Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1993, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1993, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1993. Fréttir Eiginkona sýslumannsins í Vestmannaeyjum um aðför unglinganna: Hrópuðu ókvæðisorð og köstuðu í mig snjóboltum „Krakkarnir hópuöust hér aö og nokkrir komu inn í garö. Fleiri voru fyrir utan girðinguna og bílum var flautað. Ég fór út til að spyija hvaö gengi á en þá var kastað í mig snjó- boltum og hrópaö að mér ókvæöis- orðum. Það sem þeir sögðu við mig var ipjög dónalegt og þar fyrir utan var óþarfi að ráðast á okkur hér heima,“ sagði Guðrún Hrund Sigurð- ardóttir, eiginkona Georgs Lárus- sonar, sýslumanns í Vestmannaeyj- um. í hópnum, sem gerði aðfór að heim- ili sýslumannsins, voru nemendur í framhaldsskólanum í Vestmanna- eyjum, nemendur í efstu bekkjum grunnskólans og aörir unglingar sem ekki eru nemendur. Lögreglan gisk- aði á að þarna hefðu verið um 80 manns. „Ég sá að ég gat ekkert talað þau til og fór inn og hafði samband við lögregluna. Meðan ég var að því var sparkað af miklu afli í útidyrahurð- ina. Mér stóð hreint ekki á sama enda með tvö börn hér heima. Það eina sem skemmdist var útiljósið og ég er eiginlega hissa á að hurðin skyldi ekki skemmast því það var sparkað svo fast í hana.“ Börnin vöknuðu Bömin vöknuðu og eldra bamið varð töluvert hrætt. Hún sagðist hafa heyrt að þessi aöför heföi verið skipulögð í framhaldsskólanum en vissi ekki neitt nánar um hana. „Fólki hér finnst jietta mjög leiðin- legt og mér líka. Eg vona aö þessir krakkar skammist sín en af okkar hálfu verður ekki gert meira vegna þessa atburðar." Þegar krakkarnir höföu verið reknir frá heimili sýslumannsins fóru þeir niöur á sýsluskrifstofu þar sem sýslumaðurinn var ásamt öðru fólki. Margir úr hópnum eru ekki nemendur í framhaldsskólanum heldur tóku þátt til þess að vera „með í fjörinu" eins og lögreglan orðaði það. „Þeir sem höfðu sig mest í frammi vom teknir til yfirheyrslu á lögreglustöðinni en hðið var í þannig ástandi aö ekki verður hægt að tala við það fyrr en mnnið verður al- mennilega af því,“ sagði talsmaður lögreglu. Fá tiltal „Við leysum úr þessu með okkar nemendum og að sjálfsögðu fá þeir sem tóku þátt í þessu tíltal," sagði Ólafur H. Sigurjónsson, skólameist- ari framhaldsskólans. „Svona at- burður setur Ijótan blett á nafn skól- ans sem verður að afmá. Við munum ekki beita neinum refsingum og vilj- um semja okkur út úr þessu. í þess- um hópi hafa líklega verið tuttugu nemendur frá okkur og forsvars- menn úr nemendafélaginu, sem voru á ferli um nóttína, gerðu það sem þeir gátu tíl þess að stoppa þetta af.“ Hreinn Ómar Smárason er formað- SV'Úl*' Helgi Olafsson, sem hér teflir biðskákina við Andra Hróifsson eftir tuttugu ára hlé, varð loks skákmeistari Vestmannaeyja árið 1973 nú um helgina. DV-mynd Ómar Tuttugu ára afmælis gossins á Heimaey mirmst um helgina: Helgi vann loks titilinn Ómar Garöarsson, DV, Vestmannaeyjum; Vestmannaeyingar minntust þess á ýmsan hátt um helgina að á laugar- daginn voru 20 ár frá Heimaeyjar- gosi. Meðal annars var opnuð gos- munadeild í Byggðasafninu, skák- þingi 1973 lauk á laugardaginn og minningarguðsþjónusta var í Landa- kirkju. Auk þessa hittust hópar sem störfuðu saman í gosinu. Að kvöldi 22. janúar var skákþingi Vestmannaeyja 1973 rétt ólokið. Ótefldar voru fjórar skákir auk bið- skákar Andra Hrólfssonar og Helga Ólafssonar stórmeistara. Helgi, sem þá var 16 ára, var kominn með 9 vinninga af 9 mögulegum og átti eina skák óteflda við Amar Sigurmunds- son. Össur Kristinsson var einnig meö 9 vinninga en hafði lokið öllum sínum skákum. Það var svo ekki fyrr en á laugardaginn að þráðurinn var tekinn upp að nýju eftir 20 ár. Magnús H. Magnússon, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í gosinu, lék bið- leikinn fyrir Andra sem varð aö lúta í lægra haldi fyrir Helga. Helgi vann einnig skákina við Amar og stóð hann uppi sem skákmeistari Vest- mannaeyja 1973. Var skák hans og Andra þá búin