Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1992, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1992, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1992. Útlönd írarveðjaá aðElvislífi írskir veðmálafíklar, sem vilja reyna eitthvaö nýtt um þessi jól, eiga þess nú kost aö leggja fé sitt undir Elvis. Veðmangari einn hefur boðiö mönnum að veðja á að Elvis finnist lifandi á írlandi á næsta ári og er hlutíall vinnings og veðfjár tíu þúsund á móti ein- um. Einnig gefst mönnum tækifæri til að veðja á að konungdæmið í Englandi verði lagt niður á næsta ári. Hlutfallið er hið sama og hjá Elvis. Norskalögregl- stúlkubarn Norska lögregian skaut og særði gögurra ára stúlkubarn alvarlega á þriöjudag þegar hún réöst til inngöngu í hús í bænum Vestby til að handtaka fólk sem grunað var um vopnað rán. Stúlkan fékk skot i magann. Gerð varaðgerðáhennl ogerhún ekki í lifshættu. Maður á þrítugs- aldri varö einnig fyrir skoti í að- íor lögregiunnar. Auk stúikunnar voru þrjú önn- ur lítil böm í húsinu þegar lög- regian réðst til inngöngu. Fjórir karlmenn og tvær konur voru handtekin. afdrifaríkfyrir fiskveiðarnar Olíumengunin frá gríska oixu- skipinu, sem strandaði undan norðvesturströnd Spánar fyrir tveimur vikum, hefur kostað fiskimeim á svæðinu fimm miilj- arða peseta eða sem svarar tæp-: um þremur milljörðum ísienskra króna. Stjórnvöid bönnuðu fiskveiðar á þessum slóöum vegna þess aö olían þakti víkur og fióa þar sem míkið er af krækhngi. Fiskur og skelfiskur af miöun- um viö strendur Galiriu er mjög mikilvægur fyrir efnahagslíf hér- aðsins og hefur fimmtungur íbú- anna framfæri sitt af iiskiðnaðin- um. Vindgangurer urumhverfinu Læknir einn hefur sagt Áströl- um að þeir ættu að halda sig fjarri vindaukandi jólakrásum eins og kalkúna og jólabúðingi og leggja- þar með baráttunni fyrir vernd- un ósoniagsins lið. „l»að hefur í raun ekki verið mælt hvort vindgangur úr mann- fólkinu hafi áhrif á ósonlagið,“ sagði Terry Bolin, yfirlæknir þarmadeildar sjúkrahúss eins í Sydney. „Hann hefur þó líklega áhrif vegna þess að í honum eru vetni, koltvísýringur og metan- gas.“ Hann sagði að meðaimaöurinn framleiddi um einn litra af gasi á dag. Læknirinn vill að Ástralir borði íiskmeti og ávexti i staðinn. Námsmenn veikireffireifr- aðkonfekt Fjórir námsmenn í New York urðu alvarlega sjúkir eftir aö hafa etiö eitraö konfekt sem einn þeirra fékk sent í pósti. Að sögn saksóknara var um að ræða tvær belgískar stúlkur og tvo banda- ríska piita. Reyndustu þyrluflugmenn Færeyinga fórust 1 fyrrinótt: Læknir um borð var í síðustu ferð sinni - kröfur um að hætt verði við að leggja niður sjúkrahús utan Þórshafnar Jens DaJsgaard, DV, Færeyjum; Þrír reyndust þyrluflugmenn Fær- eyinga fórust þegar önnur þyrla landhelgisgæslunnar fórst um mið- nætti aðfaranótt miðvikudags. Menn frá dönsku flugslysanefndinni eru komnir til að rannsaka orsakir slyss- ins en líklegast er tahð að hún hafi farist vegna ísingar í dimmu éli. Alls fórust fimm með þyrlunni, allt ungt fólk um fertugt. Flugstjórinn hét Sveinbjörn Danielsen og með honum voru ílugmennirnir Edmund Simonsen og Eydalvur Niclasen. Þá FÆREYJAR Klaksvík Borð- eyrarvik Þórshöfn var með í for Torgerd Lydertsen, hjúknxnarkona frá Klakksvik og Po- ul AUan Videbak, læknanemi frá Danmörku. Videbák var við æfingar í Færeyjum og átti að ljúka störfum eftir þessa ferð. Flugmennimir höfðu starfað fyrir landhelgisgæsluna frá árinu 1984 þegar fyrsta þyrlan var keypt. Þyrlan, sem var af geröinni