Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1993, Síða 12
12
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1993.
Spumingin
Á hvaða tónlistarmanni
á íslandi hefur þú
mestar mætur?
Valgarður Jóhannsson sjómaður:
Björk Guðmundsdóttur Sykurmola.
Irene Quagraine skiptinemi: Björk
Guðmundsdóttur.
Halla Sigurðardóttir húsmóðir:
Kristjáni Jóhannssyni.
Jón Veturliðason verktaki: Kristjáni
Jóhannssyni.
Óli örn Hlöðversson nemi: Eigum við
ekki að segja að ég hafi mestar mæt-
ur á Daníel Haraldssyni í Nýrri
danskri.
Hermann Agnar Sverrisson mat-
reiðslunemi: Þorvaldi B. Þorvalds-
syni.
Lesendur
Fyrst Saddam,
síðan Bosníuvandinn
Herfræðilega rétt er að beina spjótunum að írak svo lengi sem Saddam
ríkir,“ segir bréfritari m.a. í viðbragðsstöðu á Persafióa. Simamynd Reuter
Ólafur Guðmundsson skrifar:
Mér finnst ekki sanngjarnt hvemig
sumir frammámenn og jafnvel leið-
togar vestrænna ríkja gagnrýna
Bandaríkin og hinn svokallaða fjöl-
þjóðaher fyrir að ráðast nú til atlögu
gegn Saddam Hussein, einvaldi í Ir-
ak, fyrir að bijóta skilmála þá sem
honum voru settir eftir lok Persa-
flóastríðsins. Þessir aðilar segja sem
svo að vesturveldunum væri nær að
taka á vandanum í Bosníu og fara
jafnvel með her manns inn í ríki fyrr-
um Júgóslavíu til aö skakka leikinn.
Menn skyldu aðgæta það að þetta
er tvennt afar ólíkt. Saddam Hussein
hefur hvað eftir annað hótað „hei-
lögu stríði" gegn Bandaríkjunum og
vesturlandaþjóðunum öllum. Hann
er ekkert á þeim buxunum að gefast
upp og ætlar sér þegar færi gefst að
ráðast yfir landamærin til Kúveit og
jafnvel annarra ríkja í grennd við
írak. Sem betur fer verður ekki
stefnubreyting í Bandaríkjunum
gagnvart Saddam við forsetaskiptin.
í stríðinu í fyrrum Júgóslavíu hef-
ur ekki veriö lýst stríði gegn öðrum
ríkjum. Þama er um innanlandsófrið
að ræða og þótt þama séu fádæma
hörmungar, óöld og mannfall af völd-
um hungurs og stríðandi afla þá yrði
ekki á bætandi ef herir annarra þjóða
drægjust inn í átökin.
Einnig er þar hætta á ferðum vegna
þess aö í Bosníu búa múshmar sem
eiga sér trúbræður um alla litlu-
Asíu, þ.á m. í írak, og fæm vestur-
veldin með hemaði inn í Júgóslavíu
myndi Saddam sjá sér leik á borði
með því að lýsa stuðningi við músl-
ima Evrópu og án efa hefjast handa
gegn Vesturlandaþjóðum með öllum
tiltækum ráðum. Það er þvi her-
fræðilega rétt að beina spjótunum að
írak svo lengi sem Saddam ríkir. Ef
baráttunni við Saddam lýkur með
falli hans er auðveldara að kljást viö
ógnaröflin innan Júgóslavíu.
En Saddam er slóttugur og hann
gerir allt til að halda vesturyeldun-
um við efnið við landamæri íraks án
þess þó aö þurfa að þola árásir á land
sitt. Með þessu móti rýrir hann mátt
vesturveldanna til afskipta annars
staðar. Og væntir þess um leiö að
magna stríð á Balkanskaga. Það er
því kappsmál að ljúka stríðinu við
Irak sem fyrst og á það leggja Banda-
ríkjamenn áherslu fyrst og fremst.
Þeir ætla ekki að berjast á tvennum
vígstöðvum samtímis. Af því er feng-
in slæm reynsla. Það er svo spuming
hvort það er ekki Evrópubúa sjálfra
og heija þeirra einna að skakka leik-
inn í Júgóslavíu.
