Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1993, Page 9
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR1993
9
ÚRönd
í Færeyjum
Nýir bílar eru svo til alveg
hættir að seUast I Færeyjum. Það
er mikil breyting frá því sem áður
var þegar Færeyingar keyptu
milli tvö og þijú þúsund bíla ár-
lega.
I janúar voru aðeins 12 nýir
bíiar skráöir og ekki er útlit fyrir
aö bOasalar nái betri árangri þeg-
ar liöur á áriö.
Þegar bílasalan var mest árið
1986 seldust 2603 bílar. MOdö dró
úr sölunni á síöasta ári og nú er
hún nánast aflögð.
Leika 23 áður
óþekktpíanó-
verk eftirGrieg
Norðmenn ætla aö halda upp á
150 ára afmæli tónskáldsins Ed-
vards Grieg meö miklum látum í
sumar.
Hálfsmánaðar hátiö verður í
Björgvin, heimabæ listamanns-
ins. Þar veröa m.a. leikin 23 áður
óþekkt píanóverk eflr Grieg.
Þá verða þrjár uppfærsiu á
Pétri Gaut og ætlar Ingmar Berg-
man aö leikstýra einni þeirra.
Heimskunnir listamenn koma á
hátíðina sem á aö auka hróður
Noregs og Griegs um öll lönd.
SviarogNorð-
menníhársam-
anútafrækju
Sænskir og norskir ráðherrar
ætla aö hittast nú x vikulokin og
reyna að finna lausn á deflumáli
sem sumum flnnst reyndar of
smátt til aö tvær siöaðar þjóðir
rífist um þaö.
Deilan stendur um að Sviar
vilja veiða 30 tonnum meira af
rækju i norskri iögsögu en Norö-
menn telja sig hafa heimilaö
þeim. Báðir aöilar segjast hafa á
réttu að standa hver sem niður-
staðan veröur eför sáttafundiim.
Clintonhefur
stóraukíðsöiuá
saxófónum
Saxófónsmiðir eru í skýjunum
þessa dagana vegna þess aö salan
hefur aldrei verið meiri. Þetta er
þakkað B01 Clinton Bandaríkja-
forseta, sem fór langleiöina í
Hvita húsiö á saxófónleiknum
einum saman.
Aörir stjórnmáiamenn reyna
aö herma þetta eftír. Þannig iæt-
ur Paul Keating, forsætisráð-
herra Ástralíu, sig hafa það aö
blása í saxófóninn í von um at-
kvæði. Þingkosningar standa fyr-
ir dyrum í iandinu.
NewYork
Könrnm í baraaskólum í New
York borg sýnir að ólæsi er i sókn
í níu af hvetjum tíu þeirra. Þetta
þykja ekki upporvandi niðurstöð-
ur því á undanfömum árum hef-
ur miklu fé verið variö í að gera
börn í borginni almennt læs.
MMUk MMg m «r
Eldflaugasmiður
brottrækur
■ Þýskaíttaði eldflaugasmiðurinn ;
Arthur Rudolph fær ekki að snúa
aftur tii Bandaríkjanna eftír aö
hann varð að afsala sér borgara-
réttindum áriö 1984 vegna
meintra stríðsglæpa.
Rudolph átti þátt í aö koma
mönnum til tunglsins. Hann er
86 ára gamaii og baö í upphafi árs
um að fá að snúa heim.
Fjórtán sjómönnum af linubát bjargaö naumlega í Færeyjum:
Dregnir á trillu
úr klettaskoru
- báturinn sat fastur í gjá undir Glyvrabergi á Suöurey
Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum;
Litlu munaði að fjórtán manna
áhöfn á línubátnum Kvikk frá
Klakksvík færist þegar skip hennar
rak upp í klettaskoru undir Glyvra-
bergi, nyrst á Suðurey.
Lán var að veður var sæmilegt
þannig að báturinn brotnaði ekki í
spón um leið og hann skorðaðist
milli kletta. Báturinn strandaði nú í
byijun vikunnar.
Skoran er hins vegar það þröng að
nærstaddir bátar komust ekki að til
að bjarga mönnunum. Engin leiö var
að bjargast á land og mönnum sýnd-
ist óráðlegt að róa á björgunarbát út
úr skorunni vegna sogs.
Það var ekki fyrr en trilla frá Suð-
urey kom á staöinn að tókst að bjarga
mönnunum. Trillan var það lítil að
hún komst að línúbátnum en aðeins
var hægt að ferja sjö menn í einu út
úr klettaskorunni. Öryggislína var
höfð í trilluna úr bát fyrir utan.
í síðari björgunarferð trillunnar
slitnaði línan en björgunarmönnum
tókst aö koma nýrri um borð áður
en bátinn rak upp í klettana og draga
trflluna út.
Kvikk var um 100 tonna línubátur.
Skipstjórinn ætlaði að láta reka en
er ekki viss um að hann hafi kúplað
alveg frá vélinni og sigldi línubátur-
inn því á hægri ferð upp í klettaskor-
una.
