Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1993, Blaðsíða 32
V-
VJl
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
.__________________________________________________________________________________________________^ ____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
FOSTUDAGUR 22. JANUAR 1993.
Ólöglegar að-
gerðirsjúkraliða
Aíkoma ríkissjóðs:
Minni halli
Rekstrarhalli ríkissjóös í fyrra
varö 7,2 milljaröar samkvæmt bráða-
birgöatölum úr fjármálaráöuneyt-
inu. Á árinu 1991 nam hallinn 12,5
milljöröum. Heildarútgjöld ríkis-
'sjóös fóru milljarð króna fram úr
fiárlögum og urðu 110,6 milljarðar.
Miðað við áriö 1991 lækkuðu útgjöld-
in að raungildi um 5,3 milljarða.
Heildartekjur ríkissjóðs árið 1992
námu 103,4 milljörðum eða 2,1 millj-
arði minna en í áætlun fjárlaga. Að
raungiidi hækkuðu tekjumar um 400
milljónirmilhára. -kaa
Dýrsnjómokstur
Snjóþyngslin í Reykjavík undanf-
-arnar vikur kosta borgarsjóð að jafn-
aði um 1,5 milljónir í dag. Á viku
gerir það ríflega 10 milljónir. Daglega
er snjór ruddur af 300 til 500 kíló-
metrum í gatnakerfi borgarinnar.
Það samsvarar því að Reykjavíkur-
borg ryðji daglega þjóðveginn frá
höfuðborginnitiIAkureyrar. -kaa
FréttaskotDV:
Það tíu þúsund-
astaberstá
næstu dögum
- verðlaun hækkuð þá vikuna
s Nokkur tímamót eru framundan í
sögu fréttaskots DV því á næstu dög-
um mun tíu þúsundasta fréttaskotið
berast til blaðsins frá því það hóf
göngu sína 29. mars 1984 í gegnum
símann, sem aldrei sefur, 62-25-25.
Af því tilefni hefur verið ákveðið
að greiða 15 þúsund krónur fyrir
besta fréttaskotið þá vikuna sem
10000. ábendingin um frétt berst
blaðinu. Það er því til nokkurs að
vinna og að venju verða greiddar
3000 krónur fyrir önnur fréttaskot
sem birtast í blaðinu.
DV heitir þeim sem senda inn
ábendingar um fréttir fullum trúnaði
og algj örrar nafnleyndar er g hsím
- sjá nánar á bls. 32
LOKI
Það ereinsgottað
Sighvaturbrotniekki
í næsta mánuði!
Félagsdómur hefur úrskurðað að
aðgerðir sjúkraliða 1. til 3. desember
síðastliðinn hafi verið ólöglegar, hafi
brotið í bága við ákvæði um verkfóll
—*opinberra starfsmanna. Sjúkraliðar
héldu maraþonfundi þessa daga til
að leggja áherslu á kröfur sínar um
bætt kjör.
Úrskurðurinn heimilar um leið
vinnuveitendum sjúkraliða að draga
tveggja daga laun af þeim við næstu
útborgun. -S.dór
Borgaði sjómanni
fyrir hasssmygl
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt þrítugan karlmann í 12 mán-
aöa fangelsi, þar af níu mánuði
skUorðsbundiö, fyrir að hafa staöið
aö ínnflutningi ogsölu á 1,5 kílóum
af hassi og kaupum og sölu á 280
grömmum af amfetamini á fyrri
hluta árs 1988. Maðurinn var jafn-
írarat dæmdur til að sæta upptöku
á tæpri hálfri milfjón króna í pen-
ingum sem talið var að aflað hefði
veriö með fíknefhasölu auk þess
sem hann var dæmdur til aö greiða
100 þúsund krónur í sekt til ríkis-
sjóðs. Hjörtur O. Aðalsteinsson
héraðsdómari kvað upp dóminn.
Við ákvörðun refsingar tók dóm-
urinn mið af því hve langt er um
liðið frá því brotið var framið og
því að óskýrðar tafir hafa orðið á
afgreiðslu þess, m.a. hjá ríkissak-
sóknaraembættinu í rúm 2 ár.
Maðurinn keypti 1,5 kfió af hassi
í Bremerhaven í marsbyrjun 1988
þar sem hann afhenti það skipverja
á íslensku skipi - karlmanni á sjö-
tugsaldri. Sjóraaðurinn flutti efnin
heim til íslands og afhenti þau eig-
andanum á heimili sinu eftir að
heim kom. Sá fyrmefndi fékk 175
þústmd krónur í þóknun fyrir
flutninginn á efhunum til landsins.
Hassið seldi eigandinn síðan hér
á landi fyrir á aðra milljón króna.