Um almenna dansþátttöku
- leiðrétting
Gunnar Þorleifsson skrifar f.h.
„Komið og dansið“:
í DV sl. mánudag lýsir forseti Dans-
ráðs íslands skoðun sinni á starfsemi
„Komið og dansið“, samtökum
áhugafólks um almenna dansþátt-
töku á íslandi. í umsögn hans fer
hann rangt með menntun þeirra að-
ila sem reka starfsemi „Kom og
dans“ í Noregi. Sidsel og Johan
Fasting eru meðal best menntuðu
danskennara í Noregi, m.a. frá
Folkedansstudiet við háskólann í
Þrándheimi.
í erindi prófessor Egil Bakka, fluttu
í Norræna húsinu í sept. sl., kom
fram hve jákvæð áhrif starfsemi
„Kom og dans“ hefur haft á dansá-
huga í Noregi og hve vönduð og fag-
leg uppbygging Uggur að baki þessari
tegund sveiflu sem um 300 leiðbein-
endur starfa við. - Forseti Dansráðs
íslands hlýddi á umræddan fyrirlest-
ur hins virta prófessors í dansi, Egil
Bakka, og hafði því forsendur til að
segja rétt frá.
Samtökin „Komið og dansið" vilja
jafnframt vernda íslenska dansa og
hafa tekið þátt í gerð sjónvarpsþátta
í samstarfi við prófessor Egil Bakka.
- Meö heimild frá „Kom og dans“ í
Noregi er hugmyndin um að læra
létta sveiflu á 2 dögum útfærð með
stuttum og skemmtilegum nám-
skeiðum sem eiga miklum vinsæld-
um að fagna, og líklega er enginn
dómbærari á árangurinn en þátttak-
endur sjálfir. - Við óskum dansskól-
unum velgengni í starfi og trúum því
að fólk sæki sér frekar dansskólavist
eftir námskeiðin en áöur.
Snjómottur Axels
Jón Baldur Þorbjörnsson bíltækni-
ráðgjafi skrifar:
Á minn fyrri vinnustað heimsótti
mig stundum maöur að nafni Axel
Eiríksson og ræddi við mig um
möguleika þess að prófa og gefa
umsögn um uppfinningu sína, snjó-
eða spólmottur fyrir bíla. - Snjómott-
ur þessar eru ílangir dreglar úr mjög
gripgóðu og meðfærilegu efni og með
pinnum sem enn auka á gripið. Ef
bíll spólar í snjó, sérstaklega þar sem
ís er undir, eru mottumar settar þétt
við hjólin. Við það ná þau gripi og
losa bílinn.
Aðstæðnanna vegna varð aldrei
neitt úr þessum prófunum fyrir Ax-
el. Hvort tveggja var aö ef gera hefði
átt óvéfengjanlegar og vísindalegar
prófanir í nafni fyrirtækisins hefði
kostnaðurinn orðið allnokkur og
eins vantaöi einfaldlega góöan snjó
þessa síðustu vetur.
Axel eftirlét mér engu að síöur
Hrmgið í síma
632700
miUiki. 14ogl6-eðasferifið
Naftnogsíwaw. veröur aö fylKlabiöfum
Mottur Axeis í notkun. Þær þyrftu sem flestar bílhlutaverslanir að bjóða
upp á.
tvær mottur og það er óhætt að segja
að það sem af er vetrinum hafa þær
oft komið sér ótrúlega vel. Vera má
að ég ljóstri með þessum orðum ein-
hveiju upp um aksturshæfnina en
þess ber að geta að ég ek á nagla-
lausu og þessar mottur hafa auðveld-
að mér það til muna.
Eftir þá góðu reynslu sem ég hef
af snjómottunum hans Axels fæ ég
ekki séð að þær þurfi nokkurrar vís-
indalegrar úttektar við, til að sanna
gildi sitt. Miklu frekar þurfa þær að
verða almenn eign bóeigenda hið
fyrsta og gagnast þannig sem ein-
staklega einfaldur en áhrifaríkur og
íslenskur hjálparbúnaður á snjó-
þungum vetrum. - Þaö hefði t.d. ver-
ið kjörið fyrir eiganda aldrifna bOs-
ins sem ég ýtti úr skafli við Vífils-
staði nýlega að hafa svona mottur
meðferöis.
