Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1993, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR1993
Fréttir
Hárlaus og með bólgnar axlir eftir vist í fangaklefa á Selfossi:
Segir tvo lögreglumenn
haf a ráðist á sig
- trítilóður og greip í pung lögreglumanns, segir lögreglan
„Þaö komu tveir hraustlegir lög-
reglumenn inn í klefann og réöust
að mér. Ég tók á móti en þetta end-
aöi með því að ég missti stóra hár-
flygsu af höfðinu, var handjámað-
ur og er nú óvinnufær vegna
eymsla í öxlum þar sem snúið var
upp á handleggina á mér. Ég hélt
að menn með læti í klefunum væru
látnir í friöi þar sem þeir gefast
vanalega upp og sofna en það á víst
ekki við um mig,“ segir Ólafur
Bjömsson, 24 ára Selfyssingur, við
DV.
Ólafur er afar óhress með þá
meðferð sem hann segist hafa feng-
ið í fangaklefa lögreglunnar á Sel-
fossi á laugardagskvöld og ætlar
að kæra máhð. Um aðdraganda
þessa segir Ólafur:
„Við vorum að skemmta okkur á
laugardagskvöldið, við höfðum
drukkið. Við stoppuöum lögreglu-
bíl og báðum lögguna að keyra
okkur á skemmtistað. Löggan
keyrði okkur hins vegar beint á
stöðina þar sem nöfnin okkar vom
tekin niður. Lögreglumennimir
vissu hvar ég á heima og í einhveij-
um hálfkæringi nefndi ég því ann-
að heimilisfang. Það þoldu þeir
ekki og mér var stungiö inn. Þaö
var heldur snubbóttur endir á gleð-
inni og baröi ég því hressilega á
dymar og æpti dágóöa stund. Þá
gerðist það sem ég lýsti hér að df-
an.“
Ólafur leitaði á bráðavakt heilsu-
gæslustöðvar Selfoss á sunnudags-
kvöld þar sem hann kvartaði um
óþægindi í öxlum og báðum hand-
leggjum. Segir meðal annars í
skýrslu heilsugæslulæknisins:
„Það sýnir sig að það vantar tölu-
vert hár efst á hvirfli sem hefur
verið rifið úr. í ljós kemur allnokk-
ur bólga og mar aftan á öxlum."
Ólafur vinnur á krana hjá bygg-
ingarverktaka og segir lækni hafa
mælt með aö hann ynni ekki í þess-
ari viku.
Trítilóður og greip
um pung lögregluþjóns
„Það voru teknir þrír piltar úti á
götu þar sem þeir vom búnir að
loka götunni með búkkum og gang-
brautarhellum. Þeir vom allir öl-
vaðir en einn sýnu mest, Ólafur.
Sá vissi ekki einu sinni hvar hann
átti heima og sneri bara út úr og
brúkaði munn. Mér fannst því að
hann ætti að fá að hvíla sig hjá
okkur enda hafði hann staðið fyrir
því aö loka götunni. Þá varð dreng-
urinn trítilóður, lamdi og barði og
greip í punginn á öðmm lögreglu-
þjóninum sem kom í klefann. Sá
bjargaði sér síðan með því að taka
í hárið á honum. Það urðu þarna
mikil átök sem enduðu með því að
maðurinn var yfirbugaður, járnað-
ur og bundinn. Þegar hann svo ró-
aðist vom tekin af honum böndin,
hann lagður til á dýnu og teppi
breitt yfir. Það er allt í lagi þó menn
skemmti sér og smakki vin en þeir
verða að bera ábyrgð á því sem
þeir gera,“ sagði Guðmundur-Hart-
mannsson, varðstjóri hjá lögregl-
unni á Selfossi, en hann var á vakt
á laugardagskvöld.
-hlh
Einn maður slasaöist i höröum árekstri sem vaið í Ártúnsbrekku um miðjan dag í gær. Ökumaður jeppa á leið
niður Ártúnsbrekkuna missti vald á bil sínum í hálku og fór yfir á rangan vegarhelming. Þar lenti hann framan
á fólksbíl sem var að koma úr gagnstæðri átt. Sá bíll endasentist á þriðja bílinn. Kalla þurfti á tækjabíl slökkviliðs-
ins en þegar til kom þurfti ekki að nota klippur til að ná ökumanni fólksbílsins úr fiakinu. Hann var fluttur á slysa-
deild en mun ekki hafa verið alvarlega slasaður. DV-mynd Sveinn
Mat á eignum Hagvirkis-Kletts væntanlegt á næstu dögum:
Ólíklegt að eignir nægi
- segir Ragnar Hall, bústjóri þrotabús Fómarlambsins
Menntaskólinn á Akureyri:
Nemendum
Gylfi Krimjánsaon, DV, Akureyri:
„Ég vll leggja það til í skóla-
nefhd aö skólinn verði laus vlð
reyklngafólk á næsta vetri," segir
Tryggvi Gislason, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri.
Tryggvi segir að í dag reyki inn-
an við 10% nemenda skólans.
Ekki sé vitað nákvæmlega hvert
hlutfallið sé en það sé alveg Ijóst
aö talan sé lægri en 10%. „Hér
eru reyklausir bekkir og reyndar
er það meirihluti bekkjanna,“
segir Tryggvi.
Br þeim nemendum, sem
reykja, gert orfitt fyrir að stunda
þá iðju sina?
„Þeim er i rauninni úthýst og
ég ætla ekki að taka reykingafólk
í heimavist skólans næsta haust.
í þrengslum, eins og eru hér,
bæði í skóla og í heimavist, eru
reykingar til mikilla vandræða
fyrir utan það hversu þetta er
heilsuspillandi og mikill sóða-
skapur," segir TryggvL
Brotiðblaði
sögu Flugleiða
Ægir Már Kázason, DV, Suðurrteajuro:
Flugleiðir tóku í gær formlega
í notkun 12.500 m2 nýbyggða við-
haldsstöð á Keflavíkurfiugvelli.
