Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1993, Blaðsíða 2
Í’ÖSTTOAS3UE,22. UANÚAE119031
l
Fréttir_____________________________________________
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra:
Engar hvellfréttir
í álviðræðunum
- ræðir við Washington Mills um flárfestingu í shpiefnaverksmiðju hér
„Þaö eru nú ekki neinar hvellfrétt-
ir enda ekki við þeim búist. Viö fór-
um yfir stöðuna í málinu og þaö
stendur enn sem talað var í október
að þeir sýna áhuga áfram. Þeir eru
núna að vinna úr ýmsu efni um stað-
hætti, kosti og kostnað við staðsetn-
ingu á íslandi í samanburði við önn-
ur lönd. Það er ekki að búast við nið-
urstöðu úr því máb fyrr en í apríl.
Þá munu þeir endanlega ákveða að
hveiju, þeirra 3-A landa sem þeir
hafa verið að kanna, þeir ætla aðal-
lega að snúa sér,“ segir Jón Sigurðs-
son iðnaðarráðherra sem átti við-
ræður við aðalforstjóra og sam-
starfsmenn hans í Kaiser Alumi-
nium í Washington í vikunni.
Nýr forstjóri, Steve Hutchcraft, er
að taka við forstjórastarfmu í Kaiser
Aluminium af John Seidl sem kom
hingað til lands í október til að kynna
sér staðhætti og átti ráðherra við-
ræður við þá báða. í dag mun hann
síðan hitta forstjóra Alumax.
„Menn eru ennþá að bíða eftir því
að það rofi til í álviðskiptunum því
verðið er áfram mjög lágt. Það er
hins vegar jákvætt núna að það hefur
örlað á nýjum hagvexti í Bandaríkj-
unum og menn telja að það sé að
hefjast uppsveifla og að efnahagsþró-
unin muni styrkjast," segir Jón.
Ráðherra mun ræða við fulltrúa
Washington Mills sem hafa sýnt
áhuga á að fjárfesta í um 30 tonna
slípiefnaverksmiðju á íslandi, vænt-
anlega á Grundartanga.
„Það hafa staðið yfir athuganir á
fjárfestingu Washington Mills í slípi-
efnaframleiöslu á íslandi en það er
rafbræðsla lík þeirri sem fram fer á
Grundartanga. Þetta eru þreifmgar
sem eru búnar að standa lengi. Þeir
spurðust fyrst fyrir um þetta en síðan
höfum við haldið máhnu vakandi og
nú hafa þeir sýnt meiri áhuga að
nýju,“ segir Jón.
Hann fylgdist með hátíðahöldun-
um við forsetaskiptin í Bandaríkjun-
um í fyrradag. „Það er enginn vafi á
því að hvað sem menn segja um
kosningarnar og úrslitin í þeim þá
hefur þessi nýja stjóm meðbyr í al-
menningsáliti og vekur almennt
bjartsýni og áhuga. Það verður auð-
vitað helsta verkefni Clintons og
hans stjórnar að endurvekja hagvöxt
og ég held að þetta byrji bara mjög
velhjáhonum." -ból
Islenskkonalát-
íslensk kona, Sædís Hrefna
Gunniaugsdóttir Norman, 38 ára,
lést í bílslysi á hraðbraut á milli
Brishane og Sydney í Ástralíu á
þriðjudag. Sædís var á forð með
eiginmanni sinum, Clive Nor-
man, þegar bíl var ekið í veg fyr-
ir bifreið þeirra með þeim afleíð-
ingum að bfll íjölskyldunnar valt.
18 ára dóttir hjónanna mjaðma-
grindarbrotnaði 1 slysinu en 14
ára sonur þeirra slapp við telj-
andi meiðsl. Hinn ástralski tjöl-
skyldufaöir slapp með minni
háttar meiðsl.