Nokkru síðar á árinu keypti hann
samtals um 280 grömm af amfetam-
íni á 2.500-3.000 krónur grammið
en seldi það síðan á allt að 4 þúsund
krónur hvert gramm eða samtals
um eina milijón króna. í niður-
stöðu héraðsdóms varðandi refs-
mgu mannsins segir m.a.:
„Við ákvörðun refsingar ákærða
verður ekki hjá þvi komist aö hafa
í huga hversu mál þetta hefur dreg-
ist og þannig brotinn ótvíræður
réttur ákærða til hraðrar og skil-
virkrar raálsmeðferðar. Þá hefur
ákærði lýst högum sínum þannig
að hann stundi nú nám í listaskóla
í Englandi og hafi hann hætt allri
fikniefnaneyslu fyrir 3 árum.“
Þeir 14 dagar sem ákærði sat í
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar
málsins dragast frá fangelsisrefs-
ingunni, það er þeim þremur mán-
uðum sem honum er gert að af-
plána óskilorðsbundið.
-ÓTT
Davíðspenninn, sem er verðlaun sem Félag islenskra rithöfunda veitir árlega til minningar um Davíð Stefánsson,
var afhentur i gær á afmælisdegi skáldsins. í ár var það Vigdís Grímsdóttir sem fékk verðlaunin fyrir skáldsögu
sína Stúlkan í skóginum. Vilhjálmur Hjálmarsson afhenti henni Davíðspennann, en honum fylgja einnig eitt hundr-
að þúsund krónur. DV-mynd GVA
Veðriöámorgun:
Snjókoma
á Suður-
landi
Á hádegi á morgun verður
surmanstrekkingur og snjókoma
um sunnanvert landið en hægari
og þurrt í fyrstu um austanvert
landið.
Veöriö í dag er á bls. 36
Hj úkrunarfræðingar:
að bíða og sjá
hvort við förum
„Við vitum ekki hvort það verður
reynt að semja. Þeir eru alveg vísir
tfi að bíða og láta reyna á það hvort
við fórum,“ sagði Auður Guðjóns-
dóttir, einn talsmanna úr röðum
hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á
Landspítalanum, í samtali við DV í
morgun um næstu aðgerðir í deilu
þeirra við hefibrigðisráðherra um
starfskjör. Þessir starfsmenn spítal-
ans hyggjast leggja niður störf um
komandi mánaöamót til að mótmæla
launakjörum sem þeir telja lakari en
á öðrum spítulum.
Á fjölmennum fundi í gær var sam-
þykkt að leggja niður störf. Starfs-
mennimir eru úr þremur stéttarfé-
lögum; Hjúkrunarfræðingafélagi ís-
lands, Félagi háskólamenntaðra
hjúknmarfræðinga og Ljósmæðrafé-
lagi íslands. Félögin sem slík standa
ekki að aðgerðum starfsmannanna á
Landspítalanum.
Deilan í dag snýst einnig um það
hvort uppsagnarfrestur starfsmann-
anna rennur út um mánaöamótin
eða ekki. Heilbrigðisráðherra hefur
ákveðið að framlengja hann til 1.
maí. Starfsmennirnir hafa leitað til
lögmanns sem Auður sagöi að hefði
tjáð þeim að þau lagaákvæði sem
ráðherra styddist við eigi ekki við í
þeirratilfelli. -ÓTT
Snjóskriða lok-
aði umferð um
Hvalfjörð
Snjóskriða féll í nótt við mal-
amámuna í Hvalfirði, rétt sunnan
við olíustöðina, og lokaði þjóðvegin-
um.
Bílar, sem áttu leið um Hvalfjörð
um sexleytið í morgun, stöðvuðust
við skriðuna sem var 20-30 metra
breið og hafði fallið ofan af kletta-
veggnum skammt noröan við Blá-
skeggsá. Haft var samband við Vega-
gerðina sem mddi veginn.
Lögreglan í Borgarnesi ók fyrir
Hvalfjörð klukkan tvö síðustu nótt
en þá var sáralítill snjór á veginum.
Skriðan hefur því fallið einhvern
tíma milli klukkan tvö og sex um
nóttina og telur lögregla mildi að hún
féll ekki á mesta umferðartíma þegar
mestar líkur heföu verið á að einhver
yrðiundirhenni. -ból
Harðurárekstur
Harður árekstur varð á Reykjanes-
braut skammt austan afleggjarans í
Innri-Njarðvík í gærkvöldi.
Tveir bflar rákust saman og þurfti
að flytja tvo farþega úr öörum bíln-
umásjúkrahús. -ból
ÖRYGGI - KAGMENNSKA
4
4
4
4
4
4
4
4
I