DV
Viii nubrögð hjá
Njarðvíkurbæ
Ægir Már Kárason skrifar:
Fólk í Njarðvíkurbæ er fremur
óhresst með vinnubrögöin sem
tíðkast hjá bæjarfélaginu. Fyrst
er að taka snjómoksturinn þegar
hreinlega er mokað af götunni og
upp í innkeyrslur fólks svo að
erfitt er að komast ferða sinna.
Fólk kvartar líka yfir því að ekki
skuli sett upp skýli þar sem rút-
urnar stoppa þannig að t.d.
krakkar á leíð í skóla í Reykjavík
verða að bíða útí. í veðrum og
vindum þvíbiöskýliðer ekki opn-
að fyrr en miOi kl. 9 og 10.
Einnig fer fjöldi fólks til vinnu
fyrir kl. 8 og það þarf einnig aö
dúsa úti, vegna lokunar biðskýl-
isins. í einu orði; ófremdar-
ástand.
Þættirnir Reynistaöarbraiður,
er fluttír voru í útvarpinu á rás
1 tvo sunnudaga í röð, eru að
mínu mati besta útvarpsefnið
sem flutt hefur verið þar um lang-
an tíma. Efnið er mjög áhugvert
þótt hðin séu rösk 200 ár frá þvi
þessir sorglegu atburðir geröust.
Klemenz Jónsson leikari, sem
búið hefur þættina til flutnings,
hefur greinOega viða leitaö fanga.
LeOcarar og lesarar voru ekki
valdir af verri endanum.
Frammistaða þeirra allra var
mjög góð og tónlist milh atriða
smekklega valin. Ég vona að út-
varpað veröi meira af svona góðu,
þjóðlegu efni á næstunni.
„Andsvört£ og
„undirboð£(
Þórður hringdi:
Mig furðar alltaf þegar verið er
að tala um að t.d. þingmenn veiti
„andsvar" þegar þeir svara fyrir-
spumum. Þetta er hvimleið mál-
lýska og ég held að oröið sé held-
ur ekki til í íslensku máli, nema
bara sem önnur mynd á orðinu
„svar“ sem er þá betra að nota.
Þá svara þeir.
Annað leiðindaorð er á flækingi
milli fiölmiðlamanna, nefnOega
oröið „undirboð" sem þeir eru
famir aö nota i neikvæðri merk-
ingu. Undirboð er einfaldlega þaö
þegar einhver býður lægra í verk,
vöru eða þjónustu en aðrir sem
keppast um að ná tiltekinni vöru
eða framkvæmdum. Er eitthvað
jjótt við það eöa óeðlOegt?
Fólksbílareda
Stefanía hringdi:
Nú á að kynna sérútbúna íjalla-
bíla til aö draga ferðamenn til
landsins aö vetrarlagi. Þetta
minnir mig á þá tísku, eða hvað
maður á að kalla það, þegar göt-
urnar hér í borg eru að fyllast af
einhveijum tegundum fjallabíla
eða trukka sem eru með hjól á
stærð við traktorshjól. Þessir bO-
ar eru plássfrekir og erfiðleikum
bundið að mæta þeim og einnig
að sjá fram fyrir þá. Helst er að
reyna að horfa undir þá, svo há
eru hjólin.
En grínlaust; er ekki bara kora-
inn tími tO að rýma tO fyrir þess-
um ferhkjum og banna venjulega
fólksbOa? Víða erlendis er þessu
þó öfugt fariö og svona drekar
bannaöir á venjulegum umferð-
argötum innan borga.
Vaxtalög frá ASÍ
Einar Þorsteinsson hringdi:
Margir launþegar eiga sem bet-
ur fer nokkurt sparifé. Það er
a.m.k. ekki ósk þeirra að ASÍ
ráðskist með vaxtastefnuna í
landinu. Nóg er nú að gert aö
krefjast félagsgjalds tíl félaga sem
margfr vOja áreiðanlega vera
Iau8ir við?