Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1992, Síða 2
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992.
2
Fréttir________________________________________
Flokksþing framsóknarmanna:
Tekist á um afstöðu
til EES-samnings
brýtur gegn stjómarskránni, segir í drögum að stjómmálaályktun
Vel fór á með þeim Steingrími Hermannssyni og Halldóri Asgrímssyni við
setningu flokksþings framsóknarmanna í gær. Milli þeirra er þó mikill skoð-
anaágreiningur i EES-málinu. Halldór er jákvæöur í garð EES en Steingrím-
ur á móti. DV-mynd GVA
Á níunda hundrað framsóknar-
menn eru á flokksþingi í Reykjavík
um helgina. Fljótlega eftir setningu
þingsins í gær hófust harðar deilur
meöal flokksmanna um afstöðuna til
EES-samningsins og má gera ráð fyr-
ir að deilumar setji mjög svo mark
sitt á þingið. Djúpstæður ágreiningur
er meðal fundarmanna um málið og
nær hann meðal annars ixm í þing-
flokkinn.
í drögum að stjómmálaályktun
segir að nauðsynlegt sé að lagfæra
ýmis efhisatriði EES-samningsins, til
dæmis hvað varðar kaup erlendra
aðila á íslensku landi. Á hinn bóginn
er lagt til að sú stefna verði. mörkuö,
með samþykkt á Alþingi, að leitað
skuli eftir tvíhliöa samningi við Evr-
ópubandalagið eftir að önnur ríki
hafa sótt um aðild að bandalaginu.
„Þótt ofangreind atriði veröi tryggð
og efnishlið samningsins talin viðun-
andi telur flokksþingið ljóst að þaö
stenst ekki hina íslensku stjómar-
skrá að framselja til eftirlitsstofnana
og dómstóls EFTA vald eins og gert
er ráð fyrir 1 samningnum um hið
Evrópska efnahagssvæði. Flokks-
þingið staöfestir því þá samþykkt
miðstjómar að ekki verði unnt að
samþykkja aðild íslands að hinu
Evrópska efnahagssvæði þar sem
samningurinn brýtur gegn íslensku
stjómarskránni," segir meðal ann-
ars í drögum að stjómmálaályktun.
í þingflokknum em míög skiptar
skoðanir um orðalagið um EES-
málið. Hins vegar hafa margir ekki
gert upp hug sinn þar sem enn liggur
ekki fyrir hver niðurstaðan verður í
sjávarútvegssamningi íslands og EB.
Þeir sem fylgjandi era efnisatrið-
um samningsins era þau HaUdór
Ásgrímsson, Ingibjörg Pálmadóttir,
Valgerður Sverrisdóttir og Jóhannes
Geir Sigurgeirsson. Eftir því sem DV
kemst næst vilja þau styðja samning-
inn eða hugleiða að sitja hjá við at-
kvæðagreiðslu um máhö á Alþingi.
Steingrímur Hermannsson kveðst
sumpart andvígur EES-samningnum
og sumpart ekki. Ólafur Þ. Þórðar-
son, Páll Pétursson, Stefán Guð-
mundsson og Jón Helgason era hins
vegar alfarið andvígir. Á gráa svæð-
inu era þeir Finnur Ingólfsson, Jón
Kristjánsson og Guðmundur Bjama-
son. -kaa
Dauðaslysvið
Kópavogslæk
Dauðaslys varð um þtjúleytið í
gær þegar þritug kona ók á jjósa-
staur á Hafnarflarðarvegi, rétt
norðan við Kópavogslæk.
Konan, sem var á bifreið af
gerðinni Ford Escort, var á suð-
urleið þegar hún missti stjórn á
bílnum með þeim aíleiðingum að
hún lenti á ljósastaur. Konan var
ein s bifreiðinni og festist hún
inni í bílnum við áreksturinn.
KaUa varð á tækjabíl tilaðklippa
bílinn í sundur og ná konunni út
úr honum. Hún var flutt á slysa-
deild og lést skömmu síðar af
áverkum sínum.
Að því er best er vitað varð
ekkert vitni að slysinu. Kópa-
vogslögreglan biður vitni, ef ein-
hver eru, að geí'a sig fram. -ból
Loftferðaeftirlitið leitar nú aö
neyðarsendi sem farið hefur í
gang öðra hvesju undanfama
daga. Að sögn starfsmanns Land-
helgisgæslunnar hafa sending-
arnar verið miðaðar út og koma
þær frá Reykjavíkinllugvelli.
Sendingamar hafa hins vegar
aldrei staðið nógu lengi yfir til
að liægt sé aö miða sendinn ná-
kvæmar út. Grunur leikur á að
neyðarsendir í einhverri flugvél
á flugvellinum sé biiaður og
kvikni og siokkni á honum til
skiptis. -ból
ar frá Reykja-
Gagnkvæmar veiðiheimildir fslands og EB:
Samningur í höf n
- sigurfyriríslendinga
Samningar tókust í gær í viðræð-
um íslands og EB um gagnkvæmar
veiðiheimildir á loðnu og karfa sem
er hluti að sjávarútvegssamningi
vegna EES. Viðræðumar höfðu tafist
mikið vegna ágreinings um það hvort
miðað skyldi við raunverulegan afla
eða heimildir til' veiða. Niðurstaöa
varð að nást fyrir áramót svo EES-
samningurinn gæti tekið gildi.
