt
r a u ö v í n
Jens Dalsgaard, DV, Pæreyjum;
Greinilegt er aö fólk hér í Færeyj-
um hefur veriö oröið langþreytt á að
bíöa eftir opnun áfengisútsölu því nú
má daglega sjá langar biðraðir viö
eina „ríki“ eyjanna í Þórshöfn.
í fyrstu var taliö að ekki þyrfti að
hafa opið nema frá tvö til sex eftir
hádegi en nú er ákveðið að lengja
opnunartímann og hefja sölu þegar
klukkan tíu aö morgni.
Áhuginn er mikill því svo virðist
sem fólk komi í hópferðum úr nálæg-
um eyjum til Þórshafnar til að standa
í biðröðinni við Rúsdrekkasölu
landsins eins og færeyska „ríkið“
heitir fullu nafni.
Úr Suðurey er tveggja tíma sigling
hvora leið með feiju til Þórshafnar
en fólk lætur það ekki á sig fá og
eyðir lunganum úr deginum til að
kaupa góðgætið.
Til stóð að opna útsölu í Klakksvík
á Borðey eftir áramótin en opnun-
inni verður flýtt þannig að farið
verður að selja áfengi á staðnum
þegar fyrir jól.
Landstjórnin hefur uppgötvað að
áfengissalan er helsta tekjulindin
sem von er um að gefi eitthvað í aðra
hönd í kreppunni. „Rikið" hefur þeg-
ar skilað milljónum í landskassann
þrátt fyrir að verðlag sé ekki hátt
miðað við það sem gerist t.d. á ís-
landi.
Verð á algengum tegundum er í
mörgum tilvikum þriðjungi lægra en
á íslandi og í sumum tilvikum munar
allt að helmingi. T.d. er flaska af ís-
lensku brennivíni ríflega 700 íslensk-
um krónum ódýrari í Færeyjum en
á íslandi. Færeyska „ríkið“ líkist
mjög þvi íslenska nema hér er af-
greitt yfir borð eins og gert var á ís-
landi.
Færeyingum þykir merkilegt hvað
þeir komast sjaldan í heimsfréttim-
ar. Það tókst þó þegar ríkið var opn-
að því þá fluttu allar helstu frétta-
stofur af því tíðindi. Fjárhagsvand-
ræði Færeyinga hafa hins vegar ekki
vakið athygli umheimsins nema í
htlum mæli.
Útlönd
Breska konungsfjölskyldan á manna sem hafa breytt henni i
ekki sjö dagana sæla um þessar skemmtigarð fyrir ferðamenn. Óp-
mundir. Það er ekki nóg með að eran er unnin upp úr óperettunni
dagblöð séu uppfull af fréttum um um Idu prinsessu efUr Gilbert og
hjónabandsörðugleika í Bucking- Sullivan.
ham, heldur er fjölskyldan einnig Kvikmyndaleikstjórinn um-
orðin efhiviöur í gamanóperu sem deildi, Ken Russell, á heiðurinn af
veriö er að sýna steinsnar frá kon- uppfærslunni í Ensku þjóðaróper-
ungshöllitmi. unni og þar veltir hann konungs-
Óperan, sem hér um ræðir, gerist fjölskyldunni og Japönum upp úr
árið 2002 og Buckinghamhöll er nöpruháði.
komin í eigu japanskra kaupsýsiu- Reuter
AMERÍSK VERSLUN
Húsgagnahöllinni
með húsgögn frá:
Komdu og sjáðu þessi glæsilegu amerísku
húsgögn - sófasett - borðstofusett - skenkar -
hjónarúm - veggskápar - hægindastólar ofl.
Broyhill USA
Serta
Lazy-boy
| Stantey Industries
I IOIíIíIIM
SÍMINN HJÁ OKKUR ER 91-68 11 99
KERTAÞRÆÐIR
ípassandi settum.
Leiðari úr stálblöndu. Sterkur og þolir
að leggjast í kröppum beygjum. Við-
nám aðeins 1/10 af viðnámi koiþráða.
Margföld neistagæði.
Kápa sem deyfir truflandi rafbylgjur.
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-81 47 88
Heiðursborgarstjóri Lundúna og John Major, forsætisráðherra Bretlands,
í veislu borgarstjórans i gær þar sem Major ávarpaði kaupsýslumenn.
Símamynd Reuter
Tvö misheppnuð sprengjutilræði ERA:
Stórhert gæsla
um John Major
Breska lögreglan herti mjög aUa
öryggisgæslu um John Major forsæt-
isráöherra í gær eftir að írska lýð-
veldishemum, IRA, mistókst aö
sprengja tvær stórar sprengjur í
Lundúnum.
Götum á eins ferkílómetra svæöi
umhverfis Guildhall i hjarta fjár-
málahverfis Lundúna var lokað á
meðan Major flutti ræðu yfir kaup-
sýslumönnum og erlendum sendi-
mönnum 1 árlegri veislu heiðurs-
borgarstjórans.
„Auðvitað eru þetta ekki eðlilegar
öryggisráðstafanir," sagði einn lög-
regluþjónninn við innganginn í Gu-
ildhall. „En það er heldur ekki eðli-
legt að fólk reyni að sprengja eins
tonns sprengjur."
Lögreglan gerði eins tonns
sprengju óvirka á sunnudag við
hæsta turn Bretlands í austurhluta
Lundúna. Önnur eins tonns sprengja
fannst líka á laugardag í norðurhluta
borgarinnar.
írski lýðveldisherinn, sem berst
gegn breskum yfirráðum á Norður-
Irlandi, viðurkenndi í gær að hafa
átt báðar sprengjurnar og sagði að
þaö hefði aðeins verið „hrein
óheppni" að þær sprungu ekki.
IRA varaði lögregluna við því að
sprengjuherferð samtakanna mundi
halda áfram þótt þessar tvær tilraun-
ir hefðu mistekist.
Reuter
þér í góðu formi
með lýsisfjölskyldunni.
VÍTAMÍNLÁGT LÝSI
-nýr heilsugjafi í lýsisfjölskyldunni
Lýsisfjölskyldan heilsar vetrinum með því að kynna nýjung sem margir
hafa beðið eftir: Vítamínlágt lýsi sem er ætlað þeim sem af sérstökum
ástæðum vilja bæta við daglegan skammt sinn af fjölómettuðum fitu-
sýrum án þess að auka inntöku A og D vítamína.
Lengi hefur verið vitað að lýsi er mjög
auðugt að fjölómettuðum fitusýrum.
Vísindarannsóknir síðustu ára hafa
leitt í Ijós að tvær þessara fitusýra, EPA
og DHA, minnka líkurnar á kransæða-
sjúkdómum, draga úr hættunni á
blóðtappamyndun og vinna gegn æða-
kölkun. Þá hefur reynslan sýnt að
neysla þessara fjölómettuðu fitusýra í
lýsi dregur úr
bólgu og
sársauka í liðum.
Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91-28777