Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1992, Side 16
16
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992.
Skák
Nýjar hraðskákreglur Alþjóða skáksambandsins:
Nú má hróka
„langt" á kóngsvæng
Garrí Kasparov tók Argeotínumanninn Pablo Zarnicki í kennslustund f Buenos Aires í síðasta mánuði. Svo mikið lærði Zarnicki af skákinni að
skömmu síðar var hann orðinn heimsmeistari unglinga.
Á vinnustöðum er gjarnan teílt í
matar- og kaffitímum og jafnvel
þess á milli ef dauðar stundir gef-
ast. Þessar „kaffihúsaskákir" vilja
verða hinar æsilegustu enda ekki
hundrað í hættunni ef ein skák fer
illa, eða tvær. Oftast er leikið í
mesta bróðemi enda þrífast svik
og prettir ekki á skákborðinu -
reglur um gang taflmannanna eru
skýrar og auðskildar og eru enn
óbreyttar frá því á miðöldum.
Þess eru þó dæmi að hitnað hafi
í kolunum. Einhveijum verður það
á að snerta riddarann en sér sig
um hönd og ákveður að leika bisk-
upnum. „Snertur maður hreyfð-
ur,“ segir mótherjinn og hugsar sér
gott til glóðarinnar því að riddara-
stökkið leiðir bersýnilega beint til
glötunar. Þegar teflt er með skák-
klukku geta einnig ýmis óvænt at-
vik komið upp sem vert er að
kunna skil á.
Á kappmótum hafa „bráðaban-
ar“ af ýmsu tagi rutt sér til rúms
- skákir með styttri umhugsunar-
tíma sem þjóna þeim tilgangi ein-
um að skera úr um úrslit. Þá er því
oftast þannig farið, t.d. í 30 mínútna
skák að þegar annar eða báðir
keppendur eiga 5 mínútur eftir
gilda hraðskákreglur. Sérstakar
reglur um hraðskákir þegar hvor
keppandi hefur 5 mínútur til um-
hugsunar á alla skákina, voru sam-
þykktar í nýrri og breyttri mynd á
þingi alþjóðaskáksambandsins,
FIDE, í sumar.
Töpuð skák
við þriðja brot
Margt er nýstárlegt í þessum
reglum, sumt einkennilegt en ann-
að fagnaðarefni. T.d. er þar að finna
ýmis viðurlög sem skákstjóri getur
gripið til. Þannig bætist mínúta við
umhugsunartíma andstæðingsins
ef keppanda verður það á að fella
skákklukkuna um koll. Sá sem
veltir um taflmönnum veröur að
setja þá upp á sínum tíma og getur
andstæðingurinn stutt á klukkuna
ef honum sýnist svo. Sem fyrr verð-
ur að styðja á skákklukkuna með
sömu hendi og leikið er með, nema
hrókfæra má með báðum höndum
samtímis. Við fyrsta brot aðvarar
skákstjóri þann sem leikur með
hægri en styður á klukkuna með
vinstri (eða öfugt). Við annaö brot
fær andstæðingurinn mínútu til
viðbótar; við þriðja brot er skákin
dæmd töpuð.
Snertur maður er hreyfður. Ef
keppandi kemur við mann en leik-
ur síðan öðrum, má andstæðingur-
inn styðja aftur á klukkuna og
krefjast þess að hann leiki þeim
manni sem hann snerti fyrst. Við
fyrsta brot gefur skákstjóri aðvör-
un; við annað brot fær andstæðing-
urinn mínútu og við þriðja brot er
skákin töpuð.
Ólöglegan leik verður að leiðrétta
á eigin tíma. Ef keppanda verður
það á að leika ólöglegan leik og
styðja á klukkuna er of seint að
leiðrétta hann. Andstæðingurinn
verður hins vegar aö krefjast vinn-
ings áður en hann hefur svarað
leiknum. Ef hvorugur tekur eftir
ólöglegum leik er of seint að gera
eitthvað í málinu síðar.
Beðið eftir
drottningu
Sá sem fellur á tíma tapar skák-
inni en andstæðingurinn verður að
taka eftir því. Áhorfendum er
óheimilt aö skipta sér af skákum
og mega ekki vekja athygli á því
ef tíminn er runninn út. Gerist það
hefur skákstjórinn heimild til þess
að dæma skákina ógilda og aö hefja
verði leik að nýju. Og hann getur
vísað áhorfandanum málglaða úr
salnum.
Skákin er jafntefli ef annar kepp-
anda fellur á tíma en andstæðing-
urinn hefur ekki nægan liðsafla til
þess að máta. Nægur liðsafli er
skilgreindur þannig að mögulegt
sé aö stilla upp stöðu þar sem mót-
heijinn er óveijandi mát í næsta
leik. Dæmi um þetta er staða þar
sem báðir eiga kóng og hrók. Skák-
in er jafntefli því að ekki er mögu-
legt að stilla upp stöðu þar sem
andstæðingurinn er óveijandi mát
í næsta leik (t.d. hvítt: Kg6, Ha7;
svart: Kg8, Hh8. Svartur verst máti
í næsta leik með 1. - Kf8, eða 1. -
Hh6+).
Þá er skákin jafntefli ef sama
staða kemur fram fjórum sinnum
og þarf sá sem krefst jafnteflis þá
að telja upphátt og stöðva síðan
klukkuna eftir að staðan kemur
fram í fjórða sinn. í reglunum segir
einnig aö skákin sé jafntefli komi
fram „dauð“ staða, án þess það sé
nánar skilgreint en væntanlega er
átt viö stöðu þar sem hvorugur
getur nokkuð aðhafst.