Fjölskyldan var nýflutt til Bris-
bane írá Sydney en þangað var
för þeirra heitið þegar slysið
varð. Sædís fluttist til Ástralíu á
fermingaraldri. -ÓTT
Þær voru þakklátar fyrir brauðmolana, sem ungir Reykvíkingar færðu þeim í kuldanum um helgina, gæsirnar á
Tjörninni. ' DV-mynd JAK
Fjárhagsáætlun Reykjavlkurborgar afgreidd í borgarstjóm:
Tæplega 9 milljarðar í
verklegar framkvæmdir
- auknum skattaálögum á borgarana afstýrt með lántöku
„Með þessari fjárhagsáætlun er
Reykjavíkurborg að laga sig aö
breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu. Á
sama hátt og hjá heimilunum í land-
inu hefur íjárhagsleg staða borgar-
innar versnað. Vegna atvinnuleysis-
ins, þrenginga hjá fyrirtækjunum og
versandi afkomu einstaklinga verð-
ur hins vegar ekki farin sú leið að
hækka skattana. Þess í stað verður
lögð á það áhersla að halda uppi
framkvæmdum og til að fjármagna
þær neyðumst við til lántöku," segir
Markús Örn Antonsson borgarstjóri.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar kom til síðari umræðu í borgar-
stjóm í gærkvöldi. Samkvæmt áætl-
uninni verður samanlagður kostnað-
ur borgarinnar, borgarsjóðs og borg-
arfyrirtækja um 8,9 milljarðar vegna
verklega framkvæmda á árinu. Úr
borgarsjóði á að veija 2,9 milljörðum
til byggingaframkvæmda, 1,2 millj-
örðum til gatnagerðar, 940 milljónum
til viðhalds á gatnakerfinu, 221 millj-
ón í útivistarmál og 629 milljónum
til viðhalds fasteigna. Þá er gert ráð
fyrir aö borgarfyrirtækin veiji 1,2
milljörðum til framkvæmda og 2,9
milljörðum til viðhaldsverkefna.
Heildartekjur borgarsjóðs eru
áætlaðar tæplega 12,2 milljarðar og
samanlagðar tekjur fyrirtækja borg-
arinnar eru áætlaðar um 9,8 millj-
arðar. Reiknað er með að útsvars-
tekjur skili borginni hátt í 6,3 millj-
örðum, fasteignagjöld rúmum 2
milljörðum og bætur í stað aðstöðu-
gjalds 2,2 milljörðum.
Stærsti rekstrarliðurinn hjá borg-
inni í ár verður sem fyrr félagsmálin.
Alls á að veija um 2,7 milljörðum í
þann málaflokk, þar af rúmum millj-
arði í dagvistarmál. Næststærsti
rekstrarliðurinn er gatna- og um-
ferðarmál með tæplega 2,3 milljarða.
Til skólamála verður varið rúmlega
1,5 milljörðum, til æskulýðs- og tóm-
stundamála 770 milljónum, til hrein-
lætis- og heilbrigðismála 500 milljón-
um, til umhverfismála 369 milljónum
og til menningarmála 490 milljónum.
Að sögn Markúsar Amar hefur öll
vinna við gerð fjárhagsáætlunarinn-
ar mótast af þeim erfiðleikum sem
við er að etja í atvinnulífinu. Hins
vegar sé miðað við að framkvæmda-
umsvif borgarsjóðs og borgarfyrir-
tækja í heild haldist í meginatriðum
óbreytt frá því sem þau hafa verið
undanfarin tvö ár, þrátt fyrir mikinn
og almennan samdrátt í þjóðfélaginu.
Til að efla atvinnulífið hafi borgin
því ákveðiö að taka 2,5 milljarða lán.
-kaa
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB:
Tími yfirlýs-
inga er liðinn
- segirnæstaskrefiðaðtakaákvarðanir
„Tími yfirlýsinga er hðinn. Nú er
komið að því að taka ákvarðanir um
það hvernig menn ætla að standa að
verki í komandi kjarasamningum.