Bell 221, fór um kvöldið með sjúkan mann frá Klakksvík á sjúkrahúsið í Þórs- höfn. Þegar skammt var til lendingar í Klakksvík í bakaleiðinni skall á él og féll þyrlan í sjóinn. Það var fimmt- Elísabet II. Englandsdrottning fór i gær til frumsýningar i Lundúnum á nýrri mynd um Charles Chaplin, konung gamanmyndanna. Hún var hress og áberandi glæsilega til (ara. Símamynd Reuter Ætlar Díana að taka völdin af Elísabetu? Ein æsilegasta samsæriskenning- in, sem nú gengur í Bretlandi, er að Díana prinsessa hafi skipulagt sam- særi um að koma tengdafólki sínu úr Buckinghamhöll og setjast þar sjálf í skjóli Vilhjálms, sonar síns. í fréttablaðinu Mirror er þessari hugmynd velt upp og þar sagt að Díana sé staöráðin í að ná sér niðri á Karli, manni sínum, og Elísabetu, móður hans. Liður í samsærinu er að skilja við Karl og gera hann þann- ig óhæfan til að gegna konungdómi. Vilhjálmur er þá næstur í röðinni og vegna æsku hans og ósjáifstæðis verði það Díana sem ráði öllu. Díana eykur stöðugt sjálfstæði sitt. Hún hefúr nú ráðið sér blaðafulltrúa og veitir ekki af í því fjölmiðlastríði sem geisar milli fólks í konungsfjöl- skyldunni. Til þessa hafa Karl og Díana notið ráða sama manns í almannatengsl- um en leiðir þeirra hafa skilið í þessu máli sem öðrum. án mínútum eftir miðnætti. Lög- reglumaður sá hvað gerðist og fannst þyrlan á 24 metra dýpi í Borðeyra- vogi í gær. Sjúklingurinn lést á sjúkrahúsinu í Þórshöfn skömmu efdr að komiö var með hann þangað. Slys þetta hefur orðiö til þess að fólk krefst þess að hætt verði við að leggja niður sjúkrahúsin í Klakksvík og Þvereyri. Ætlunin er að þjóna öllum eyjunum frá Þórshöfn með þyrluflutningum á sjúklingum. Það er liöur í sparnað- aráformum landstjómarinnar. Óttastfarsótta'rá skjálftasvæðun- umílndónesíu Ótti manna við að farsóttir kynnu að brjótast út meðal þeirra semlifðu afjárðskjálftami í Indó- nesíu jókst til muna í morgun þar sem drykkjarvatn, lyf og salern- isaðstaða eru mjög af skomum skammti. Tvö þúsund og tvö hundruð manns fórust í hamfór- unum á laugardag. „Það er hætta á aö sjúkdómar brjótist út. Við höfum ekki nægi- legt drykkjarvatn og við þurfum meiri lyf,“ sagði embættismaður i sanxtali viö Reuters. Jeltsín spáir litl- umbreytingum Borís Jeltsín Rússlandsforseti sagði í morgun að hann teldi ekki að Viktor Tsjernómyrdín, ný- skipaður forsætisráðherra lands- ins, mundi gera miklar breyting- ar á ríkisstjórninni. Hann sagði fréttamönnum þeg- ar hann kom í opinbera heim- sókn til Peking í dag að hann byggist við að breytingartillög- umar yrðu á borði hans þegar hann kæmi aftur heim til Moskvu. Tsjemómyrdín var skipaður í embætti á mánudag. Forsætis- ráðherrann hefur sagt að hann muni halda umbótunum áfram en hann muni þó standa betri vörð um kjör þeirra lægst laun- uöu og reyna að stemma stigu við síminnkandi iðnframieiðslu. Fjórtán milljón amerískbörn búaviðfátækt Fimmta hvert bam í Bandaríkj- unum bjó við fátækt áríð 1991 og hafa þau ekki verið fleiri síðan ■ 1965. Þetta kemur frara í ársskýrslu vamarsjóðs barna um ástand bama í Bandaríkjunum. „Á undanfómum tiu áram höf- um við orðið viúxi að þvi aö amer- íski draumurinn hafi faríð í aft- urábakgír." sagði Marian Wriglú Edeiman, formaður sjóðsins, þeg- ar hún kynnti skýrsluna í gær. í skýrslunni kemur fram að 14,8 milljónír bama búa við fá- tækt. Meirihluti þeirra var hvít- ur, flest áttu foreldri sem stund- aði vinnu og flest bjuggu utan stórborganna. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.