Eric Clapton hefur fyllstu ástæðu til að brosa eftir öll Grammy-verðlaunin sem hann fékk í gærkvöldi. Simamynd Reuter
Grammy-verðlaunin afhent í gærkvöldi:
Clapton sópaði að sér verðlaunum
Breski rokkarinn Eric Clapton var
maður kvöldsins þegar Grammy-
verölaun bandaríska hljómplötuiön-
aðarins voru afhent í Los Angeles í
gærkvöldi. Hann var verðlaimaður
sex sinnum, þar á meðal fyrir bestu
plötu ársins, bestu stóru plötu ársins
og besta lag ársins, en þessi þrenn
verðlaun eru eftirsóttust þeirra ailra.
Clapton sagði að viö hefði legið að
stóra platan „Unplugged" með laginu
„Tears in Heaven" heföi ekki verið
gefin út.
„Ég var sannfærður um að þetta
væri ekki þess virði að gefa það út,“
sagði hann eftir að hafa veitt viðtöku
verðlaununum fyrir bestu stóru
plötu ársins.
„Ég vildi ekki að þessi plata kæmi
út en féllst loks á að hún kæmi út í
takmörkuðu upplagi. Svo seldust
nokkur eintök og síðan nokkur í við-
bót og ég hugsaði með mér: „Af
hverju ekki að prófa þetta,“ og ég á
ekki orð yfir velgengninni."
Platan hefur selst í fimm mifijón
eintökum.
Lagið „Tears in Heaven" hlaut
verðlaun sem besta litla plata ársins
og sem besta lag ársins en Clapton
samdi það til minningar um son sinn
Connor sem lést fyrir tveimur árum
þegar hann féll út um glugga íbúðar
söngvarans á 53. hæð í háhýsi á
Manhattan.
Það varð fijótt Ijóst að Clapton var
maður kvöldsins. Gestgjafi veislunn-
ar, Gary Shandling, varaði áhorfend-
ur við eftir að Clapton hafði fengið
verðlaunin fyrir bestu stóru plötuna:
„Ef þið keppið við Eric í einhverjum
hinna flokkanna mundi ég fara heim,
í ykkar sporum."
Meöal annarra sigurvegara má
nefna k.d. lang sem var kjörin besta
söngkonan, Red Hot Chili Peppers
og Arrested Development.
Reuter
Lögrégluþjónar í Lundúnum
tóku á dögunum flóra starfs-
bræður sína dauðadrukkna á'bíl
í eigu iögreglunnar. Fjórmenn-
ingarnir voru ekki við skyldu-
störf og höföu tekiö bflinn í heim-
ildarleysi.
Þelr fóru saman út að skemmta
sér til að halda upp á stöðuhækk-
un eins þeirra. Aliar líkur eru á
að þeir verði nú afiir reknir úr
starfi fyrir brotið.
Moore er fegurðardrottn-
ing Bandaríkjanna.
Fyrslablökku-
konanfegurðar-
drottningí51ár
Kenya Moore, 22 ára gömul feg-
urðardís frá Detroit í Michigan,
hefur veriö valin fegurðardrottn-
ing Bandarikjanna. Valið var í
Wichita i Kansas og þótti Moore
bera af bæði í fegurö og gáfum.
Það þykir tíðindum sæta að
Moore er fyrsta blökkukonan í
51 ár sem hlýtur þennan titil.
Moore stundar háskóianám í
heimaborg sinni og fæst við leik-
list í frístundum.
Ítalskurfaðirí
einkastríði við
Danntorku
Ítalinn Bruno Poli er kominn i
einkastrlð við danska ríkiö vegna
þess að honum gengur ifia að
koma fram forræðiskröfu á hend-
ur fyrmm eiginkonu sinní. Hún
er dönsk og er með bam þeirra í
Danmörku.
Poli hefur fengið þingmenn á
Evrópuþinginu til aö taka máliö
upp og krefla Ðani svara um
hvort þelr hafi taríð að réttum
lögum í forræðisdeilu þeirra
hjóna.
Poli hefur oft komið frara í sjón-
varpi á Ítalíu vegna málsins og
er talinn hafa skaöað hagsmuni
Dana þar í landi með ófógrum
lýsingum á harðneskju víkinga-
þjóðarinnar fomu.
Samþykkirekki
erf ivtgja nema
meðblóðprófi
Hertoghm af Marlborough
krefst þess að sonarsonur hans
verði sendur í blóðpróf áður en
hann verður viðurkenndur sem
réttur erfingi aö titlinum eftir afa
sinn og fööur.
Hertoginn segir aö strákurinn
sé ekki rétt feðraður þvi tengda-
dóttirin. Rebecca Few Brown,
hafl haldiö fram fljá syni hans og
þannig hafi barnið komið undir.
Rebecca segir aö gamli maðurinn
sé ruglaður og enda enginn vafi
á hver sé faöir sonar hennar.
Hún segir aö það sé mjög niöur-
lægjandi fýrir alla aöila ef hún
íari með soninn í blóðpróf.