Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1992, Page 12
12
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992.
Erlendbóksjá
f undirheimum
Margar skrýtnar persónur
koma við sögu í þessum nýjasta
þriller Barþöru Vine sem kunn-
ari er sem Ruth Rendell, höfund-
ur sagnanna um Wexford.
En í aðalhlutverki í þessari
sögu er reyndar alis ekki ein
þessara sérkennilegu persóna
heldur „The Underground" -
neðanjarðarlestakerfi Lundúna-
borgar. Þar ríkir andrúmsloft
ógnar og óróa strax frá fyrsta
blaðsíðum til þeirra mögnuðu at-
burða sem grípa lesandann sterk-
um tökum undir lokin. Lestimar
bruna áfram um myrk neðan-
jarðargöngin og þaö gera hin illu
verk líka.
Rauður þráður, sem tengir at-
burðarásina saman, er Jarvis
nokkur Stringer, sérkennilegur
maður sem hefur einungis eina
ást í lífinu: jámbrautarlestir. Á
milli þess sem hann ferðast til
annarra landa til að taka sér þar
far með jámbrautarlestum, sem
á einhvem hátt teljast merkileg-
ar, er hann að safna efni í mikla
bók sem á að verða hin endanlega
saga neðanjarðarlestanna í
Lundúnum. Þess vegna safnar
hann frásögnum af öllum helstu
slysum og glæpum sem þar eiga
sér stað - og er af nógu að taka.
KING SOLOMON’S CARPET.
Höfundur: Barbara Vine.
Penguin Books, 1992.
Michael Frayn er einkum
kunnur sem leikskáld. Sum leik-
rita hans hafa verið færð upp víða
um lönd, þar á meðal hér á landi.
En Frayn er einnig afkastamik-
ið sagnaskáld. A Landing on the
Sun er þannig sjöunda skáldsaga
hans. Hún hlaut í fyrra verðlaun
sem Sunday Express veitir fyrir
bestu bók ársins.
Hér er um að ræða snjalla og
bráðfyndna skáldsögu um emb-
ættismenn. Sögumaðurinn, Jess-
el, starfar í breska stjómarráð-
inu. Hann fær þaö verkefni hjá
yfirmanni sínum að kanna andlát
annars embættismanns, Sum-
merchild að nafni, árið 1974. Maö-
ur þessi fannst látinn fyrir utan
breska vamarmálaráðuneytið og
fjölmiðlar em famir að grúska í
málinu og velta því fyrir sér hvort
Summerchild hafi unnið að ein-
hveiju leynilegu verkefni.
Þetta einfalda verkefni á eftir
að hafa mikil áhrif á Jessel og
raska ró hans.
A LANDING ON THE SUN.
Höfundur: Michael Frayn.
Penguin Books, 1992.
listin að
skálda sögu
Fáir eru sennilega hæfari til aö
fræða almenning um leyndardóma
skáldsagnaritunar en Englendingur-
inn David Lodge. Hann hefur nefni-
lega bæði reynslu af að kenna og
gera.
Lodge var um þriggja áratuga skeið
eða svo kennari í enskum hókmennt-
um við háskólann í Birmingham.
Jafnframt samdi hann sjálfur snjall-
ar skáldsögur - og gerir enn.
Skáldsagnalistin
Um árabil skrifaði Lodge vikulega
stuttan dálk í enska blaðið The Inde-
pentent um „The Art of Fiction" eða
hstina að semja skáldsögur. Fimmtíu
þessara pistla hefur hann nú betmm-
bætt, lengt nokkuð og sett á þrykk í
bókarformi.
í hverjum þætti tekur Lodge fyrir
eitt afmarkað svið skáldsagnagerð-
arinnar.
Eðlilega fjallar fyrsti þátturinn um
upphaf skáldsögu en sá síðasti um
niðurlag slíks verks. í hinum fjörutíu
og átta köflunum ræðir hann um
ólíklegustu viðfangsefni sem valda
skáldsagnahöfundum heilabrotum
er þeir sitja við tölvu sína eða ritvél
og reyna að berja saman nýja sögu.
Fróðleiksmolar
Hann vitnar gjaman máli sínu til
stuðnings í eitt ákveðið skáldverk
hverju sinni en þó með tilvísunum í
önnur eftir atvikum. Greinar hans
eru því í senn praktískar leiðbeining-
ar og fræöilegar útskýringar á
vinnubrögðum þekktra höfunda sem
rita á enska tungu.
