Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1993, Síða 28
40
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1993.
Sviðsljós
v
Baldur Haraldsson og Bjarni Olafsson tóku hraustlega til matar sins.
KR-ingarblót-
uðu þorrann
KR-ingar komu saman í Félags-
miðstöðinni við Frostaskjól um síð-
ustu helgi og blótuðu þorrann. Yfir-
kokkur var Jóhannes Stefánsson,
Troels Bendtsen sá um veislustjóm
og séra Pálmi Matthíasson var ræðu-
maður kvöldsins.
Ennfremur var boðið upp á söng,
dans og alls kyns uppákomur svo og
happdrætti þar sem m.a. voru þrjár
utanlandsferðir í vinning.
Pálmi Matthíasson, Finnur Björnsson, Helgi Jóhannesson og örn Steinsen
voru á þorrablóti KR-inga. DV-myndir ÞÖK
Menning
Úr einu atriði Bensínstöðvarinnar.
Skrautleg fjölskylda
Það er óhætt að lofa þeim, sem fara að sjá Bensín-
stöðina í uppsetningu Nemendaleikhússins, að þar
leiðist engum.
Heiðgulur Renault „braggi" stendur á sviðinu sem
er skáhallandi pallur yfir þvert leikrýmið í Lindarbæ.
Fomfáleg bensíndæla stendur þama líka og súla með
símasjálfsala. Meira þarf ekki til þess að leikurinn
geti hafist enda er Grétar Reynisson, höfundur leik-
myndar, búinn að koma þessu öllu haganlega fyrir.
Leikritið er eftir franskan höfund, Gildas Bourdet,
og Friðrik Rafnsson hefur þýtt það á lifandi (og oft
krassandi) mál.
Eldfim ástamál á bensínstöð
Þetta er nútímaverk og fjallar um fjölskyldu, sem
býr á bensínstöð, einhvers staöar á ótilgreindum stað
úti á landi.
Þó að bensínið sé búið af dælunni er nóg af eldsmat
á staðnum því að þarna býr kona ásamt þremur gjaf-
vaxta dætram sínum. Þær eru allar logandi af ástar-
þrá og gott ef ekki frúin líka. Bríminn blossar svo upp
sitt á hvað og ekki alltaf „réttir" menn sem verða fyr-
ir logunum.
Úr þessum ástamálum verða ýmsar skrýtnar flækjur
og það er ljóst að skopskyn höfundarins ræöur ferð-
inni fremur en einhver samfélagsleg úttekt á stöðu
konunnar. Systurnar eru engar hispursmeyjar og það
er ekkert skafið utan af hlutunum, hvorki í orðum
né athöfnum.
Karlmennirnir, sem koma við sögu, fá ekkert of góða
útreið og era eiginlega dregnir sundur og saman í
verkinu, hver öðram hallærislegri. Mér fannst líka
höfundur fara inn á vafasama braut með því að nota
þroskahefta persónu til að vekja hlátur. En Hilmar
Jónsson, einn af gestaleikurunum í sýningunni, gerði
sem betur fór ekki meira úr því í túlkun sinni en efni
stóðu til.
Hlutverkin gefa nokkuð jöfn tækifæri, sem leiklistar-
nemar og gestaleikarar nýta vel, þó að kvenhlutverkin
vegi að öðra jöfnu þyngra. Af karlhlutverkunum er
það helst Samson, bifvélavirkinn, sem fær einhverja
fyllingu og Hinrik Ólafsson nær þessum karakter al-
veg frábærlega vel. Þröstur Guðbjartsson (gestur) út-
færir líka pabbann skemmtilega.
Jóna Guðrún Jónsdóttir er í bitastæðu hlutverki
Leildist
Auður Eydal
Mód sem elskar einn út af lífinu en er samt í þann
veginn að giftast öðrum. Hún er ólgandi og sexí og
Jóna Guðrún nær tilfinningasveiflunum vel.
Björk Jakobsdóttir, Teresa, er líka fín i hlutverki
kennslukonunnar sem reynir að vera formfóst í öllu
kaosinu á bensínstöðinni. En sú gríma er fljót að falla
ef færi gefst á vænlegum karlpeningi.
Heildarframvindan í sýningunni er lífleg og hvergi
dauður punktur.
Það verður gaman að fylgjast með þessum hópi nem-
enda sem áreiðanlega hefur lært mikið á því að takast
á við þetta náttúrumikla nútímaverk undir hand-
leiðslu Þórhalls Sigurðssonar leikstjóra.
Nemendaleikhúsið sýnir i Lindarbæ:
Bensínstööina.
Höfundur. Gildas Bourdet.
Þýðing: Friðrik Rafnsson.
Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson.
Leikmynd: Grétar Reynissson.
Búningar: Helga Stefánsdóttir.
Lýsing: Grétar Reynisson.
Framtalsbónus
staðgreiðsluafsláttur af
öllum kæli- og frystiskápum
frá AEG til 10. febrúar.
Umboðsmenn um land allt.
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF
Lágmúla 8, sími 38820.