Þar veröur vinnustaöur 160-170
starfsmanna tæknisviðs félags-
ins, sem flestir hafa unxúð í
Reykíavfk fram til þessa.
„Hér er brotiö blað í sögu Flug-
leiða, hér er einnig brotið blað í
íslenskri tækniþróun því að þetta
er í fyrsta skipti sem sköpuð hef-
ur verið viöunandi aðstaöa á ís-
landi til viöhalds flugvélum. Meö
þessu roikla mannvirki staðfesta
Flugleiðir í verki þann vi}ja aö
festa íslenskt flugvélaviðhald enn
frekar í sessi hér á landi. Með
byggingu viðhaldsstöövarinnar
hér vonast félagið einnig til að
byggja upp atvinnulíf á Suður-
nesjum. Hingað flyst nú 160
manna vin»u$taður,“ sagði Hörð-
ur Sigurgestsson, stjórnarfor-
maður Flugleiöa, við opnunina.
„Það er verið að meta eignimar
sem bent var á til kyrrsetningar. Því
starfi er ekki lokið en mér skilst hins
vegar að það sé mjög langt komiö.
Ég býst nú ekki við því aö þeir geti
bent á eignir sem geta tryggt alla
kröfuna," segir Ragnar Hall, bústjóri
þrotabús Fómarlambsins, áður Hag-
„Við spurðumst óformlega fyrir
um það hvort rækjuvinnslan í Bol-
ungarvík væri til leigu yfir sumar-
mánuðina. Þetta er hins vegar komiö
svo stutt á veg aö það er ekki vert
að ræða það. Málið er í skoðun,“ seg-
ir Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Haraldar Böðvarsson-
virkis hf.
Ragnar sagði aö búast mætti við
að um eða eftir helgina yrði sýslu-
manni í Hafnarfirði tilkynnt niður-
staða mats á eignum Hagvirkis-
Kletts. Þá kemur í ljós hvort fyrir-
tækiö verður gjaldþrota. Við kyrr-
setningarkröfuna á eignum Hagvirk-
ar hf. á Akranesi.
Loðnuskip HB eiga alls um þúsund
tonna rækjukvóta en fyrirtækið
starfrækir ekki eigin vinnslu. í fyrra
lönduðu þau á Akureyri og Siglu-
flrði. Haraldur segir það hins vegar
kost fyrir fyrirtækið að taka rækju-
vinnslu Einars Guðfinnssonar á
is-Kletts var forráðamönnum gert að
benda á eignir upp á 370 milljónir
króna, sem þeir gerðu, og síðan hefur
mat á þeim eignum farið fram. Sýslu-
maðurinn í Hafnarflrði skipaði mats-
mennina. Heildarkröfur í þrotabú
Fómarlambsins nema 1200 milljón-
um. -Ari
leigu og vinna þannig rækjuna sjálft.
Fyrir skömmu tók HB síldar-
bræðsluna á Bolungarvík á leigu. Þar
hafa loðnuskip fyrirtækisins landað
um 4 þúsund torujum. Allar þrær
voru fullar í gær. Leigusamningur-
inn rennur út 3. apríl enda líklegt að
loðnuvertíöinniverðiþálokið. -kaa
Haraldur Böðvarsson hf. á Akranesi:
í skoðun að vinna
rækju í Bolungarvík
Stuttar fréttir
Töbak hækkar um 18%
Skattheimta ríkisins af vindl-
ingum eykst um fjórðung sam-
kvæmt frumvarpi um tóbaks-
gjald. Smásöluverö hækkar um
18% að mati umboösmanns fyrir
tóbak.
ASÍhótar
Forseti ASÍ segir að ef ekki
komist hreyfing á eiginlegar
samningaviðræöur næstu daga
muni verkalýðsfélögin búa sig
undir að grípa til aðgerða.
Enginn spamaður
Ekki tókst að lækka útgjöld
vegna sjúkratrygginga eins og
stefnt var að á siðasta ári. Þau
fóm 11 miUjarða króna fram úr
áætlun í fyrra.
Samstarf víð útlendinga
Birgir Rafn Jónsson, formaður
Félags íslenskra stórkaupmanna,
telur æskilegt að leita samstarfs
við erlend skipafélög til að lækka
flutningskostnað.
Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur dæmt fyrrverandi yfirlyfja-
fræðing á Landakoti til 15 mán-
aöa fangelsisvistar og til að greiða
3 milljónir króna í sekt. Hann
missir starfsleyfið í 2 ár.
Vaxtalækkun á næstunni
Forsætisráðherra sagði á Stöð
tvö að skilyrði til lækkunar vaxta
séu til staðar enda fari verðbólga
minnkandi og búast megi við
vaxtalækkun innan skamms.
Fleiri viðvörunarkerfi
Stóru öryggisþjónustufyrirtæk-
in í Reykjavík hafa selt margfalt
fleiri viðvörunarkerfi gegn inn-
brotum en á sama tíma í fyrra.
Reykjavíkurborg kynnir
Reykjavíkurborg ætlar aö veija
7,5 milljónum í að kynna HM í
handbolta sem ftam fer hér á
landi árið 1995.
Skúh Þorvaidsson í Hótel Holti,
Siguijón Sighvatsson, kvik-
myndaframleiöandi í Hollywöod,
og Hof hf., eignarhaldsfélag Hag-
kaups, hafa fengið umboð fyrir
Domino Pizzas á öllum Noröur-
löndum en undir þessu nafni cru
5000 staðir reknir um allan heim.
. -Ari