En hann notar tækifærið til að
koma á framfæri í leiðinni margs
konar forvitnilegum fróðleiksmolum
um einstakar bækur eða höfunda.
Lodge íjallar í mörgum þessara
pistla um grundvallaratriði svo sem
ólíkar tegundir skáldsagna gegnum
tíðina. Af því tilefni tekur hann ýmis
dæmi um fjölbreytileika í stíl og frá-
sagnartækni. En hann grípur einnig
á afmörkuðum þáttum eins og til
David Lodge: höfundur og kennari.
DAVID*
^LODGE
dæmis þeim ólíku áhrifum sem lýs-
ingar á veðri geta haft í skáldsögum.
Þá fjallar hann um praktísk atriði
sem skipt geta verulegu máh svo sem
hvað felst í vah á nöfnum söguper-
sónanna og svo að sjálfsögðu sjálft
heiti skáldsögimnar. Hið síðast-
nefnda getur reyndar flækst fyrir
bestu mönnum; jafnvel Charles Dic-
kens varð aö hripa á blað fjórtán titla
á eina skáldsögu sína áður en hann
valdi endanlega nafnið - Hard Times!
Umhugsunarefni
Eins og Lodge bendir sjálfur á geta
lesendur gripið niður í bókinni hvar
sem er aht eftir því hvaða viðfangs-
efni höfðar til þeirra hverju sinni, en
hver kafh hefur ekki aðeins númer
heldur líka nafn eftir efninu. Það er
því nánast hægt að fletta upp í bók-
inni eins og alfræðiriti.
Fyrir áhugamenn um skáldsagna-
gerð og bókmenntir yfirleitt er þetta
ágætis lesning, fróðleg og skemmti-
leg. Hér kemur einnig margt fram
sem gæti orðið verðandi rithöfund-
um th gagnlegrar umhugsunar.
THE ART OF FICTION.
Heimsmálin
á leiksviði
Margir leikritahöfundar semja
leikverk sem taka á atburðum
samtímans, ekki síst í alþjóða-
málum.
The Gulf Between Us eftir
breska leikritahöfundinn Trevor
Griffiths tekur á Persaflóastríð-
inu mhh íraks og umheimsins.
Hann fylgdist með loftárásum
bandamanna á írak í beinni út-
sendingu í sjónvarpinu, eins og
svo margir aðrir. En samúð hans
var ekki með andstæðingum
Saddams Hussein heldur óbreytt-
um borgurum á jörðu niðri í írak.
Þaö endurspeglast í verkinu sem
gerist á ótílgreindum stað þar í
landi daginn sem loftárásirnar
hefjast og lýsir samskiptum og
átökum nokkurra einstaklinga og
harmleUi hins óbreytta borgara.
Austur og vestur
Leikritin tvö eftir Richard Nel-
son eru ekki alveg eins ný af nál-
inni - samin á árunum 1983-1985.
Between East and West fjallar
um útlegð og leiðina heim. Per-
sónumar eru tvær, tékknesk
hjón á sextugsaldri. Þau hröktust
úr heimalandinu vegna yfirgangs
kommúnistastjómarinnar og búa
í lítilli íbúð í New York.
En þeim gengur ekki alltof vel
að ná fótfestu í þessu nýja gjör-
ólíka þjóðfélagi. Gamla landiö; -
ættingjarnir, vinimir, æsku-
stöðvarnar - hafa seiðmagnað
aðdráttarafl, ekki síst þegar illa
gengur, þótt þeim sé auövitað
fyllUega ljóst hvað í raun bíður
þeirra ef þau snúa aftur heim. Sá
á kvölina sem á vöhna...
Einræðið
Principia Scriptoriae er af aht
öðrum toga. Árið 1970 sitja tveir
ungir rithöfundar, BUl sem er
bandarískur og Emesto, í fang-
elsi í ótílgreindu einræðisrUd í
Suður-Ameríku. Þeim verður vel
til vina og dreymir, þrátt fyrir
pyntingar, um bjartari framtíð.
Síðari hluti verksins gerist
fimmtán árum síðar. Þá hafa
gjörólík öfl tekið við stjóminni í
þessu suður-ameríska landi. BUl
er í sendinefnd rithöfunda sem
kemur tU landsins I því skyni að
reyna að fá þekkt skáld leyst úr
fangelsi - og Emesto er þá éinn
þeirra sem sitja hinum megin við
horðið. Þeir hafa haldið í ólíkar
áttir þessi fimmtán ár og þurfa
að gera upp málin á ný.