íslendingar vildu að miðað væri við
afla vegna þess hve loðnuveiðin get-
ur verið ótrygg og vildu helst fá að
veiða alla loðnuna áður en skip EB
hæfu veiðar á karfanum. Niöurstað-
an varð sú í gær að aðilar geta óskað
eftir endurskoðun ef ekki næst aö
veiða upp í heimildina og einnig ef
líffræðilegar aðstæður koma í veg
fyrir veiði.
Gunnar Snorri Gunnarsson, skrif-
stofusflóri Utanríkisviðskiptaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins, sagði
þessa niðurstöðu sigur fyrir íslend-
inga. Nú væri fengið öraggi fyrir að
skiptin yrðu á raunverulegum afla.
-Ari
Refir leggjast á kindur í Strandasýslu:
Hryllileg aðkoma
„Þetta var hryllileg aðkoma. Ref-
urinn haföi lagst á 6-7 kindur sem
vora fastar, lifandi í siflósköflum og
gátu sig hvergi hreyft. Búið var að
éta framan úr einni kindinni þannig
að ekkert var eftir nema beinin og
augun og önnur hafði verið bitin á
háls,“ sagði Ólafur Ingimundarson,
bóndi á Svanshóli í Kaldrananes-
hreppi á Ströndum.
í vonda veörinu, sem gekk yfir
landið á mánudag og þriðjudag, lentu
allmargar kindur, sem enn gengu
lausar, í hrakningum á Ströndum.
Að sögn Ólafs fundust flestar þeirra
lifandi á miðvikudag og flmmtudag
þegar farið var að leita. Á fimmtu-
dagjnn fundust hins vegar flórar
kindur, sem höfðu drepist úr vosbúö,
og 6-7 kindur lifandi en illa famar
eftir árás refa. Tveimur þeirra þurfti
að lóga strax.
„Refurinn hafði ráðist á allar þær
kindur sem vora fastar í sköflum og
ekki gátu forðað sér. Við erum nflög
slegnir því þessu höfum aldrei
kynnst fyrr. Við höfum áður þurft
að grafa fé upp eftir óveður á þessum
tíma árs. Stundum hefur ein og ein
kind verið bitin en aldrei eins og
núna,“ segir Ólafur.
Hann segir aö mikið sé um ref núna
á Ströndum og telur að sá refur, sem
elst upp á Homströndum, þar sem
ekki má skjóta hann, sé nú að koma
suðurífæðuleit. -ból
Framtíð Atlants-
f lugs óviss
Ekkert skýröist í gær hvort þau
skilyrði sem sett era til flugrekstrar
hér á landi yrðu rýmkuö. Forsvars-
menn Atlantsflugs fóra þess á leit
viö samgönguráðuneytið að því skil-
yröi að flugfélag þyrfti að eiga nóg
eigið fé fil þriggja mánaða reksturs
yrði breytt. Flugráð flallaði í gær um
beiðnina, að ósk samgönguráðuneyt-
isins. Samkvæmt heimfldum DV var
niðurstaða Flugráðs sú að ekki væri
rétt að breyta núverandi reglum. -Ari
Eitt af fyrstu verkum Láru Skúladóttur f sölutuminum við Suðurlandsbraut var að setja happaþrennu sem færöi
heppnum kaupanda tvær milljónir. DV-mynd GVA
Nýr eigandi 1 sölutumi við Suðurlandsbraut:
Eitt f yrsta verkið að selja
tveggja milljóna happaþrennu
fyrsti vinningurinn af þeirri stærð
„Ég er sannfærð um að þetta sé
lukkumerki fyrir mig héma,“ sagði
Lára Skúladóttir, nýr eigandi sölu-
tumsins að Suðurlandsbraut 6. Hún
er nýlega búin að kaupa umræddan
sölutum og tók við rekstrinum sl.
mánudag. Einn af fyrstu viðskipta-
vinum hennar var maður sem keypti
tvær hagpaþrennur á 100 krónur
stykkið. Á annarri þeirra vann hann
fimm hundrað krónur. Þá keypti
hann flórar happaþrennur tfl viðbót-
ar. Ein þeirra gaf honum tvær millj-
ónir í vinning.
Hinn heppni skóf ekki af miðunum
1 sölutuminum. Hhis vegar kom
hann himinlifandi og sýndi Lára
tveggja milljóna króna happaþrenn-
una. Hún fékk síðan upphringingu
frá Happdrætti Háskólans.
„Eg hafði keypt nýjan bunka um
leið og ég opnaði og tveggja milljóna
króna þrennan var þar í,“ sagði Lára.
„Ég var ægflega ánægð með að ég
skyldi selja svona stóran vinning á
fyrsta degi. Eftir því sem þeir sögðu
mér hjá Háskólanum þá er þetta
fyrsti tveggja milljóna vinningurinn
sem kemur á svona þrennu."
-JSS