Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1992, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992.
r|j! TALES *®
cpypt..
:# i
-f- | '• t, - iw
V, » t | *
■ * f ^ l’É^'
m Ik •
THE DOCTOR
Útgefandi: Biómyndir:
Leikstjóri: Randa Haines.
Aðalhlutverk: William Hurt, Christine
Lathi og Elizabeth Perkins.
Bandarísk, 1991 - sýningartimi 117 mín.
Leyfö öllum aldurshópum.
Jack McKee (William Hurt) er
virtur skurðlæknir sem hefur
miklar tekjur, auk þess sem hann
nýtur starfsins til fuUnustu. Sjúkl-
ingamir, sem hann meðhöndlar,
eru oft tilefni gamansamra um-
ræðna þegar staðið er yfir skurðar-
borðinu. Hvemig andleg líðan
þeirra er fyrir uppskurð eða hvem-
ig þeim líður við úrskurð um veik-
indi er eitthvað sem honum kemur
ekki við. Fyrir honum er sem sagt
lífið akRúrat eins og það á aö vera
þar til haim finnur fyrir verkjum
í hálsi og hóstar blóði. Hann fer til
sérfræðings innan sjúkrahússins
sem setur hann tafarlaust í rann-
sókn og þar með er McKee kominn
hinum megin við borðið og á hann
VVILUAM HukT
DOCTOR
erfitt með að sætta sig við þá með-
höndlun sem hann fær en hún er
nákvæmlega sú sama og sjúklingar
hans fengu.
Æxli finnst í hálsi hans og reyn-
ist það iilkynja. Hann er hinn erfið-
asti og það er ekki fyrr en hann
kynnist hinni dauðvona June, sem
hefði veriö hægt að bjarga ef lækn-
amir hefðu ekki verið á kafi í lífs-
gæðakapphlaupinu, að augu hans
opnast fyrir þeirri veröld sem
sjúklingar á spítölum þurfa að
horfast í augu við daglega.
Hættan við kvikmynd eins og The
Doctor er að viðkvæmur söguþráð-
ur geri myndina melódramatíska
og jafnvel væmna en leikstjórinn,
Randa Haines, forðast allt slíkt og
er fyrri hluti myndarinnar í raun
kaldur og raunsær. En eftir að
June kemur til sögunnar mýkist
myndin til muna. Það má kannski
segja að raunsæiö víki fyrir skáld-
skapnum í síðari hlutanum og
hættunni sé um leið boðið heim en
þá kemur afbragsleikur Williams
Hurt því til leiðar að myndin dettur
aldrei niður í neina meðal-
mennsku.
-HK
Myndbönd
Kvöldsögur
PARKER KANE
Útgefandi: Háskólabfó.
Leikstjóri: Steve Perry.
Aðalhlutverk: Jeff Fahey, Marisa Tomei
og Zakes Mokae.
Bandarisk, 1990 - sýningartimi 100 min.
Bönnuö börnum Innan 12 ára.
Parker Kane er fyrrverandi lög-
reglumaður sem er kominn í
einkabisnessinn en hefur ekki efni
á skrifstofu svo hann hefur aðsetur
í einu horni á veitingastað. Þegar
vinur hans er drepinn fer hann að
rannsaka dauða hans. í rannsókn
sinni á morðinu kemst hann á spor
ófyrirleitins iðnjöfurs sem grefur
geislaúrgang í jörð og reisir síðan
stórbyggingar á staðnum þar sem
geislaúrgangurinn er.
Mynd þessi er í heild margtuggin
formúla og var henni ætlað að vera
forveri sjónvarpsþáttaraðar sem
hætt var við af skiljanlegum ástæð-
um. í Parker Kane er ekkert sem
vert er að endurtaka og Jeff Fahey
í hlutverki töffarans Parkers Kane
er kolómögulegur og lætur honum
betur að leika hlutverk á borð við
það sem hann lék í White Hunter,
Black Heart.
Töffari
Mafíustælgæi
BUGSY
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Barry Levinson.
Aöalhlutverk: Warren Beatty, Annette
Bening, Harvey Keitel, Ben Kingsiey og
Joe Mantegna.
Bandarísk, 1991 - sýningartími 131 min.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Það er ávallt viðburður þegar
Warren Beatty tekrn- sig til og leik-
ur í kvikmynd en á síðustu tíu
árum hefur hann aðeins leikið í
fjórum kvikmyndum, Reds, Ishtar,
Dick Tracy og Bugsy, allt „stór-
myndir“ en misgóðar. Beatty hafði
lengi langað til að gera kvikmynd
um mafíuforingjann glysgjama,
Bugsy Siegel, sem verður að teljast
sá sem ber ábyrgð á að Las Vegas
er í dag frægasta spilavítisborg í
heimi. Erfitt er að sjá í fljótu bragði
hvað það var í fari Bugsy sem hafði
slík áhif á hann, nema þá helst að
Bugsy dýrkaði og vildi vera með
kvikmyndastjömum. Það var sem
sagt Beatty sem átti hugmyndina
að því að gera kvikmynd mn Bugsy
og lá hann lengi yfir handritinu,
og þegar Warren Beatty vill að eitt-
hvað sé gert þá em allar gullkistur
opnaðar.