THE GULF BETWEEN US.
Höfundur: Trevor Griffiths.
PRINCIPIA SCRIPTORIAE/BETWEEN
EAST AND WEST.
Höfundur: Richard Nelson.
Faber & Faber, 1992.
Höfundur: David Lodge.
Penguin Books, 1992.
Metsölukiljur
Bretland THE FEATHER MEN. 5. Erma Bombeck:
, „ (Byggt á The Sunday Tlmc*) WHEN VOU LÖOK UKE YOUR PASS-
Skáldsoyut. Rnnrinríkin port photo, rrs time to go home.
1« Stöphw Fry: THE UAR. SEX, AHT AND AMERtCAN CULTURE.
2. Terry Pratchetl: öMcnusuyui« 7. D.L. Barlett & 4.B. Steete:
WITCHES ABfiOAO. 1. Dean Koonfcc AMERICA: WHAT WENT WRONG?
3. Slephon Klng: HIDEAWAY. 8. Molly Ivtns:
NEEDFUL THINGS. t. V*C. Andrews: MQLLY IVINS CAN’T SAY THAT,
4 Colh.rlne Cookaon: MiDNIGHT WHISPERS. CAN SHE?
THE RAG NYMPH. 3. Norman Mactean: 9. Doborah Tannen:
5. Joanna Trotlopo: A RIVER RUNS THROUGH IT. YOU JUST DON T UNOERSTAND.
THE CHOIH. 4. John Grlsham: 10. M. Scott Peek:
6. Joanna Trollopo: THE FIRM. THE ROAD LESS TRAVELLED.
THE RECTOH'S WIFE. 5. Barbara Taylor Bradlord: (Byjgt * New York Times Book Revlew)
7. Wllllam Horwood: REMEMBER.
OUNCTON TALES $. John Gríaham: A TiME TO KILL. Danmork
KISSING THE GUNNEH'S DAUGHTER, 7. Amanda Qulck: Skáldsögur:
9. Ellzabeth Jane Howard: RECKLESS. 1. Henrik SLangerup:
MARKINQ TIME. 8. Jonathan Kelterman: SROOER JACOB.
PRIVATE EYES. 2. John Irving:
THE DECEIVÉR. 9, Norman Mactoan: VANDMETODEN.
A RIVER RUNS THHOUGH IT. 3. öetty Mahmoody:
10. Alevandra Rlptoy: FOR MIT BARNS SKYLO.
SCARLETT. 4. BIBLEN.
1. THE SECRET OIARY OF JOHN MAJOH 12. Jane Smllay: 5. Erlk Foenea Hensen:
■ AQED 47»/,. A THOUSAND ACRES. SALME VED REJSENS AFSLUTNING.
ULA: an inouiry into MORALS. THE HELLION BRIDE. MVTEN OM OEN DÁRLIGE MOR.
THE OFFICIAL POLITICALLY CORRECT THE LAST OF THE MOHICANS. DtNAS BOGr
DICTIONARV and HANDBOOK. 1S. Sldney Sheldon: 9. Laura Esquivet:
4. Slmon Mayo: THE DOOMSOAY CONSPIRACY. HJERTER I CHILI,
FUHTHEH CONFESSIONS. 16. Denlelle Steel: 9. Tlne Bryld:
5. Qíll Watterson: NO GREATER LOVE. TALKSHOW.
THE INDISPENSABLE CALVIN AND 10. Max Frtoch:
hobbes. 6, Mlchuol Pallm Rlt almenns.eðlls: HOMO FABER. (Byggt á Politiken Sendag)
AROUND THE WORLD IN ÍO DAYS. 7, Hannah Hauxwell: 1. Ro*» Perefc ■: • UNITED W6 STAND.
HANNAH: THE COMPLETE STORY. ; S. PeMr Mayto: PDTTING FEOPUE RRST.
A YEAR IN PROVENCE. 9. Peter Mayle; THE AUT08IÖGRAPHY OF MALCOLM X.
TOUJOURS PROVENCE. 4. suean Faludl:
10. Ranutph Ftonn**: ' BACKLASH. "; ■ .
Umsjón: Elías Snæland Jónsson