Margir kannst við það, þegar peði
er leikið upp í borð á síðustu sek-
úndunum og ætlunin er að vekja
upp drottningu. En engin drottning
er tiltæk og því flýgur peðið um
taflborðiö í næstu leikjum í drottn-
ingarlíki.
I nýju hraðskákreglunum segir
að ef peði er leikið upp í borð, megi
hvor keppandi sem er stöðva
klukkuna, þar til búið er að finna
uppvakning. Keppandinn ræður
því hvort hann vekur upp riddara,
biskup, hrók, eða drottningu.
Skákstjóri ákveður til hvorrar
handar skákklukkan snýr en
svartur ræður hvorum megin við
borðið hann situr.
Þriggja leikja reglan
Nú verða skákmenn að gæta þess
vel að rétt sé raðað upp í byijun
Umsjón
Jón L. Árnason
tafls. Eftir þriðja leik í skákinni er
ekki hægt að krefjast þess að hefja
leikinn að nýju og gildir þetta þótt
upphafsstaðan sé röng, taflborðið
snúi vitlaust, eða ef láðst hefur að
stilla klukkuna.
í þessu samhengi er þess getið í
nýju reglunum að ef í ljós kemur
að kóngur og drottning hafa óvart
skipt um sæti (t.d. hvítur kóngur á
dl, hvít drottning á el) er heimilt
að hróka „stutt“ á drottningar-
væng, eða hróka „langt“ á kóngs-
væng! Þessi regla er nokkuð skond-
in og jaðrar við að vera breyting á
mannganginum.
Hvað sem þessu líður, þá er eng-
inn vafi á því að hraðskákreglur
þurfa að vera ítarlegar enda margt
óvænt sem gerist þegar tíminn er
að fjara út. Skemmst er að minnast
skákar Karpovs við Tsjemín í
bráðabana á stórmótinu í Tilburg
á dögunum. Tsemín lék lævísan
kóngsleik með fráskák frá hrók
sem Karpov gætti sín ekki á - báð-
ir alveg að falla á tíma. Karpov
snerti drottninguna en sá þá að
kóngurinn stóð í skák. Hann varð
því að leika drottningu sinni á milli
í opinn dauðann og þetta varð til
þess að Tsjemín sló hann út úr
keppninni.
Heims-
meistaraglíma
Klukkufjöltefli Garrí Kasparovs
við argentínska landsliðið í Buenos
Aires í síðasta mánuði hafa verið
gerð nokkur skil í DV. Hann tefldi
þar tvöfalda umferð á sex borðum,
vann 4-2 og 5-1 - tapaði aðeins
einni skák, fyrir Ricardi.
Meöal andstæðinga Kasparovs
var hinn 19 ára gamli Pablo
Zamicki sem skömmu síðar sigraði
á heimsmeistaramóti unglinga.
Zamicki hélt jöfnu í fyrri skákinni
gegn Kasparov en varö að játa sig
sigraðan í þeirri síðari. Tafl-
mennska Kasparovs í þeirri skák
var raunar afar lærdómsrík og hef-
ur efalítið verið Zamicki.gott vega-
nesti á heimsmeistaramótið.
Kasparov sýnir á sígildan hátt
hvemig svara skal ótímabærri
framrás á kóngsvæng. „Sókn á
væng skal svara með sókn á mið-
borði,“ segir gamalt máltæki, sem
Kasparov kann bersýnilega góð
skil á.
Hvítt: Pablo Zarnicki
Svart: Garrí Kasparov
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 d6 6. Be2 Be7 7. 0-0 0-0 8.
f4 a6 9. Be3 Dc7 10. Del?!
Enn var ekki of seint að leika 10.
a4 og spoma við framrás svarts á
drottningarvæng. Það er óná-
kvæmt að leika biskupnum svona
snemma á e3 í þessu afbrigði.
Svartur fær nú þægilegt tafl.
10. - b5 11. Bf3 Bb7 12. a3 Rbd7 13.
Dg3 Hac8 14. Hael Ba8 15. Khl Kh8
16. Df2 Db8 17. Bcl
Hvítur gerir sér grein fyrir að
biskupinn stendur afleitlega á e3
og opnar sjónlínu hróksins.
17. - Rb6 18. g4?
Liður í áætluninni en svartur er
vel undir þetta búinn.
ABCDEFGH
18. - d5! 19. e5 Re4! 20. Rxe4 dxe4 21.
Bxe4
Þiggur peðsfóm heimsmeistar-
ans en eins og framhaldið leiöir í
ljós varö hann að reyna 21. Bg2.
21. - Bc5! 22. c3
Ekki 22. Kgl Hfd8! 23. c3 Bxd4 24.
cxd4 Hxcl 25. Hxcl Bxe4 með vinn-
ingsstöðu á svart.
22. - Bxd4 23. Dxd4 Hc4 24. Dd3 Hd8
25. Df3 Hxe4! 26. Hxe4 Ra4 27. b4
Hvað annað? Svartur hótaði 27. -
Rc5 og 27. Be3 var svarað með 27.
- Db7 og hrókurinn fellur.
27. - Hc8!
Og hvítur gafst upp. Ekki fer á
milli mála að hvítur mátti alls ekki
þiggja peðsfóm svarts. Lærdóms-
ríkt!
-JLÁ