í fyrstu ætlaði Beatty sjáffur að
leikstýra Bugsy en fékk síðan
Barry Levinson, sem baðaði sig í
frægðinni eftir Rainman, til að leik-
stýra myndinni og eins og við er
að búast þegar slíkir hæfileika-
menn koma saman þá er yfirborð
myndaiinnar geysiflott og leikur
Smástirniö Virgina Hill (Annette Bening) og Bugsy Siegel (Warren
Beatty) ræðast við.
allur í hæsta gæðaflokki en niður-
staðan er nú samt sú að Bugsy er
kvikmynd sem skilur Htiö eftir sig.
Það er tvennt í lífi Bugsy Siegel
sem aðaláhersla er lögð á í handrit-
inu. Draumur hans um hótel og
spilavíti í Las Vegas, draumur sem
rætist ekki fyrr en eftir að hann
haföi verið drepinn, og samband
hans við smástirnið Virginiu Hill,
sem nýtti sér fegurð sína til að
komast áfram í kvikmyndaheimin-
um, þar til hún hittir Bugsy. Sam-
DV-myndbandalistinri
band þeirra varð síðan mjög
stormasamt en stóð samt yfir þar
til Bugsy féll. Bæði Annette Bening
og Warren Beatty eru mjög góð í
hlutverkum sínum og Beatty hefur
sjálfsagt aldrei verið betri. En
Barry Levinson hefur gert betri
myndir og eftirminnilegri og má
þar nefna Diner, The Natural og
Rainman. -HK
Ágötunni
LILY WAS HERE
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Ben Verbong.
Aðalhlutverk: Marion van Thin, Thom
Hoffman og Monique van de Ven.
Hollensk, 1991 - sýningartími 120 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Það er sjaldgæft að hollenskar
kvikmyndir rati inn á myndbanda-
markaðinn en á undanfomum
árum hafa Hollendingar ungað út
ágætum kvikmyndagerðarmönn-
um með Paul Verhoeven fremstan
í flokki. Sjálfsagt er ein ástæðan
fyrir því að Lily Was here kemur
út á myndbandi sú að um er að
ræða virkilega sterka og góða kvik-
mynd en mig grunar að tónlistin
eigi einnig einhvem þátt og þá sér-
staklega titiUagið sem hefur heyrst
mjög mikið á öldum tónvakans.
Tónlistina samdi David A. Stewart
sem er þekktastur fyrir samstarf
sitt með Annie Lennox í Eur-
ythmics.
Aðalpersónan er hin sautján ára
Lály sem er ófrísk eftir svartan
hermann sem lætur lífið í átökum.
Henni finnst lífið óbærilegt heima
hjá sér og flýr til stórborgarinnar
þar sem hún lendir í klónum á ..
hórmangara. En Lily er staðfost
stúlka og ákveðin í að eignast bam-
ið sitt og þegar öll sund virðast lok-
uð tekur hún til sinna ráða og ræn-
ir gullverslun og verður þar með
fljótt eftirlýst.
Lily Was here er virkilega áhrifa-
mikil og vel gerð kvikmynd. Það
þarf ekki að vera að allir séu sáttir
við hvemig Lily fer að því að lifa
lífinu en staðfesta hennar og æðru-
leysi, þegar bamið á í hlut, hrífur
áhorfandann með sér. -HK
TALES FROM THE CRYPT
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjórar: Tom Holland, Mary Lambert
og Howard Deutch.
Aöalhlutverk: Amanda Plummer, E.
Emmet Walsh og Lea Thompson.
Bandarísk, 1991 -sýningartimi 84 min.
Bönnuö bömum innan 16 ára.
Á Tales from the Crypt era þrjár
stuttar hryllingssögur sem era
ólíkar en hafa það þó sameiginlegt
að byggjast á þvi að hafa óvæntan
og nokkuð subbulegan endi. Fyrsta
sagan fjaUar um imga og ríka brúði
sem hefúr allt annað í huga í hjóna-
bandinu heldur en brúðguminn. í
annarri sögunni er sagt frá eigin-
konu sem þarf að velja á milh katt-
ar og eiginmanns og í þriðja hlutan-
um segir frá glæsistúlku sem fer
að eldast á ótrúlega skömmum
tíma. Þessar þrjár myndir era
reglulega vel gerðar enda leikstjór-
aranir, Mary Lambert, Tom Hol-
land og Howard Deutch, afiir
þekktir úr kvikmyndaheiminum
og ekki er hægt að kvarta yfir leik-
uram. Tales from the Crypt er hin
besta skemmtun efdr að bömin era
farin að sofa.
Erfiður sjúklingur
Litlar breytingar eru á efstu sætum listans þessa vikuna. Spennu-
myndir skipa öil efstu sætin. í sjöunda sæti er Prince ot Tides og á
myndinni má sjá aóalleikarana í myndinni, Nick Nolte og Börbru
Streisand, sem elnnig er leikstjóri.