Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1993, Síða 3
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1993.
3
Nú er nægur snjór og þvi tilvalið að
búa til snjókarla og kerlingar. Þess-
ir knáu kappar gerðu smáhlé á verk-
inu meðan ijósmyndarinn athafnaði
sig. Síðan var haldið áfram. Myndin
var tekin við Hábraut i Kópavogi.
DV-mynd GVA
Fiskmiðlun Norðurlands:
1500tonn
seldaf
Rússafiski
Heimir Kristinsson, DV, Dahrflc
Frá því í október hefur Fiskmiölun
Norðurlands hf. á Dalvík flutt til
landsins um 1.500 tonn af fiski af
rússneskum togurum. Sjö togarar
hafa komiö og landað á eftirtöldum
stööum: Akureyri, Húsavík, Sauðár-
króki, Akranesi, Höfn í Hornafirði,
Stöðvarfirði og Reyðarfirði.
Hilmar Daníelsson, framkvæmda-
stjóri Fiskmiðlunar, sagði að nú heföi
dregið úr þessum viðskiptum þar
sem þessi fiskur hefur verið seldur í
blokk til Ameríku en þar væri nú
lækkandi verð og sölutregða. Hér
eftir yrði þó reynt að ná beinum sam-
böndum við rússneska útgerðaraðila
en undanfarið hafa þessi viðskipti
farið gegnum umboðsaðila á Norður-
löndum.
íbúum fækk-
ar í Eyjum
- og konur mun færri
Ómar Gaxöarsson, DV, Vestmannaeyjum;
Eftir nokkra fjölgun í Vestmanna-
eyjum síðustu ár fækkaði íbúum um
66 frá 1. desember 1991 til 1. desemb-
er 1992, Úr 4933 í 4867.
í prósentum er fækkunin 1,3% en
ef tölur yfir látna og fæðingar eru
skoðaðar á þessu tímabili dekkist
myndin. Fæðingar frá 1. des. 1991 til
1. des. 1992 voru 112 en látnir 28.
Mismunurinn er 84 og hafa því 150
manns flust héðan á þessu 12 mánaða
tímabili.
Þessar upplýsingar fékk blaðið hjá
Áka Heinz Haraldssyni á bæjarskrif-
stofunum. Annað sem vekur athygh
er hvað karlmenn éru hér í miklum
meirihluta. Þann 1. desember voru
2557 karlar í Eyjum og 2310 konur.
Mismunurinn hvorki meiri né minni
en 247.
Þriðja atriðið er minnkandi hlut-
deild Vestmannaeyinga í mannfjölda
á landinu. Árið 1982 var hún 2% en
1,9% 1992. Ef sama hlutdeild í mann-
fjölda hefði haldist væru íbúar í Vest-
mannaeyjum nú 5132 og vantar því
267 til að ná því marki.
Ólafsfirð-
ingum fjölgar
Helgi Jónsson, DV, Ólafefiröi:
Ólafsfirðingar voru 1201 þann 1.
desember sl. og fjölgaði um 32 á árinu
samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Hagstofu íslands. Þaö er fjölgun upp
á 2,7%. Karlar voru 614 en konur 587.
Flestir hafa Ólafsfirðingar orðið
1207 árið 1978.
Fréttir
Bakslag í sölu silungs er
sænski markaðurinn brást
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkráki;
„Það er frekar dauft yfir þessu
núna og ekki útht fyrir neinar veið-
ar í vetur þar sem mjög þunglega
horfir með sölu. SUungurinn þykir
sjálfsagt frekar dýr matur og það
slær fyrst í bakseghn með sölu á
slíkri vöru þegar kreppuhijóð kem-
ur í mannskapinn," segir Bjami
Egilsson á Hvalnesi í Skefilsstaða-
hreppi í Skagafirði, formaður
Vatnafangs, félags silungsveiði-
bænda.
Bjami telur að menn horfi frek-
ast til sölu á ferskum silungi í sum-
ar en ljóst sé að ekkert verði selt
af frystum flökum á þessu ári. Síö-
asta ár var talsvert verra hvað sölu
varðaði en árið á undan. Sænski
markaðurinn fyrir frystu flökin
brást og salan á ferska silungnum
var líka götótt.
Undanfarin ár hefur ríkt nokkur
bjartsýni um að bændur geti nýtt
sér veiðar í vötnum sem góða bú-
bót og aukabúgrein. Almennt
sýndu bændur þessu ekki nægjan-
legan áhuga og nú virðist hins veg-
ar komið bakslag í sölu afurðarinn-
ar.
Hjálpargagn
fyrir heimilisbókhaldið
og skattframtalið
Eitt af markmiöum íslandsbanka er oð standa vel
ab upplýsingagjöf til vibskiptavina bankans. Þeir eiga því kost á ab fá
heildaryfirlit yfir vibskipti sín vib bankann á árinu 1992.
Á vibskiptayfirlitinu kemur fram staba innlána og skulda vibskiptavinarins
um áramót, ásamt ýmsum upplýsingum um vexti og margt fleira.
Hér er um ab rœba hjálpargagn sem kemur ab góbum notum vib heimilis-
bókhaldib og þá ekki síbur vib gerb skattframtalsins.
Þú pantar yfirlitib í nœstu afgreibslu íslandsbanka, þjónustugjald er 190 kr.