að vera í bið í 20 ár. Gosmunadeild opnuð Gosmunadeild var opnuð í Byggða- safni Vestmannaeyja á laugardaginn. Ragnheiður Vigfúsdóttir sagnfræð- ingur og Jóhann Friðfinnsson safn- vörður höföu veg og vanda af upp- setningu deildarinnar sem hefur að geyma marga hluti sem tengjast gos- inu á einn eða annan hátt. Fjöldi mynda frá gosinu er á veggjum, gas- grímur, hjálmar og búnaður sem var björgunarmönnum nauðsynlegur við þær aðstæður sem þeir störfuðu við þessa dimmu daga veturinn 1973 þar sem hættur leyndust víöa. Gasið var langhættulegast og án gasgrímu voru menn bjargarlausir. Gosmunadeildin vekur upp minn- ingar í huga þeirra sem uppliföu gos- ið og er um leið fræðandi fyrir þá sem ekki þekkja sögu Heimaeyjargossins nema af afspum. Öllu er míög hagan- lega fyrir komið. Fjölmenn helgistund Á laugardagskvöldið var helgi- stund i Landakirkju. Var hún íjöl- menn. Kjartan Öm Sigurbjömsson, sóknarprestur í Vestmannaeyjum frá 1975 til 1991, tók þátt í guösþjón- ustunni ásamt sóknarprestunum, séra Bjama Karlssyni og Jónu Hrönn Bolladóttur og fulltrúum Að- ventistasafnaðarins og Hvítusunnu- safnaðarins í Eyjum. Kór Landa- kirkju söng ásamt Ingu Backman og sönghópur Hvítasunnumanna. í gær var gossins svo minnst i tali og tónum í safnaðarheimili Landa- kirkju. Guðjón Híörleifsson flutti ávarp, Páll Zophóníasson, bæjar- tæknifræðingur í gosinu, rifjaði upp fyrstu 15 daga gossins og Gísli Helga- son flutti minningar frá Eyjapistlum og sagöi frá tildrögum þeirra. ur nemendafélags Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum. Hann sagði að nemendafélagiö heföi þegar fordæmt þessar aðgerðir og sagði að þær væru ekki í neinum tengslum við félagið. Nemendafélagið hefur staöið í deil- um við sýslumann vegna skattlagn- ingar á böllin sem er 25% virðisauka- skattur, 20% skemmtanaskattur og 5% miðagjald. „Við viljum sleppa við alla skatta nema virðisaukaskattinn til þess að geta haldið miðaverðinu niðri. Við höfum alltaf fengið undan- þágu þar til núna en til stóð að Sálin hans Jóns míns spilaði hér á balli. Þessar aðgerðir bæta ekki okkar málstað. “ -JJ Fjóra tíma frá Reyðarfjarðar „Venjulega er þetta um tíu min- útna skottúr milli Reyðaríjarðar og Eskiíjarðar en í gærmorgun vorum við hátt í fjóra tíma á leið- inni,“ sagði Jón Ólafsson, lög- reglumaöur á Eskifirði. Hann lagði af stað frá Eskifirði um hálfáttaleytið á sunnudags- morgni með tvo lögreglumenn frá Reyöarfirði og sjö ungmenni sem höföu orðiö veðurteppt á Eski- firöi. Hópurinn kom til Reyðar- fjaröar rétt fyrir hádegi. Þegar DV talaði við Jón í gær var hann í góðu yfirlætí á heimili lögreglu- manns á Reyöarfirði og taldi hann útséð um að hann kæmist aftur tíl Eskifjarðar fyrr en i dag þegar búið væri aö ryðja veginn á milli. „Færðin var ekki mjög slæm fýrr en viö komum inn í bæinn hér. Það sem hefti för okkar mest var bylurinn því ég sá varla fram fyrir bílinn á stundum. Það væsti ekki um neínn í bílnum, held ég, en ég var mest við hugann við veginn fram undan en skipti mér minna affarþegunum." -JJ Þórarinn V. Þórarinsson: Fyrirtæki verða aðskeraniður „Viö getum ekki haft áhrif á uppsagnir og endurráðningar. Þarna er t.d. um að ræða að dreg- iö er ur yfirborgunum. Það eina sem hægter að segja um ástandið núna er að fyrirtæki fara yfir hvern einasta kostnaðarlið og reyna af öllutn mætti aðná niður framleiðslukostnaöinum og á þann hátt tryggja áframhaldandi rekstur fyrirtækjanna,“ segir Þórarinn Viðar Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands Tslands, um ásak- anir forystumanna í verkalýðs- hreyfingunni um að fyrirtæki segi fólki upp tii að geta ráðið það á ný á lakari kjörum. Hann segir jafnframt aö matar- hlunnindi, feröir og fleira um- fram samninga sé í endurskoðun hjá sumum fyrirtækjum. „Þessi hlunnindi kosta fyrir- tækin mikið en eru e.Lv. ekki að sama skapi mikils virði fyrir starfsmennina. Það mætti nefna Þetta líísbaráttu fyiirtækjanna," segirÞórarinn. -em - sjá einnig bls. 6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.