Spumingin er ekki um það hvort
launafólk hafi með sér samstarf í
þessari baráttu heldur með hvaða
hætti staðið verður aö málum. Ég sé
fyrir mér að almenningur á íslandi
muni á næstunni taka höndum sam-
an til að verja lífskjör sín og standa
vörð um velferðarkerfið," segir Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB.
Fulltrúar allra aöildarfélaga BSRB
komu saman til fundar í byrjun vik-
unnar til að fara yfir stöðu mála í
tengslum við komandi kjarasamn-
inga. Umræða hefur átt sér stað inn-
an einstakra félaga undanfarnar vik-
ur en í kjölfar þessa fundar verður
unnið að því að samræma kröfugerð
félaganna og efla samstöðuna þeirra
á milh.
Að sögn Ögmundar kom fram ein-
dreginn vilji til að efla samstöðu alls
launafólks í kröfugerð og hugsanlega
aögerðum. Aðspurður útilokar hann
ekki að til formlegs samstarfs við
ASÍ kunni að koma.
„Það er spurning hvort það fer ekki
að vera ábyrgðarleysi að sitja á
áhorfendabekkjum meðan íslenskt
samfélag er brotið niður. Mér finnst
liggja í loftinu vilji til víðtæks sam-
starfs. í hvaða formi það verður veit
ég hins vegar ekki. Til að byrja með
munum við ræða málin innan okkar
raða með það fyrir augum að ná víð-
tæku samstarfi við önnur samtök
launafólks.“ -kaa
Fjarhagsaætlun Reykjavíkurborgar:
Of lítil áhersla á ný
atvinnutækifæri
- segjafuUtrúarminmhlutansíborgarsíjóm
„Þessi fiarhagsáætlun er mjög
þröng. Afkoman hefur ekki verið
verri í áratugi. Fé úr rekstri til
framkvæmda er aðeins um 1,5
milljarðar í stað þriggja til fiögurra
milljarða eins og á undanfómum
árum. Ég fagna hins vegar þeim
þáttum áætlunarinnar sem miða
að því að halda uppi atvinnustiginu
meö lántökum," segir Siguijón Pét-
ursson, borgarfulltrúi Álþýðu-
bandalagsins.
Sigurjón segir ýmsar blikur á
lofti sem gefi th kynna aukið at-
vinnuleysi. Af þvi hafi hann
áhyggjur. Því verði borgin að miða
allar sínar framkvæmdir við það
að þær séu atvinnuskapandi.
Guðrún Ögmundsdóttir, Kvenna-
hstanum, tekur í svipaðan streng.
Svigrúm borgarsjóðs til útgjalda sé
htið og því hafi Kvennahstinn lagt
megináherslu á aukna félagslega
þjónustu og atvinnuuppbyggingu í
tengslum við gerð áætlunarinnar.
Sigrún Magnúsdóttir, Framsókn-
arflokki, segir að í fiárhagsáætlun
borgarinnar fehst bylting. Skuldir
hafi hækkað og kallað á lántökur.
Hlutfahslega feli áætlunin í sér tvö-
falt meiri halla en fiárlög ríkisins.
Því hafi hún ekki lagt fram breyt-
ingartihögur að þessu sinni. Þess í
staö hafi Framsóknarflokkurinn
óskað eftir skýringum á þeim frá-
vikum sem orðið hafa á fiárhagsá-
ætlunum undanfarinna ára.
Ólína Þorvarðardóttir, Nýjum
vettvangi, segir fiárhagsáætlunina
miða við óbreytt atvinnustig. Það
sé þó óviðunandi markmið þar sem
nú sé 5 prósent atvinnuleysi og lík-
ur séu á að það aukist. Því hafi Nýr
vettvangur lagt th að fyrirtæki
borgarinnar auki arðgreiðslur sín-
ar th borgarsjóðs um 1,4 mihjarða
sem nýta megi í atvinnuskapandi
framkvæmdir.
-kaa