Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1993, Page 17
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
Sviðsljós
Fimm ættliðir
Þær voru stoltar, móðirin og ömmurnar, þegar þær stilltu sér upp með
hann Aron Kristin Antonsson. Snáðinn kom í heiminn fyrir þremur mánuð-
um og það er sennilega lítið vandamál fyrir foreldrana að fá barnapössun
með allar þessar ömmur. Móðirin heitir Ester Ósk Erlingsdóttir, 19 ára,
amman Fjóla Sigríður Hoblyn, 35 ára, langamman Pálína Ester Guðjónsdótt-
ir, 50 ára, og langlangamman Fjóla Guðrún Aradóttir, 68 ára. Því má svo
bæta við að pabbi Arons Kristins heitir Anton Kevin Antonsson.
DV-mynd Ægir Már Kárason, Suðurnesjum
Í7!
_____________________________Menning
Laugarásbíó - Geðkloflnn: ★★
Hver kippir
í spottana?
Brian DePalma giftist nýlega Gale Anne Hurd, fyrr-
verandi konu James Cameron, og þótti víst að þaö
myndi leiða gott af sér, því Gale Anne átti stóran þátt
í fyrstu og bestu myndum Camerons. Því miður verð-
ur Raising Cain ekki til þess að hifa orðstír DePalma
upp úr gröfinni sem hann gróf sér með Bonfire of the
Vanities.
DePalma semur sjálfur eigiö handrit, nokkuð sem
hann gerir óreglulega, síðast í Casuahties of War. Sag-
an fjallar um sálfræðing sem er tæpur á geði (eru til
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
Nokkur góð spennuatriði eru í Geðklofanum.
öðruvísi sálfræðingar í bíó?). Asamt illkvittnum tví-
burabróður sínum (sem er ekki víst að sé tO) og norsk-
um föður (sama þar) ræna þeir (hann?) ungum bömum
eftir að hafa myrt mæðumar. Pabbi gamh er með ein-
hveriar tilraunir í gangi í Noregi og góði bróðirinn er
ekki viss um að hann gúteri þetta, sérstaklega þegar
eitt af tilraimadýrunum á að vera hans heittelskaða
dóttir. í ofanálag er kona sála aö hugleið framhjáhald
með glæsilegum vonbiðh. Vondi bróðir sér sér leik á
borði að koma sökum á vonbiðilinn en góði bróðirinn
ætlar að reyna að gera konunni ljótan grikk.
Það fer ekki mikið fyrir góðmennskunni hjá þessum
persónum og það er erfitt að finna tU sainkenndar
með þeim. Verst að DePalma viU það endilega og eyð-
ir miklum tíma í rólegar senur sem eiga að fyUa út í
persónumar. Þær em bara sumar svo furðulegar að
árangurinn er þveröfugur: áhorfandinn fjarlægist sög-
una þegar hann þarf að hugsa um það af hveiju sé
endUega nærmynd af þessari klukku (og fær ekkert
svar). SífeUdar, ruglandi draumsenur sjokkera dáUtið
en draga úr spennunni á heUdina Utið.
DePalma hefur kvikmyndatæknina á hreinu og góð-
an leikhóp (sérstaklega Lithgow í þreföldu hlutverki),
þannig að myndinni er viðbjargandi, sérstaklega með
nokkrum góðum spennuatriðum. DePalma hefur þræl-
útreiknað hvert skot og hveija khppingu (eins og hann
gerir aUtaf með aðstoð teikniforrits) en myndin verður
einum of mekanísk fyrir vikið. Það vantar einhveija
væntumþykju um persónumar þannig að manni sé
ekki sama hver lifir eða deyr. DePalma er fær strengja-
brúðuleikari sem hefur vanrækt brúðumar sínar und-
anfarið.
Raising Cain (Band. 1992)
Handrit og leikstjórn: Brian DePaima (Untouchables, Bontire
ot the Vanities).
Leikarar: John Lithgow, Lolita Davidovitch, Steve Bauer
(Scarface), Frances Sternhagen (Misery).
MARKAÐURINN
ER í FAXAFENI 10.
HÚSI FRAMTÍÐAR
OPNUNARTÍMI:
MÁNUD. TIL FIMMTUD.
13:00 TIL 18:00
FÖSTUDAGA
13:00 TIL 19:00
LAUGARDAGA
10:00 TIL 17:00
SUNNUDAGA
13:00 TIL 17:00
HINN EINI SANNI
STÓRÚTSÖLUMARKAÐUR
ER í FAXAFENI 10
Við erum með stærstu og ódýrustu plötubúð landsins í Faxafeni 10. Húsi
Framtíðar, yfir 400 fm2 þar bjóðum við gríðarlegt úr val af Músík & Myndum
á verði sem á sér enga hliðstæðu. Margir hafa komið daglega. Þú skilur
afhveju, þegarþú mætirá svæðið.
ÞÚSUNDIR AF GEISLADISKUM! Á VERÐIFRÁ 99.- kr.
^ ÍSLENSK TÓNUST við opnum lagerinn okkar sem er sá
stærsti í heiminum.
Hundruðir titla á verði frá 99.-kr.
é
MYNDBÖND, James Bond, Clint
Eastwood, Strumparnir, The Pink
Panther, Lovers guide, ofl.
Úrvals efni með íslenskum texta
eða tali á verði frá kr . 990.-
BARNAEFNI; Barnalög, sögur og
leikrit í miklu úr vali á
kassettum, plötum,
geisladiskum og myndböndum.
d
TDK myndbandsspólur og tónbönd á
TILBOÐSVERÐI
Traustar Dugandi Kassettur með
margfaldri endingu umfram aðrar
tegundir. Myndbandsspólur frá Kr. 390,-
Tónbönd fráKR. 90,-
ENN EYKST ÚRVALIÐ!
Þessi stórútsölumarkaður er óvenjulegur
að þvíleyti að úrvalið eykst eftir þvísem
líður á útsöluna og enn bætum við um
betur! Það er meira og betra úrvai nú
heldur en þegar við opnuðum.
M U’S l i
M YND•
SENDUMíPÓSTKRÖFU
TÖKUM VIÐ PÖNTUNUM í SÍMA 91- 67 90 15
ALLA DAGA FRÁ 10:00 TIL 23:30